Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 15.11.1984, Blaðsíða 52
52 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 15. NÓVEMBER 1984 Stjórnmálaályktiin Heimdallar Aðalfundur Heimdallar, haldinn 15. september 1984, lýsir yfir full- um stuðningi við stefnu núverandi ríkisstjórnar. Núverandi ríkis- stjórn tók við þrotabúi síðustu vinstri stjórna. Verðbólga var komin yfir 130% og stöðvun atvinnulífsins blasti við. Ríkisstjórnin greip þegar til markvissra aðgerða sem nú hafa skilað ótvíræðum árangri, komið verðbólgu niður í 15—20%, haldið gengi stöðugu til hagsbóta fyrir allan almenning. Þá hefur náðst að tryggja fulla atvinnu þrátt fyrir aflabrest og minni þjóðartekjur. Ríkisstjórnin hefur auk þessa beitt sér fyrir stórfelldum breytingum á mörgum sviðum, auknu frelsi í banka- og gjaldeyrisverslun, af- námi verðlagshafta og niðurfell- ingu hins óréttláta ferðamanna- skatts. Gjörbreyting hefur orðið í stóriðjumálum og ástæða er til að fagna sérstaklega nýgerðum ál- samningi sem allt bendir til að sé Islendingum ákaflega hagstæður. Ennfremur leika nú ferskir vindar um ráðuneyti menntamála. Þessi árangur er þó ekki nægi- legur. Nauðsynlegt er að ná verð- bólgunni enn frekar niður og hefja nýja sókn í atvinnumálum þjóðar- innar svo auka megi framleiðni og verðmætasköpun, en einungis þannig er hægt að bæta lífskjör fólksins í landinu. Innantómar kauphækkanir, sem engin raun- veruleg verðmætaaukning liggur á bak við, er launþegum einskis virði. Þá reynslu ætti þjóðin að þekkja frá liðnum verðbólguára- tug. Það væri ábyrgðarleysi gagn- vart kjósendum að láta óraunhæfa kjarasamninga hleypa af stað nýrri verðbólguskriðu. Heimdallur minnir enn á ný á reynsluna frá ríkisstiórn sömu flokka 1974— 1978. A miðju ári 1977 þegar veru- legur árangur hafði náðst í efna- hagsmálum, þá var gefið eftir, þrýstihóparnir tóku völdin og ný holskefla verðbólgu skall á. Stjórn- arflokkarnir guldu afhroð í næstu kosningum og vinstri flokkarnir tóku við stjórnartaumunum með afleiðingum sem allir þekkja og vilja ekki upplifa aftur. Heimdall- ur minnir á að þessi ríkisstjórn var mynduð til aö ná verðbólgunni niður og koma á jafnvægi í at- vinnulffinu. Fari verðbólguskriðan aftur af stað hljóta forsendur fyrir þessu stjórnarsamstarfi að vera brostnar. Á FYRSTA stjórnarfundi nýkjör- innar stjórnar Heimdallar var Þór Sigfússon menntaskólanemi kjör- inn varaformaður félagsins. Sjón- arhorn hitti Þór að máli og innti hann eftir starfi félagsins frá aðal- fundi. Þ.S. Verkfall bókagerðar- manna og opinberra starfs- manna setti eðlilega strik í reikninginn. Við Heimdellingar höfum þó ekki setið auðum höndum. Stór hluti þess starfs, sem innt var af hendi hjá Frjálsu útvarpi í verkfallstíð- inni, var unninn af okkar fólki. Það sem aðallega dróst saman vegna ástandsins voru ýmiss konar fundir og ráðstefnur, sem fyrirhugaðar voru. Einnig tafð- ist allnokkuð prentun Rauðu bókarinnar og Iðnaðarrits fé- lagsins. Að verkfalli loknu hóf- Heimdallur leggur sem fyrr áherslu á einstaklingsfrelsi og frjálst markaðshagkerfi. Útflutn- ingsverslunina þarf að gefa frjálsa, hverfa verður frá því steinrunna ríkisinnkaupakerfi sem nú tiðkast um olíuinnkaup til landsins. Verslun með grænmeti og kartöflur verði gefin frjáls. Sömuleiðis verði verslunarálagn- ing og opnunartími verslana gefin frjáls. Horfið verði frá ríkisvernd- aðri einokun í verktakastarfsemi á Keflavíkurflugvelli. Setja þarf lög gegn einokun og hringamyndun og fella brott samkeppnishömlur hvar sem þær er að finna í efnahagslif- inu. Heimdallur hefur ætíð barist gegn því að ríkið sé að vasast í rekstri sem betur er kominn í höndum einstaklinga. Fyrir síð- ustu kosningar eins og svo oft áður gaf Sjálfstæöisflokkurinn stór lof- orð um sölu á rikisfyrirtækjum. Litið hefur orðið um efndir ef und- an er skilin vaskleg framganga iðnaðarráðherra. í nýgerðri verk- efnaáætlun rfkisstjórnarinnar er gert ráð fyrir stofnun eignar- haldsfyrirtækis sem á að hafa með höndum eignir ríkisins f atvinnu- fyrirtækjum. Heimdallur leggur mikla áherslu á að megintilgangur þessa fyrirtækis sé að auðvelda sölu ríkisfyrirtækja og fyrirtækja sem ríkið á hlutdeild í. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ætíð talið sig merkisbera þeirra sem vilja sem minnst fþyngja borgurunum með opinberum af- skiptum og skattheimtu. Heim- dallur fagnar því fyrirheiti sem fram kemur í nýgerðri verkefna- áætlun ríkisstjórnarinnar að af- nema skuli tekjuskatt af almenn- um launatekjum, en lýsir jafn- framt yfir vonbrigðum sfnum með að hér skuli ekki vera um að ræða allsherjarafnám tekjuskattsins. Allsherjarafnám tekjuskattsins er raunhæfasta kjarabótin eins og ástandið er f þjóðfélaginu í dag. Heimdallur minnir ennfremur á að sumir hinna svokölluðu vinstri stjórnar skatta, sem lofað var að afnema, eru enn í fullu gildi og að ekki er komið í framkvæmd hið gamla stefnumál flokksins um að heimili skuli skattlögð jafnt hvort sem fyrirvinnan er ein eða fleiri. Það hefur lengi verið eitt af meginatriðum í stefnuskrá Sjálf- stæðisflokksins að einstaklingum sé gert kleift að eignast sitt eigið ust þegar áætlanir um fundi og ráðstefnur og má þess geta að við héldum fund með Sigurði Líndal, sem bar yfirskriftina „Ríki, ríkisvald, verkföll". Heppnaðist fundurinn mjög vel. Einnig höfum við byrjað aftur á fundaröðinni „Maður er nefnd- ur“ og hefur þegar einn fundur verið haldinn. Var sá fundur með Kjartani Gunnari Kjartans- syni heimspekinema. Fyrirhug- aðir eru fundir af svipuðu tagi með Markúsi Erni Antonssyni nýskipuðum útvarpsstjóra, Arn- óri Hannibalssyni dósent og Kristjáni Jóhannssyni fram- kvæmdastjóra AB. Sp. Eins og fram kom hér áðan hefur félagið endurútgefið Rauðu bókina. Hvað kemur til að félagið ræðst út í þær framkvæmdir. Þ.S. Rauða bókin hefur verið húsnæði. Fyrir síðustu kosningar boðuðu báðir stjórnarflokkarnir að stefnt skyldi að 80% lánshlutfalli með fjármagni frá Húsnæðisstofn- un ríkisins. Því fer fjarri að það markmið hafi náðst þótt vissulega hafi miðað í áttina. Þannig hefur lánshlutfallið hækkað úr 19% í tíð síöustu ríkisstjórnar í 29,1% nú. Við það bætist að lán til einstakl- inga hafa hækkað meira og út- greiðslum flýtt sem hlýtur að koma þeim sérstaklega vel sem eru að byggja í fyrsta skipti. Heimdall- ur leggur áherslu á að markvisst verði unnið að því á næstunni að Aðalfundurinn var haldinn í Valhöll 15. sept sl. Fundurinn var haldinn í skugga verkfalls bóka- gerðarmanna og því ekki eins vel auglýstur og oft áður. Þrátt fyrir það komu rúmlega 50 félagsmenn. Góð stemmning ríkti á fundin- um og gengu aðalfundarstörf vel fyrir sig. ítarleg stjórnmála- Þór Sigfússon ófáanleg um nokkurra ára skeið. Því töldum við nauðsynlegt að ráðast í endurútgáfu á þessum opinberu staðfestingum á raun- verulegum hugsanagangi og vilja íslenskra sósíalista. Það vekur ekki síður athygli að nær undantekningarlaust sitja þessir styrkja húsnæðislánakerfið. Heim- dallur fagnar því að Sjálfstæðis- flokkurinn barðist einn flokka á Alþingi gegn því að leiguréttarfé- lögum eins og Búseta væri veittur aðgangur að Byggingarsjóði verka- manna. Sjálfstæðisflokkurinn get- ur ekki staðið að lagasetningu sem hyglar þeim sem kjósa að búa í leiguhúsnæði á kostnaö þeirra sem vilja eignast þak yfir höfuðið. Heimdallur fagnar því að í ný- legri skoðanakönnun lýsti afger- andi meirihluti þjóðarinnar stuðn- ingi við stefnu Sjálfstæðisflokks- ins í varnar- og öryggismálum. Heimdallur varar þó eindregið við öllum hugmyndum um að gera ör- yggismál þjóðarinnar að féþúfu. Sjálfstæðisflokkurinn má aldrei ljá máls á því að efnahagslegu sjálfstæði þjóðarinnar sé stefnt i hættu. Ákvarðanir i varnarmálum eiga einungis að taka mið af örygg- ishagsmunum þjóðarinnar á hverj- um tíma. Heimdallur fagnar því að í nýgerðri verkefnaáætlun ríkis- stjórnarinnar skuli stefnt i rétta átt til að losa um hið staðnaða landbúnaðarkerfi. í þessum málum duga ekki fögur fyrirheit, því það er framkvæmdin sem skiptir máli. Heimdallur er þeirrar skoðunar að gera þurfi róttækan uppskurð í þessu kerfi. Afnema niðurgreiðsl- ur, útflutningsbætur og kjarnfóð- ályktun var samþykkt og eru kaflar úr henni birtir annars staðar á síðunni. Sigurbjörn Magnússon laga- nemi var endurkjörinn formaður en hann var einn í kjöri. Aðrir í stjóm voru kosnir: Baldvin Ein- arsson, Eiríkur Ingólfsson, Elín Hirst, Gísli Gíslason, Hákon örn Arnþórsson, Kristján B. ólafs- son, Rósa Guðbjartsdóttir, Sig- fyrrum félagar SÍA, er rituðu þessa bók, nú í áhrifastólum hjá Alþýðubandalaginu. Sp. Nú ert þú að Ijúka mennta- skólanámi. Hvernig hefur skóla- starf félagsins gengið og hvernig eru viðhorf menntaskólanema til stjórnmála í dag. Þ.S. Það er alveg ljóst að mikl- ar breytingar hafa átt sér stað í viðhorfum skólafólks til stjórn- mála hin síðustu ár. Besta stað- festingin á því er mun betra gengi lýðræðissinna í Háskólan- um síðastliðin 2—3 ár. Einnig er þess að geta að hægri sveifla hefur ekki einungis átt sér stað á íslandi heldur sést þessi þróun nær allstaðar í okkar nágranna- löndum. Varðandi skólastarfið hjá Heimdalli má segja að þessi hugarfarsbreyting hafi einnig sést mjög vel. Nýr skóli hefur komið út og fyrirhuguð er útgáfa á blaðinu á nýju ári. Einnig er byrjað að ræða hugsanlegar ráðstefnur og fundi í tilefni af ári æskunnar 1985. Hafin er vinna á bæklingi um starf og stefnu félagsins sem dreift verð- urskatt og láta þannig lögmál framboðs og eftirspurnar ráða í þessum málum sem öðrum. Heimdallur lýsir yfir óánægju sinni yfir örlögum frumvarps um afnám einkaréttar rfkisins á út- varpi og sjónvarpi og treystir þing- mönnum Sjálfstæðisflokksins til að ná þessu máli fram á komandi haustþingi. Á sama tíma og aft- urhaldssinnaðir þingmenn reyna að berjast gegn vilja almennings og svæfa frumvarpið er fjármagni dælt í tröllvaxið útvarpshús en alls er óvíst hvaða hlutverki Ríkisút- varpið mun gegna þegar sam- keppni hefur komist á ( þessum málum. Heimdallur leggur til að mörkuð verði raunhæf stefna í áfengismál- um þjóðarinnar með traust á ein- staklingunum að leiðarljósi og hafnar öllum hugmyndum um að vilji fámenns minnihluta um boð og bönn á þessu sviði verði opinber stefna. Heimdallur minnir enn á að aflétta verður bjórbanninu. Heimdallur vill vekja athygli á þeirri breytingu sem orðin er á stjórnarskránni sem felur í sér að kosningaaldur hefur verið lækkað- ur í 18 ár. í samræmi við þá breyt- ingu er nauðsynlegt að þessi ald- urshópur sem nú er falin sú ábyrgð að setjast að kjörborðinu, njóti allra þeirra réttinda sem eldri en 20 ára njóta. urbjörn Þorkelsson og Þór Sig- fússon. Stjórnin skipti þannig með sér verkum: Þór Sigfússon varafor- maður, Benedikt Bogason ritari og Kristján B. ólafsson gjald- keri. Því má bæta við að kvöldið eftir aðalfundinn var haldið hóf í kjallara Valhallar til að fagna hinni nýkjörnu stjórn. ur í alla framhaldsskóla og er ætlunin að hann komi út í febrú- ar á næsta ári. Sp. Hvað er framundan í starfi félagsins? Þ.S. Fyrst ber að nefna bækl- ing um kommúnismann, sem fé- lagið er nú að vinna, þar eru á ferðinni ræður eftir hina ýmsu menn, sem fluttar voru á fund- um félagsins á árunum 1954—’56. Einnig er hafin vinna að Stjórnmálaritum, en líklega munu þeir bæklingar koma út um mitt næsta ár. Viðskiptarit félagsins er svo væntanlegt um jólin. Eins og ég hef áður getið um eru fyrirhugaðir ýmsir fund- ir á næstunni eins og fundirnir „Maður er nefndur", kvöldverð- arfundir og fræðslufundir ýmiss konar. Einnig verður hið árlega jólaglögg félagsins haldið í kjall- ara Valhallar. Starf eftir áramótin hefur ekki verið fastmótað, en þó höf- um við dregið nokkrar línur með tilliti til árs æskunnar o.fl., en að sjálfsögðu er mikils að vænta í starfseminni á nýju ári. Margt á döf inni Rætt við Þór Sigfússon varaformann Heimdallar Stjórn Heimdallar 1984—1985 Aftari röó frá vinstri. Hákon Örn Arnþórsson, Sigurbjörn Þorkelsson, Kristján B. Ólafsson gjaldkeri, Eiríkur Ingólfsson, Baldvin Einarsson, Gísli Gíslason og Benedikt Bogason ritari. Fremri röð frá vinstri. Rósa Guðbjartsdóttir, Drífa Hilmarsdóttir, Sigurbjörn Magnússon formaður, Elín Hirst og Þór Sigfússon varaformaður. Aðalfundur Heimdallar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.