Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.11.1984, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. NÓVEMBER 1984 Frá fundinum sem haldinn var meA blaðamönnum að ráðstefnunni lokinni, talið frá vinstri: Ralf Hultberg, framkvsmdastjóri Riksbyggen, Guðni Jó- hannesson, varaformaður Búseta í Reykjavík og nágrenni, Jón Rúnar Geirs- son, formaður Búseta, og Olle Lindström, aðstoðarframkvæmdastjóri Riks- byggen. Sænskir búseta- félagar funda hér Pétur Antonsson, verksmiðjustjóri í Krossanesi: „Allir aðilar njóta góðs af endurbótum verksmiðjunnar“ RIKSBYGGEN nefnist annað stærsta samband búseturéttarfélaga í Svíþjóð og var það stofnað árið 1940. Um 70 yfírmenn frá Kiksbyggen héldu ráð- stefnu hér á landi dagana 3. til 5. september sl. Á ráðstefnunni voru stefnumál Riksbyggen í nánustu framtíð reifuð, fjallað var um framtíð- arþróun á sviði tæknivæðingar og rætt var um menntun yfírmanna. Þá voru íslensk húsnæðismál kynnt og full- trúar ASÍ og Búseta í Reykjavík áttu viðræður við sænsku yfírmennina. Á blaðamannafundi sem haldinn var að ráðstefunni lokinni skýrði Ralf Hult- berg, framkvæmdastjóri Riksbyggen, frá starfsemi þess. „Starfsmenn hjá Riksbyggen eru um þrjú þúsund og búseta-félagar ytra viðhald á íbúðum þeirra og umhirðu garðanna umhverfis. tslensku húsnæðissamvinnufé- lögin eru sniðin eftir fyrirmynd Riksbyggen og því er starfseminni eins háttað, þ.e. félagsmaður í Riksbyggen greiðir svokallað bú- seturéttargjald, sem er ákveðinn hluti af kostnaðarverði húsnæðis- ins, og eignast þar með ótímabund- inn búseturétt og umráð yfir við- komandi íbúð. í dag kostar það um 1.500 þúsund krónur fsl. að byggja þriggja herbergja íbúð í Svíþjóð. Mánaðargreiðslan fyrir nýja íbúð er um 9.500 krónur ísl. og búsetu- réttargjaldið er um 60.000 krónur ísl. Frá ráðstefnunni sem yfírmenn sænska húsnæðissamvinnufélagsins, Riks- byggen, héldu hér í september sl. Mbl./Emilla. Akureyri, 29. október. Krossanesverksmiðjan greiöir 10% hærra verð en aðrar verksmiðjur fyrir loðnuna FRAM hefur komið í fréttum und- anfarið, að Síldarverk.smiðjan í Krossanesi greiðir 10% hærra hrá- efnisverð en aðrar síldarbræðslur á landinu. Pétur Antonsson, verk- smiðjustjóri, var spurður hvað gerði það að verkum að verksmiðj- an gæti greitt hærra verð en aðrir. „Á undanförnum árum hafa farið fram gagngerar endurbæt- ur á verksmiðjunni. Þessar endurbætur hafa valdið því að við þurfum mun minni olíu til framleiðslu á hverju hráefnis- tonni. Þetta byggist að verulegu leyti á þvi að veksmiðjan endur- vinnur í verulegum mæli orku, sem annars staðar rennur óhindruð út í andrúmsloftið. Eftir þessar breytingar taldi stjórn fyrirtækisins eðlilegt að aukin hagkvæmni í rekstri leiddi til þess að verksmiðjan greiddi hærra verð til hráefnisseljenda, sérstaklega þegar háefni væri af skornum skammti. Þetta höfum við gert og má segja að allir aðil- ar, verksmiðjan, sjómenn og út- gerðarmenn, njóti góðs af. Ég vil þó láta þess getið að aðrar verk- smiðjur í landinu hafa flestar orðið mikið af góðum tækjum að öðru leyti en því að eldþurrkun er enn í þeim flestum. Verði því breytt í svipað horf og er hjá okkur, þá myndi ekki einungs fást betri afurðir, heldur fylgir því einnig verulegur orkusparn- aður, auk þess sem afurðirnar verða tvímælalaust betri og verðmeiri." — En hvaða verð greiðir verk- smiðjan nú? „Hráefnisverð loðnunnar er nú ansi flókið dæmi, sem í meg- indráttum byggist á því, að skiptaverð pr. tonn var ákveðið kr. 900 miðað við fituinnihald 16% og þurrefnisinnihald 15%. 1% frávik í fituinnihaldi veldur hækkun eða lækkun sem nemur 57 krónum, og 1% frávik í þurr- efnisinnihaldi veldur hækkun eða lækkun sem nemur 63 krón- um, hvort tveggja miðað við eitt Pétur Antonsson framkvæmdastjóri tonn. Þá greiða verksmiðjurnar einnig 39% ofan á skiptaverð (900 krónur), sem rennur óskipt til útgerðarinnar. Þannig er þetta nokkuð flókið dæmi, hvert raunverulegt verð er, sem verk- smiðjurnar greiða, en það sem af er þessari vertíð hefur okkar verksmiðja greitt um það bil 1650 krónur fyrir hvert tonn að meðaltali, enda hefur fituinni- hald loðnunnar verið óvenju mikið og veldur að sjálfsOgðu hærra hráefnisverði. Auk þessa er engin launung á því, að hafi skip þurft að sigla langa leið með farminn til þess að landa hjá okkur, þá höfum við tekið þátt í olíukostnaði." — Og hvernig er svo afkoma verksmiðjunnar? „Ég held að við þurfum ekki að kvarta. Árið 1983 bárust okkur um það bil 13 þúsund tonn alls og það ár varð hagnaður af rekstri 2,3 millj. kr. Það sem af er þessu ári hefur verksmiðjan tekið á móti ca. 23 þúsund tonn- um og tveir mánuðir eftir af ár- inu. Þannig er þegar ljóst að framleiðsla okkar verður meira en helmingi meiri á þessu ári en í fyrra. Við höfum þegar selt nokkuð af framleiðslu haustsins og fengið þokkalegt verð fyrir. En auðvitað er allsendis ómögu- legt að segja til um afkomu verk- smiðjunnar fyrr en búið er að selja afurðirnar. En við skulum segja að útlitið sé alls ekki vont eins og er, hvað sem verður þeg- ar upp verður staðið,“ sagði Pét- ur Antonsson, verksmiðjustjóri í Krossanesi, að lokum. GBerg. eru um 130.000,“ sagði Hultberg. „Við byggjum um 3.000 íbúðir á ári hverju og frá upphafi höfum við byggt alls 250.000 . Nú búa um 500.000 manns í búseturéttaríbúð- um á vegum Riksbyggen. Annað verkefni okkar er að annast rekstur um 1.200 búseturéttarfélaga í Sví- þjóð og um 200.000 íbúða á þeirra vegum. Við önnumst ekki aðeins bókhald og fjárhagsáætlanir félag- anna heldur sjáum við einnig um Riksbyggen tekur vaxandi þátt í því að spara orku i húsum sínum og hitunarkostnaður, sem er mjög hár í Svíþjóð eins og víðar, er innifalinn í leiguverðinu. fbúðarbyggingar hafa dregist saman í Svíþjóð und- anfarin ár hjá öðrum byggingarað- ilum en húsnæðissamvinnufélögum og í ár og á næsta ári er gert ráð fyrir að hlutur þeirra verði um eða yfir ló af allri byggingarstarfsem- inni.“ Hultberg var inntur eftir því hverja hann teldi vera framtíð ís- lensku húsnæðissamvinnufélag- anna. „Það er vissulega ánægjulegt að nú hafa verið stofnuð húsnæðis- samvinnufélög á íslandi eins og á hinum Norðurlöndunum þó að árangursins sé ekki enn farið að gæta. Við hjá Riksbyggen munum þó gera allt sem í okkar valdi stend- ur til þess að húsnæðissamvinnufé- lög verði viðurkennd sem slík hér á Iandi,“ sagði Hultberg. Jón Helgi Guðmundsson tekur vió 100. IBM PC-tölvunni frá Erlingi Ás- geirssyni og Gunnari Ólafssyni hjá Gísla J. Johnsen. Starfsmenn Gísla J. Johnsen og fulltrúar IBM fagna því að 100 tölvur hafa nú þegar verið afhentar. Gísli J. Johnsen afhendir 100. IBM-einkatölvuna GÍSLI J. Johnsen sf. fékk þann 1. aprfl á þessu ári umboó fyrir IBM- tölvur á íslandi. Á því tæpa hálfa ári, sem lióió er, hafa tölvurnar hlotið mjög góóar viðtökur og nýlega af- henti fyrirtækió 100 IBM PC-vélina. Það var BYKÓ, sem keypti þessa tölvu og tók Jón Helgi Guð- mundsson, forstjóri BYKÓ, við henni frá Erling Ásgeirssyni, framkvæmdarstjóra Gísla J. Johnsen, og Gunnar ólafssyni, framkvæmdastjóra Tölvubúnaðar sf., dótturfyrirtækis Gísla J. Jo- hnsen, sem nýlega var stofnað. í fréttatilkynningu frá Gísla J. Johnsen segir að fjölmargar pant- anir liggi fyrir frá skólum, stofn- unum og fyrirtækjum um kaup á IBM tölvubúnaði, stórum eða smá- um. Tölvurnar hafa þó fyrst og fremst farið til fyrirtæka til notk- unar við bókhald og gagnageymslu eða til að tengjast stærri vélum frá IBM. Fyrirtækið afhenti ný- lega Háskóla íslands tölvur, en fyrirhugað er, að Háskólinn kaupi tæpar 50 IBM-tölvur á þessu ári. Einnig hefur verið gerður samn- ingur við Innkaupastofnun ríkis- ins um sölu á tölvum og viðhaldi og þjónustu við þær. Tölvubúnaður sf. er nýtt dótt- urfyrirtæki Gísla J. Johnsen. Fyrirtækið kynnir og markaðsset- ur hugbúnað fyrir tölvur og veitir viðskiptavinum Gísla J. Johnsen, ráðgjöf við uppsetningu og noktun tölvu- og hugbúnaðar. Vegna auk- inna umsvifa fyrirtækisins hefur þurft að fjölga nokkuð starfs- mönnum þess. Guðni Jóhannesson varaformað- ur Búseta í Reykjavík og nágrenni tjáði blm. að félagsmenn í Búseta í Reykjavík væru nú um 2.500. „Sótt hefur verið um lán úr Byggingar- sjóði verkamanna, f samræmi við gildandi lög um húsnæðismál, til byggingar á 56 íbúðum í Reykjavík, 16 á Akureyri og 8 í Árnessýslu", sagði Guðni. „Borgarstjórinn í Reykjavík hefur gefið okkur vilyrði fyrir lóðunum þegar fjármögnun er tryggð en eins og kunnugt er stend- ur enn á húsnæðisstjórnarláni. Því er lítið um málið að segja eins og staðan er í dag, en nefnd á vegum félagsmálaráðuneytisins vinnur að því að íslensk húsnæðissamvinnufé- lög geti orðið að veruleika. Við munum knýja á um að þessi mál skýrist þegar á næstu mánuðum," sagði Guðni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.