Morgunblaðið - 24.05.1984, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. MAÍ 1984
Stuttgart. 23. m*i. Fr» Þórarni Ragn-
arsayni, biaóamanni Morgunbtaósina.
LEIKMENN Stuttgart fá ekki
mikiö fri eftir ad knattspyrnu-
tímabiiinu lýkur. Deilda-
keppninni lýkur meö leiknum
gegn Hamburger hér á laug-
ardag — en þrátt fyrir þaö fá
leikmenn liösins ekki sumarfrí
fyrr en 19. júni. Þeir þurfa svo
aö mæta aftur til æfinga mán-
uöi seinna.
Á miövikudag í næstu viku
fer Stuttgart-liðiö í keppnisferö
til Bandaríkjanna og Kanada
þar sem liöiö leikur sex leiki.
Einhverjir leikjanna fara fram á
gervigrasi. Leikiö veröur m.a. i
Flórída, Vancouver, Toronto og
San José í Kaliforniu, þannig
aö vegalengdir eru miklar milli
staöa og ferðir veröa langar og
strangar.
Ásgeir Sigurvinsson fer til ís-
lands í sumarfrí 19. júní og
verður á landinu í nokkra daga.
Síöan byrja æfingar aftur hjá
Stuttgart mánuöi síöar eins og
áöur segir og í byrjun ágúst
tekur liöiö síðan þátt í móti í
Hollandi þar sem nokkur önnur
stórliö veröa meöal þátttak-
enda, t.d. Manchester United
og Feyenoord.
Markvörðurf
keppnisbann
ZUrich. 23. mai. AP.
JOSE Serreirinha, markvöröur
portúgalska knattspyrnuliös-
ins Porto, var í dag dæmdur í
keppnisbann í Evrópuleikjum
þar til 31. júlí á næsta ári.
Markvöröurinn, sem venju-
lega er kallaður Ze Beto, réöst
aö dómara og öörum línuveröi í
úrslitaleik Evrópukeppni bik-
arhafa gegn Juventus á dögun-
um, i Basel. Fyrirliöi Porto róaði
félaga sinn og kom í veg fyrir
aö hann gerði meira af sér en
aö rífa flagg línuvaröarins.
Úrslit
Úrtlft í 1. umferö bikarkeppm KSÍ i
gærkvöldi uröu sem hér tegir:
Reynir — Njarövík 2—0
Ármann — Grindavik 0—1
eftir framiengingu
Víöir — Mafnir 1—0
Stokkseyri — Fylkir 1—0
FH — ÍR 6—2
Selfoss — Haukar 3—1
ÍBÍ — Víkverji 4—0
ÍBV — HV 5—1
Magni — Tindastötl 0—1
Völsungur — Leiftur 2—1
eftir framlenginu
Vorboöinn — Vaskur
leikinn nk. föstudag
HrafnkeJI — Austri 1—3
Þróttur — Leiknir 1—0
Valur — Efnherji 1—2
Huginn — Sindri 2—0
Stórsigur Svía
Norrkðping, 23. maí. AP.
SVÍÞJÓD sigraöi Möltu 4:0 í
knattspyrnulandsleik hér í
kvöld. Leikurinn er liður í und-
ankeppni heimsmeiatara-
keppninnar, 2. riöii, og er
fyrsti leikur í riðlinum. Thom-
as Sunesson gerði tvö mörk,
Dan Corneliusson og Ingemar
Erlandsson eitt hvor.
Heímsmet í sundi
Berlín, 23. mai. AP.
TVÖ heimsmet í sundi féilu í
dag á austur-þýska meistara-
métinu eftír því sem hin
opinberc fréttaatofa Austur-
Þýskalands, ADN, skýröi fré i
dag.
Kristinn Otto bætti fjögurra
ára gamalt met bandarísku
stúlkunnar Cynthia Woodhead f
200 metra skriösundi. Otto
synti á 1:57,75. Gamla metið
var 1:58,23.
Jens-Peter Berndt synti 400
metra fjórsund á 4:19,61.
1. deild
ÍA 2 2 0 0 4:0
Víkingur 2 1 1 0 2:1
Þór, Ak. 2 1 0 1 2:4
KR 2 0 2 0 2:2
ÍBK 2 0 2 0 1:1
UBK 2 00 2 0 1:1
KA 2 0 1 1 2:3
Þróttur 1 0 1 0 0:0
Valur 2 0 1 1 0:1
Fram 1 0 0 1 0:1
i •. -V > ,
Morgunblaóió/Sfmamynd AP
• Gary Stevens leikmaöur Tottenham meö knöttinn í leiknum í gær. Mark Falco (númer níu) viröist
eitthvaö ekki meö á nótunum en leikmaöur númer þrjú í liöi Anderlecht er Walter de Greef.
Miðarnir kosta
nú 3.000 krónur
Stuttgart, 23. maí. Frá Þórarni Ragn-
arasyni, blaöamanni Morgunblaösins.
GÍFURLEGUR áhugi er á leik
Stuttgart og Hamburger é
laugardaginn eins og nærri
má geta og er löngu uppselt á
leikinn. Þó er hægt aö kaupa
miöa — á svörtum markaöi —
á 300 mörk. Þaö eru rúmar
3.200 ísl. krónur. Miöarnir
kostuðu áöur 50 mörk stykkiö
— rúmar 500 ísi. kr.
Eins og áöur hefur komiö
fram í Mbl. verður sett upp
risastór skermur í íþróttahöll
nálægf Neckarstadion, leik-
vangi Stuttgart, og veröur selt
inn í iþróttahöilina þar sem leik-
urinn verður sýndur beint á
skerminn. Nú þegar er reyndar
uppselt í höllina — 10.000 mið-
ar ruku út eins og heitar iumm-
ur.
Þess má geta aö rúmlega
70.000 manns komastá Neck-
arstadion.
Víti varið frá Arnóri og Tottenham vann UEFfl-bikarinn:
Svekkjandi
áá
— sagði Arnór Guðjohnsen í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn
„ÉG VAR furðu afslappaöur þegar óg tók vítaspyrnuna og skot mitt var fast í vinstra horniö niöri —
markvörðinn giskaði hins vegar á rétt horn og náöi að verja,“ sagöi Arnór Guöjohnsen, knattspyrnumaöur
hjá Anderlecht, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi eftir leik liösíns viö Tottenham í síðari leik líöanna í
úrlsitum UEFA-keppninnar. Leiknum lauk með jafntefli, 1:1, eins og fyrri leiknum í Brussel, þannig aö grípa
þurtti til vítaspyrnukeppni. Arnór tók síöustu vítaspyrnuna fyrir Anderlecht og hefói hann skoraó hefói hann
jafnað 4:4 og þá hefói vítaspyrnukeppnin haldiö áfram. Tony Parks, markvörður Tottenham, gerói sér hins
vegar lítiö fyrir og varöi spyrnu Arnórs, eins og hann lýsti sjálfur, og Anderlecht missti þar meö af
UEFA-bikarnum.
Arnór var varamaöur en kom
inn á er 20 mín. voru eftir af venju-
legum leiktíma. „Við vorum betra
liöið í leiknum og þaö er alveg fer-
lega svekkjandi aö tapa á víta-
spyrnum. Ferlega svekkjandi.
Heppnara liöiö vinnur alltaf í víta-
spyrnukeppni — og mér finnst fá-
ránlegt aö ekki skuli leikinn hreinn
úrslitaleikur á hlutlausum velli peg-
ar þessi staöa kemur upp aö liðin
standi jöfn eftir tvo leiki," sagöi
Arnór.
Arnór sagöist alveg viss um aó
heföi Anderlecht átt seinni leikinn
á heimavelli sínum í Brussell heföi
liðiö sigraö í keppninni. „Ég er al-
veg klár á því. Eins og ég sagöi
vorum viö betra liöið í þessum
leik.“
Alez Czerniatinski kom Ander-
lecht yfir um miöjan síöari hálfleik-
inn. „Fallegt mark,“ sagöi Arnór.
Alez komst einn inn fyrir vörn Tott-
enham og vippaöi yfir úthlaupandi
markvöröinn og í netið. Þaö var
svo Graham Roberts, fyrirliði Tott-
enham, sem tryggói liðinu jafntefli
er hann skoraöi sex mín. fyrir
leikslok. Framlengt var í tvisvar
sinnum fimmtán minútur en ekki
var skoraö í tramlengingunni. Þá
tók vítaspyrnukeppnin viö.
Tottenham skoraöi úr sinni
fyrstu spyrnu og síöan varði Tony
Parks, markvöröur Spurs, fyrstu
spyrnu Anderlecht — frá Danan-
Stultgart — HSV:
Leikurinn
sýndur beint
LEIKUR Stuttgart og Hamburger
SV veröur sýndur beint í íslenska
sjónvarpinu á laugardaginn. Þaö
var endanlega ákveöiö í gær.
Bein útsending frá Neckar-
stadion í Stuttgart hefst kl. 13.15
og leikurinn veröur síöan flautaöur
á kl. 13.30. Eins og áöur hefur
komiö fram eru allar likur á því aö
Stuttgart veröi þýskur meistari í ár
— Hamburger getur aöeins variö
titil sinn meö fimm marka sigri á
laugardag. Eftir leikinn veröur
meisturunum afhentur skjöldurinn
sem fylgir meistaratitlinum.
— SH
um Morten Olsen. Tottenham
komst svo í 2:0, Anderlecht minnk-
aöi muninn í 2:1 og Spurs skoraöi
3:1. Anderlecht skoraði 3:2, Tott-
enham komst í 4:2, Anderlecht í
4:3 og síöan varöi markvörður
Anderlecht frá Danny Thomas. Þá
var komiö að Arnóri — hann haföi
möguleika á aö jafna metin og
tryggja Anderlecht áframhaldandi
vítakeppni. En Parks varöi frá hon-
um eins og áöur var lýst og þar
meö lauk UEFA-draumi liösins.
Anderlecht sigraöi í UEFA-keppn-
inni í fyrra.
„Þaö var baulaö mikiö er ég tók
vítió,“ sagöi Arnór í gærkvöldi, „og
eftir aö markvöröurinn varöi varö
allt vitlaust á áhorfendapöllunum.
Englendingarnir uröu aö sjálf-
sögóu mjög ánægöir. Sigurinn var
í höfn, en þaö var upplífgandi fyrir
mig aö félagar mínir voru fljótir aö
koma og hressa mig viö eftir að víti
mitt var varið.“
Sem kunnugt er átti Arnór viö
meiösli aö stríöa í allan vetur og
sagöist hann ekki vera búinn aö ná
sér aö fullu eftir þau. „Ég er þó
mun skárri en finn enn aöeins til.
Þetta hefur veriö mjög svekkjandi
tímabil fyrir mig og þaö heföi
vissulega veriö gaman aö enda
paö sem Evrópumeistari. En svona
er knattspyrnan — maöur veit
aldrei hvaö gerist,“ sagöi Arnór
Áhorfendur á White Hart Lane í
gærkvöldi voru 46.258.
Nói í eins
leiks bann
NÓI Björnsson, fyrirliöi Þórs á
Akureyri, sem rekinn var af
velli í fyrsta leik liösins í 1.
deildinni, gegn KA, var
dæmdur í eins leiks bann.
Hann lék meö Þór gegn ÍA í
gærkvöldi en missir af leikn-
um gegn Þrótti é sunnu-
dagskvöldiö í Reykjavík.
Fram —
Þróttur
EINN leikur fer fram í 1. deildinni
í knattspyrnu; Fram og Þróttur
leíka é Laugardalsvelli kl. 20.
Tveir leikir eru á dagskrá í bik-
arkeppni KSÍ. Á Háskólavelli
leika Arvakur og Vlkingur, Ólafs-
vík, og á Melavelli mætast Léttir
og Augnablik. Þessir leiklr hefj-
ast einnig kl. 20.