Morgunblaðið - 22.11.1984, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.11.1984, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 229. tbl. 71. árg. FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984 Prentsmiðja Morgunblaðsins Flóttamennirnir tæplega 300 úr tveimur skipum Varejá, Rotterdam, 21. DÓrember. AP. FLEIRI FARÞEGAR af pólska skemmtiferðaskipinu Stefan Batory hlupu frá borði er skipið lagðist að bryggju í Rotterdam í dag. Áður höfðu 192 flúið frá borði í Hamborg og fjöldi þeirra beðist hælis sem pólitískir flóttamenn f Vestur-Þýskalandi. Enginn reyndi að koma í veg fyrir straum farþega frá borði í Rotterdam, en margir þeirra böfðu farangur sinn með sér og létu í það skína að þeir myndu ekki halda heim til Póllands á ný. Þá greindu talsmenn útlend- ingaeftirlitsins í Vestur-Þýskalandi að 93 pólskir ferðamenn af öðru skipi hefðu beðist hælis í landinu í síðustu viku. Eigi er með öllu ljóst hversu margir muni biðjast hælis í Hol- landi, en 650 farþegar voru um borð í Stefan Batory og alls hafa 285 flú- ið úr báðum nefndum skipum svo vitað sé. Skipstjóri Stefan Batory sagði í samtali við fréttamenn, að þetta væri allt saman fullorðið fólk og það væri ekki í sínum verkahring að skipta sér af því hvort fólkið vildi verða eftir f Rotterdam eða halda heim til Póllands. „Hins veg- ar ber að geta þess að fólkið er illa upplýst um Vesturlönd og það á eft- ir að reka sig illa á,“ sagði skip- stjórinn. Hin opinbera pólska fréttastofa, PAP, greindi frá því í dag, að úlf- aldi hefði verið gerður úr mýflugu i fjölmiðlum á Vesturlöndum. „Það er dæmigert að Vesturlönd skyldu notfæra sér svona atburð í auglýs- ingaskyni og blása hann út,“ sagði í frétt PAP. Afvopnimarviðræður stórvelda í aðsigi? WashÍDgton, 21. nÓTember. AP. UPPLYSTIR en ónafngreindir emb- ættismenn innan bandaríska utanrík- isráðuneytisins greindu frá því í dag, aó orðsending, sem kom frá sovésk- um yfirvöldum og undirrituð var af Konstantin Cbernenko forseta lands- ins og formanni kommúnistaflokks- ins, bendi til þess eindregið að Rússar hafi nú mikinn áhuga á því að befja á ný viðræður við Bandaríkin um al- hliða afvopnun. Orðsending þessi mun hafa borist Bandaríkjastjórn i síðustu viku og þar er viðruð hugmynd um að utan- ríkisráðherrarnir George Shulz og Andrei Gromyko gætu hist og rætt málin. Myndi sá fundur geta verið aðdragandi að fundi Reagans og Chernenkos, forsetanna. Banda- ríkjastjórn hefur þegar svarað þreifingum Sovétmanna og lýst sig reiðubúna til að hefja þegar i stað undirbúning að slikum fundi. Sovétmenn hafa i vaxandi mæli að undanförnu látið í það skína, beint og óbeint, að þeir séu reiðu- búnir i viðræður um fækkun vopna, einkum kjarnorkuvopna. Síðast á föstudag lýsti Chernenko yfir í ræðu að Sovétmenn væru reiðubún- ir að ræða málin ef Bandaríkja- menn væru það einnig. Símamynd/ AP. Leitað í húsarústum Enn er leitað fórnarlamba gassprengingarinnar miklu í fátækrahverfi Mexíkóborgar og á meðfylgjandi mynd má sjá björgunarsveitir að störfum í húsarústum. Yfirvöld í Mexíkó segja rannsókn þessa máls vera í fullum gangi og enn sem komið er hefur ekki verið frá því greint hvað valdið hafi sprengingunni. Sjá nánar á bls. 24. Eru MIG- þoturnar umdeildu í Líbýu? Lundnnum, 21. uÓTember. AP. BRESKA hermálavikuritið Janes greindi frá því í síðasta tölublaði sínu, að vissulega hefðu verið sov- éskar MIG-herþotur um borð í sovéska flutningaskipinu sem lagði að bryggju í Nicaragua á dögunum og mikið veður var gert út af. Þeim hafí hins vegar verið skipað upp í Trípólí en ekki í Nic- aragua eins og Bandaríkjamenn álitu í fyrstu, en skipið kom við í Líbýu á leið sinni til Mið-Ameríku- ríkisins. Heimildarmenn Janes eru ónafngreindir að öðru leyti en því að sagt er að þeir séu háttsettir embættismenn innan bandaríska utanríkisráðuneytisins. Fer það orð af Janes að það sé áreiðanlegt blað. Segir blaðið eftir heimildum sínum, að eftir að irafárið var komið af stað vegna Nicaragua, hafi bandarísku leyniþjónustunni borist til eyrna að gámar sem hæglega hefðu getað verið um- búðir utan um MIG-þotur hefðu verið teknir frá borði í Trípólí. í Corinto, hafnarborg í Nicaragua, var engu skipað upp sem benti til að þoturnar hefðu verið um borð. Tamilar efndu til blóð- baðs við lögreglustöð Colombo, Srí Lankm. 21. BÓTember. AP. HERSKÁIR tamilar sem berjast fyrir stofnun sérstaks ríkis á Sri Lanka létu til skarar skríða svo um munaði víða um landið í dag. Sprengdu þeir í loft upp lögreglu- byggingu og gerðu síðan margar árásir á her- og lögreglumenn hingað og þangað um landið. Mikið Mikil óiga í Sri Lanka manntjón varð í árásum tamilanna, einkum í sprengingunni fyrr- nefndu. Sögðu tamilar 130 manns hafa látið lífið. Yfirvöld sögðu það orðum aukið, um 40 hefðu fallið. Nýtt og öruggt bólu- efni gegn hundaæði Stranbourg, FrakklaodL 21. nÓYember. AP. VÍSINDAMENN við Trans- gene-rannsóknarstöðina í Stras- bourg telja sig hafa fundið öruggt bóluefni gegn sjúkdóminum hundaæði. Eru rannsóknir þeirra á hinu nýja bóluefni svo langt komnar að innan tveggja ára er talið að hefja megi notkun þess á dýrum, hins vegar sé enn nokkuð langt að bíða þess að nota megi efnið á fólk sem fengið hefur sjúkdóminn. Vísindamennirnir hafa fund- ið lækningu á hundaæði með erfðafræðilegum rannsóknum. Hafa þeir styrkt ákveðna teg- und próteins í genunum og eyk- ur það mótstöðuna gegn hunda- æðisvírusinum. Hér er um „andgen" hundaæðisvírussins að ræða og er því er sprautað í sjúklingana eru fyrstu viðbrögð hin sömu og ef hundaæði hefði verið í sprautað. Bóluefnið nýja eykur hins vegar mótstöðuna gegn hinum raunverulega vír- us. Segja vísindamennirnir að nýja bóluefnið hafi heppnast fullkomlega í notkun á rottum, músum og smáöpum á rann- sóknarstofum. Eftir nokkur ár má væntanlega fara að nota það á fólk. Það voru um 250 skæruliðar tamila sem réðust á lögreglu- stöðina í borginni Chavakchceri og hrundi byggingin að mestu er tveir úr hópnum óku sprengjum hlaðinni vörubifreið að aðaldyr- um byggingarinnar. „Það tók okkur einungis nokkrar mínútur að drepa 60 lögreglu- og hermenn gumaði tamili einn sig af er hann hringdi í dagblað og lýsti vígun- um á hendur öfgasinnuðum tam- ilum. Er byggingin var hrunin, höfðu skæruliðarnir sig á brott, en fóru ekki langt, heldur bjuggu um sig hér og þar og vörnuðu hermönnum að hefja björgun- arstörf í rústum hússins. Liðu þrjár klukkustundir áður en hjálparstarf gat hafist. Þá sátu tamilar fyrir her- mönnum hér og þar og drápu marga. í höfuðborginni Colombo var þó allt með kyrrum kjörum ^ó loft væri lævi blandið er fregnir af aðgerðum tamila bár- ust. Margir tamilar fengu þó að fara snemma heim úr vinnu af ótta við að hefndaraðgerðir kynnu að beinast gegn þeim. í þrjú ár hafa Tamilar barist fyrir því að fá stofnsett sérstakt ríki í norðanverðu landinu. Hef- ur sú barátta verið blóði drifin lengst af. HVERJAR ERU UFSSKOÐANIR ÍSLENDINGA Hhiti af viðamestu könnun sinnar tegundar í heiminum Könnun á giMismati og mannleg- um vióhorfum íslendinga. Átta síðna blaðauki fýlgir blaðinu í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.