Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 12.05.1984, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. MAÍ 1984 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS U*W1) If A i 1 Verndun Tjörnina Loifur Sveinsson Tjarnargötu skrif- ar: „Kæri Velvakandi, Margar atlögur hafa verið gerð- ar að Tjörninni í Reykjavík. I. Árið 1945 átti að byggja hótel við suðvesturenda hennar, en af því varð ekki til ailrar blessunar. Nú hefur björninn frá Vestur- Berlín ábúð á þessu svæði og kann vel við sig þar. II. Þann 29. desember 1955 var samþykkt í borgarstjórn að reisa ráðhús í Tjörninni. Með sameig- inlegu átaki margra góðra manna tókst að afstýra því, en mitt fram- lag var þetta. Ég tjáði ráða- mönnum, að enginn þekkti botn Tjarnarinnar betur en ég, því ég hefði komist upp í það að detta þrisvar í hana sama daginn, er ég var upp á mitt harðfrískasta sem barn. Tókst mér í krafti þessarar reynslu að sannfæra ráðamenn um, að Tjörnin væri botnlaus. Þessi vitleysa var því svæfð. III. Seint á 6. áratugnum var komið fyrir myndastyttu af haf- mey á nýgerðum hólma í suðvest- urenda Tjarnarinnar. Þar sem Tjörnin hefur sál og það stóra og viðkvæma sál, þá sprengdi hún þennan ljótleika af sér sjálf á gamlárskvöld 1959. IV. Þegar vinstri menn náðu meirihluta í Reykjavík árin 1978- 82, þá var gerð ein atlagan að Tjörninni enn. Reisa átti göngu- brú yfir norðurenda Tjarnarinnar og komið fyrir staurum þar til reynslu. Tjörnin hratt þessari at- lögu Sigurjóns laxavindils Pét- urssonar af sér. V. En nú heggur sá er hlífa skyldi. Borgarstjórn Sjálfstæð- ismanna hefur samþykkt að breikka Fríkirkjuveg langt út í Tjörnina, sem verða mun til ævar- andi lýta fyrir miðborg Reykjavík- ur. Ég skora á borgarstjórnar- fulltrúa að hætta við þetta áform, en snyrta alla bakka Tjarnarinnar þess í stað. Þegar ég var 5 ára datt ég í Tjörnina, en var bjargað á síðustu stundu. Ég tel mig eiga miklar skyldur við Tjörnina í Reykjavík, sem var leikvettvangur æsku minnar. Hún átti kost á lífi mínu, en tók það ekki. Þessir hringdu . . Minnumst frú Jóhönnu Guðmundur Halldórsson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Sjómenn, útgerðarmenn, fisk- verkendur. Minnumst frú Jó- hönnu Tryggvadóttur Bjarna- son, minnumst baráttu hennar fyrir heilsurækt og bættum við- skiptakjörum. Hennar barátta er okkar barátta. Margir vilja en fáir þora. Gódar kartöflur en ekki vondar Ágústa Agústsdóttir, söngkona, hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Ég vil gjarnan koma á framfæri skoðun minni á þess- um ágætu finnsku kartöflum sem allt er að verða vitlaust út af hér í bænum. Ég kaupi mikið af kartöflum þar sem ég er með stórt heimili og í gær sauð ég kartöflur fyrir 25 manns og þær voru allar heilar. Ég segi það ekki að það komi fyrir að ég fái skemmdar kartöflur en það gild- ir bara jafnt um þær íslensku og þær erlendu. Hins vegar held ég að þetta sé alveg makalaus della sem gripið hefur um sig og ég bara veit ekki hvað Reykvík- ingar eru að hugsa. Það eru mörg önnur mál sem gjarnan mætti æsa sig útaf frekar en þetta kartöflumál. Satt að segja finnst mér þess- ar finnsku kartöflur bara með þeim albestu sem ég hef fengið. Það var fyrir skömmu boðið upp á hollenskar kartöfur sem mér fannst ekki eins góðar. Það mætti gjarnan finna ein- hvern merkilegri málaflokk en þessar kartöflur til að þrefa um. Að lokum vil ég bara biðja að heilsa Finnum, því þeirra fram- leiðsla er yfirleitt ekki nema á einn veg, mjög góð. Og þessu á rétt si svona að kyngja Húsmóðir í Kópavogi hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Ég varð heldur betur reið er ég sá í gær í Morgunblaðinu til- kynningu, sem við eigum rétt si svona að kyngja, um að nú færi verð á landbúnaðarvörum hækk- andi. Á öðrum stað í sama tölu- blaði er frétt um það að við búum við offramleiðslu á mjólk vegna ofeldis á kúm. Kjarnfóðrið verður til þess að kýrnar fram- leiða meiri mjólk. Á sama tíma er mjólkin hækkuð og ég vil að verð á mjólk og skyri haldist óbreytt á meðan kýrnar eru að jafna sig vegna ofneyslu kjarn- fóðurs. Það eru nógu miklir erfiðleik- ar sem barnafólk þarf að horfast í augu við og nú er enn verið að auka á erfiðleikana með þessu. Ég tel að ríkisstjórnin sé skyld- ug til þess að finna leið til að halda verði á nauðsynjavörum niðri svo að það sé viðráðanlegt fyrir almenning einnig. Þeir ættu frekar að hækka verð á lúxsusvörum og vonandi hafa þeir vit til að greina á milli þess hvað eru nauðsynjavörur og hvað eru lúxusvörur. Lipurt afgreidslufólk Sverrir Sverrisson hringdi og hafði eftirfarandi að segja: Mig langaði að koma á fram- færi þakklæti mínu til starfs- fólksins í Hagabúðinni. Þjónusta þeirra er frábær og ákaflega lip- 'ur. Þau eru kurteis við alla þá er þarna versla og háttvís í alla staði. Mig rak í rogstans að mæta öllum þessum þægileg- heitum starfsfólksins þegar ég fór að versla hjá þeim. Það mæitu gjarnan fleiri verslanir taka framkomu þeirra í Hagabúðinni sér til fyrirmynd- ar. Sumarið 84 Upp aö vegg og fristandandi. Mjög hagstætt verð. Setjum upp húsin ef fólk óskar. Innréttingar í sendibíla Kerrur, 3 stæröir Þ.á m. hestaflutningakerrur. Fólki til hagræðis höfum við opið næsta laugardag og sunnudag (12. og 13.5, báða dagana frá kl. 13—17 og sýnum ofantalda muni og fleira. Gisli Jónsson & Co hf Sundaborg 41, simi 86644

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.