Morgunblaðið - 22.11.1984, Blaðsíða 64
SDkDRST iANSIRMJST
0fi0uiElíIal>i^
OPIDALLA DAGA FRÁ
KL. 11.45 - 23.30
0 //“TÍ1
^aakenmn
AUSTURSTRÆTI22
INNSTRÆTI, SlMI 11633
FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1984
VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR.
Köimun Hagvangs á gildismati og mannlegum viðhorfum íslendinga:
Erum hamingjusöm,
stolt og trúhneigð þjóð
Morgunblaðið/Friðþjófur
JóhanneM Nordal afhendir Steingrími Hermannssyni forsætisriðherra rann-
sóknargögn Hagvangs um gildismat og mannleg viðhorf íslendinga.
„VIÐ HÖFUM bér mynd af hamingjusamri þjóð, sem lent hefur í tíma-
bundnum efnahagslegum erfiðleikum," sagði dr. Jóhannes Nordal i fundi i
Hótel Loftleiðum í gær þar sem kynntar voru fyrstu niðurstöður úr hinni
viðamikhi könnun Hagvangs hf. i gildismati og mannlegum viðhorfum
íslendinga, en könnun þessi er liður í alþjóðlegri rannsókn, sem þegar hefur
verið gerð í u.þ.b. 25 öðrum löndum.
fslendingar virðast vera sáttari
við lífið en flestar aðrar þjóðir,
sem rannsóknin tekur til. Engin
Evrópuþjóð telur sig jafn ham-
ingjusama og einungis Danir telja
sig ánægðari með lífið um þessar
mundir. Hið eina, sem skyggir á
lífsgleði fslendinga er megn
óánægja þeirra með fjárhagslega
afkomu sína. Þar eru þeir í flokki
með þjóðum í Suður-Evrópu, en
nágrannaþjóðir á Norðuriöndum
eru í þessu efni meðal hinna
ánægðustu.
Niðurstöðurnar leiða í ljós að
fslendingar eru mjög trúhneigðir.
Þeir segjast flestir sækja huggun
og styrk í trúna og guð skiptir
miklu máli í lífi þeirra. Allt annað
Þjóðarbúskapur íslendinga 1974 til 1984:
Aðeins níu þjóðir af
93 stóðu sig verr
ÞJÓÐARBÚSKAPUR fslendinga er I fyrir viðskiptakjaraskelli vegna I lendum markaði yfirleitt verið
tíundi lakastur í samanburði milli 93 olíuverðshækkana hafi verðlag á gott.
þjóöaá tímabilinu 1974 til 1984. Þau I útflutningsafurðum okkar á er- | Sjá nánar á bls. 4.
níu ríki sem stóðu sig verr á þessu
er upp á teningnum þegar spurt er
um trúariðkanir. Kirkjusókn er
áberandi lítil og innan við helm-
ingur segist taka sér tíma til að
biðjast fyrir eða til annarrar and-
legrar iðkunar. Meirihluti íslend-
inga telur fullyrðingar um að til sé
einhvers konar alheimsandi eða
lífskraftur komast næst trú sinni,
en á hinn bóginn telur innan við
fimmtungur að til sé persónulegur
guð.
Fáar þjóðir segjast stoltari af
þjóðerni sinu en fslendingar og
þeir skera sig greinilega úr öðrum
Norðurlandaþjóðum um þetta.
Margt annað forvitnilegt um
lífsskoðanir fslendinga er að finna
í þeirri greinargerð, sem Hag-
vangur sendi frá sér í gær, og eru
því gerð ýtarleg skil í átta síðna
blaðauka, sem fylgir Morgunblað-
inu í dag.
Jóhannes Nordal, sem hefur
verið formaður yfirstjórnar könn-
unarinnar, afhenti Steingrími
Hermannssyni, forsætisráðherra,
öll gögn íslensku rannsóknarinnar
á seguldiski, sem unnt er að tölvu-
keyra, og óskaði eftir því að for-
sætisráðherra kæmi þeim á fram-
færi við Háskóla íslands til varð-
veislu og frekari úrvinnslu.
Sjá: „Hverjar eru
lífsskoðanir fslend-
inga“ á bls. 29—36.
Líkan af hhita nýja byggingar-
svæðisins.
Ný þúsund
íbúa byggð
vestan við
Gullinbrú
400 lóðum úthlutað
eftir áramót
SKIPULAG nýs hverfis f Grafar-
vogi, vestan Gullinbrúar, var
kynnt á borgarráðsfundi í Reykja-
vík í fyrradag. Verður farið að út-
hhita um 400 lóðum þar f byrjun
næsta árs og er gert ráð fyrir að
þegar hverfið verður fullbyggt
muni búa þar ekki færri en 1.000
manns, að því er Davfð Oddsson
borgarstjóri sagði.
„Þetta verður vafalaust mjög
skemmtilegt hverfi,“ sagði borg-
arstjóri, „því þarna verður bteði
skjól fyrir norðanátt og opið
fyrir sunnansól. Þetta hverfi er
vestast á tanganum og sér þar
út yfir sundin og Faxaflóa.
Þarna verður úthlutað um 400
lóðum fljótlega eftir áramót, um
100 fyrir fjölbýlishús, aðrar lóð-
ir fara undir einbýlishús, keðju-
hús og raðhús."
skeiði voru Uruguay, Uganda, Perú,
Brasilía, Zaire, Ghana, Bolivía, fsra-
el og Argentína. íslendingar eru hópi
tíu verstu verbólguþjóða heims. Auk
þess er íslenska krónan meðal
þeírra gjaldmiðla heims sem hafa
fallið mest á tímabilinu 1974—1984.
Sé litið á lánstraust eru íslendingar í
bópi þeirra Vestur-Evrópuþjóða sem
minnsts trausts njóta.
Þetta kemur fram f nýjasta
tölublaði vikuritsins Vísbend-
ingar, sem Kaupþing hf. gefur út
undir ritstjórn dr. Sigurðar B.
Stefánssonar. Byggjast upplýs-
ingar Vísbendingar á niðurstöðum
tveggja virtra bankarita, Institut-
ional Investor og Euromoney.
Vísbending segir að niðurstöðurn-
ar um lánstraustið séu á „vissan
hátt þungbærar og þær gætu verið
betri“ en sfðan bætir blaðið við:
„Þó er lánstraust okkar nægilegt
til að tryggja erlend lán eftir þörf-
um á viðunandi kjörum.”
Við samanburðinn er löndum
skipt í tvo flokka, iðnþróuð lönd og
þróunarlönd, og er Island meðal
þeirra fyrrnefndu. í flokki 27
þjóða á menningarstigi fslendinga
er aðeins frammistaða ísraela lak-
ari, þegar litið er á þjóðarbúskap-
inn síðustu tfu ár. Minnir Vfs-
bending á, að í ísrael hafi ríkt
hernaðarástand meginhluta tíma-
bilsins. Hins vegar bendir Vís-
bending á þá staðreynd að á þess-
um árum hurfu aðrar þjóðir af
fiskimiðum íslendinga og þrátt
Óhugnanleg lífsreynsla tvítugs skipverja á Skarðsvík SH:
„Of fjarstæðukennt að ég
ætti að drukkna í loðnu“
„ÞAÐ VAR ekki fyrr en loðnan náði mér upp fyrir hökn að ég viður-
kenndi með sjálfum mér, að ég var í bráðrí lífshættu. En ég vildi ekki
trúa að ég ætti eftir að drukkna í þessari leðju ... að þetta gætu verið
endalokin. Það var of fjarstæðukennt að drukkna í loðnu.“
Þannig lýsir Tryggvi Leifur
óttarsson, tvitugur háseti á
Skarðsvfkinni frá Hellissandi,
óhugnanlegri lífsreynslu sem
hann varð fyrir þegar verið var
að landa úr Skarðsvíkinni á Rauf-
arhöfn í fyrrakvöld. Tryggvi
barst með tugum tonna af loðnu á
millidekki og niður um boxlokið,
þar sem loðnan rennur niður f
lestina. Undir honum voru
hundruð tonna af loðnu og 5—6
metrar niður á botn lestarinnar.
„Ég var með slöngu á milli-
dekkinu þegar ég sá að stífla
hafði myndast í þröngu gatinu
sem dælt var upp úr. Þegar ég
hafði losað stífluna stóð ég í
loðnu upp á mið læri og það skipti
engum togum að ég barst með
þunganum nær gatinu án þess að
fá við nokkuð ráðið,“ sagði hann f
samtali við blm. á Borgarspftal-
anum í gærkvöld. „Ég hrópaði á
hjálp og einn félagi, Kristmundur
Einarsson, var ekkert að hika
heldur henti sér umsvifalaust
niður um lestaropið og beint til
mín. Hann náði í úlnliðinn á mér
um leið og ég missti fæturna nið-
ur um gatið. Loðnan náði mér f
brjóst — og þá hófst martröðin.
Ég hélt áfram að sökkva niður f
kviksyndið og eftir mjög stutta
stund var ég sokkinn upp að
höku. Ég reyndi að sópa loðnunni
frá andlitinu á mér en hélt áfram
að sökkva og fór svo alveg á kaf.“
Reyndi aö tyggja
loðnuna
Tryggvi sagðist muna glögg-
lega eftir því þegar hann gleypti
fyrstu loðnuna. Hann hafi reynt
að tyggja hana og komið henni
frá sér aftur áður en hann missti
meðvitund. Fleiri skipverja bar
að og tókst þeim um sfðir að
Morgunblaðiö/Árni Sseberg
Tryggvi Leifur Óttarsson á Borg-
arspítalanum í gær: „Hann náði í
höndina á mér um leið og ég missti
fæturna niður um boxlokið."
koma á Tryggva böndum — að-
eins annar úlnliðurinn stóð upp
úr loðnukösinni og sleppti Krist-
mundur aldrei takinu þar á. „Mér
leið hræðilega þegar ég byrjaði að
síga,“ sagði Tryggvi, „og þótt ég
gerði mér grein fyrir að þetta
gætu orðið endalokin vildi ég ekki
trúa því. Ég raknaði svo við þegar
búið var að draga mig upp og ég
lá ofan á kösinni. Hjúkrunarkon-
an á Raufarhöfn var þá komin
um borð, svo talsverður tími hlýt-
ur að hafa liðið frá því að ég sökk
og þar til mér var náð upp aftur.“
Tryggvi var síðan fluttur á
heilsugæslustöðina á Raufarhöfn
og þar fékk hann súrefni. Læknir
kom frá Kópaskeri og tók hann
ákvörðun um að flytja skyldi
sjúklinginn til Reykjavíkur. Nú
heilsast honum framar vonum —
hann hafði rispast á mjöðmum
þegar hann fór niður um gatið og
tognaði á úlnlið og öxl eftir átök
Kristmundar við að halda honum
uppi. „Ég hef líka fengið einhvern
óþverra í lungun en það lagast,“
sagði Tryggvi Leifur Ottarsson.