Morgunblaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 10.11.1984, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1984 15 Guttonnur Jónsson 1 Valgarður Gunnarsson og Böðv- ar Björnsson sýna handmáluð ljóð eftir Böðvar, en þeir félagar hafa unnið þau í sameiningu. Myndirn- ar eru unnar í olíu, akril og pastel. Á sýningu þeirra eru einnig u.þ.b. 40 myndir eftir Valgarð sem eru unnin í ýmis efni. Á austurgangi sýnir Guttormur Jónsson skúlptúr, 29 verk sem hann hefur unnið úr tré, grjóti og trefjasteinsteypu. Guttormur stundaði nám í höggmyndadeild Myndlistaskóla Reykjavikur á ár- unum 1978—1981. Hann er hús- gagnasmiður að mennt. Þetta er fyrsta einkasýning hans, en hann hefur áður tekið þátt i samsýning- um á Akranesi og i Reykjavík. Guttormur hefur mest unnið með tré, en er nú að gera tilraunir með trefjasteinsteypu, en það er blanda af steypu og trefjum, sem hann fékk úr Járnblendiverk- smiðjunni. Guttormur sagði að mjög skemmtilegt væri að vinna með þetta efni og sagðist vera ákveðinn í að halda því áfram. Um síðustu helgi var opnuð sýn- ing Steinunnar Marteinsdóttur i austursal Kjarvalsstaða. Þar sýn- ir Steinunn verk úr leir og postu- líni. Þessar sýningar standa allar til 25. nóvember og er opið alla daga frá kl. 14-22. Vetrarfundur um málefni raf- og hitaveitna SAMEIGINLEGUR vetrarfundur Sambands íslenskra rafveitna og Sambands íslenskra hitaveitna verður haldinn í Reykjavik dagana 15. og 16. nóvember nk. Á fundinum verða tekin fyrir margvísleg mál sem snerta annars vegar raforkufyrirtæki og hins veg- ar hitaveitur landsins auk þeirra mála sem sameiginleg eru fyrir orkuveitur landsins. Meðal sameiginlegra mála eru tolla- og skattamál. Lögð verður fram ný húshitunarspá til ársins 2015. Þá verður rætt um samnýt- ingu hitaorku og raforku. Hitaveit- urnar munu ræða sölufyrirkomulag hitaveitna, sölumælingar og reglu- gerðir hitaveitna. Raforkufyrirtækin munu taka fyrir stöðugleika Landsvirkjunar- kerfisins og afhendingaröryggi raf- orku, hönnunarforsendur raforku- kerfis í þéttbýli og athugun Raf- magnsveitu Reykjavikur og Lands- virkjunar á aðferðum við álagsspá í raforkukerfinu. Þá verður rætt um gjaldskrármál raforkufyrirtækja, bæði niðurstöður alþjóðafunda og norrænna funda rafveitna og kostn- aðarréttar gjaldskrár raforkufyr- irtækja. í fundinum taka þátt fulltrúar hitaveitna og raforkufyrirtækja landsins ásamt þeim opinberu stofnunum sem hafa raforkumál á sinni könnu. Er þetta öðru sinni sem SÍR og SÍH þinga saman um orkuveitumál. (Fréttatilkynning.) VJterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamióill! Verið velkomin að lita inn í verslun okkar á Smiðjuvegi 2 i Kópavogi og kynnast SALIX að eigin raun. Ný innréttuð verslun, sem full er af góðum húsgögnum. frésmidian vidir hf HUSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI 2 - KÓPAVOGI SÍMI 45100 Karlaáhrif Stórir, þægilegir jakkar. Vel sniðnar buxur. Einfaldar skyrtur. Silkivasaklútur og endahnúturinn, breitt bindi. Þetta haust og vetur leitar vel klædda konan fanga í karlmannafatnaði og er ófeimin að velja sér það bezta þaðan. Jakkaföt úr súkkulaði- brúnu ullarefni, tví- hnepptur jakki og djúpar fellingar á buxum. Ryð- rauð og beinhvít röndótt silkiblússa og brún- munstrað bindi jZt**t*0*'*#*£y * Tl^ eb 1 HANDAVINNUPOKINN Öðruvísi borðmotta með vasa fyrir hnífapör Efni: Mottuna má búa til úr einlitu strigaefni eða einhverju öðru sterku efni, 35x45 sm. Einnig má hafa hana tvöfalda með þvf að leggja saman 2 stk. af þunnu lérefti, og sauma saman röngu á móti röngu. f vasann röndótt eða rós- ótt efni, 12x12 sm. Einnig þarf 210 sm skáband. Rúnnið hornin á mottunni og bryddið með skábandinu. Rúnnið einnig tvö af hornunum á vasanum, og bryddið með skábandi allar 4 hliðarnar. Saumið vas- ann í eitt hornið á mottunni um 3 sm frá kantinum. Gerið tvo sauma niður eftir vasanum svo myndist þrjú hólf fyrir hnífapörin. Þetta er i eina mottu og svo getið þið auðvitað búið til munnþurrkur úr sama efni, ca. 30x30 sm, bryddað með ská- böndum eða sigsag-saum og búið til kögur ef efnið býður upp á það. Notið hugmyndaflugið. Upplagt til gjafa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.