Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 21
MÖKGW>ÍBLÍA!ÐIÐ) LAmOARDML»R!t2MAl J9B4Y 2(1£ Skagafjörður: Uggur í skagfirskum bændum vegna beitarmála Varmahlíð, 7. maí. ANNAN maí síðastliðinn var hald- inn fundur í Árgarði í Lýtingsstaða- hreppi. Fundarboðendur voru Land- græðsla ríkisins, llngmennafélag ís- lands og Gróðurverndarnefnd Skagafjarðarsýslu. Var tilgangur fundarins að ræða um bcitarmál á Eyvindarstaðaheiði, svo sem sagði í fundarboði. Fjölmenntu bændur sem hagsmuna eiga að gæta á fund- inn, enda ekki furða þar sem fund- arefnið var um lífshagsmunamál þeirra. Fundarstjóri var tilnefndur Helgi Bjarnason, starfsmaður Landsvirkjunar. I upphafi skýrðu sérfræðingar rannsóknarstofnunar landbúnað- arins skýrslu frá 1983 um ástand gróðurs á Auðkúlu- og Eyvind- arstaðaheiðum. Kom meðal ann- ars fram í máli þeirra, að rann- sóknir sýndu ótvírætt minnkandi beitarþol og væri nú svo komið, að það væri aðeins orðið um 56% af útreiknuðu meðalgildi beitarþols á þessu umrædda svæði. Töldu sér- fræðingar að þetta ástand væri tilkomið einkum af köldu veður- fari undanfarin ár og miklu beit- arálagi, sérstaklega þessi köldu ár þegar gróður væri viðkvæmur. Það kom ótvírætt fram í máli sérfræðinganna að þeir legðu til að bannaður yrði upprekstur hrossa á heiðarnar. Landgræðslu- stjóri var einn frummælenda og lagði hann áherzlu á, að heima- menn létu álit sitt í ljós varðandi þetta mál, því ekki yrði undan því ekist að taka á því. í almennum umræðum sem á eftir fylgdu kom fram hjá flestum þeim heima- mönnum, sem til máls tóku, að ekki kæmi til greina að útiloka hrossin alveg. Hér þyrfti að finna einhvern milliveg, sem allir gætu sætt sig við. Formaður Skaga- fjarðardeildar hagsmunasamtaka hrossabænda gaf greinargott yfir- lit yfir arðsemi hrossabúskapar og þýðingu þessarar búgreinar fyrir fjölda bænda í Skagafirði. Er líða tók á fundinn kom fram tillaga, sem fól það í sér að leyfa skuli upprekstur hrossa á komandi sumri, svo sem beitarþol gæfi til- efni til. Fundarstjóri leyfði ekki að tillagan yrði rædd og sleit fundi án þess að hún yrði borin upp. Undrast margir þessa máls- meðferð fundarstjóra og spyrja sem svo: Til hvers hafi verið til fundarins boðað, ef álit heima- manna mætti ekki koma fram svo sem landgræðslustjóri hefði bein- línis óskað eftir. Eru margir heimamanna óhressir með um- ræddan fund og finnst sem enn á ný sé skorin upp herör gegn hrossabúskap á íslandi sem þó ómótmælanlega gefur fjölda bænda arð svo sem mjólkurfram- leiðsla og sauðfjárafurðir. Af þeim upplýsingum sem að framan greinir vaknar spurning- in, hvort virkilega sé almennt litið á hrossabúskap á íslandi sem tómstundagaman, þrákelkni eða bara mont. Finnst þá mörgum skagfirskum bóndanum sem held- ur en ekki sé að sér sorfið. Að lokum má geta þess, að síðustu sex ár — eða allt frá 1978 hefur stjórn upprekstrarfélags Eyvindarstaða- heiðar takmarkað upprekstur á heiðina með hliðsjón af ráðlegg- ingum Landgræðslu ríkisins og í fullu samráði við gróðurverndar- nefnd Skagafjarðar. — Páll spansvo Berðu saman mismunandi spamaðarleiðir sem bankarnir eru að bjóða þessa dagana. Athugaöu aö við bjóðum aðra leið: 6 mánaða BANKAREIKNING MEÐ BÓNUS. Öryggi: Pú mátt færa á milli verðtryggðra sem óverðtryggðra reikninga. Slíkt er nú aldeilis öryggisatriði ef verð- bólgan vex. Þægindi: Bankareikningurinn þarfnast ekki endurnýjunar. Engarferðir í bank- anná6mánaða fresti. Iðnaðarbankinn Fer eigin leiðir - fyrir sparendur. Vörumarkaöurinnhf. Ármúla 1A Eiðistorc

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.