Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
39
fólk í
fréttum
„Kannski við verðum stoppuó upp“
+ „í hvert sinn sem óg opna blaö
þar sem mín er getiö, stendur
þar örugglega eitthvaö um hvaö
Paul Newman og kona hans, Jo-
anne Woodward, séu sérstök af
því aö þau hafa veriö gift í 25 ár.
Stundum finnst okkur Joanne,
aö viö séum sjaldgæf dýr, sem
hætta er á að deyi út. Kannski
verðum viö stoppuö upp þegar
viö deyjum," segir bandaríski
leikarinn Paul Newman.
Nú nýlega var frumsýnd nýj-
asta myndin hans, „Harry og
sonur“, sem Newman samdi og
stjórnaöi aö mestu sjálfur, en
dómarnir hafa ekki verið mjög
góöir. M.a. er sagt, aö í myndinni
gangi tilfinningasemin of langt,
aö Newman reyni svo mikiö aö
leika skilningsríkan föður aö úr
því veröi hálfgeröur ofleikur.
„Þetta er mynd, sem mig hefur
lengi langað til aö gera en hef
ekki getað fyrr en nú,“ segir
Newman, sem fyrir nokkrum ár-
um missti elsta son sinn, en hann
var eiturlyfjasjúklingur.
Joanne leikur aö sjálfsögöu í
myndinni enda segist Newman
ekki geta án hennar veriö. I fyrra,
þegar þau áttu silfurbrúökaup,
létu þau gefa sig saman á nýjan
leik og segir Newman, aö þar
sem þaö hafi veriö þaö besta,
sem hann hafi gert um ævina, aö
kvænast Joanne, hafi hann
ákveöiö aö endurtaka þaö.
Joanne Woodward
og Paul Newman.
Mörgum finnst
skrítiö, að þau,
leíkararnir, skuli
hafa veriö gift ( 25
ár.
COSPER
— Ég er mjög sparsöm. Mig vantar bara peninga til aö sanna
það.
+ Muhammed Ali, gamla kemp-
an, er nú orðinn 42 ára, en þó
ekki búinn aö segja skiliö viö
hnefaleikana aö fullu. Nú er hann
einn af eigendum umboös-
mannafyrirtækis, sem hefur á
sinni könnu stórslaginn í þunga-
vigtinni þann 8. júni milli Larry
Holmes og Gerrie Coetzee. Fer
keppnin fram í Las Vegas og
veröur e.t.v. viöurkennd sem
opinber heimsmeistarakeppni.
Allsber í
bikini-baðfötum
+ Willibald Rauch heitir snyrtivörusérfræöingur i
Þýskalandi, sem hefur mikinn áhuga á aö koma á
markaöinn nýjum bikini-baöfötum fyrir þá, sem vilja
geta valsaö aö vild á milli nektarnýlendna og venju-
legra baöstaöa. Nýju fötin hans Rauch eru nefnilega
þannig úr garöi gerö, aö þau bæöi eru og eru ekki.
Fötin eru með öörum oröum máluð á beran kropp-
inn svo aö konurnar viröast klæddar þótt þær séu
kviknaktar. Aö sjálfsögöu eru fötin bara fyrir konur
eins og hana Christiane hér á myndinni. Til aö
blekkja augaö þarf aö gera fleira en aö mála karl-
ana.
Veriö
velkomin
ópavossbúár
athugið!
Við bjóðum alla almenna hársnyrtingu svo sem:
Permanent, klippingu, lagningu, hárþvott, litun,
jolástur, strípur, skol, djúpnæringu o.s.frv.
Opiö fra kl. 9—18 á virkum dögum
og kl. 9—12 á laugardögum.
Pantanir teknar í síma 40369.
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÞINGHÓLSBRAUT 19.
SíÖumúla33
simar 81722 og 38125