Morgunblaðið - 01.07.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.07.1984, Blaðsíða 1
88 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 148. tbl. 71. árg._____________________________________SUNNUDAGUR 1. JÚLÍ 1984________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Forsetinn í Bólivíu í haldi L* Paz, Bólivfu, 30. júnf. AP. HERINN handtók í dag Hernan Siles Zuazo, forseta Bólivíu, og var hann fluttur á brott, að því er haft er eftir heimildum innan stjórnarinnar. Starfs- menn bandaríska sendiráðsins í borginni hafa staðfest þessar fregnir. Mario Soares, forsætisráðherra Portúgal, tilkynnti einnig að her- inn hefði tekið völdin í Bólivíu, á ráðstefnu sem haldin er i Lissabon um þessar mundir, þar sem fjallað er um málefni rómönsku Ameríku. Hann sagði 130 fulltrúum á ráð- stefnunni að Felipe Gonzalez, for- sætisráðherra Spánar, hefði til- kynnt sér um byltinguna símleiðis fyrir hádegi. Varaforseti Bólivíu, Jaime Paz Zamora, er meðal full- trúanna á ráðstefnunni. Að handtökunni stóð úrvals- sveit úr lögreglunni, kölluð „Hléb- arðarnir", sem var komið á fót fyrir hálfu ári til að berjast gegn kókaínkaupmönnum. Kanada: Turner tekinn við af Trudeau Ottawa, Kanada, 30. júnf. AP. Elliott PIERRE Trudeau, sem lengst allra hefur verið leiðtogi vestrænnar þjóð- ar, lét af embætti forsætisráðherra í dag, og við því tók eftirmaður hans sem leiðtogi Frjálslynda flokksins, John Turner. Leiðtoga- og stjórnarskiptin fóru fram á setri Jean Sauve landstjóra með mikilli viðhöfn, en Trudeau hefur verið forsætisráð- herra landsins í fimmtán ár. Fréttamönnum og almenningi var ekki leyft að vera viðstöddum at- höfnina og sætti það mikilli gagn- rýni. Turner, sem er 55 ára gamall, er lögfræðingur að mennt. Talið er að hann og stjórn hans verði var- færnari og íhaldssamari en stjórn Trudeaus. Turner, sem tapaði fyrir Trud- eau í baráttunni um leiðtogasætið í Frjálslynda flokknum árið 1968, var fyrst dómsmálaráðherra og síðar fjármálaráðherra áður en hann sagði af sér árið 1975. Hann var síðan lítið áberandi í stjórn- málalífi þar til í mars sl. Hann hefur verið varkár í yfirlýsingum, en hefur lofað að berjast gegn at- vinnuleysi og kveðst hafa í hyggju að bæta samskiptin við Bandarik- in. Innan tíu daga verður Turner að ákveða hvort hann hyggst boða til kosninga f sumar, en samkvæmt síðustu skoðanakönnunum hefur Frjálslyndi flokkurinn nú töluvert forskot fram yfir íhaldsflokkinn. öiibrs Dans á vængjum í forsal vinda. Myndina tók Friðþjófur Helgason Ijósmyndari Morgunblaðsins af listflugi múkka norður undir heimskautsbaug. Liðhlaupum ofbauð ósvífni og morðæði foringja sinna: Sovéskir hermenn eyddu heilu þorpi í Afganistan London, 30. júní. AP. LIÐHLAUPARNIR Igor Rykov og Oleg Khlan úr sovézka hern- um í Afganistan, sem komu til Bretlands í vikunni, kváftust hafa gefift sig fram vift frelsis- sveitirnar vegna andúftar á níft- ingsverkum, sem sovézku her- mönnunum væri stöftugt att út í af kaldrifjuðum yfirmönnum. Rykov sagði sveit sína hafa tekið af lífi hvern einasta íbúa í þorpinu Bazarcha nærri Kanda- har, á annað hundrað manns. „Það búa stigamenn í þessu þorpi. Við verðum að eyða því,“ hefði foringi þeirra sagt er hann fann þar tómt skothylki. Karl- menn og drengir hefðu verið skotnir þar sem til þeirra náðist Krefst sæðis látins manns Creleil, Frakklandi, 30. júni. AP. CORINNE Parpalaix, 21 árs frönsk ekkja, hefur nú stefnt sæft- isbanka f útborginni Kremlin- Bicetre í París fyrir rétt, þar sem bankinn hefur neitað henni um djúpfryst sæfti látins manns henn- ar, en nú telur Corinne kominn tíma til aft verða barnshafandi. Corinne segist ætla að sýna fram á að ástin sé dauðanum yf- irsterkari og heldur hún fram að sæðisbankinn hafi framið samn- ingsbrot með því að neita henni um sæði manns síns, Alain Parpalaix, sem lézt 25. desember sl., tveimur dögum eftir brúð- kaup þeirra. Heldur Corinne fram að sæði manns síns sé hennar eign. Hann varð á sínum tima að fara í geislameðferð vegna krabba i eistum, og ákváðu þau að leggja sæði inn á banka þar sem hann átti á hættu að verða ófrjór af meðferðinni. Við andlát manns sins krafðist Corinne sæðis hans, en var neit- að. Leitaði hún ásjár heilbrigð- isráðuneytisins, en leiddist biðin eftir svari og leitaði því til dómstóla. Lögfræðingar sæðis- bankans Segja bankann aðeins bundinn af því að skila sæðinu til sæðisgjafans, sem væri úti- lokað af augljósum ástæðum. Deila þessi er sögð mjög flók- in, bæði frá lagalegu og siðferði- legu sjónarmiði, en ljóst mun þó vera að dæmi dómstóllinn Cor- inne í hag, verður barn hennar óskilgetið skv. frönskum lögum. en konum og stúlkum smalað inn í hús og handsprengjum kastað á eftir þeim. í bréfi til Thatcher forsætis- ráðherra sagði Rykov að eitt sinn, er hermaður hefði óhlýðn- ast fyrirskipun Anatoly Gev- orkyan lautinants um að stinga 16 ára pilt til bana, hefði lautin- antinn sjálfur gengið til verks með byssusting sínum. Lautin- antinn er bróðursonur sovézks herforingja með sama nafni. Ósamræmis gætti í frásögn Rykovs. Hann sagði fjöldamorð- ið í Bazarcha framið 1980, en samkvæmt öðrum heimildum var hann kvaddur til herþjón- ustu 1981. Hann hefur einnig orðið tvísaga um aldur piltsins, sem lautinantinn stakk til bana. Liðhlauparnir voru 11 mánuði í haldi frelsissveitanna, jafnan í eiturlyfjavímu, og hafa ekki jafnað sig enn. Það skýrir ruglingslega frásögn þeirra á köflum, að sögn kunnugra. Er leitað var álits sovézka sendiráðsins í London á ummæl- um liðhlaupanna fengust þau svör ein að talsmaður þess væri hættur vinnu þann daginn. Kosningar í Guatemala Guatemala-borg, 30. júai. AP. KOSNINGABARÁTTU lauk i dag fyrir fyrstu kosningar til stjórnlagaþings sem fram hafa fariA í landinu frá því bvlting var gerð þar árið 1982. Þá tók herinn völdin og kom i veg fyrir að kjörinn forseti gæti tekið við og stjórn- arskráin var numin úr gildi. Þeir sem ná kjöri á morgun, sunnudag, munu hljóta það verkefni að semja nýja stjórnarskrá. Mikil gróska hefur verið í allri stjórnmálastarfsemi, en margir stjórnmálaflokkar hafa veriö endur- skipulagðir i samræmi við nýja kosningalöggjöf. Margir þeirra sem nú neyta atkvæðisréttar síns eru of ungir til að muna siðustu kosningar til stjórnlagaþings, en þær fóru fram árið 1964. Meira en 1000 frambjóðendur eru í kjöri í 88 þingsæti, en sautján stjórnmálaflokkar bjóða fram og eru níu þeirra eru nýir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.