Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.05.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 22. MAl 1984 25 Gústav Baldvinsson: „Ótrúlega lélegt hjá okkur“ Akureyri, 20. maí. Frá Aöalstaini Sigur- geirssyni, fréttamanni Morgunblaðsins. „ÞETTA VAR ótrúlega lélegt hjá okkur. Viö vorum yfirgengilega stressaöir og Þórsarar voru ein- faldlega miklu betri í þessum leik,“ sagöi Gústav Baldvinsson þjólfari KA eftir leikinn. „Ég vona bara að þetta fari upp á við hjá okkur. Við komumst ekki neðar. Ég verö að segja að mér finnst dómarar hér á landi vera orðnir allt of spjaldaglaöir og finnst að þeir ættu aö hugsa um að loka vasanum betur,“ sagði Gústav. Nói rekinn af velli: „Sparkaói í liggjandi mann“ Akureyri, 20. mai. Frá Aðalsteini Sigurgeirssyni, fréttamanni Morgunblaös- ins. „NÓI SPARKAOI í liggjandi mann og þess vegna rak óg hann útaf. En Mark klemmdi fætur hans að vísu áöur þannig aö Nói hafði ekki komist í burtu, og fyrir þaö fékk hann gult spjald," sagöi Friðgeir Hallgrímsson, dómari, aöspurður um ástæður þess að hann rak Nóa Björnsson af velíi. Mark Duffield KA-maöur fékk gult spjald er Nói fékk það rauða. Friögeir sagði aö leikurinn heföi veriö auödæmdur og prúðman- lega leikinn. Nói var aö vonum niðurdreginn eftir leikinn. „Mark klemmdi á mér fæturna þannig að ég komst ekki burtu og ég hef sennilega stigið á hann eöa danglaö í hann." sagöi Nói. • Halldór Áskelsson, Þórsari, sækir aö Erlingi Kristjánssyni, miðveröi KA, í leiknum á sunnudag. Morgunblaöiö/Guömundur. Áhorfendur og markaskorarar ÚRSLIT leikja í V-Þýskalandi. Marka- skorarar og áhorfendafjöldínn á leikj- unum: Werder Bremen — VFB Stuttgart 1—2 (0-0) Mörkin: 0—1 Ásgeir Sigurvinsson (62.), 1—1 Benno Moehlmann (72.), 1—2 Hermann Ohlicher (83.). Áhorf. 38.500. Hamburger SV — Eintracht Frankfurt 0—2 (0—1) Mörkin: 0—1 Ralf Falkenmayer (9.), 0—2 Falkenmayer (90., vítaspyrna). Áhorf. 35.000. Borussia Dortmund — Bayern MUnch- en 1—1 (0—0) Mörkin: 0—1 Norbert Nachtweih (55.), 1—1 Erdal Keser (78.). Áhorf. 50.000. Bayer Uerdingen — 1. FC Köln 4—6 (0-3) Mörkin: 0—1 Lefkes (6.), 0—2 Klaus Allofs (15.), 0—3 Allofs (39.), 1—3 Helmut Gulich (46.), 2—3 Horst Feilzer (55.), 2—4 Pierre Littbarski (67.), 3—4 Sascha' Jusufi (70.), 3—5 Littbarski (72.), 3—6 Allofs (85), 4—6 Gulich (87). Áhorf. 11.000. Bayer Leverkusen — Borussia Mönch- engladbach 1—2 (0—1) Mörkin: 0—1 Wilfreid Hannes (30.), 1—1 Kai-Erik Herlovsen (75., sjálfs- mark), 1—2 Lothar Mattheus (85). Áhorf. 15.000. Arminia Bielfeld — VFL Bochum 2—1 (0-0) Mörkin: 1—0 Gregor Grillemeier (53. vítaspyrna), 2—0 Detlef Schnier (77., vítaspyrna), 2—1 Stefan Pater (78.). Áhorf. 7.000. Fortuna DUsseldorf — SV Waldhof Mannheim 1—2 (1—0) Mörkin: 1—0 Gerd Zewe (32. víta- spyrna), 1—1 Dieter Schlindwein (58.), 1—2 Rainer Scholz (86.). Áhorf. 6.000. Frankfurt Soccer Lead — 3. 1. FC Kaiserslautern — 1. FC NUrn- berg 4—2 (2—1) Mörkin: 1—0 HUbner (23.), 1—1 Dieter Trunk (31.), 2—1 Andreas Brehme (40.), 3—1 Wolfgang Wolf (54.), 3—2 Manfred BurgsmUller (55.), 4—2 HUbner (57.). Áhorf. 10.435. Kickers Offenbach — Eintracht Braunschweig 1—2 (0—1). Mörkin: 0—1 Jaroslav Studzizba (33.1 1—1 Trapp (51.), 1—2 Peter Lux (5€ . vítaspyrna). Áhorf. 2.000. „Áttum að skora fleiri mörk“ - sagði Þorsteinn Ólafsson þjálfari Þórs eftir sigurinn á KA - Fyrirliði Þórs rekinn af velli Akureyri, 20. mai. Fré Aðalstaini Sigurgeiraayni, fréttamanni Morgunblaðeins. „ÉG ER MJÖG ánægöur með sigurinn en viö eigum þó aö geta leikiö betur en viö geröum í dag. Þaö er alltaf erfitt aö spila í svona roki en okkur tókst þó sæmilega að framkvæma þaö sem við höfum verið aö æfa aö undanförnu og vörnin var góö. Við áttum aö skora fleiri mörk og Óli Þór átti að gera út um leikinn í byrjun seinni hálfleiks," sagði Þorsteinn Ólafsson, þjálfari Þórs á Akureyri, eftir aö liö hans haföi sigrað erkifjendurna, KA, 2:1 í 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Sigur Þórs var sanngjarn og heföi getað oröið enn stærri. Liöiö baröist mjög vel, fékk betri marktækifæri og sýndi góða knattspyrnu á köflum. KA-liöiö var óvenju dapurt, sérstaklega í fyrri hálfleik og alla baráttu vantaöi. Þórsarar uröu fyrir því áfalli að fyrirliöi þeirra, Nói Björnsson, var rekinn af velli í seinni hálfleik fyrir að sparka í mótherja. Þórsarar léku undan töluveröum norðanstrekkingi í fyrri hálfleiknum og byrjuðu leikinn af miklum krafti. Kristján Kristjánsson, sem í fyrra lék með Völsungi, átti gott skot frá vítateigslínu strax á fyrstu mínút- unum en Þorvaldur Jónsson, markvörður KA, varöi mjög vel. Tveimur mín. síöar fékk Þór hornspyrnu sem Bjarni Svein- björnsson tók. Hann lyfti knettin- um vel upp í vindinn og stefndi knötturinn upp í horniö fjær en aft- ur varði Þorvaldur mjög vel í horn. Áfram sóttu Þórsarar og mark lá í loftinu. Á 13. mín. kom svo mark. Bjarni tók þá aukaspyrnu út viö hliðarlínu á móts við vítateigshorn- ið — gaf háan bolta inn í teiginn þar sem Guðjón Guðmundsson skallaöi fallega í markiö. Þórsarar héldu áfram að sækja eftir markið og skoruöu aftur á 33. mín. Halldór Áskelsson sendi þá á Kristján Kristjánsson sem var á vítateigs- línu. Kristján sneri sér við, lék til hliðar og skaut svo með vinstri fæti í bláhorniö niöri. Óverjandi fyrir Þorvald. Þegar fimm mín. voru eftir af fyrri hálfleik náði KA góöri sókn, Steingrímur Birgisson óö upp með boltann og átti gott skot af vítateig sem Páll Guölaugsson varði vel í horn. Leikurinn jafnaöist nokkuö í KA:Þór 1:2 seinni hálfleik er KA lék undan vindinum, en þaö var engu að síð- ur Þór sem fékk besta færi leiksins snemma eftir hlé. Óli Þór fékk boltann innfyrir vörn KA við miðlin- una og enginn varnarmanna var nálægt honum er hann óö upp völlinn. Við vítapunkt skaut Óli en Þorvaldur kom út á móti og varði. Af honum skaust boltinn út á völl- inn þar sem Nói Björnsson, fyrirliöi Þórs, náði honum og skaut yfir. Er hálftími var til leiksloka var Nói svo rekinn af velli eins og annars stað- ur kemur fram. Eftir það efldust KA-menn og fóru aö berjast meira. Þeir áttu nokkur skot að marki en þau geiguöu öll. Fimm mín. fyrir leikslok kom svo eina mark KA. Liðið fékk innkast við hornfánann, boltinn barst inn í markteiginn þar sem Hinrik Þór- hallsson, sem skömmu áöur hafði komið inn á sem varamaöur, skor- aði. Hann tók knöttinn á bringuna og ýtti honum inn fyrir línuna. KA sótti meira síðustu mínúturnar eh skapaði sér ekki verulega góð færi. Einu sinni varði Páli í Þórs- markinu þó vel frá Steingrími Birg- issyni. I stuttu máli: Islandsmótió 1. deild, Þórsvöllur Þór—KA 2:1 (2:0) Mörk Þórs: Guójón Guómundsson á 13. min. og Kristján Kristjánsson á 33. min. Mark KA: Hinrik Þórhallsson á 85. min. Gul spjöld: Sigurbjörn Vióarsson Þór, Gústav Baldvinsson KA. og Mark Duffield KA. Rautt spjald: Nói Björnsson Þór. Ahorfendur: 864 sem borguóu sig inn. Dómari: Friógeir Hallgrimsson. Einkunnagjöfin: ÞÓR: Páll Guölaugsson 7. Jónas Róbertsson 7. Sigurbjörn Viöarsson 7. Nói Björnsson 7, Oskar Gunnarsson 8, Arni Stefánsson 7. Guójón Guómundsson 7, Krist- ján Kristjánsson 7. Halldór Askelsson 7, Oli Þór Magnusson 7 og Bjarni Sveinbjörnsson 7. KA: Þorvaldur Jónsson 8, Ormarr Örlygsson 7. Erlingur Kristjánsson 7, Friöfinnur Her- mannsson 6, Njáll Eiósson 6. Gústav Bald- vinsson 6. Steingrímur Birgisson 7, Mark Duffield 6. Hafpor Kolbeinsson 5, Asbjörn BjÖrnsson 6, Bjarni Jóhannesson 5, Þorvaldur Örlygsson (vm. á 65 min.) 5 og Hinrik Þór- hallsson (vm. lók of stutt). ♦ ♦ ♦ ♦;♦.♦.'

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.