Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.07.1984, Blaðsíða 1
Sunnudagur 15. júlí Viðtal við Ragnar H. Ragnar skólastjóra á ísafirði „Það sem þjóðin þarf er þekking, þekking, þekking“ Þe8si mynd var tekin af Ragnari í kringum 1948 þegar hann var ný- lega kominn til íslands frá Banda- ríkjunum. ifr dæmis kennt á 14 stöðum f bæn- um. Starfsdagurinn hjá Ragnari hefur oftast verið langur því að jafnframt því að vera skólastjóri Tónlistarskólans, kenndi hann söng í 20 ár við barna- og gagn- fræðaskólann, var söngstióri Sunnukórsins og Karlakórs Isa- fjarðar auk þess sem hann var um margra ára skeið orgelleik- ari og söngstjóri í Isafjarðar- kirkju. Nú er Ragnar að hætta sem skólastjóri Tónlistarskólans og nú eru uppi hugmyndir um að afnema ríkisstyrki til handa tónlistarskólum í landinu. Af þvi hefur hann miklar áhyggjur, en um þetta tvennt og margt fleira var rætt þegar blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti Ragn- ar og konu hans, Sigríði Jóns- dóttur frá Gautlöndum, á Nes- hagann þar sem þau búa þegar þau koma til Reykjavíkur. Áform um að byggja skólahús „Ég er ákveðinn í að segja lausri skólastjórastöðu minni á ísafirði, þvi að bæði er ég ekki eins hraustur, kjarkmikill og áræðinn og ég var, og svo finnst mér tími til kominn að einhver annar taki við,“ sagði Ragnar. Ragnar H. Ragnar skólastjóri á fsa- firði. Ljósm./ Friðþjófur. Nemendur Tón- listarskólans á fímm ára afmæli hans. Ragnar H. Ragnar hefur verið tónlistarkennari í rúma sex áratugi, fyrst í Kanada og í Bandaríkjunum og síðan á ísafirði frá 1948. Það er að líkindum ómögulegt að koma tölu yfir alla þá, sem hafa notið leiðsagnar hans um lengri eða skemmri tíma og enn erfiðara er að mæia þau feiknamiklu áhrif, sem hann hefur haft á tónlistarlífið í landinu á sinni iöngu starfs- æfi. Margs konar viðurkenningar hafa fallið honum í skaut. Hann er heiðursborgari á ísafirði, heiðursfélagi í Tónlistarkennarafélagi Islands og stórriddari íslensku Fálkaorðunnar. var söngstjóri og tónlistarkenn- ari þar og í Bandaríkjunum á árunum 1923—1948, nema þau þrjú ár, sem hann var í banda- ríska hernum. Hann var löngu búinn að ákveða það að ef kæmi til heimsstríðs á móti Hitler, þá ætlaði hann í herinn. Á stríðsár- unum var hann trúnaðarmaður Bandaríkjahers hér á landi. Ragnar gerðist skólastjóri Tónlistarskólans á Isafirði við stofnun hans 1948 og hefur verið það æ síðan. Frá upphafi hefur skólinn átt við ýmiss konar erf- iðleika að stríða einkum þó hús- næðisleysi. Á síðasta ári var til Ragnar er fæddur á Ljótsstöðum í Laxárdal í Suður-Þingeyjarsýslu í september 1898 og er því á áttug- asta og sjötta aldursári. Tónlist- in var ríkur þáttur í heimilislíf- inu í Laxárdalnum, faðir Ragn- ars, Hjálmar Jónsson frá Skútu- stöðum, var organisti og öll börn hans lærðu af honum á hljóðfæri og móðir Ragnars, Áslaug Torfa- dóttir frá Olafsdal, söng með þeim, því mikið var sungið á heimilinu. Ragnar fór á ungl- ingaskólann á Húsavík árið 1916 og hann brautskráðist frá Sam- vinnuskólanum 1920. Kennarar hans þar voru margir merkis- menn, en af þeim má nefna Jón- as Jónsson frá Hriflu, sem raun- ar fékk foreldra Ragnars til að senda hann í skólann, Tryggva Þórhallsson forsætisráðherra, Ásgeir Ásgeirsson, seinna for- seta íslands, Þorkel Jóhannes- son, sem seinna varð háskóla- rektor, Héðin Valdimarsson al- þingismann og síðast en ekki síst frú Ólöfu Nordal. „Ég hafði ekki lítið gott af að kynnast þessu fólki og hef búið að því langa æfi,“ segir Ragnar. Árið 1921 hélt hann til Kan- ada en afi hans, Torfi Bjarnason frá Ólafsdal, var landnemi i Bandarikjunum. I Kanada lagði Ragnar stund á tónlistarnám og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.