Morgunblaðið - 11.05.1984, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 11. MAÍ 1984
3
ístak hf. byggir annan
áfanga flugstöðvarinnar
UNDIRRITAÐUR hefur verið samn-
ingur milli varnarmáladeildar utanrík-
isráðunejtisins og ístaks hf. um að ís-
tak taki að sér uppsteypu annars
áfanga flugstöðvarbyggingarinnar á
Keflavíkurflugvelli. Samningsupphæð
er tæpar 211 milljónir króna, sem er
rúmum 100 milljónum króna undir
kostnaðaráætlun. Skal verkinu lokið 1.
október á næsta ári.
Að sögn Sverris Hauks Gunn-
laugssonar, deildarstjóra varna-
deildarinnar, skal uppsteypu lokið 1.
júní á næsta ári, en glerjun og end-
anlegum frágangi 1. október. Þá
verður aðeins eftir bygging glervirk-
is og stefnt er að útboði þess verks
fljótlega á næsta ári. Ætlunin er að
flugstöðin verði tekin í notkun árið
1987 og sagði Sverrir Haukur að hér
væri um mikinn framkvæmdahraða
að ræða, en hann væri bjartsýnn á
ganginn. Hagvirki hefði staðið sig
mjög vel við fyrsta áfangann og
treysti hann ístaki í hvívetna til að
standa við sinn hlut.
Páll Sigurjónsson, framkvæmda-
stjóri ístaks, og Loftur Árnason,
verkfræðingur, sögðu í samtali við
blm. Morgunblaðsins, að tímaáætl-
unin væri mjög ströng, en ekkert
ætti að vera því til fyrirstöðu að við
hana yrði staðið. Þetta væri nánast
hefðbundin húsbygging, þó þetta
væri súluhús og með miklu af plöt-
um. Þá væri miklu af útveggjum lok-
að með áli og gleri og reiknuðu þeir
með að um 10 milljónir rúmmetra af
steypu færu í bygginguna. Aðspurðir
sögðu þeir, að þeim væri mögulegt
að vera svona langt undir kostnað-
aráætlun, þar sem stórir verktakar
hefðu mikla möguleika umfram aðra
á hagkvæmum efniskaupum og út-
boðum minni verkþátta, ættu mik-
inn tækjakost og réðu yfir velþjálf-
uðu starfsfólki auk fleiri þátta, sem
þarna skiptu máli. Þeir reiknuðu
með því, að um 80 manns ynnu við
bygginguna, þegar flest yrði, og
sögðust hafa mikinn áhuga á þvi, að
fá heimamenn í vinnu. Fyrirtækið
yrði með aðstöðu fyrir starfsfólk í
Keflavík og reiknað væri með því, að
steypuvinna hæfist í júní næstkom-
andi.
Afrek 5 ára drengs í Garðabæ:
Bjargaði tveggja ára
dreng frá drukknun
FIMM ára drengur í Garðabæ, R.
Páll Ragnarsson, vann það afrek á
þriðjudag að bjarga tveggja ára
frænda sínum frá drukknun í lækn-
um, sem rennur sunnanmegin
byggðakjarnans í bænum.
Litli drengurinn féll ofan í læk-
inn neðan við Lækjarfit á meðan
Páll brá sér aðeins frá, þar sem
hann var að leik með tveggja ára
bróður sínum og frændanum. Þeg-
ar hann kom til baka sá hann hvar
frændinn hafði dottið í lækinn.
Hann óð þegar út í lækinn, náði
taki á frænda sínum og hélt hon-
um á meðan bróðir hans hljóp eft-
ir hjálp. Móðir bræðranna kom
síðan og dró þá báða í land.
Frá undirskrift byggingarsamningsins. Við borðsendann sitja Páll Sigurjónsson og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, en
þeir undirrituðu samninginn fyrir hönd ístaks og varnarmáladeildar Morminbu«i4/Einiifa Bjttrg.
BLAÐ
MANAÐARINS
NEWS FROM HHAHD
Mánaðarlegt fréttablað á ensku gefið út af Iceland
Reviewv
Eintakið kostar aðeins kr. 25.
Flytur auk almennra íslandsfrétta það helsta
um viðskipti, efnahagsmál, stjórnmál,
sjávarútvegsmál, iðnað, menningar- og
ferðamál. Og svo auðvitað sitthvað
um fólk í fréttum hérlendis.
Það er auðvelt fyrir vini þína og
viðskiptamenn í útlöndum að fylgjast
með íslandsfréttum ef þeir fá
NEWS FROM KEIAND
Sendu þeim gjafaáskrift.
Greiði sem kostar þig sáralítið.
Leitaðu frekari upplýsinga og hringdu
í síma okkar 84966.
___ lcelandReview
Höföabakka 9, Reykjavík
IWfoKARNABÆR
I V LAUGAVEGI 66 - GLÆSIBÆ - AUSTURSTRÆTI 22
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 45800
.imort ./>..<5 naviv
.aifcii.1 jiitics ijjimjiAi ua iuójs
Umboösmenn okkar úti á landi eru:
í Reykjavík: Austurstræli 22 — Laugavegi 20 — Laugavegi 66 — Glæsibæ.
Úti á landi: Eplið — isafirði, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavik,
Álfhóll — Síglufirði, Nína — Akranesi, Ram — Húsavik, Bakhúsið — Hafnarfiröi,
Austurbær — Reyðarfirði, Kaupfél. Rangæinga — Hvolsvelli, Sparta — Sauðárkróki,
Skógar — Egilsstööum, ísbjórninn — Borgarnesi, Lindin — Selfossi, Patróna —
Patreksfirði, Báran — Grindavík, Þórshamar — Stykkishólmi, Hornabær — Höfn
Hornafiröi — Nesbær Neskaupstað — Verslunin Norðurfell, Akureyri.
'IWiIUi Oí> uil íiUlIií 1 8E USH .fcjjfiHl EIUU] Iiniidsu Iiuul nsiv oum