Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 22. MAÍ 1984 Svör utanrfkisráðherra á Alþingi: Beiðni hvorki borist um ratsjár- né stjórnstöð FORMLEG beiðni hefur ekki bor- ist frá Bandaríkjamönnum um að reisa ratsjárstöðvar hérlendis. Ekki hefur heldur borist beiðni frá þeim um byggingu stjórnstöðvar á Kefla- vfkurflugvelli, en utanríkisráðherra upplýsti utanríkismálanefnd Al- þingis sl. föstudag um að kunnugt væri um áhuga Bandaríkjamanna á því máli og hefði m.a. verið sótt um fjárveitingar á Bandaríkjaþingi til byggingar slíkrar stöðvar. I framhaldsumræðum um skýrslu utanríkisráðherra á Al- þingi sl. laugardag, gerði Ólafur G. Einarsson grein fyrir svörum utanríkisráðherra við nokkrum spurningum, sem að honum var beint í fyrri hluta umræðnanna á Alþingi, en ráðherrann, sem staddur var erlendis, svaraði þeim á fundi utanríkismála- nefndar daginn áður. Varðandi ratsjárstöðvarnar fylgdi sú skýr- ing ráðherrans, að hann hefði tjáð sendiherra Bandaríkjanna hérlendis, að íslendingar væru ekki tilbúnir til að taka á móti formlegri beiðni um slíkar stöðv- ar. Við vildum fyrst ljúka athug- unum á málinu. í svörum ráðherrans við spurn- ingu Svavars Gestssonar um þátttöku íslendinga á þingi Al- þjóðavinnumálastofnunarinnar í sumar, kom fram, að ákveðið hef- ur verið að senda fulltrúa á það þing. Sendinefndin verður skipuð fulltrúum frá Alþýðusambandi Is- lands, Vinnuveitendasambandinu og félagsmálaráðuneytinu. For- maður sendinefndarinnar verður sendiherra íslands í Genf. Bjórfrumvarpið svæft með málþófi á Alþingi LJÓST var í gærkvöldi af viötölum við stjórnarliða, að þingsályktun- artillaga varðandi atkvæðagreiðslu um áfengt öl fær ekki afgreiðslu Alþingis að þessu sinni. Málið var tekið til umræðu í sameinuðu þingi sl. laugardag en það var tekið af dagskrá eftir langar umræður. Þá voru átta þingmenn enn á mæl- endaskrá og Ijóst af umræðunum, að andstæðingar þjóðaratkvæða- greiðslu um áfengt öl ætla sér að halda uppi málþófi, ef málið kem- ur á ný á dagskrá. Guðmundur H. Garðarsson framsögumaður fyrsta minni- hluta allsherjarnefndar samein- aðs þings gerði grein fyrir af- stöðu hans, en hann lagði til að tillagan yrði felld. Sagði Guð- mundur sína persónulegu skoðun þá, að þingmenn ættu ekki að víkjast undir ábyrgð með því að' vísa málinu til þjóðarinnar. Þingmönnum bæri að segja af eða á og kvaðst hann myndu greiða atkvæði með heimild til bruggunar og sölu á áfengu öli, ef frumvarp þess efnis kæmi til atkvæða á Alþingi. Svavar Gestsson formaður Al- þýðubandalagsins tók í sama streng og Guðmundur H. Garð- arsson varðandi það, að með samþykkt tillögunnar væru þingmenn að víkjast undan ábyrgð, en kvaðst þó andvígur því að heimila áfengt öl. Hann sagði það ekki rétt, sem fram kom í máli Stefáns Benedikts- sonar Bandalagi jafnaðarmanna í umræðum um málið, að stjórn- málaflokkarnir hefðu enga stefnu í áfengismálum, og því gæti fólk ekki kosið málsvara sína í þeim efnum til þings. Hann kvað Alþýðubandalagið hafa stefnu í málinu og er Stefán greip fram i fyrir honum og krafði hann svara um hver sú stefna væri, sagði Svavar: „Al- þýðubandalagið hefur stefnu. Ég fullyrði að meirihluti þing- flokksins er á móti rýmkun reglna um áfengislöggjöfina." Hann lýsti því síðan yfir að hann myndi greiða atkvæði gegn frumvarpi Jóns Magnússonar o.fl. sem liggur fyrir Alþingi þess efnis að heimiluð verði bruggun og sala áfengs öls, ef það kæmi til atkvæða á þinginu. í lok umræðnanna á laugardag kom fram breytingartillaga við þingsályktunartillöguna frá Hjörleifi Guttormssyni. Hún fjallar um, að í stað almennrar atkvæðagreiðslu um áfengt öl álykti Alþingi að fela ríkis- stjórninni, að láta~ fara fram „vandaða og marktæka skoðana- könnun á .viðhorfum lands- manna til framleiðslu og sölu áfengs öls hérlendis." Kosningalög samþykkt en skoðuð milli þinga „Niðurstöður í frumvarpsformi á næsta haustþingi<( AÐ ÞVÍ er stefnt í dag, að frumvarp til breytinga á kosningalögum verði samþykkt, en að hin nýsamþykktu lög verði síðan tekin til endurskoð- unar á þingi næsta haust, eftir nán- ari könnun milli þinga, eins og seg- ir í ncfndaráliti sem lagafrumvarp- inu fylgdi. Frumvarpið til breytinga á kosningalögum var samþykkt eft- ir aðra umræðu í efri deild síð- degis í gær, óbreytt frá neðri deild. í áliti meirihluta stjórn- arskrárnefndar efri deildar segir, að einsýnt sé að setja ný kosn- ingalög á þessu þingi til sam- ræmis við stjórnarskrárbreyting- una, sem þingið hefur nú sam- þykkt. í álitinu kemur fram að nefndinni hafi ekki unnist tími til að taka frumvarpið til efnislegrar meðferðar. Síðan segir orðrétt: „Með tilliti til þessa samþykkir meirihluti nefndarinnar að mæla með frumvarpinu óbreyttu eins og það kemur frá neðri deild. Þessi tillaga nefndarinnar er gerð á þeirri forsendu að unnið verði áfram að málinu milli þinga og niðurstöður verði lagðar fram í frumvarpsformi á næsta haust- þingi.“ Undir meirihlutaálitið rita nefndarmenn úr Sjálfstæðis- flokki, Framsóknarflokki, Al- þýðuflokki og Alþýðubandalagi. Fulltrúi Bandalags jafnaðar- manna lagði hins vegar til að frumvarpið yrði fellt. 1 efri deild voru í gær afgreidd sem lög frá Alþingi frumvörp um Húsnæðisstofnun ríkisins, um að 70 manns fái íslenskan ríkisborg- ararétt, um íslenska málnefnd og höfundalög. Prjónakennsla í klaustrinu KONUR í Kvenfélagi kristskirkju heimsóttu nunnurnar í Karmelklaustrinu í Hafnarfírði í gær og kenndu þeim að prjóna úr íslenskum lopa. Systurnar ætla síðan að selja lopapeysur og slíkt og hafa þannig nokkrar krónur aukalega. Þóttu nunnurnar góðir nemendur og trúlega einhverjar prjónað áður þó ekki hafi það verið úr íslenzku bandi. Stúlka var hætt komin við köfun í Peningagjá SEXTÁN ára gömul stúlka úr Hafn- arfírði var hætt komin við köfun í Peningagjá á Þingvöllum á laugar- dag. Hún var ásamt félögum í Hjálp- arsveit skáta í Hafnarfirði viö köfun- aræfíngar í gjánni þegar henni fatað- ist sundið. Tildrög eru óljós, en svo virðist sem stúlkan hafi misst munnstykki og misst meðvitund. Stjórnandi æfinganna sá, að ekki var allt með felldu og var umsvifa- laust kafað eftir stúlkunni. Hún hafði misst meðvitund og hjarta hennar var hætt að slá þegar til hennar náðist. Lífgunartilraunir voru umsvifa- laust hafnar og beðið var um sjúkrabifreið með lækni austur. Lífgunartilraunir fóru fram í sjúkrabifreið Hjálparsveitar skáta, sem var við gjábakkann, og þeim haldið áfram á leiðinni til Reykjavíkur og báru þann árang- ur að stúlkan hóf að anda, en var áfram meðvitundarlaus. Stúlkan var flutt yfir í sjúkrabifreið í Mosfellssveit og flutt í Landa- kotsspitala. Hún komst til meðvit- undar á sunnudag og er líðan hennar góð eftir atvikum. Hjálparsveit skáta var með al- mennar björgunaræfingar á Þing- völlum þegar óhappið átti sér stað. Æfingar hófust með sigi í klettum og slæðingu í vatni og síðan hóf sjóflokkur sveitarinnar æfingar í Peningagjá. Námskeið í köfun hef- ur verið á vegum sveitarinnar í vetur og var stúlkan meðal þátt- takenda. Fjórir kafarar köfuðu í gjánni og voru tveir þeirra ný- komnir upp úr, en ásamt stúlk- unni var önnur við köfun þegar óhappið varð. Ljóst er að rétt og skjót viðbrögð manna í sveitinni björguðu lífi stúlkunnar. Aðalfundur Félags íslenskra rithöfunda: Skorar á ríkisstjórnina að bjóða Sakharov landvist „AÐALFUNDUR Félags íslenskra rithöfunda haldinn í Reykjavík 20. maí 1984 skorar á ríkisstjórn ís- lands að lýsa yfir aö hjónunum Andrei Sakharov og konu hans sé heimil landvist á íslandi. Jafnframt leiti ríkisstjórnin eftir því við sovésk stjórnvöld að þau leyfi Sakharov- hjónunum að flytjast úr landi. Rökin fyrir landvist Sakharov- hjónana á íslandi eru augljós og ættu einnig að vera augljós sov- éskum stjórnvöldum. Hér eru hvorki kjarnorkustöðvar né kjarn- í KVÖLD klukkan 20.30 efna Sam- tök um vestræna samvinnu og Varð- berg til fundar á 2. hæð Hótels Esju þar sem Francois de Tricornot de Rose, sendiherra frá Frakklandi, mun tala um nýjar víddir í vörnum Evrópu. Samtök um vestræna samvinnu og Varðberg ljúka vetrarstarfinu í ár með þessum fundi, en langt er um liðið síðan áhrifamaður um frönsk öryggismál hefur talað á fundum félaganna. Francois de Rose var á sínum tíma fasta- orkuver af neinu tæi og verða ekki í framtíðinni, en ein helsta rök- semd sovéskra yfirvalda í þessu máli er, að Sakharov sé kjarnorkufræðingur og því sé ekki hægt að hleypa honum úr landi af því að þekking hans kunni að nýt- ast andstæðingum Sovétríkj- anna.“ Ennfremur segir í ályktuninni: „Aðalfundur Félags íslenskra rit- höfunda bendir á að samskipti ís- lendinga og Sovétmanna hafa ætíð verið vinsamleg og töluverð við- fulltrúi Frakka hjá Atlantshafs- bandalaginu. Hann hefur nú látið af störfum í utanríkisþjónustunni fyrir aldurs sakir en er mjög virk- ur þátttakandi í umræðum um varnir og öryggi Frakka, Vestur- Evrópu og Atlantshafsbandalags- ins og leiðir til að treysta frið í veröldinni allri. f erindi sínu í kvöld mun hann taka mið af því sem nú er efst á baugi í umræðum um öryggi Evrópu. Fundurinn er ætlaður félags- mönnum í SVS og Varðbergi og gestum þeirra. skipti eiga sér stað.milli þjóðanna. Hér í Reykjavík er 80 manna sendiráð Sovétríkjanna starfandi svo augljóst er að stjórnvöld þar telja samband og samvinnu við ís- lendinga mikilsverða. Þekking Sakharovs í kjarnorkufræðum gæti engum komið að gagni á ís- landi en hér fengju hann og kona hans að lifa í friði og þyrftu ekki árstíðabundið að fara í hungur- verkfall til að vekja athygli um- heimsins á þeirri staðreynd að í Sovétríkjunum þykja þau ekki fýsilegir einstaklingar." Francois de Tricornot de Rose Fundur SVS og Varö- bergs að Hótel Esju

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.