Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984 Flugmannadeilan: Verkfall boðað um helgina SATTAFUNDUR í Hugmannadeil- unni hefst á nýjan leik hjá ríkissátta- semjara kl. 9 árdegis í dag. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins buðu flugmenn upp á það í fyrrinótt að verkfallinu, sem átti að hefjast á miðnætti síðastliðnu yrði frestað, en Flugleiðir höfnuðu' því á þeim forsendum að tjónið væri þegar orðið með boðun verk- fallsins og fóru fram á að verkfall- inu yrði aflýst. Flugmenn urðu við þeirri ósk, og aflýstu verkfallinu, en fimm mínútum síðar um nótt- ina boðuðu þeir þriggja daga verk- fall um næstu helgi, hafi samning- ar ekki tekist. Eftir því sem Morgunblaðið kemst næst, hafa flugmenn nú fallið frá kröfunni um að fá 13. mánuðinn greiddan og mildað orðalag á öðrum kröfum verulega, a.m.k. sumum þeirra. Þó mun enn bera mikið í milli, svo sem það að Flugleiðir hafna kröfunni um greiðslu í sérstakan sjúkrasjóð og þeir hafna kröfunni um launajöfn- uð handa yngstu flugmönnunum. Eru heimildarmenn Morgunblaðs- Spurt og svarað Morgunblaðið minnir lesendur sína á, að eins og undanfarin ár býður blaðið upp á lesenda- þjónustu um garðyrkju og nú einnig um byggingamál. Lesend- ur geta komið spurningum sínum á framfæri í síma 10100 virka daga milli klukkan 13 og 15. Svörin birtast nokkrum dögum síðar. Blaðið hefur fengið Hákon ólafsson, yfirverkfræðing, og Pétur H. Blöndal, fram- kvæmdastjóra, til að svara spurningum varðandi bygg- ingamál. Hafliði Jónsson, garðyrkjustjóri Reykjavíkur- borgar, svarar, eins og undan- farin ár, spurningum er snerta garðyrkju. ins ekki bjartsýnir á að lausn deil- unnar sé í augsýn og hallast helst að því að viðræður í Karphúsinu muni dragast fram eftir næstu viku. Telja þeir þó að það muni herða aðila í að semja áður en verkfallið skellur á í næstu viku, að hvorugur aðilinn vill fá á sig lög um kjör flugmanna, sérstak- lega ekki flugmenn. Runólfur SH til Hafnar SALA á skuttogaranum Runólfi SH 135 til Hafnar í Hornafirði er nú nán- ast frágengin, en þar er nú enginn skuttogari fyrir. Guðmundur Runólfsson, útgerðar- maður í Grundarfirði og eigandi skipsins, sagði í samtali við blm. Morgunblaðsins, að nú væri aðeins eftir að ganga frá smáatriðum varð- andi söluna og hefði náðst sam- komulag um söluverð skipsins. Hann sagðist ekki vilja gefa það upp að svo stöddu hvert verðið væri. Sagðist hann reikna með því að fljótlega yrði endanlega gengið frá sölunni og yrði skipið væntanlega afhent seint í ág- ústmánuði næstkomandi. Aðspurður sagðist hann hafa í hyggju að fara í fiskeldi í stað útgerðarinnar og væri nú á förum til Noregs til að kynna sér slíkan rekstur. „Frábærir tónleikar“ Pólýfónkórinn, Sinfóníuhljómsveit íslands, söngvararnir Denia Mazzola, Claudia Clarich, Paolo Barbicini og Carlo de Bartoli fluttu í gærkvöldi Ave verum eftir Mozart, Te deum eftir Verdi og Stabat Mater eftir Rossini undir stjórn Ingólfs Guðbrandssonar. „Þetta voru frábærir tónleikar og stjórnandi og flytjendur voru hylltir í lokin," sagði Jón Ásgeirsson tónlistargagnrýnandi Mbl. eftir tónleikana. Þessar myndir tók Júlíus á tónleikunum í gærkvöldi. Á innfelldu myndinni eru einsöngvararnir og stjórnandinn. Blikksmiðafélag íslands: Formaðurinn felldur eftir að samningar voru samþykktir Kristján Ottósson, formaður Blikksmiðafélags íslands, var felld- ur í kjöri um formann félagsins á aðalfundi þess í fyrrakvöld, laust eftir að hann hafði kynnt nýgerðan kjarasamning og fengið samþykktan með öllum greiddum atkvæðum, en Sparisjóður vélstjóra: Síðdegisafgreiðsla til kl. 18 á föstudögum MBL. HEFUR borist frá Sparisjóði vélstjóra eftirfarandi tilkynning um breytingu á afgreiðslutíma spari- sjóðsins: „Sparisjóðurinn hefur ákveðið að frá og með 18. maí nk. verði afgreiðsla sparisjóðsins opin til kl. 18.00 á föstudögum en síðdegis- afgreiðsla fellur niður á fimmtu- dögum. Er ljóst að breyting þessi verður til mikils hagræðis fyrir launafólk, en viðskipti við almenn- ing eru aðaluppistaða starfsemi sparisjóðsins. Síðdegisafgreiðsla á fimmtudögum hefur ekki reynst vel og vill sparisjóðurinn með þessari breytingu verða við ein- dregnum óskum viðskiptamanna sinna um hentugri afgreiðslu- tíma.“ samningar blikksmiða höfðu tvíveg- is áður verið felldir. Samningur sá sem Kristján kynnti félögum sfnum var eins og sá samningur, sem önnur félög innan Málm- og skipasmiða- sambands fslands hafa samþykkt, að því undanskildu að einn launa- flokkur, 29. launaflokkurinn, hafði bæst við í samningi blikksmiðanna. Á fundinn voru mættir 86, þar af 78 fullgildir félagar með at- kvæðisrétt. Einar Gunnarsson bauð sig fram til formanns á móti Kristjáni, og varð niðurstaðan sú að Einar fékk 39 atkvæði, en frá- farandi formaður, Kristján Ottós- son, 35. 3 seðlar voru auðir og einn skilaði ekki sínum seðli. Afleiðing þessara úrslita í for- mannskjörinu varð m.a. sú að allir á stjórnarlista fráfarandi for- manns drógu framboð sitt til baka og sömu sögu er að segja um trún- aðarmennina. Auk þess drógu endurskoðendur félagsins til baka framboð sitt. Það vakti athygli þegar ný stjórn hafði verið kosin, að hún gerði uppástungu um að fráfarandi formaður félagsins yrði kjörinn endurskoðandi þess og varð hann við þeirri beiðni. Kristján Ottósson er einnig for- maður í fræðslunefnd blikksmiða- stéttarinnar. Fráfarandi formaður hvatti fé- laga í Blikksmiðafélagi íslands til þess, er úrslit lágu fyrir, að standa saman og styðja við bakið á ný- kjörinni stjórn og formanni, til þess að áframhaldandi uppbygg- ingarstarfi yrði haldið áfram í fé- laginu. Kristján Ottósson vildi ekkert segja um úrslit stjórnar- kjörs er blm. Mbl. ræddi við hann í gærkvöldi. Daglegt útvarp frá Alþingi: Frávísun vegna formgalla Útvarp sjálfsagt á tímum upplýs- ingamiðlunar, segja flutningsmenn Guðmundur Finarsson mælti í gær fyrir tillögu Bandalags jafnað- armanna til þingsályktunar um daglega beina útsendingu útvarps frá fundum Alþingis frá ársbyrjun 1985. Hann sagði almenning fá takmarkaðar upplýsingar frá störfum Alþingis frá degi til dags. Það væri undir hælinn lagt hvern veg málgögn flokk- anna segðu frá efnisatriðum og umræðum mála. Þingsíða Morg- unblaðsins, sem verið hefði eina frambærilega þingfréttasíðan á blaðamarkaðinum, virtist niður lögð, því miður. Almenningur hafi ekki tök á, nema í mjög litl- um mæli, að koma á heyrenda- palla þings. Það sé í anda nú- tíma upplýsingastefnu að gefa almenningi kost á að heyra dag- legan málflutning á Alþingi um útvarp. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, forseti sameinaðs þings, kvað tillögu þessa hina athygiis- verðustu. Hinsvegar verði að liggja ljóst fyrir að Alþingi sjálft sæi alfarið um fram- kvæmdina, ef horfið yrði að þessu ráði. Það samræmdist ekki stöðu Alþingis íslendinga að annar aðili en Alþingi sjálft sæi um framkvæmd þessara mála. Þessa væri ekki gætt í til- lögugreininni. Hún fæli í sér formgalla. Hann kvað þingskap- alög í endurskoðun. Þetta mál félli vel inn I hana. Flutti forseti þingsins rökstudda dagskrá um að vísa tillögunni til ríkisstjórn- arinnar. Guðmundur Einarsson (BJ) taldi þá réttara að vísa henni til þingskapalaganefndar með já- kvæðu orðalagi. Fleiri tóku til máls. Séra Garð- ar Svavars- son látinn Séra Garðar Svavars-son lést í fyrradag, 78 ára að aldri. Hann fæddist 8. september 1906 á Búðum í Fáskrúðsfírði, sonur Svavars Svavars kaupmanns þar og konu hans, Jónu Bjarnadóttur. Garðar tók stúdentspróf 1927 og cand. theol. próf frá Háskóla ís- lands í febrúar 1933. Hann stund- aði framhaldsnám í trúfræði við Uppsalaháskóla veturinn 1933— ’34. Hann var settur sóknarprest- ur í Hofsprestakalli í Álftafirði í apríl 1933. Var veitt lausn frá því embætti í júní 1937. Garðar gegndi prestsstörfum í Reykjavík frá október 1936 og var kallaður aukaprestur við Dómkirkjuna í april 1938. Honum var veitt Laug- arnesprestakall í janúar 1941. Hann var kristindómskennari við málleysingjaskólann í Reykjavík frá 1942, stundakennari við Gagn- fræðaskóla Reykjavíkur frá 1943, í stjórn Prestafélags Suðurlands fá 1942—1964. Ýmis rit og þýðingar liggja eftir Garðar, m.a. þýðingar úr Heimi bænarinnar eftir Hall- esby. Garðar var tvíkvæntur og eign- aðist 4 börn, öll með fyrri konu sinni. Eftirlifandi kona hans er Vivan S.A. Hólm. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.