Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐlÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAl 1924
Fóstbræður í söng-
för til ísafjarðar
og Bolungarvíkur
KARLAKÓRINN Fóstbræður held-
ur í sönglor til ísafjarðar og Bolung-
arvíkur helgina 25.-27. þessa mán-
aðar. Föstudaginn 25. maí heldur
kórinn tónleika í félagsheimilinu í
Bolungarvík og hefjast þeir kl.
20.30. Laugardaginn 26. maí heldur
kórinn tónleika í Alþýðuhúsinu á
ísafirði og hefjast þeir kl. 20.30. Að-
göngumiðar verða seldir við inn-
ganginn á báðum stöðum og sam-
kvæmt nánari auglýsingu.
Söngstjóri Fóstbræðra er Ragn-
ar Björnsson, skólastjóri Nýja
tónlistarskólans í Reykjavík. Und-
irleikari er Jónas Ingimundarson,
píanóleikari. Einsöngvarar með
kórnum eru Kristinn Sigmunds-
son, óperusöngvari, og Björn Em-
ilsson, einn kórfélaga.
Á efnisskrá eru þjóðlög frá ýms-
um löndum og verk eftir þekkt
tónskáld, m.a. Maurice Ravel, Elg-
ar, Karl Zelter, svo einhverra sé
getið. Óhætt er að fullyrða að efn-
isskráin sé afar fjölbreytt og
skemmtileg, enda hlaut hún góðar
viðtökur áheyrenda á vortónleik-
um kórsins í Háskólabíói í april-
mánuði sl.
Fóstbræður hafa kappkostað
um langt skeið að halda árlega
tónleika víða um land og er kórn-
um það mikið ánægjuefni að fá nú
tækifæri til að sækja ísafjörð og
Bolungarvík heim, segir í frétt frá
kórnum.
Fyrirlestur á vegum
Geðhjálpar um sjálfsvíg
FÉLAGIÐ Geðhjálp heldur síð-
asta fyrirlestur vetrarins fimmtu-
daginn 24. maí 1984. Guðrún
Jónsdóttir, geðlæknir, flytur er-
indi um orsakir, meðferð og fyrir-
byggingu á sjálfsvígum. Fyrirlest-
urinn verður haldinn á geðdeild
Landspítalans, i kennslustofu á 3.
hæð og byrjar kl. 20. Aðgangur er
ókeypis og opinn öllum. Fyrir-
spurnir og umræður verða eftir
fyrirlesturinn. Geðhjálp hefur
staðið fyrir 8 fyrirlestrum um
geðheilbrigðismál í vetur. Að
þessum fyrirlestri loknum verður
hlé í sumar. Þráðurinn verður svo
tekinn upp að hausti.
Ekki hækkar
hagur strympu
— eftir Ásgeir
Jakobsson
Hafrannsóknaskipið er að
sökkva undan mörg þúsund tonna
mistökum og það tjóar lítið
Hjálmari Vilhjálmssyni að kasta
út sjóvettlingunum ísnum til að
létta skipið. Hann vill taka upp
þrætur um þrjú þúsund tonn af
loðnu frá árinu 1982, þegar átta
skip fengu leyfi til að veiða sextán
þúsund tonn en veiddu ekki nema
þrettán þúsund. Skipin fengu leyf-
ið, þegar loðnan var ekki veiðan-
leg, og það veit Hjálmar, en voru
svo bundin þegar allt fylltist af
loðnu. Þarna er einmitt að finna
dæmi um einn versta þáttinn í
óstjórn Hafrannsókna og sjávar-
útvegsráðuneytisins á fiskveiðun-
um, leyfi eru gefin út ýmist of
seint eða of snemma — vegna van-
þekkingar á því, sem er að gerast
og það er nú sárast í hinu voðalega
hafrannsóknardæmi, að það er
ekki nóg með það, að stofnunin
viti aldrei hvað muni gerast, held-
ur fylgist hún ekki heldur með því
sem er að gerast. Hafrannsókna-
stofnunin eyðilagði veiðarnar í
haust af því hún sá ekki fyrr en í
nóvember hvað var að gerast með
loðnuna og hún þá farin að dreifa
sér og markaður fallinn. Ég ætla
ekki að rekja nú alla sorgarsöguna
frá í haust, sú saga er löng og
hroðaleg, það er borðliggjandi að
það töpuðust hundruð milljóna
vegna Hafrannsóknaóstjórnar.
Ef Hjálmar Vilhjálmsson skyldi
finna einhvers staðar í grein
minni, „Lýsenkó, Lýsenkó, gaztu
ekki gengið aftur annars staðar en
á íslandi“, nokkur kíló til að
þjarka um verður hann að hafa
mig afsakaðan, þótt ég anzi ekki.
Hafrannsóknamálið er stórkost-
legra þjóðmál en svo, að því megi
drepa á dreif með sparðatíningi,
eltast við eyri í margmilljóna
skuldasúpu Hafrannsóknastofn-
Ásgeir Jakobsson
„Hafrannsóknastofnunin
eyðilagði veiðarnar í haust af
því að hún sá ekki fyrr en í
nóvember hvað var að gerast
með loðnuna og hún þá farin
að dreifa sér og markaöur
fallinn.“
unar. Nú blasir til dæmis við, að
stofnunin er búin að eyðileggja
þorskveiðarnar í ár með hjálp
stjórnvalda, sem taka erlend lán
til að fylla upp í fjárlagagat sitt,
en láta binda fiskiflota þjóðarinn-
ar og ragast í smápeningum í
ráðuneytum, en hirða ekki um að
rannsaka hvað sé að gerast hjá
rfkisstofnun, sem segja má að sé
að leika sér með fjöregg þjóðar-
innar. Ég á eftir að rekja langa
sögu af Hafrannsókn, en ég vel
mér tímann til þess. Fyrst að
stjórnvöld og sjómannasamtökin
geta unað við óstjórn Hafrann-
sóknastofnunar liggur mér ekki á.
Ásgeir Jakobsson er rithöfundur.
Heimilisdeild
Stóll meö
krómgrind
svart lakkaöur
Kr. 1.274.-
Borð
með glerplötu
80x130 cm kr. 4.839.
100x180 cm kr. 8.603.
Allskonar eldhúsáhöld.
Blóma-
pottar
11 cm kr. 65.-
13 cm kr. 81.-
15 cm kr. 112.-
17 cm kr. 147.-
22 cm kr. 209.-
Ungbarna, barna-
og fulloröinssæng-
ur. Þvottekta —
ofnæmisprófaðar.
Reglustrika
m/reiknitölvu og
klukku
kr. 679.-
OPIÐ TIL KLUKKAN 7 í KVÖLD.
Vörumarkaöurinn hf.
Ármúla 1 A, sími 86112.