Morgunblaðið - 09.11.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1984
19
í leit að hinum eina sanna tóni: Helgi Pétursson og Gunnar Þórðarson stilla
saman.
Ríó ásamt fimmtin manna hljómsveit undir stjórn Gunnars Þóróarsonar á
einni síðustu æfíngunni í Broadway.
á landshornaflakki ’77 eða þar um
bil?
„Jú, að vísu fórum við þá um
landið og hittum fólk en í rauninni
hættum við að spila saman haust-
ið ’73. Nú tökum við upp þráðinn á
ný — og ef ástæða verður til þá
bætum við kannski inn nýjum lög-
um til viðbótar við þau, sem við
höfum verið að æfa í fyrsta sinn.
Við vitum eiginlega ekki hvað það
er, sem fólk vill heyra... “
Þeir sögðust sannast sagna vera
steinhissa á þeim áhuga, sem þeir
hefðu fundið fyrir hjá fólki. „Við
héldum að við hefðum gengið
okkur til húðar sem skemmtiat-
riði,“ sögðu þeir. „Menn voru svo
sem lengi búnir að tala um þetta
við okkur, að við kæmum fram
einu sinni eða tvisvar, en við vor-
um lengst af tregir til. Þó vorum
við ákveðnir í, þegar hugmyndin
var að setja hér upp kvöld með
öllum þjóðlagaflokkunum frá
þessum tíma, í kringum 1970, að
vera með, en sú hugmynd var lík-
ast til andvana fædd. Að minnsta
kosti varð ekkert úr henni.
Ekkert komið í staðinn
Það vekur mann til umhugsun-
ar,“ sagði Ólafur Þórðarson og
strauk varlega yfir strengina á
nýja Ovation-gítarnum, „að það
hefur í rauninni ekkert komið í
staðinn fyrir okkur. Það er ekki
mikil fjölbreytni í skemmtana-
bransanum, þróunin hefur ekki
orðið mikil. Þegar við vorum og
hétum var starfandi fjöldinn allur
af sönghópum og tríóum, nú sýnist
manni sama fólkið vera að
skemmta ár eftir ár — sama fólk-
ið og við áttum í samkeppni við
fyrir fimmtán árum!“
— Hvað veldur, heldurðu?
„Æ, ég veit það ekki. Diskó-
bylgjan drap ansi mikið niður ... “
„... og svo varð allt býsna
alvarlegt um tíma, fljótlega eftir
að við vorum hættir," botnaði
Helgi. „Hópar á borð við okkur
fóru að flytja þyngri músík og
texta, fóru að hafa skoðun á öllum
hlutum — við gerðum ekki mikið
annað en að skemmta fólki og vera
með sprell.“
Níu börn
— Hafið þið verið að skemmta
hver öðrum síðan síðast? Hafið
þið komið saman til að syngja
gömlu slagarana i heimahúsum?
„Nei. Við höfum aldrei komið
saman til þess og ekki haft mikið
samneyti undanfarin ár. Menn
hafa verið í útlöndum og i vinnu
hér og þar og svo höfum við nátt-
úrlega verið að koma upp fjöl-
skyldum — sem hafa skemmt sér
konunglega yfir því að sjá okkur í
nýju „hljómsveitagöllunum". Og
svo eigum við orðið níu börn —
Helgi fjögur, Ágúst þrjú og ólafur
tvö — svo það er náttúrlega ekkert
skrítið þótt við höfum ekki haft
mikinn tima til að njóta samvista
hvers annars!"
— Hafið þið þá ekkert verið í
músík siðan Ríó lagði formlega
upp laupana?
„Jú,“ svaraði Ágúst. „Ég hef
fengist við hljóðfæraleik allar göt-
ur síðan og er núna nýlega hættur
i hljómsveitinni Álfa Betu, sem ég
spilaði með í mörg ár. ólafur hef-
ur sömuleiðis verið í músík, var
tónmenntakennari í nokkur ár,
gerði plötu og vinnur nú á tónlist-
ardeild Ríkisútvarpsins. Helgi
gerði líka plötu fyrir nokkrum ár-
um og er grunaður um að hafa æft
samviskusamlega á kontrabass-
ann þegar hann hefur getað litið
upp úr vinnu eða bleyjuþvottin-
um.“
— Endar ekki þetta ævintýri
með því að það verður gerð ný
Ríó-plata?
Þeir urðu undirfurðulegir á
svipinn. „Það veit enginn," sögðu
þeir með semingi. „Það hefur ekk-
ert verið talað um það ennþá — en
enginn veit sína ævina ... og svo
framvegis. Okkur sýnist helst að
plötumarkaðurinn hér sé stein-
dauður, þannig að í augnablikinu
er það alls ekki til umræðu."
- ÓV.
Fé rekið til réttar f Fljótsdalsrétt.
Fljótsdalur:
Vöxtur í trjágróðri var með ólíkindum í ár
GeiUgerAi í október.
FLJÓTSDALSRÉTT var hinn 20.
september eftir að safn af öllum
afréttum sveitarinnar var komið
saman, en afréttarlönd eru hér af-
ar víðlend eða í dagsverkum talin
um 350 að heimalöndum frátöldum.
Ætla má, að um 10.000 fjár komi til
réttar. Vænleiki dilka mun vera
með betra móti eftir eitt af hlýj-
ustu sumrum um langt skeið.
Vöxtur í öllum trjágróðri hefur
verið með ólíkindum í sumar. Ekki
þarf lengi að leita til þess að finna
70 til 80 sm árssprota á lerkinu og
einnig er mjög mikill vöxtur í öllu
greni.
Unnið hefur verið að rannsókn-
um og vegagerð á Fljótsdalsheiði í
sumar, vegna fyrirhugaðrar
Fljótsdalsvirkjunar. Einnig er unn-
ið að uppbyggingu vegar í byggð.
G.V.Þ.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA
HJÁ OKKUR
Gæði nr.l
.00
pr. kg
Kynnum í dag
Svikinn -g ^ ^ oo
hera
Trippa-
Mínútusteik_
Nvtt aðeins
Folaldahakk 00.00
ípottrétt 3^0 pr kg
Reykt úrbeinað
folaldakjöt 148é™
Lambakjöt
135
Nýsvið Rækjur lkg,
198 oo
í 1/1 skrokkum
niðursagað
AÐEINS
.00
pr.kg.
.00
pr.kg.
Opid til kl. 19.00 í kvöld
Opið á laugardag til 13.00 í Austurstræti
en kl. 16.00 í Starmýri
AUSTURSTRÆT117 STARMÝRI 2