Morgunblaðið - 20.05.1984, Blaðsíða 1
96 SIÐUR
STOFNAÐ 1913
114. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 20. MAÍ 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Maóistar
myrtu 35
Ayacucho, Ferú, 19. maí. AF.
UM 150 skæruliðar myrtu 35 manns í
litlu fjallaþorpi í l’orú sl. miðvikudag
o(» særðu 25. Að siign lögreglunnar
voru hér að verki maóistar úr skæru-
liðahreyfingu, sem kallar sig „Skín-
andi stíg“.
Morðin áttu sér stað í þorpinu
Pilicas í Andesfjöllum og segir
lögreglan, að skæruliðarnir hafi
smalað þorpsbúum saman á torg-
inu, kallað á 60 þeirra með nafni og
síðan hafið skothríð á þá. 35 þeirra
féllu en 25 særðust og sumir alvar-
lega. Ekki er vitað hvernig á þessu
grimmdarverki stóð nema ef vera
skyldi, að skæruliðarnir hafi með
morðunum viljað halda upp á
tveggja ára afmæli skæruliðahreyf-
ingarinnar, sem bar upp á sama
tíma.
Mestu fjöldamorð skæruliða áttu
sér stað á páskum í fyrra í þorpinu
Lucanamarca en þá myrtu þeir 67
manns. Að sögn stjórnvalda hafa
2500 manns fallið fyrir skæruliðum
þann tíma, sem þeir hafa verið að,
en þeir berjast fyrir því að koma á
marxískri stjórn í Perú.
Fjöldaáflog
í Bombay
Bombay, Indlandi, 19. maí. AF.
ÞÚSUNDIR hindúa og múhameðstrú-
armanna tóku þátt í allsherjarslags-
málum á götum úti í miðborg Bomhay
og hámarki náði ófriðurinn er öflugt
lið óeirðalögreglu kom á vettvang og
gekk milli bols og höfuðs á óeirða-
seggjum með sérstökum kylfum með
stálendum. 1 viðbragðsstöðu voru
byssuvopnaðar lögreglusveitir og var
þeim skipað að skjóta á fólkið er
kylfuliðinu gekk illa að lægja öldurn-
ar. 7 létu lifið, þar af 3 lögreglumenn.
Síðustu tvo dagana hafa því 22
látið lffið, 300 slasast og 650 verið
handteknir í óeirðum í Bombay og
síðast er fréttist benti allt til þess
að ný hrina slagsmála væri í upp-
siglingu.
Þetta eru verstu óeirðir í Bombay
í tvö ár og yfirvöld hafa lýst yfir
neyðarástandi, sett útgöngubann að
nóttu til og bannað mannamót all-
an sólarhringinn. Mikið eignatjón
hefur fylgt ólátunum, verslanir ver-
ið brenndar og bílum velt og eldur
lagður að.
Ferdinand Marcos
Manila, 19. maí. AF.
NÝJUSTU TÖLUR í þingkosningunum á Filippseyjum benda til þess að
flokkur Marcosar forseta hafi sótt verulega í sig veðrið og þó að stjórnar-
andstaðan hafi bætt fylgi sitt verulega og mjög víða, þá stefnir forsetinn og
flokkur hans í meirihluta atkvæða í nógu mörgum kjördæmum til að halda
meirihluta sínum á þinginu.
Um 183 þingsæti er keppt auk
þess sem Marcos skipar sjálfur í
17 sæti. Spáði forsetinn því fyrir
kosningarnar að flokkur hans
myndi hreppa 140 sæti. Kosn-
ingarnar eru hinar umfangs-
mestu og talið hefur verið sleitu-
laust í 6 daga. Eru línur farnar að
skýrast. Þar til á föstudag höfðu
kannanir bent til að stjórnar-
andstaðan myndi ná meirihluta
þingsæta, en í dag hafði Marcos
samkvæmt sömu könnunum náð
98 sætum gegn 85. Kvörtunum
um falsanir og svindl hefur fjölg-
að eftir því sem forsetinn og
flokkur hans hafa virst ná foryst-
unni, þannig hafa 32 kærur verið
bornar fram í hinum ýmsu kjör-
dæmum og þær rannsakaðar.
■■
Það var handagangur í öskjunni þegar ritan steypti sér yfir hákarlalifrina enda er hún vafalaust hið mesta hnossgæti. Myndina tók Friðþjófur á Grímseyjarsundi.
Marcos að ná
meirihluta?
írakar iðnir við
kolann í Persaflóa
Sökktu flutningaskipi frá Panama
Manama, Hahrain, 19. maí. AF.
STÓRT flutningaskip, „Fidelity",
skráð í Grikkklandi með fána
Panama viö hún, varð fyrir eld-
flaugaskeyti í Persaflóa, að öllum
líkindum frá íraskri herþotu, og
sökk með öllum farmi sínum. 21
áhafnarmeðlimi hafði verið bjarg-
að síðast er fréttist, 12 voru enn á
reki í gúmbát, en eigi var vitað
hversu margir voru um borð er
árásin var gerð. Er þetta nýjasta
dæmið af mörgum, að flutninga-
skip á Persaflóa verði fyrir árás
íraka sem hafa hótað öllum skip-
um öllu illu ef þau vogi sér að
sigla til hafna í íran.
- „Fidelity", var 17.000 tonna skip
og var á leið til Bandhar Khomeini
með fullfermi af stáli. Var skipið í
fylgd með öðru álíka að stærð,
„Cathy Mylo“, sem bjargaði eins
mörgum skipverjum og skipshöfn-
in treysti sér til af ótta við að
verða sjálf fyrir árás. Skipin voru
nærri Kharg-eyju, en þar mun að-
alhættusvæðið vera.
Mikið er nú rætt um hina vax-
andi spennu á þessum slóðum og
sýnist sitt hverjum um þær yfir-
lýsingar Bandaríkjastjórnar þess
eðlis að Bandaríkin muni ef um
verði beðið vernda vinveittar þjóð-
ir sem hagsmuna eiga að gæta.
Gary Hart, sem keppir að útnefn-
ingu sem forsetaefni Demókrata-
flokksins, sagði t.d. í dag, að
Bandaríkin ættu hvergi að koma
þar nærri. Það væri í verkahring
Evrópuþjóðanna sem fyrst og
fremst kaupa olíu af þessum slóð-
um. Ayatollah Khomeini, erki-
klerkur í íran, hvatti á hinn bóg-
inn þjóð sína til að gera sig klára í
„heilagt stríð" sem óhjákvæmilega
myndi blossa upp ef Bandaríkin
eða NATO færu að skipta sér af
gangi mála við Persaflóa.
Barist í nótt
í Beirút-borg
Hcirút. 19. maí. AF. ^ ^
FIMM menn létust og 44 særðust í bardögum, sem geisuðu í Beirút í nótt,
aðeins nokkrum stundum áður en þjóðstjórnin nýja ætlaði að koma saman til
að ákveða hvernig best væri að binda enda á stríðið i landinu.
Hundruð manna flýðu niður í
húsakjallara undan sprengjuregn-
inu og eldflaugunum og þrátt
fyrir, að leiðtogar fjandmanna-
fylkinganna skoruðu margsinnis á
menn sína að leggja niður vopn
kom allt fyrir ekki. Meðal þeirra,
sem féllu, voru menn úr stjórn-
arhernum.
Stjórnin átti að koma saman í
dag til að leggja síðustu hönd á
áætlun um endalok alls ófriðar í
landinu. Ef samkomulag tekst um
hana verður hún lögð fyrir þingið
til staðfestingar. í morgun sátu á
rökstólum í hálfa klukkustund
þeir Amin Gemayel, forseti, og
Walid Jumblatt, leiðtogi drúsa, en
ekki er vitað hvað þeim fór á milli.