Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 13
wæi tJttl £ HUOAQUTMMI'í .QIQAJaVíUOflOM £1 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984 13 Hver hefur árangurinn orðið af skyldunotkun bflbelta í Bretlandi — eftir Óla H. Þórðarson í lok janúar sl. var liðið eitt ár frá því að ökumenn og farþegar í framsætum bifreiða í Bretlandi voru skyldaðir til að nota bílbelti. Þykir lagasetning þessi hafa reynst einstaklega vel til aukins öryggis í umferðinni. U.þ.b. 90—95 af hverjum 100 ökumönnum þar í landi nota nú bílbelti samkvæmt upplýsingum frá breska sam- gönguráðuneytinu. Á þessu ári fækkaði banaslysum á farþegum í framsætum fólksbíla og sendibíla um 700, úr rúmlega 2.200 niður í um 1.500, eða um þriðjung. Þetta er svlpað og gerst hefur í öðrum löndum, þar sem tekist hefur að auka notkun bílbelta. Álag á spítala minnkaði Á ársfundi Sambands breskra slysalækna í Edinborg í apríl sl. var lögð fram áfangaskýrsla um athugun á 15 sjúkrahúsum á meiðslum þeirra sem lent höfðu í bifreiðaslysum á áðurnefndu tímabili. Skýrsla þessi er talin staðfesta það sem áður hefur kom- ið fram við svipaðar athuganir víða um heim að veruleg fækkun hefur orðið á meiriháttar slysum, einkum slysum á höfði og brjósti, eftir að skyldunotkun bílbelta hef- ur verið lögleidd. Auk þeirra mannslífa, sem bíl- beltin eru talin hafa bjargað, er álitið að þau hafi komið í veg fyrir alvarleg meiðsli fimm til sjö þús- und manna. í sumum sjúkrahús- um hefur þeim fækkað um allt að 70 prósent, sem meiðast í andliti við að kastast á framrúður bíla. Höfuðmeiðslum hefur fækkað verulega, og augnmeiðsli vegna bílslysa hafa nær horfið af mörg- um sjúkrahúsum. Þeir sem mæia fyrir frekari lag- asetningu um bílbeltanotkun gera það ekki aðeins af mannkærleika, til þess að bjarga mannslífum eða vernda fólk gegn alvarlegum meiðslum. Fækkun á slysum minnkar álagið á sjúkrahúsunum Óli H. Þórðarson „TaliÖ er að í Bretlandi hafi á þessu fyrsta ári skyldunotkunar bflbelta sparast um 5 milljarðar ísl. króna vegna færri slysa á fólki í umferð- inni. Miðað við mann- fjölda má ætla að sam- svarandi sparnaður hér á landi hefði numið 20—25 milljónum króna...“ og þá er unnt að sinna fyrr en ella hinum löngu biðlistum fólks sem þarfnast ýmiss konar aðgerða, svo sem vegna kviðslits eða til að fá nýjan mjaðmarlið. Nú er mikið af slösuðu fólki á skurðdeildum og bæklunarlækningadeildum í Bretlandi. Og slasað fólk þarfnast oft langrar sjúkrahússvistar og endurhæfingar. Aðalfundur Neytendafélags Borgarfjarðar: Hvetur til aukins sam- starfs á milli bændasam- taka og neytendasamtaka Á AÐALFUNDI Ncytendafélags Borgarfjaröar, sem haldinn var 25. júní sl. var eftirfarandi ályktun samþykkt samhljóöa: „Aðalfundur Neytendafélags Borgarfjarðar haldinn 25. júní 1984 minnir á mikilvægi landbúnaðarins fyrir atvinnulíf þjóðarinnar og byggðaþróunina í landinu. Fundurinn telur að á mörgum sviðum fari hagsmunir bænda og neytenda samam í verðlagsmálum landbúnaðarafurða og hvetur því til aukins samstarfs á milli bændasamtaka og neytendasam- taka.“ A aðalfundinum voru eftirtaldir kjörnir í stjórn félagsins: Bjarni Skarphéðinsson, formaður, og meðstjórnendur Jón Finnsson, Ragnheiður Jóhannsdóttir, Guð- rún Helga Andrésdóttir og Ágúst Guðmundsson. Stórt rán í Noregi (Mó, 29. júní. Frá frétUriUn Mbl., Jan Erik FJORIR menn vopnaðir hagla- byssum og hnífum réðust inn í banka í Osló og komust undan með 600.000 n.kr. Er þetta næst stærsta rán sem framið hefur verið í Noregi. Um 30 manns voru í bankan- um er mennirnir réðust inn og skipuðu þeir öllum að leggjast á gólfið og ógnuðu þeim með Lauré. vopnum sínum. Ræningjarnir komust undan í bíl og hefur lögreglunni ekki enn tekist að hafa upp á þeim. Ránið var tekið upp á myndband og var það sýnt í norska sjónvarpinu á föstu- dagskvöld. Ræningjarnir voru allir dulbúnir með svartar hettur á höfðinu og reyndist ógerlegt að þekkja þá. Þingmenn hressast Þessi góði árangur hefur orðið til þess að sex breskir þingmenn hafa flutt tillögu til þingsályktun- ar þar sem lagt er til að framvegis verði allir nýir bílar búnir bflbelt- um, einnig fyrir aftursætisfar- þega. Þegar hafa aðrir þingmenn lagt fram breytingartillögu þess efnis að skyldunotkun bílbelta í aftursætum verði einnig lögleidd strax. En formaður umferðar- öryggisnefndar þingsins vill ekki fara of geyst í sakirnar í þessum efnum. Bæði þingmenn og al- menningur vilji fá tíma til þess að móta endanlega stefnu í málinu, sem er að sjálfsögðu að öryggi ökumanna og farþega verði sem allra best tryggt. Bflbelti í aftursæti í Lundúnablaðinu The Times er haft eftir Murray Mackay, for- manni slysarannsóknadeildar Birmingham-háskóla, að notuðu aftursætisfarþegar almennt bíl- belti myndi dauðsföllum meðal þeirra fækka um 70 prósent. Lagasetning um skyldunotkun bílbelta f aftursæti bifreiða er skynsamleg af þremur ástæðum: í fyrsta lagi yrði hún til að bjarga lífi 135 manna á ári f Bretlandi. í öðru lagi kæmi almenn beltanotk- un í aftursæti f veg fyrir að aft- ursætisfarþegar verði að stór- hættulegum „flugskeytum" sem geta valdið framsætisfarþegum meiriháttar meiðslum eða dauða. Líklega væri unnt að bjarga lffi sex af hverjum hundrað framsæt- isfarþegum sem farast á ári hverju með þessu móti. í þriðja lagi yrðu bílbelti í aftursætum, þegar þau eru notuð ásamt bílpúð- um, auðveldasta og ódýrasta að- ferðin til þess að vernda börn í bílum. Margir foreldrar hirða ekki um að afla sérstaks öryggisbúnað- ar fyrir börn sín vegna þess að því fylgir nokkur kostnaður og fyrir- höfn að koma honum fyrir. Sann- leikurinn er sá að öryggisbúnaður fyrir börn á öllum aldri hefur lengi verið til og verður sífellt betri og öruggari. Börn eiga rétt á því að öryggi þeirra sé tryggt í bílum eftir þvf sem tök eru á. Nú er fáanlegur hér á landi öryggisbúnaður i bfla fyrir fólk á öllura aldri Notkun bflbelta sparar fé Talið er að f Bretlandi hafi á þessu fyrsta ári skyldunotkunar bílbelta sparast um 5 milljarðar íslenskra króna vegna færri slysa á fólki í umferðinni. Miðað við mannfjölda má ætla að samsvar- andi sparnaður hér á landi hefði numið um 20—25 milljónum króna eða sexföldu framlagi ríkissjóðs til Umferðarráðs í ár. Við verðum hins vegar alltaf að hafa það í huga að enda þótt við fáum alla þá sem ferðast í bílum til að spenna bilbeltin, þá hindra bilbeltin aðeins slys á mönnum eftir að umferðaróhappið hefur orðið. Auðvitað þarf að leggja enn meiri áherslu á að bæta hegðun ökumanna í umferðinni, einkum að sannfæra þá um að ölvun við akstur er hreinasta glapræði. Margir áhrifamiklir aðilar í Bret- landi lögðust gegn lagasetningu um notkun bílbelta á sínum tima, þeirra á meðal Félag breskra bil- eigenda, sem mælti með notkun beltanna án lögþvingunar. Nú hef- ur félagið snúið við blaðinu og styður bílbeltalögin f ljósi þeirrar reynslu sem fengist hefur af þeim. Bresku læknasamtökin studdu hins vegar lagasetninguna um skyldunotkun bílbelta í framsæt- um. Þau hafa ekki enn tekið af- stöðu til frekari lagasetningar í þessu sambandi. í Bretlandi liggur um 2.500 króna sekt við því að nota ekki bílbelti, og eru sektarákvæðin byggð á þeirri reynslu Evrópu- þjóða að án þeirra náist ekki til- ætlaður árangur. Sem kunnugt er, hafa Islendingar enn ekki talið ástæðu til þess að taka mark á reynslu annarra þjóða í þessum efnum. Litil notkun bflbelta hér á landi skipar okkur þvi i sérflokk meðal þjóða í þessum heimshluta. Islendingar vilja gjarnan vera í sérflokki. En má ég biðja um að það verði á þeim sviðum er auðga þjóðarhag og heill landsmanna. Þetta sérsvið er ekki til þess fallið né þjóð vorri til sóma. (Meginheimild: British Medical Journal, nr. 288, 3. mars 1984.) Óli H. Þórðarson er íramkræmda- stjóri Umíerdarráðs. Bikarslagur á Hlíðarenda Valur KA á Valsvelli í kvöld kl. 20. í hálfleik fer fram Bráðabani: England — Valur FyrirVal leika landsliðs- mennirnir: Hermann Gunnarsson og Ingi Björn Albertsson. Fyrir England leika lands- liðsmennirnir: Phil Thomp- son Liverpool og Brian Talbot Arsenal. Markvöröur veröur Siguröur Dagsson. Mætiö á knattspyrnuhátíö KA — Valur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.