Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 15.05.1984, Blaðsíða 44
Opið alla daga frá kl. 11.45-23.30. AUSTURSTRÆTI22. INNSTRÆTI, SlMI 11633. Opiö öll fimmtudags-, föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. AUSTURSTRÆTI 22, INNSTRÆTI, SÍMI 11340 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 20 KR. „Var búinn að sætta mig við dauðann“ Segir Agnar Daðason, sem horfði á félaga sinn hverfa í sjóinn er bátur þeirra sökk við Hrollaugseyjar „ÉG var búinn að sætta mig við dauðann — það var ekkert til ráða þar sem ég hékk á gúmmídruslunni. Eiríkur frændi minn var horfinn, ég var orðinn magnþrota, kaldur, hafði drukkið mikinn sjó og þurfti að hífa mig upp úr sjón- um til þess að ná andanum, en sökk jafnharðan og ég var bú- inn að gefa upp alla von um að björgunarbáturinn blési sig upp,“ sagði Agnar Daðason, þrítugur Heykvíkingur í sam- tali við Mbl. en hann sýndi mikið þrekvirki þegar hann bjargaðist eftir að 22 feta bát- ur sökk skammt fyrir austan Hrollaugseyjar skömmu fyrir hádegi á sunnudag. 57 ára gamall félagi hans, Eiríkur Gíslason, drukknaði. Agnar segist ekki gera sér grein fyrir hve lengi hann var í sjónum, en ekki ólíklegt að það hafi verið hátt í klukkustund. „Ég man ég hugsaði: Jæja, þá fæ ég loks að sjá hvernig um- horfs er hinum megin. Ég var sannfærður um að það var að- eins spurning um sekúndur hvenær ég sykki, ekki mínútur. Enginn möguleiki var að synda, straumþungt var og þung alda og 6 til 7 vindstig. Eg var gjör- samlega bjargarlaus í sjónum. Þá skyndilega varð eins og sprenging í sjónum og báturinn blés sig upp. Ég neytti síðustu krafta, en gekk erfiðlega að komast um þorð. Einhvern veg- inn tókst það þó. Eftir það man ég lítið — ég mun hafa skotið neyðarblysi en man ekki hve- nær. Mér var mjög kalt, tókst ekki að loka bátnum, svo sjór lak sífellt inn. En ég var sann- færður um að mér yrði bjargað. Það var stórkostlegt að heyra vélarhljóðið og sjá andlitin á bjargvættum mínum — skip- verjunum á Sigurði ólafssyni," sagði Agnar. Agnar sat í káetu þegar bát- inn skyndilega fyllti af sjó. Það var eins og eitthvað brysti við stefni bátsins. „Ég var skyndi- lega á kafi í sjó og báturinn sökk á 2 til 3 mínútum. Við komum björgunarbátnum út og ég togaði í spottann til þess að blása bátinn upp og spyrnti báðum fótum, en hann blés sig ekki upp. Við héldum okkur á floti með því að halda okkur í bátinn. Þrátt fyrir hetjulega baráttu missti Eiríkur tak á gúmmídruslunni, og hvarf fyrir öldu. Ég sá hann ekki meira — MorgunbUAið/KAX. Agnar Daðason á heimili sínu f Reykjavík í gær. allt virtist svo vonlaust og ég var búinn að sætta mig við dauðann, þegar báturinn blés sig upp,“ sagði Agnar. Sjá frétt og viðtöl á miðopnu. Seina- gangur hjá sím- virkjum FUNDUR símvirkja í 5. deild FÍS samþykkti í gær, að fara sér hægt við vinnu sína á næstunni og er það svar þeirra við stöðunni í kjaramála- baráttu þeirra. Ennfremur vilja þeir aö leiðrétt verði það launamisrétti, sem þeir segja vera milli BHM- manna hjá fyrirtækinu og annarra starfsmanna þess. Fundurinn samþykkti eftirfar- andi áiyktun: „Vegna stöðunnar í samningamálunum beinir fundur í 5. deild FÍS því eindregið til raf- eindavirkja hjá Pósti og síma, að þeir hemji starfsgleði sína og lagi afköstin að laununum." Valgeir Jónasson, ritari deildar- innar, sagði í samtali við Morgun- blaðið, að á þessu stigi væri seina- gangur eina vopnið í kjarabaráttu þeirra. Þeim væru ekki boðnar neinar kjarabætur og þeir sættu sig ekki við það, að BHM-menn hjá fyrirtækinu fengju 20 yfir- vinnutíma greidda ofan á unninn tíma mánaðarlega meðan aðrir fengju það ekki. Fríhöfnin á Keflavíkiirflugvelli: Hömlur á notkun íslenzku krónunn- ar felldar NÚ hafa verið felldar niður hömlur þær, sem verið hafa í gildi við verzlun með íslenzkum krónum í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli við brottrór og komu til landsins. Verður mönnum nú heimilt að verzla fyrir ótakmarkaða upphæð í íslenzkum krónum. Kinu hömlurnar eru þær reglur sem gilda um innflutning tollfrjáls varnings samanber innflutning á áfengi og tób- aki. Hreinn Loftsson, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu, sagði í sam- niður tali við Morgunblaðið, að fyrri hömlur hefðu verið felldar niður um helgina og væri það í framhaldi niðurfellingar á sérstökum ferða- mannaskatti á gjaldeyri. íslend- ingar hefðu lýst því yfir að þeir myndu fara eftir 8. grein reglna Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins þess efnis, að aðildarþjóðir hans séu ekki með fjölgengi eða aðra mismunun gagn- vart einstökum gjaldmiðlum. Því mætti segja að íslenzka krónan væri loks í fullu gildi í Fríhöfninni. Nauðgunarmál- ið rætt á Alþingi NAUÐ<«UN1N og nauðgunartilraun- in á llverfisgötu aðfaranótt sunnu- dagsins komu til umræðu í efri deild alþingis í gærkvöld er Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, þingmaður Kvennalista, kvaddi sér hljóðs utan dagskrár. Hún beindi fyrirspurnum til dómsmálaráðherra vegna með- ferðar þeirrar, er málið fékk í Saka- dómi Reykjavíkur, m.a. hvort ráð- herrann teldi hana eðlilega. Hún spurði einnig hvort ráðherrann teldi eðlilcgt, að maður, sem játað hefði svo stór brot, gengi nú laus í bæn- um. Loks spurði Sigríður Dúna hvort dómsmálaráðherra hygðist beita sér fyrir endurskoðun á viður- lögum við nauðgunum, sem hún teldi allt of væg. í svari Jóns Helgasonar dómsmálaráðherra kom fram að skv. upplýsingum, sem hann hefði fengið, hefði ríkissaksóknari kært úrskurð sakadóms til Hæstarétt- ar. Myndi rétturinn væntanlega segja sitt álit í dag, þriðjudag. Dómsmálaráðherra tók undir það, að þörf væri endurskoðunar á við- urlögum við brotum sem þessum. t umræðunum tóku einnig til máls Helgi Seljan og Stefán Bene- diktsson. Helgi kvað þennan at- burð og fleiri slíka sýna og sanna, að endurskoðunar væri þörf á við- urlögum; einnig væri brýn nauð- syn á breytingu hugarfars al- mennings gagnvart nauðgunum og ekki síður þolendum slíkra af- brota. Stefán sagði m.a. í fram- haldi af upplýsingum ráðherra um að umræddur maður hefði verið úrskurðaður í farbann, að það væri umhugsunarefni hvers reykvískar stúlkur ættu að gjalda fram yfir þær, sem byggju annars staðar á landinu. Sjá nánar á bls. 2. Morgunblaðið/GH. Harður árekstur varð á Vesturlandsvegi við Leirvogsá um klukkan 14 í gær. Bifreið hlaðin fóðurvörum lenti á pallbíl af Datsun-gerð og valt fóðurflutningabíllinn. ökumenn begffla bifreiðanna voru fluttir í sjúkrahús. Á meðfylgjandi mynd sést er fóðurvörunum var dælt á milli bifreiða. I gærmorgun varð einnig harður árekstur fólksbifreiðar og vörubíls á mótum Lækjargötu og Reykjanesbrautar í Hafnarfirði. Ökumaður fólksbílsins var fluttur á sjúkrahús. Báðir bílarnir eru mikið skemmdir. Rainbow Navigation: Fær að minnsta kosti 90 % af flutningunum ÞAÐ ER NÚ Ijóst aö bandaríska skipafélagið Rainbow Navigation mun hljóta að minnsta kosti 90% vöruflutninga fyrir Varnarliðið á Keflavík- urflugvelli milli íslands og Bandaríkjanna. Ennfremur er Ijóst, að ís- lenzku skipafélögin hafa engar farmpantanir fengið síðan föstudaginn 4. maí og að Bakkafoss, sem siglir frá Bandaríkjunum 18. maí, mun engar vörur flytja fyrir Varnarliðið. Baldvin Berndtsen, fram- kvæmdastjóri skrifstofu Hafskips í New York, sagðist hafa fengið það staðfest, að Rainbow Navigat- ion fengi alla beina flutninga á vegum Varnarliðsins, en íslenzku skipafélögunum stæði til boða að flytja búslóðir og bíla Varnar- liðsmanna. Það þýddi í raun, að íslenzku skipafélögin misstu um 90% flutninganna fyrir Varnarlið- ið og ennfremur væri það ljóst, að Rainbow Navigation fengi einnig búslóða- og bílaflutninganna, ef þeir væru með laust skip á þeim tíma, sem slíkir flutningar stæðu fyrir dyrum. Þetta væri því mjög alvarlegt mál fyrir íslenzku skipa- félögin og stofnaði í hættu mögu- leika þeirra á að halda uppi vöru- flutningum milli ísiands og Bandaríkjanna. Eins og fram hefur komið í fréttum, mun Rainbow Navigation aðeins sigla frá Norfolk og hefur fengið leyfi til þess, að flytja þann varning, sem venjan hefur verið að skipa út frá New York, land- leiðina til Norfolk. Baldvin sagði, að það væri nú ljóst, að Rainbow Navigation myndi greiða kostnað við þá flutninga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.