Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAf 1984 Töfrar Suðurlands Hvítasunnuferö 8.—11. júní Feröatilhögun: Brottför frá Borg- artúni 34, föstudaginn 8. júní kl. 20.00. Ekiö um Hellisheiði, Selfoss og til Hellu. Þar veröur gist í 3 næt- ur á Hótel Mosfelli. Laugardagur 9. júní: Þórsmörk. Sunnudagur 10. júní: Þjórsárdalur og virkjanasvæðin viö Búrfell og Hrauneyjafoss. Mánudagur 11. júní: Gullfoss, Geysir, Þingvellir og til Reykjavíkur. Verð kr. 4.900,- í 2 m herbergi. Innifaliö í veröi: Gisting í 3 nætur á Hótel Mosfelli, Hellu, fullt fæöi og leiösaga. Aukakostnaður fyrir 1 m herbergi kr: 600,-. Leitiö nánari upplýsinga Ferðaskrifstofa Guömundar Jónassonar hf., Borgartúni 34,105 Reykjavík. Sími 83222. Togaraaf- greiðslan lögð niður 1 JUl1 STARFSMÖNNUM togaraafgreiðsl- unnar hefur nú verið sagt upp störfum og taka uppsagnirnar gildi 1. júlí. Ætl- un stjórnar togaraafgreiðslunnar er að leggja starfsemina niður vegna óhagkvæmni í rekstri. Að sögn Brynjólfs Bjarnasonar, eins stjórnarmanna togaraaf- greiðslunnar, var togaraafgreiðslan áður fyrr umsvifamikið fyrirtæki, sem annaðist bæði lestun og losun farmskipa og fiskiskipa. Hann sagði að farmskipin hefðu síðan dregið sig út úr þessu samstarfi og hafið lestun og losun skipanna sjálf. Vegna þess og minnkandi afla væri reksturinn því orðinn mjög óhagkvæmur, skuldir væru orðnar meiri en eignir og horfur á tölu- verðu tapi á þessu ári að óbreyttu ástandi. Brynjólfur sagði að gert væri ráð fyrir að fiskiðjuverin tækju sjálf að sér löndun og lestun fiskiskipanna og óákveðið væri hvort fyrrum starfsmönnum togaraafgreiðslunn- ar yrði veitt vinna þar. Leiðrétting í FRÉTT um skattafrádrátt vegna fjárfestingar í atvinnurekstri í blað- inu í gær var ríkisskattstjóri, Sigur- björn Þorbjörnsson, ranglega feðr- aður, og sagður Þorkelsson. Þetta leiðréttist hér með og er Sigurbjörn Þorbjörnsson beðinn velvirðingar á þessum mistökum. Sjómanna- dagsblað Nes- kaupstaðar Sjómannadagsblað Neskaup- staðar er að koma út um þessar mundir, stærra en nokkru sinni fyrr. Blaðið er alls 144 síður að stærð, efni fjölbreytt og mynd- rænt og 18 síður í lit. Þetta er 7. árgangur blaðsins og ritstjóri þess er Smári Geirsson, skólameistari. Nú verður tekin upp sú ný- breytni við dreifingu blaðsins, að hún einskorðast ekki lengur við Austfirði, heldur verður blaðið fáanlegt í Reykjavik og helstu kaupstöðum landsins. I blaðinu eru rúmlega 20 greinar og efni allt frá gömlum annál- um og fróðleik, ævintýrum og sjóslysum til fræðigreina og at- burða líðandi stundar. í um- fjöllun blaðsins um sjávarút- veginn er norðfirskur útvegur þungamiðjan þó einnig sé fjall- að um útveginn í heild. SÍMASKRÁNA Nýr sykurlaus Nýjung! Sætefniö Nutra Sweet er notað í Topp appelsínudrykkur Fæst í öllum matvöruverslunum SÓL H/F. íMíöarkópu! Símaskráin er allsstaðar nauðsynleg. En eftir nokkra notkun vill hún verða snjáð. Stundum rifna blöð úr og þá geta skapast vandræði. Forðum því. Hlífðarkápan frá Múlalundi er lausnin. Endist ár eftir ár og er ódýr í þokkabót. ® Hafið samband við sölumann. jl Múlalundur Ármúla 34 - Símar 38400 og 38401 - 105 Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.