Morgunblaðið - 26.06.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.06.1984, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 143. tbl. 71. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Lítið samkomulag á fundi EBE-leiðtoga Fontainebleau, Frakklandi, 25. júní AP. LEIÐTOGAR Efnahagsbandalagsins reyndu í dag á fundi sínum í Fontainebleau í Frakklandi að finna einhverja lausn á vandamálum bandalagsins, sem eru mörg en fjármálin þó erfiðust viðureignar. Gekk hvorki né rak á fundinum. Helsti ásteytingarsteinninn er sú krafa Breta, að framlag þeirra til EBE verði minnkað frá því sem nú er, en þeir hafa talið sig bera meiri byrðar en rétt er. Eftir fund, sem stóð í hálfan annan tíma, gáfust Ieið- togarnir tíu upp á leysa þetta mál og afhentu það utanríkis- ráðherrum ríkjanna. Hvorki Thatcher, forsætisráðherra Breta, né nokkur annar hinna leiðtoganna höfðu nokkuð nýtt fram að færa í þessu máli. Utan- ríkisráðherrarnir ætluðu að setjast á rökstólana í kvöld en ekki er búist við, að þeir komist að niðurstöðu fyrir morgundag- inn, þriðjudag, sem er lokadagur fundarins. í ræðu sem Francois Mitterr- and Frakklandsforseti flutti fyrir Evrópuþinginu í fyrra mánuði, gaf hann í skyn að hann væri tilbúinn til að standa að endurskipulagningu Efnahags- bandalagsins án Breta ef ekki tækist að leysa fjármálavanda þess fljótlega. Bretar hafa reynt að gera lítið úr þessari hótun og leggja áherslu á, að þeir vilji taka þátt í hverri þeirri breyt- ingu, sem gerð verður á banda- laginu. Thatcher segir hins veg- ar, að ekki verði fundnir neinir nýir sjóðir fyrir EBE fyrr en breyting hafi orðið á framlagi Breta. Bandaríkin: Eining vex um Walter Mondale Wa.shington, 25. júní AP. GARY Hart, öldungadeildarþing- maður, ákvað í dag að hætta við að vefengja kjörbréf sumra stuðn- ingsmanna Walter Mondales eins og hann hefur áður gert. Edward Kennedy lýsti í dag yfir stuðningi sínum við Mondale. í bréfi til landsstjórnar Demó- krataflokksins, sem birt var í dag, segir Hart, að hann ætli „að Vestur-Þýskaland: Sér fyrir endann á vinnu- deilunum? Ludwigsburg, 25. júnf. AP. SÁTTASEMJARI í Vestur-Þýska- landi tilkynnti f dag, að hann ætl- aði að leggja fram málamiðlunar- tillögu í deilu málmiðnaðarmanna og vinnuveitenda, sem staðið hefur í sjö vikur og snýst aðallega um styttingu vinnuvikunnar. Georg Leber, sáttasemjari, kvaðst mundu leggja málamiðl- unartillöguna fyrir deiluaðila í dag en vildi ekki segja frá efnis- atriðum hennar. Hann sagði þó, að tillagan væri „líklega aðgengi- leg fyrir hvoratveggju" og kvaðst binda vonir við, að hún gæti bundið enda á mestu vinnudeilur í Vestur-Þýskalandi eftir stríð. Verkföllin og verkbönnin í Vestur-Þýskalandi hafa náð til 400.000 manna og valdið veru- legum truflunum í bílaiðnaðinum í landinu. Samtök vinnuveitenda segja, að vestur-þýskur málm- iðnaður hafi tapað sem svarar til 99 milljarða ísl. kr. vegna vinnu- deilnanna. forðast allt, sem valdið geti óein- ingu og sundurlyndi á landsþing- inu. Með hagsmuni flokksins í huga og kosningarnar i haust mun ég því ekki vefengja kjör- bréf nokkurs fulltrúa." Hart hef- ur hingað til dregið i efa, að sum- ir þeirra fulltrúa, sem Mondale reiðir sig á til að sigra á lands- þinginu, séu rétt kjörnir og er þessi ákvörðun hans þvi talin fyrsta skrefið í þá átt að hann hætti að berjast við Mondale um að verða útnefndur forsetaefni Demókrataflokksins. „Það er kominn timi til að við hættum að vega hver annan," Mondale sagði Edward Kennedy, öldunga- deildarþingmaður í dag og lýsti yfir eindregnum stuðningi við Walter Mondale. Stuðningur Kennedys þykir mjög mikilvæg- ur fyrir Mondale en Kennedy hefur gætt hlutleysis i frambjóð- endaslagnum innan Demókrata- flokksíns hingað til. Myndin var tekin þegar Carrington lávaröur kom í aðalstöövar AtlanLs hafsbandalagsins í Bríissel i gær. Það var blaðakonan, sem snýr baki í Ijósmyndarann, sem kom öllum til að hlæja með skemmtilegri athuga- semd. Að baki Carrington er Kjell Wibe, sendiherra Norðmanna hjá Atlantshafsbandalaginu, sem bauð Carrington velkominn fýrir hönd starfsbræðra sinna. ^P. Atlantshafsbandalagið: Carrington tekinn við af Joseph Luns Briisael, 25. júní. AP. CARRINGTON lávarður, fyrrum utanríkisráðherra Breta, tók í dag við af Joseph Luns sem framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins. Luns, sem er Hollendingur, hefur gegnt starfinu í 13 ár samfleytt. Framkvæmdastjóraskiptin fóru fram við hátfðlega athöfn 1 aðal- stöðvum NATO í Brussel og kom Carrington til hennar á sama græna Rolls Royce-bílnum og Luns hefur jafnan notað. í viðtali við breska útvarpið fyrr um dag- inn sagði Carrington, að eitt mik- ilvægasta verkefni hans væri að sannfæra Bandaríkjamenn um að Evrópubúar legðu sitt af mörkun- um til sameiginlegara varna vest- rænna ríkja. „Ef Bandaríkjamenn tækju ekki fullan þátt í vörnum Vestur-Evrópu er ég hræddur um, að lítið yrði þar um varnir," sagði Carrington. Carrington tekur við á tímum erfiðra samskipta austurs og vest- urs og nokkurrar óeiningar • Atl- antshafsbandalaginu en búist er við, að hann verði fremur sáttfús í orðum gagnvart kommúnistarfkj- unum. Hann hefur lengi verið þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að vera fastur fyrir gagnvart Sovétmönnum en spara hins veg- ar stóru orðin. Carrington var utanríkisráð- herra f stjórn Margaret Thatcher í Bretlandi en sagði af sér eftir innrás Argentfnumanna í Falk- landseyjar. Kenndi hann sér um að hafa ekki séð hana fyrir. Sjá lciðara á bls. 22. Ungir og aldnir á vígvöllinn franir hafa að undanförnu sent þúsundir manna til viglfnunnar í stríðinu við íraka og virðast þeir enn vera að búa sig undir margboðaða sókn. Þessi mynd var tekin f Teheran sl. sunnudag af hermönnum á leið á vígvöllinn og eins og sjá má eru þeir á ýmsum aldri. Bandaríkin: Stórbankar hækka vexti New York, 25. júní. AP. HELSTU bankar í Chicago og New York hækkuðu í dag vexti á skammtíma viðskiptalánum um Vi% og eru þeir nú 13%, þeir hæstu frá því í október 1982. Vaxtahækkunin er sú fjórða á jafn mörgum mánuðum og það var First National Bank of Chic- ago, sem reið á vaðið, en í kjöl- farið komu svo Citibank í New York, annar stærsti banki í Bandaríkjunum, og Chemical Bank. Hækkunin tekur til vaxta af skammtíma viðskiptalánum til lítilla fyrirtækja, sem jafnan greiða heldur hærri vexti en stórfyrirtækin. Hún nær ekki til vaxta af venjulegum neyslulán- um og af veðskuldabréfum vegna húsakaupa en þessi vaxtatala þykir góð sem viðmið- un fyrir vaxtabreytingar al- mennt í Bandaríkjunum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.