Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 31.05.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 1984 29 V Félagar úr Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík. í baksýn eru topptjöldin tvö. Ljésm. Mbl. Július. Lionsklúbburinn Týr gefur Flugbjörgunarsveitinni gjöf Lionsklúbburinn Týr hefur gef- ið Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík tvö topptjöld að gjöf. Formaður Lionsklúbbsins, Kristinn Kjartansson, afhenti Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík tjöldin sl. mánudag fyrir hönd klúbbfélaga, og var þeim tjaldað við félagsheimili sveitarinnar. Samkvæmt upplýsingum Flugbjörgunarsveitarinnar henta tjöldin vel sem færanlegt aðsetur við leitar- og björgun- arstörf. Tjöldin eru 25 fermetr- ar að grunnfleti hvort og verð- mæti þeirra mun vera 70 þús- und krónur. Ennfremur segir að Lions- klúbburinn Týr hafi áður sýnt sveitinni velvilja og kann Flugbjörgunarsveitin í Reykja- vík Týsmönnum bestu þakkir fyrir veittan stuðning. Innheimta sveitar- sjóðsgjalda síst verri en undanfarið Innheimtuhlutfall sveitarsjóðs- gjalda skiptir sveitarfélög miklu. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins gengur innheimta þeirra víð- ast vel, og er síst verri en undanfarin ár, eins og sést á meðfylgjandi töflu. Víða er hlutfallið betra fyrir 1983 en undangengin ár. Samanburð verður þó að gera með fyrirvara, þar sem óraunhæfar áætlanir útsvara og Kaupstartur Ár Reykjavík Kópavogur Seltjarnarnes (iardabær Hafnarfjoróur Grindavík Keflavík Njardvík Akranes Ólafsvík Bolungarvík ísafjördur Sauöárkrókur Siglufjöröur Ólafsfjöröur Dalvík Akureyri Húsavík Seyóisfjöróur Neskaupstadur Eskifjöróur Vestmannaeyjar Selfoss aðstöðugjalda geta skekkt innheimt- uprósentuna. I»á kunna mismunandi reglur um afskrift eldri gjalda aó brengla myndina nokkuð. Taflan sýnir innheimtuhlutfall útsvara, aðstöðu- og fasteigna- gjalda, ásamt dráttarvöxtum og eftirstöðvum alls þessa frá fyrri ár- um, á móti innheimtu ársins. 1980 1981 1982 1983 75,2 75,7 72,1 75,0 86,8 86,7 84,9 85,6 80,0 79,3 77,7 80,4 89,8 90,2 85,7 85,8 80,9 81,9 78,6 80,3 73,6 78,0 65,1 64,9 82,2 80,2 76,2 80,6 76,0 71,6 66,8 78,9 93,7 94,4 91,8 91,8 75,8 94,0 92,3 88,5 84,5 82,8 88,4 84,2 81,4 88,7 89,7 87,6 89,2 85,0 87,9 88,7 87,7 93,6 94,0 95,8 92,9 89,7 89.5 88,5 89,1 87,4 92,9 91,7 92,2 95,7 96,5 95,5 94,4 80,3 89,6 84,2 90,5 89,3 93,7 92,1 91,1 80,9 93,6 92,1 81,3 78,2 83,8 80,2 83,3 87,0 89,8 88.3 88,7 Marteinn Þorláks- son — Minning Fæddur 24. janúar 1923 Dáinn 18. aprfl 1984 Ávallt grípur hugann einhver tregablandin kennd, er við heyrum fregn um andlát góðs granna eða einlægs vinar, sem samleið hefur átt með okkur á göngu lífsins um lengri eða skemmri tíma. Ekki er það ætlun mín að rekja æviferil Marteins Þorláksonar. Það hafa aðrir gert. Ég mun að- eins minnast fáeinna atriða, er snerta viðkynningu okkar. Marteinn var sveitungi minn, fæddur og uppalinn í Veiðileysu í Víkursveit á Ströndum, en ekki kynntist ég honum fyrr en báðir höfðum sest að í öðrum lands- hluta, hann í Hafnarfirði en ég í Kópavogi, og höfðum þá báðir stofnað okkar eigið heimili og komið okkur fyrir í þeim atvinnu- greinum, sem hvor okkar stundaði lengst af. Stundum lágu leiðir saman, okkar og fjölskyldna okkar. Heim- sóknir á heimili hvors annars voru mjög ánægjulegar. Nutum við hjónin einlægrar gestrisni og óblandinnar ánægju er við komum heim til Marteins og Halldóru, konu hans. Þau voru bæði svo glaðsinna og höfðu til að bera þá einlægni og hjartahlýju sem gott var að komast f kynni við, og gestrisni þeirra slík að unun var að njóta. Umgengni öll var til fyrirmyndar, bæði úti og inni. Þau höfðu komið sér upp fögr- um garði við hús sitt, og var auð- sætt að hinar fögru blómjurtir, er þar uxu, nutu hlýrra handa og um- önnunar húsbændanna. Marteinn var ákaflega greiðvik- inn maður og hjálpsamur. Varð ég þess oft aðnjótandi er lagfæra þurfti eitt og annað á heimili okkar hjóna, bæði utanhúss og innan. Kom þá vel í ljós hin mikla handlagni hans og útsjónarsemi. Átthagatryggð Marteins til heimasveitar sinnar var fölskva- laus og dvaldi hann oftast um tíma á heimaslóðum sfnum á sumrum, sér og fjölskyldu sinni til ánægju, en einnig til að lagfæra eitt og annað á bernskuheimili sínu, sem nú stóð í eyði, nema þann stutta tíma, sem frændur og systkini komu þangað norður með fjölskyldum sínum til stuttrar dvalar árlega. Við Aðalheiður, kona mín, minnumst liðinna samverustunda með þakklæti, og vottum eftirlif- andi konu Marteins og börnum þeirra okkar dýpstu samúð. Ég veit að þótt honum hafi verið óljúft að verða að yfirgefa fjöl- skyldu sína svo fljótt, þá bíður hans nú annað heimkynni á öðru landi og betra i riki himnanna, þar sem honum munu gefast óþrjótandi tækifæri til að njóta hæfileika sinna og góðra eigin- leika i enn ríkara mæli en nokk- urn tíma hér var færi á. Ingvar Agnarsson t Móöir mín og amma okkar, GUÐBJÖRG JÓELSDÓTTIR, Snorrabraut 71, andaöist 30. maí í Landspítalanum. Ásta Ögmundsdóttir, Patricia og Tómas Bónó. ASPAR HÚS t/i sýn/s aó Logafold 126, Grafarvogi Nú gefst öllum kostur á aö skoöa eitt hinna eftirsóttu Asparhúsa dagana 31. maí og 1. júní kl. 14-22 og 2. og 3. júní kl. 10 til 22. Lítið í hvern krók og kima og sannfærist um geysivandaðan frágang einingahúsanna frá ösp. Teikningar og upplýsingar á staðnum. Söluaðili f Reykjavfk Stykkishólmi Símar: 93-8225 og 93-8307

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.