Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.07.1984, Blaðsíða 14
81 NTC/ IJTÍL .?■ HUDAGUTKWN .GIUAJHPTJDflOM MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1984 ífv ín Eins og sjá má tók fólk á öllura aldri þátt í söngnum á kvöldvökunum. Kjalamesprófastsdæmi: Kristín Siguróardóttir flokksforingi og Páll Zophoníasson, sem setti mótið. Fjórðungsmót skáta ágætlega heppnað SKÁTAR I Kjalarnesprófastdemi béldu um helgina fjölmennt fjórð- ungsmót I Vestmannaeyjum. Mótið hófst á fimmtudagskvöld og stóð til hádegis á sunnudag. Morgunblaðið hafði samband við Kristínu Sigurðardóttur, for- ingja I skátafélaginu Faxa í Vest- mannaeyjum og var hún spurð hvernig undirbúningi mótsins var háttað. Hún sagði að undirbúning- ur hafi hafist í mars og voru það skátar úr skátafélögum á Suður- og Vesturlandi sem sáu um hann. Kristín sagði að upphaflega hafi Bandalag íslenskra skáta rætt um að hafa fjórðungsmót í hverjum landsfjórðungi á þessu ári, en af því verður ekki að þessu sinni. Að- eins tvö mót verða haldin og verð- ur næsta mót um næstu helgi á Norðurlandi. Þetta er í fyrsta sinn sem svona fjórðungsmót eru hald- , > i 1 • J.ÍX: I Eitt af verkefnunum á mótinu var að fera þessa tunnu eftir spírum, sem komið var fyrír yfir tjörninni. TUhandhafa gjafabréfa Nú er komið að síðasta gjalddaga gjafabréfa SÁÁ, sem seld voru til að fjármagna byggingaframkvæmdir við sjúkrastöðina Vog. Um leið og við minnum handhafa gjafabréfanna á lokaátakið, viljum við þakka þeim svo og öðrum velunnurum SÁÁ, sem lagt hafa sitt af mörkum til að sjúkrastöðin Vogur yrði að veruleika. Dregið verður úr númerum allra gjafabréfanna 5. júlí. Gera má skil hjá öllum bankastofnunum og á skrifstofu SÁÁ. Stjórn SÁÁ in og hefur ekki verið ákveðið hvernig framkvæmd þeirra verður háttað I framtíðinni. Landsmót skáta verður haldið á næsta ári. Kristín sagði að mótið hafi farið vel fram i alla staði og voru allir ánægðir með hve allt gekk vel. Mikil þátttaka var i öllum dag- skráratriðunum, sem stóðu yfir allan daginn. Veðrið var mjög gott allan timann, serstakiega á sunnudeginum og hafði það mikið að segja fyrir mótsgesti. Að sögn Bjarna Sighvatssonar, sem var á mótinu á vegum Hjálp- arsveitar skáta i Vestmannaeyj- um, virtust allir skemmta sér hið besta á mótinu. Bjarni sagði að um 700 manns hafi verið á mótinu þegar flest var. Mest var um unga skáta, en einnig var töluvert af fjölskyldufólki. Settar voru upp fjölskyldubúðir og er talið að þar hafi verið um 150 manns. Á mótinu fór fram flokkakeppni og einstaklingskeppni i ýmsum greinum. Ýmis verkefni voru lögð fyrir skátana, svo sem í skyndi- hjálp, sprangi, gönguferðum á eldfjallið o.fl. Fólki var boðið upp á námskeið I skyndihjálp og sprangi og margt fleira var a dagskrá mótsins. Kvöldvökur voru haldnar öll kvöldin. Var sungið, farið i leiki og ýmis skemmtiatriði voru á boðstólum. Virtust allir skemmta sér vel á þessum kvöld- vökum. Bjarni gat þess að eftir að mótinu lauk var strax hafist handa við að hreinsa mótssvæðið og á sunnudagskvöldið var ekki hægt að sjá að þarna hafði farið fram fjölmennt mót. Bjarni bað að lokum fyrir þakklæti til allra þeirra fyrir- tækja i Vestmannaeyjum sem veittu aðstoð við undirbúning mótsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.