Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984
Samkomulag
um ferðapen-
inga fyrir
Tungnár-
svæðið
GENGIÐ var frá samkomulagi milli
aðila að samræmdum virkjanasamn-
ingi í gsr, þess efnis að ákvsði
Tungnársvsðissamnings um flutn-
ing og ferðir fólks til og frá Tungn-
ársvsðinu gildi, en fyrir misgáning
féll þetta ákvsði niður þegar hinn
nýi samningur var gerður, að sögn
Hilmars Jónassonar, formanns
verkamannafélagsins Rangsings.
Hin nýi samningur hefur því ekki
enn verið borinn undir atkvsði á
virkjanasvsðinu við Tungná.
Ákvsði nýja samningsins um
Blöndusvsðið gilda áfram óbreytt.
Hilmar Jónasson sagðist búast
við að nýi samningurinn yrði bor-
inn undir atkvæði á virkjanasvæð-
inu við Tungná eftir helgina á
mánudag og þriðjudag, en kosn-
ingin væri talsvert mikið verk, þar
eð unnið væri á þrískiptum vökt-
um og á átta stöðum á svæðinu.
Norræna húsið:
Fyrirlestur
um íslensku
handritin
DR. PHIL. Jónas Kristjansson, for-
stöðumaður Stofnunar Árna Magn-
ússonar, verður fyrirlesari í Opnu
húsi í Norrsna húsinu í kvöld, 26.
júlí, kl. 20.30.
Dr. Jónas segir frá íslensku
handritunum og sýnir litskyggnur
máli sínu til skýringar. Erindið
verður flutt á dönsku.
Að loknu kaffihléi verður sýnd
kvikmynd Osvald Knudsen, Horn-
strandir, og tekur sýning hennar
33 mínútur.
í anddyri Norræna hússins
stendur yfir sýning á íslenskum
skordýrum, sem sett hefur verið
upp í samvinnu við Náttúrugripa-
safn íslands og í bókasafni er sýn-
ing á hefðbundnu íslensku prjóni.
Kaffistofa og bókasafn eru opin
gestum allt kvöldið.
(Úr frétutilkynningii)
INNLENT
Gallerí Borg:
Sýning
Ingibjargar
f dag hefst sýning á verkum lista-
konunnar Ingibjargar Eggerz sendi-
herrafrúar í listahúsinu Gallerí
Borg. Þar sýnir hún 19—20 olíumál-
verk sem eru máluð á árunum
1955—1970, og eru öll til sölu. Einn-
ig verða hangandi nokkur verk eftir
aðra listamenn sem einnig eru til
kaups.
Fyrir utan sýningar rekur Gall-
erí Borg listaverkasölu í kjallara
hússins og er þar að finna t.d.
leirmuni, málverk eftir Dieter
Roth, Jón Engilberts og Ásgrím
Jónsson, grafik eftir Björgu Þor-
steinsdóttur og fleiri og glermuni.
Listaverkauppboð eru einnig hald-
in og ýmiss konar uppákomur.
Sýning Ingibjargar stendur til
8. ágúst og er op:ð virka daga frá
kl.10—18 en um helgar frá kl.
14-18.
Ljósm. Mbl./Emilta.
Almennur fundur um niðurrif Fjalakattarins
NIÐURRIFI Fjalakattarins við Að-
alstrsti var haldið áfram af mikl-
um krafti í gsr. Er kvikmyndasal-
urinn nú horfínn og aðeins kjallar-
inn eftir. Gert er ráð fyrir að niður-
rifí vestari hluta hússins Ijúki síð-
ari hluta nsstu viku. Húsið á allt
að vera horfíð fyrir áramót.
Stjórn samtakanna Níu líf,
sem stofnuð voru til að varðveita
Fjalaköttinn, telur þó ekki
„ástæðu til að gefast upp þótt
illa horfi fyrir Fjalakettinum",
eins og segir í fréttatilkynningu
frá samtökunum. Hafa þau boð-
að til almenns fundar á Hótel
Esju í kvöld kl. 20.30, þar sem
lagt verður á ráðin.
Slæmar heyskaparhorfur á Suðurlandi:
hefur varla komið síðan
menn þurft að henda heyi
Þurrkur
í júní og
„ÁSTANDIÐ hér undir Eyjafjöll-
um og í Landeyjum er mjög alvar-
legt, og ég hygg að það sé svipað
ástand þó farið sé bæði vestur og
austur fyrir,“ sagði séra Halldór
Gunnarsson í Holti undir Eyjafjöll-
um í samtali við Morgunblaðið um
þá ótíð sem hefur verið á Suður-
landi síðan í byrjun mánaðarins.
„Það er varla hægt að segja að
þurrkur hafi komið síðan í júní,
fyrir utan einn dag um síðustu
helgi, og það er svo komið að
menn hafa þurft að henda heyi,
því það hefur verið orðið gult og
ónýtt. Eggert ólafsson, bóndi á
Þorvaldseyri, og synir hans
þurftu til dæmis að henda heyi af
tveimur hekturum, því það var
orðið svo illa farið," sagði Hall-
dór.
Kvað hann of mikla hita vera,
þrátt fyrir rigninguna, og að hey-
ið sprytti úr sér og því væri
nauðsynlegt að slá það. Sagði
hann að mönnum litist verr á
ástandið nú en í fyrra, því þá
gerði kuldinn það að verkum að
heyin urðu betri þó þau hefðu
legið á túnunum.
„Nú eru túnin eiginlega orðin
það blaut að það er að verða gjör-
samlega ómögulegt að hirða í
súrhey og útlitið er ekki gott eins
og nú er ástatt. Grasið er orðið
úr sé sprottið og það eru þó
nokkrir bændur sem ekki eru
komnir með bagga í hús. Þeir
sem hafa náð einhverju inn eru
þeir bændur sem náðu að nýta
sér þurrkinn sem var síðustu
dagana í júni, en þá var ekki orð-
ið það sprottið að allir nýttu sér
það. Annars hafa menn ekki al-
veg látið deigan síga og reyna að
vera bjartsýnir, en það verður að
segjast eins og er að þetta lítur
ekki vel út. Ef þessi ótíð heldur
áfram þá er það alveg ljóst að
það verður að byggja búskapinn
að verulegu leyti á kornfóðri og
fóðurbæti og ef skattlagning á
þessum vörum á að halda áfram
þá verður að taka tillit til þeirra
aðstæðna sem geta skapast við
ótíð sem þessa. Það er ekki hægt
að láta ganga yfir allt landið
skattlagningu á fóðurbæti þegar
svona árar,“ sagði Halldór að
lokum.
Lakari heyskapur nú
en í fyrra
Á Þorvaldseyri, hjá Eggerti
Ólafssyni bónda, fengust þær
fregnir að það væri lítill hey-
skapur og það littla hey sem
komið væri í hlöðu væri ekki
gott.
„Síðan í júnílok hefur ekki
komið nema einn þurr dagur hér
um slóðir svo það er ekki við því
að búast að hér sé mikið um góð-
an heyskap," sagði Eggert í sam-
tali við Morgunblaðið. „Það hefur
einungis komið einn þurr dagur í
þessum mánuði og á undan hafði
verið stórrigning þannig að væt-
an gerði ekki meira en að síga úr
þann daginn.
Þeir sem slógu í júní fengu ein-
hverja tuggu en svo eru það aðrir
hér um slóðir sem ekki eru enn
farnir að ná inn neinu heyi, því
það voru ekki allir sem gátu
byrjað að slá í júní.
Núna er ástandið hins vegar
þannig að grasið er of sprottið og
orðið hálfgerður óþverri og það
er útlit fyirr að það verði mun
lakari heyskapur núna en var í
fyrra. Ég hygg að þetta sé verst
hér undir Eyjafjöllum, í Fljóts-
hlíðinni, og Landeyjum, en um
leið og kemur austur fyrir
Höfðabrekkuheiði þá byrjar að
létta til og fyrir austan Mýr-
dalssand hafa þeir yfirleitt betri
þurrk. Það mætti segja mér að í
vetur mjólkaði illa á Suðurlandi,
en á meðan skapa þeir náttúru-
lega ekkert smjörfjall," sagði
Eggert að lokum.
Ástandið í heyskaparmálum er
ekki betra í Fljótshlíð heldur en
undir Eyjafjöllum og sagði Egg-
ert Pálsson, bóndi á Kirkjulæk
að í Fljótshlíðinni hefði ekki
komið þurrkur síðan fyrsta júlí.
„Það má eiginlega segja að
ástandið hér að austanverðu í
Rangárvallasýslu hafi verið
verra en vestanmegin," sagði
Eggert. „í júní var þó nokkur
þurrkur og þá náðu sumir bænd-
umir bara töluverðu af góðu heyi
en svo er það aðrir sem engu
hafa náð. Þá hafa þeir sem eru
með vothey getað hirt svolítið.
En horfur í heyskap eru ekki
góðar eins og er og það verður að
fara að koma þurrkur ef allir
bændur hér eiga að geta náð inn
einhverju heyi,“ sagði Eggert að
lokum.
Á Bergþórshvoli, hjá Eggert
Haukdal, var það að frétta að
þeir sem hefðu getað nýtt þurrk-
in í júní væru best á vegi staddir.
„Júlímánuður er búinn að vera
afar erfiður og sá þurrkur sem
hefur komið hefur lítið notast
því hann hefur verið svo stuttur,"
sagði Eggert Haukdal, í samtali
við blaðamann Morgunblaðsins.
„Ef ekki fer að koma þurrkur þá
er óhætt að segja að það muni
horfa til vandræða. í fyrra var
ekki bara vætutíð heldur var
einnig fremur kalt þannig að
grasið spratt ekki eins hratt, en
núna er heitara í veðri, betri
spretta, og má eiginlega segja að
grasið sé farið að spretta úr sér.
Það er hins vegar vonandi að
veðurfarið fari að bregðast til
hins betra því þá gæti þetta
bjargast," sagði Eggert Haukdal
að lokum.
Edda Óskarsdóttir og Halldóra Thoroddsen setja upp sýningu
Ingibjargar.