Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 26.07.1984, Blaðsíða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. JÚLÍ 1984 t Móöir okkar, GUDRÚN HALLFRÍÐUR PÉTURSDÓTTIR, Heimahvammi, Bleasugróf, . lést 20. júlf á Gjörgæsludeild Landspítalans. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginkona mín, móöir okkar, tengdamóöir og amma, ÞORBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Keldulandi 11, í lést i Borgarspitalanum, aö kvöldl 24. júlí. Gfsli Kristjánsson, Gísli Már Gíslason, Kristín Hafsteinsdóttir, Halldóra Gísladóttir, Eiríkur Líndal, Anna Gísladóttir, Kjsrtan Ó. Ólafsson og barnabörn. t Móöir okkar, EGGERTlNA m. smith, Snorrabraut 87, ' veröur jarösungin frá Fossvogskirkju, föstudaginn 27. júlí kl. 15.00. Karolína Smlth, Theódóra Smith, Magnús Smith, Óskar Smith Grímsson. t 5 Útför eiginkonu minnar og móöur okkar, JÓNU SIGRÍOAR BENÓNÍSDÓTTUR, Baldursgaröi 8, Keflavík, fer fram frá Keflavíkurkirkju á morgun, föstudag 27. júlí kl. 14.00. Hallgrímur Færseth og börn. t Unnusta min og systir okkar, ÞÓRA HARALDSDÓTTIR, Hellisgöfu 30, Reykhólum, sem lést 20. júlí, veröur jarösungin frá Dómkirkjunni, föstudaginn 27. júlí. ; Þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélag ís- 1 lands. Guðmundur Hjartarson, Sigurdfs Haraldsdóttir, Lára Haraldsdóttir, Ása Haraldsdóttir, Siguröur Haraldsson, Sigurbjörn Haraldsson, Elsa Haraldsdóttir, Guölaug Haraldsdóttir, Guórún Haraldsdóttir, Ágúst Haraldsson. t Kona mín, móöir okkar, tengdamóölr og amma, JÓHANNA JÓNASDÓTTIR, Einarsnesi 54, veröur jarösungin frá Fossvogskapellu, föstudaginn 27. júli kl. 10.30. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á styrktar og minningarsj- óö Borgarspitalans. Bjarni Stefánsson, Bilborg Björgvinsdóttir, Jóhannes Sigurösson, Birgir Björgvinsson, Edda Svavarsdóttir, Björk Björgvinsdóttir, Jón Baródal, Rannveig Guómundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir og tengdafaöir, JÓN PÁLSSON, Ægissfóu 86. veröur jarösunginn frá Dómkirkjunni, föstudaginn 27. þ.m. kl. 13.30. Blóm og kransar afpökkuö, en peim sem vildu heiöra minningu hans er bent á líknarstofnanir. Kristín Þóröardóttir, Steinunn E. Jónsdóttir, Sigmundur M. Andrósson. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför, MATTHEU HALLDÓRSDÓTTUR frá Siglufiröi. Kristfn Jörgensen, Úlfljótur Gíslason, Halldór Jónasson, Una Guðmundsdóttir, Hafliöi Halldórsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir. Kristín Páls- dóttir - Minning Fædd 29. júní 1908 Diin 17. júlí 1984 Kristín Pálsdóttir, húsfreyja að Kaplaskjólsvegi 11 hér í borg er í dag kvödd hinstu kveðju. Með henni er fallin 1 valinn hetja hversdagslifsins, sem skilaði dyggilega hljóðlátu ævistarfi með sæmd og prýði, þoldi ástvinamissi og þunga sjúkdómsraun, án þess að það haggaði glaðsinni hennar og hjartai.Iýju, sem geislaði af henni til allra nærstaddra, þar til yfir lauk. Hún hafði þegið vega- nesti góðs atgervis, traustrar skaphafnar og sviphreins fríð- leika, og fékk langvarandi raun ekki unnið bug á þessum góðu eig- inleikum. Kristín átti ekki langt að sækja mannkosti sína. Hún var upp- runnin á slóðum Stokks-Eyrar- bakka, af valinkunnum bændum og sjósóknurum, farsælum for- mönnum allt upp í fjörutíu vertfð- ir og forgöngumönnum í harðri lífsbaráttu til sjós og lands, og af ekki síðri konum þessara manna. Engu ómerkara er, að lífsþróttur og atgervi þessa fólks leitaði ekki síður útrásar í listfengi, ekki síst sönglist, og hefur það fóstrað margt helsta tónmenntafólk þessa lands. Svo sem vænta má, var Kristín m.a. af Bergsætt, í sjötta lið frá Bergi hreppstjóra í Bratt- holti, en einnig af venslamanni hans Eyjólfi sterka á Litla Hrauni, er glímdi við blámanninn á Eyrarbakka um miðja 18. öld, og hafði betur. Afi Kristínar, Grímur Gfslason, bóndi í óseyrarnesi og útgerðarmaður og formaður á Stokkseyri, var mikill storkumað- ur og happasæll, efnaðist vel og hafði mikla og farsæla forystu um framfaramál byggðarlagsins. Um hann og ætt hans og niðja tók Guðni Jónsson prófessor saman alldrjúgt kver, sem hann tileink- aði minningu Jónínu Margrétar konu sinnar og systur Kristínar. Er þar saman kominn mikill og merkur fróðleikur, en sennilega á fremur fárra höndum, þar sem bókinni var dreift innan ættar, en ekki á almennum markaði. Faðir Kristínar var Páll Grímsson (1869—1928), bóndi t Þökkum innilega auösýnda samúö og vlnarhug vegna fráfalls fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa, JÓNS QUNNARSSONAR, skrifatofuatjóra, Hagamel 12. Helga Jónsdóttir, Erna Jónsdóttir, Þóröur Gröndal, Edda Jónsdóttir, Ólafur Brieri, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarðarför eiglnmanns míns, fööur okkar og tengdafööur, GUDNA KRISTINS GUNNARSSONAR, verkfræöings. Sérstakar þakkir vlljum viö fœra Coldwater Seafood Corp. og Sölumiöstöö hraðfrystihúsanna. Emilía Eygló Jónsdóttir, Anna Jóna Guónadóttir, Leonard Pfeiffer, Gunnar Kristinn Guönason. Lokað í daa, 26. júlí, vegna jarðarfarar INGOLFS JÓNSSONAR. Garöar Ólafsson, úrsmiöur, Lækjartorgi. Lokað föstudaginn 27. júlí, vegna jaröarfarar JÓHÖNNU JÓNASDÓTTUR. Hellugeröin Laugarnesi. Lokað vegna jaröarfarar INGÓLFS JÓNSSONAR, veröur skrifstofa okkar lokuö í dag, 26. júlí. Lögmenn: Jón Ö. Ingólfsson hdl., Jón G. Zoéga hdl., Lágmúla 7. lengst af, síðast í Nesi í Selvogi, ;n í millitíðinni verslunarmaður á Eyrarbakka um nokkurt árabil, var annálaður formaður í Þor- lákshöfn frá 18 ára aldri og alls í 40 vertíðir og rak eigin útgerð. Hann var alhliða mannkostamað- ur, og hlóðust á hann opinber trúnaðarstörf. Ástvinamissir sneiddi heldur ekki hjá garði. Þannig varð önnur kona hans, Valgerður Hinriksdóttir úr Stokkseyrarhverfi, móðir Kristín- ar. En einnig hún féll frá árið 1914, þá er Kristín var tæpra sex ára, og var það að vonum þungt áfall. Fóstra bættist henni svo ekki fyrr en með þriðju konu föður hennar, önnu Sveinsdóttur, er hún hafði náð 13 ára aldri. Kristín fæddist á Eyrarbakka 29. júní 1908 (ranglega ritað júlí í kirkjubók og sumum heimildum). Frá tæpra 4ra ára aldri ólst hún upp í Nesi í Selvogi í vaxandi systkinahópi, sem alls varð 11 talsins. Lætur að lfkum, að við þau skilyrði hefur hún snemma lært að vinna og bjarga sér. Er hún tvítug missti föður sinn, fluttist hún alfarin til Reykjavíkur, þar sem hún hafði dvalið og starfað með hléum um tveggja ára skeið. Árið 1929 gekk Kristin að eiga Þórð Þorsteinsson skipstjóra frá Meiðastöðum í Garði. Bjuggu þau á Patreksfirði frá 1932 fram á árið 1943, en þá ákváðu þau að flytjast til Reykjavíkur og festu kaup á íbúðinni að Kaplaskjólsvegi 11, sem æ síðan hefur verið hið kæra heimili fjölskyldunnar. En þá greip hörð hönd örlaganna í taum- ana, svo að sú saga fór á allt ann- an veg en ætlað var. Þórður flýtti för sinni á undan konu og börnum til þess að vinna tíma og taka sem best á móti þeim, en fórst í hinu átakanlega Þormóðsslysi, sem svo mörgu fólki hefur rist ævirúnir. Kristín stóð þá ein uppi að ala önn fyrir börnunum sínum tveim, en segja má, að þegar hafi verið lagð- ur traustur grunnur að þeirri bar- áttu. Enda þótt Kristín hafi aldrei gert tilkall til annars titils en hús- freyjunnar, spjaraði hún sig með þeim hætti, sem til þurfti, svo sem með þvf að taka heim saumaskap. Þeim Þórði varð tveggja barna auðið, er komust bæði til góðra mennta og manndóms. Kristín er fædd 1930, nú símavörður á heilsugæslustöð, gift Magnúsi Ax- elssyni, forstjóra Dráttarbrautar Keflavíkur, og eru börn þeirra fjögur og barnabörnin orðin sex. Valur Páll er fæddur 1940, nú deildarstjóri hjá Hafskip, kvænt- ur Erlu Þórðardóttur, félagsráð- gjafa, og eru börn þeirra fjögur. Fram til þess tíma, sem hér hef- ur verið greint, var Kristín mér alls ókunn. Þó hafði ég svolftinn óm af henni í þvf, að dóttir hennar sótti undirbúningsdéild að Menntaskólanum, þar sem ég var þá til aðstoðar. Varð hún mér minnisstæð fyrir greind, persónu- þroska og siðgæðislega alvöru, sem ég þekkti ekki til hvað að baki bjó. Nokkrum árum sfðar, árið 1949 gekk Kristín að eiga móð- urbróður minn Jón Bjarnason, sem nokkru síðar varð aðalbókari Sláturfélags Suðurlands, og hófst þá fyrir henni nýtt fjölskylduskeið með nýjum og fjölbreytilegum persónutengslum. Þetta var einnig annað hjónaband Jóns, og fylgdi honum Jens sonur hans á ungl- ingsaldri, nú húsgagnabólstrari f Hafnarfirði, kvæntur Valdísi Kristmundsdóttur, og eiga þau þrjú börn og þrjú barnabörn. Þau Jón eignuðust eina dóttur, Þór- hildi, árið 1950, nú læknaritari. Hefur hún alla tíð búið í foreldra- húsum og verið móður sinni stoð og stytta og góður félagi, einkum frá því að Jón féll frá árið 1975, og slikar voru þær mæðgur hvor ann- arri. Vart þarf að lýsa því, hve auð- fúsa og fengur fjölskyldu okkar var í að tengjast Kristínu. Birta og hlýja fylgdi henni hvarvetna, og þau hjón voru að útliti og geðs- lagi mjög lík og bættu hvort annað upp. Það heimili, sem hún bjó bömum sfnum, manni og fóstur- syni gegnum þykkt og þunnt, var þeim öllum ómetanleg stoð og veganesti, og bæði prýddu þau það list sinni og smekkvísi. Mesta
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.