Morgunblaðið - 25.07.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. JÚLÍ 1984
21
Námamenn loka
Humber-brúnni
London, 24. júlí. AP.
Brc.sk ir kolanámumenn lokuðu
brúnni yfir Humber-ána, sem er ein
af stærri hengibrúm veraldar, með
því að skilja eftir bfla sína á brúnni.
Með þessu móti ollu þeir miklum
umferðarörðugleikum á annatíma í
nágrenni Hull í morgun.
I nágrenni brúarinnar mynduð-
ust allt að 15 kílómetra langar
bilaraðir þótt lögregla reyndi að
leysa umferðarhnútinn með því að
vísa ökumönnum aðrar leiðir, en
lokun brúarinnar þýddi að öku-
menn þurftu að leggja minnst 30
kílómetra lykkju á leið sína.
„Varla hafa þeir samúð öku-
manna eftir þessar aðgerðir,"
sagði talsmaður lögreglunnar í
Humberside. Námamennirnir
skildu um eitt hundrað bifreiðir
eftir á brúnni upp úr klukkan sex í
morgun og sneru ekki aftur fyrr
en eftir þrjár stundir. Yfirgáfu
þeir brúna af fúsum og frjálsum
vilja eftir að hafa velt einni lög-
reglubifreið og skemmt aðra.
Um brúna fer öll umferð til og
frá stálverksmiðjunni í Scunt-
horpe við suðurströnd Humber-
ósa. Námamennirnir hafa efnt til
aðgerða við verksmiðjuna öðru
hverju undanfarna fimm mánuði
til að koma í veg fyrir að kol berist
þangað. Lögregla kom í veg fyrir
að um 3.000 námamenn söfnuðust
saman við verksmiðjuna í morgun,
en síðar lögðu um 500 þeirra upp á
brúna, með þeim afleiðingum sem
fyrr er lýst.
t Suður-Wales kom til átaka við
stálverksmiðju í Port Talbot er
reynt var að koma í veg fyrir að
vörubifreiðir losuðu járngrýti.
Voru fimm konur og 21 námamað-
ur handtekinn.
Ekkert samkomu-
lag um aðild Spánar
Briissel, 24. júlí. AP.
Samningaviðræður um inngöngu
Spánar í Evrópubandalagið fóru út
um þúfur í dag. Sagði talsmaður
bandalagsins, að mikill skoðana-
ágreiningur hefði verið fyrir hendi
um naer öll atriði, sem rædd hefðu
verið. Viðræður þessar fóru fram í
kjölfar tveggja daga fundar utan-
ríkisráðherra Evrópubandalagsins.
Þrátt fyrir lítinn árangur nú er þó
áformað ð halda áfram viðræðum
um inngöngu Spánar í september
nk.
Á meðal þeirra atriða, sem deilt
var um, voru innflutningur á
ávöxtum og grænmeti frá Spáni
og hvaða aðgang spánskir fiski-
menn ættu að eiga að hafsvæðum
aðildarríkja EB. Spánverjar halda
því nú fram, að skilyrðin fyrir að-
ild þeirra kunni að reynast þeim
of þungbær.
Blindum mistókst
Ermarsundssund
Dover, 24. júlí. AP.
BLINDUR maður og annar fatlað-
ur gáfust upp í tilraun sinni til að
synda yfir Ermarsundið að nætur-
þeli vegna óhagstæðra vinda.
Ragab E1 Lawendi, 42 ára
fimm barna faðir, hætti sundinu
eftir tvær stundir, en hann hefði
orðið fyrsti blindi maðurinn til
að synda yfir Ermarsund ef til-
raunin hefði heppnast.
Hesham Hamdy Abdelnour,
22 ára námsmaður, hætti eftir
fimm stunda og 15 mínútna
sund. Hann hefur engan mátt í
vinstri löpp.
Frá slysstaðnum í New York í gær.
Járnbrautarslys í New York
New York, 24. júlí. AP.
TVÆR farþegalestir rákust saman,
báðar á hægri ferð, með þeim afleið-
ingum að einn maður lét lífið og á
annað hundrað manns slösuðust.
Um orsakir slyssins mun það að
segja að önnur lestin átti að víkja út
á hliðarspor og bíða uns hin hefði
geysts framhjá, en einhverra hluta
vegna var ekki farið að þeim fyrir-
mælum.
Um þrjú hundruð og tuttugu
manns voru með lestunum og seg-
ir i fréttum, að mesta mildi sé að
ekki fór enn verr. Einhverjir
hinna slösuðu munu vera alvar-
lega meiddir.
Mörg fálkahreiður
rænd í Svíþjóð
MÖRG förufálkahreiður í Svíþjóð hafa verið rænd ungum
sínum í sumar og telja Svíar, að þarna séu Þjóverjar að verki.
Skýrði danska blaðið Aktuelt frá þessu í vikunni. Förufálka
má selja fyrir mjög hátt verð í Vestur-Þýzkalandi eða 30.000
til 40.000 d.kr. hvern fugl. (Um og yflr 100.000 ísl. kr.) Segir
blaðið, að ástæðan fyrir þessu háa verði sé sú, að í Vestur-
Þýzkalandi er leyfllegt að nota fálka til veiða. Þá séu upp-
stoppaðir ránfuglar einnig seldir þar á háu verði.
Blaðið hefur það eftir Tommy
Dybbro fuglafræðingi, að fá
megi nær 300.000 d.kr. (tæpar
900.000 ísl. kr.) fyrir hvítfálka.
Enginn vafi leiki á því, að veiði-
þjófar hafi verið að verki í
Grænlandi í því skyni að útvega
arabískum furstum veiðifálka.
Til íslands komi einnig dular-
fullt fólk hvað eftir annað, sem
hafi grunsamlega mikinn áhuga
á hreiðrum ránfugla.
Á síðasta áratug fyrir stríð
verptu um 1000 pör af förufálkum
í Svíþjóð einni saman. Fyrir fá-
einum árum voru aðeins sex pör
eftir. Nú eru hafnar umfangsmikl-
ar aðgerðir til verndar fuglinum.
Klíkuskapur blómstrar í
sovéskum verkalýösfélögum
14 H.li' AD ^
Moskvu, 24. júlí. AP.
ÁSAKANIR um klíkuskap á hendur
embættismönnum í verkalýðsfélög-
unum í Sovétríkjunum höfðu það í
för með sér, að skipt var um meira
en 70% af forystumönnum verka-
lýðsfélaganna í kosningum, sem
fram fóru fyrir skemmstu. Skýrði
blaðið Sovietskaya Rossiya frá þessu
í dag í forsíðugrein, þar sem fjallað
var um mikilvægi verkalýðsfélag-
anna. Jafnframt varaði blaðið með-
limi þessara félaga við að leyfa „let-
ingjum" að komast þar til áhrifa.
Af 147 fulltrúum frá hinum
ýmsu héruðum og landssvæðum
Sovétríkjanna voru 104 full-
trúanna nýir. Segir blaðið, að for-
ystumenn í verkalýðsfélögunum
hafi verið alltof áhugasamir um
að skipa vini sína í stöður þar.
Kosningar af þessu tagi fara
fram í því skyni að staðfesta kjör
manna, sem valdir hafa verið
fyrirfram í þessar stöður.
Valiö er audvelt!
Þýskur hágæöavagn á frá-
bæru verdi.
Öryggi — Ending — Sparneytni
Verð frá 390.000.-
Hagstæöir greiðsluskilmálar.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 124 RGYKJAVÍK SÍMI 687300
I M 1 I M___________________________