Morgunblaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 05.01.1985, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1985 Embætti veiöistjóra: Tófuvinur og refaskytt- ur meðal umsækjenda FIMM menn sóttu um embætti veiðistjóra sem auglýst var laust til umsóknar eftir fráfall Sveins R. Einarssonar veiðistjóra fyrr í vetur. Meðal umsækjenda eru, auk setts veiðistjóra, forseti Hins íslenska tófuvinafélags, refaskyttur og dokt- or í Oxford. Eftirtaldir sóttu um embættið: Sigurður Hjartarson, sagnfræð- ingur í Reykjavík, sem titlar sig sem forseta Hins islenska tófu- vinafélags; Snorri H. Jóhannes- son bóndi og refaskytta á Auga- stöðum í Borgarfirði; Reynir Bergsveinsson bóndi og refa- skytta í Fremri-Gufudal, Aust- ur-Barðastrandarsýslu; Páll Hersteinsson dr. phil. sem bú- settur er i Oxford í Englandi og skrifað hefur doktorsritgerð um rannsóknir á lifnaðarháttum ís- lenska refsins; og Þorvaldur Þór Björnsson, settur veiðistjóri, Reykjavík, en hann leysti veiði- stjóra af í veikindaforföllum hans síðustu árin. Umsóknirnar eru nú til um- sagnar hjá stjórn Búnaöarfélags íslands en landbúnaðarráðherra veitir embættið að fenginni þeirri umsögn. Meginverkefni veiðistjóra er, eins og kunnugt er, að hafa umsjón með eyðingu refa og minka. „Ghost- busters“ í Siglufirði Sigluflrdi 4. janúar. KVIKMYNDIN „Ghostbust- ers“ eða „Draugaveiðar" verður sýnd í Nýja bíói í Siglufirði i fyrsta sinn nk. sunnudag, en þar er um Evrópufrumsýningu að ræða á sama tíma og mynd- in er sýnd í Stjörnubíói í Reykjavík. Fréttaritari. Sandnes er systurskip Selness, sem myndin er af. Sandnes - nýtt skip bæt- ist í kaupskipaflotann SANDNES heitir nýtt flutningaskip, sem í gær bættist i kaupskipaflot- Kjarnfóðurskattur: Lækkar til kúa og kinda en hækkar til svína og fugla UM ÁRAMÓTIN tók gildi ný reglu- gerð um kjarnfóðurskatt. Lækkaði gjaldið úr 89% í 60% af tollverði auk þess sem gjald til ríkissjóðs, sem nam 1.300 krónum i hvert tonn, féll niður. í heild lækkaði gjaldið því um rúm 40 prósentustig, úr rúmum 100% f 60%. Að sögn Gunnars Guð- bjartssonar, framkvæmdastjóra Framleiðsluriðs landbúnaðarins, er talið að hið hia gjald hafi nú nið tilgangi sínum með þvf að sli i mjólkurframleiðsluna, auk þess sem erfiðleikar væru hji bændum sunn- anlands og vestan vegna lélegra heyja. Fé til ráðstöfunar úr kjarnfóð- ursjóði lækkar sem þessu munar. Jafnframt falla úr gildi þær regl- ur sem gilt hafa um endurgreiðslu kjarnfóðurgjalds til svína-, kjúkl- inga- og eggjaframleiðenda. Verða þeir látnir greiða sama gjald og aðrir kjötframleiðendur og mjólk- urframleiðendur. Hækkar gjaldið við það úr 33% í 60%, en teknar verða upp endurgreiðslur út á framleiöslu f staðinn. Fram- kvæmd reglnanna er þó ekki full- mótuð enn sem komið er, en að sögn Gunnars er stefnt að því að aukabúgreinarnar falli undir framleiðslustjórnun eins og hinn hefðbundni búskapur og fengju menn þá kjarnfóðurgjald endur- greitt á framleiðslu innan bú- marks. ann. Er það gert út af Nesskip hf., sem gerir út kaupskip, þ.i m. syst- urskip Sandness, Selnes. Nesskip tók í gær við hinu nýja skipi í Rott- erdam. Það mun fyrst um sinn sigla undir fina Panama, en i því verður íslenzk iböfn. Skipið er 3.645 brúttórúmlestir með 265.000 rúm- feta lestarrými. Burðargeta skipsins er 5.800 lestir. Skipið er búið margs konar nýj- ungum, ganghraði er 15 sjómflur á klukkustund. Það hefur sérstak- lega styrktan lestarbotn til þess að geta annast flutninga á þung- um efnum og losum með kröbbum. Það var smfðað hjá Appledore Shipbuilders í Englandi 1975 und- ir eftirliti og samkvæmt kröfum Det Norske Veritas eins og syst- urskipið, ms. Selnes, sem Nesskip hf. keypti 1979. Systurskipin munu annast flutninga á hráefnum fyrir Járn- blendiverksmiðjuna á Grundar- tanga og auk þess sigla með farma milli hafna erlendis eftir aðstæð- um og flutningaþörf. Á árinu 1984 flutti félagið tæp 200.000 tonn af hráefnum erlendis frá fyrir ís- lenzka járnblendifélagið. Vegna aukinnar framleiðslu járnblendi- félagsins er flutningsþörf þeirra um 20% meiri nú en fyrirhugað var við byggingu verksmiðjunnar á sfnum tíma. Auk þess hefur út- flutningur á vikri aukizt hægt og sígandi og flutti félagið 65.000 rúmmetra af vikri á síðastliðnu ári. Skipstjóri á Sandnesi er Þórar- inn Olafsson og yfirvélstjóri er Þorsteinn Sverrisson, en hann hefur siglt með skipinu undan- farnar þrjár vikur áður en afhend- ing fór fram, til að kynna sér allan vélbúnað skipsins og sjálfvirkni. Önnur skip, sem Nesskip gera út eru Suðurland, Vesturland og Akranes. Kaffibaunainnflutningurinn: Rannsókn haf in á kaf f i- innflutningi í Danmörku SAMKVÆMT beimildum Morgunblaósins telja þeir, sem rannsaka kaffibaunainnfhitning Sambands íslenskra samvinnufélaga hugsanlegt að SÍS hafi lagt fram röng skjöl um innflutninginn fyrir Kaffibrennslu Akureyrar hf. fri Brazilíu og þannig gerst brotlegt við lög um bókhald, gjaldeyris- og vióskiptamál og verólagseftirlit Við rannsókn þessa máls, sem frá var greint í Mbl. í gær, hefur einnig komió fram aó vió innflutn- ing á skóm á vegum Sambandsins hafði innkaupsveróió hækkaó um 25% frá raunverulegu kaupverði þegar það var skráð á innflutningsskýrshir fyrirtækisins. Þetta er samkvæmt áreióanlegum upplýsingum, sem Mbl. hefur aflað sér. Eins og fram kom i blaðinu i gær voru fengnar gjaldeyrisyf- irfærslur vegna kaffibaunasend- inga frá Brazilíu með tvöföldu reikningakerfi — þ.e. fyrir gjaldeyris- og verðlagsyfirvöld voru lagðir aðrir reikningar en þeir, sem raunverulega var borg- að eftir. Rannsókn á kaffi- innflutningi í Danmörku Garðar Valdimarsson, skatt- rannsóknarstjóri, staðfesti I samtali við blaðamann Mbl. í gær, að í Danmörku væri nú haf- in rannsókn á kaffiinnflutningi en þar í landi eru höfuðstöðvar innkaupasambands samvinnu- sambanda, NAF, sem SÍS er að- ili að og umboðsmaður fyrir. Samkvæmt norrænum samning- um um skattamál og skattaeft- irlit hefur embætti skattrann- sóknarstjóra sent dönskum skattayfirvöldum upplýsingar og kynnt þá rannsókn, sem hér hef- ur farið fram á undanförnum misserum. { framhaldi af frétt blaðsins í gær um að enn hefði um hálf milljón Bandaríkjadala ekki skilað sér til gjaldeyrisyfirvalda hér, eins og áskilið væri með lög- um, hafði Mbl. samband við Sig- urð Jóhannesson, forstöðumann gjaldeyriseftirlits Seðlabanka Islands. Hann kvaðst ekki vilja staðfesta tölur þar að lútandi en sagði að undanfarna áratugi hefðu engin ákveðin tímamörk verið sett um gjaldeyrisskil í al- þjóðaviðskiptum. „Það er talað um að þetta gerist ekki án óeðli- legs dráttar en mat á hvað er óeðlilegur dráttur hefur vafist nokkuð fyrir mönnurn. Þrátt fyrir nokkrar umræður hefur þessu ekki verið breytt," sagði hann. Óedlilegur dráttur á gjaldeyrisskilum Sigurður sagði aðspurður það vera sitt mat, að þrjú ár væru óeðlilegur dráttur á gjaldeyr- isskilum og jafnvel eitt ár; það gæti þó farið eftir hvernig málið væri vaxið. Samkvæmt lögum um gjaldeyris og viðskiptamál eru þung viðurlög við brotum á skilaskyldu, þungar sektir og jafnvel varðhald auk hugsan- legrar sviptingar atvinnurétt- inda og eignaupptöku. Mál af þvi tagi er farið með að hætti opin- berra mála. Rannsókn málsins hefur stað- ið síðan haustið 1983 og ætti að Ijúka á næstu vikum, að sögn Sigurðar Jóhannessonar. „Þetta er nokkuð mikið mál — mikið talnaflóð og skjalafjöldi — en ég giska á að þessu ljúki hér á næstunni," sagði hann. Eins og fram hefur komið hófst rannsóknin með því að af hálfu skattrannsóknarstjóra voru dregin af handahófi tíu fyrirtæki út úr 100 stærstu fyrirtækjum landsins, þar með talin Sambandið og Kaffi- brennsla Akureyrar hf., og farið nákvæmlega i bókhaldsgögn fyrirtækjanna. Fljótlega beind- ist grunur að kaffiviðskiptunum enda kom snemma I ljós, að Kaffibrennsla Akureyrar hf. hafði borgað 16 milljónir dala fyrir sömu kaffibaunir og Sam- bandið hafði keypt á 10,5 millj- ónir. Svipað innfiutningsverd hjá Kaaber Við ákvörðun kaffiverðs, sem til skamms tima var háð verð- lagsákvæðum, var um langt ára- bil stuðst við innflutningsskjöl frá Kaffibrennslu O. Johnson & Kaaber, sem lengi hafði verið leiðandi á þeim markaði hér- lendis. Þau gögn, sem Kaffi- brennsla Akureyrar hf. lagði fyrir verðlagsyfirvöld, höfðu ekki nema óbein áhrif á verð- lagningu á kaffi, að þvi er Georg ólafsson, verðlagsstjóri, sagði i samtali við blm. Morgunblaðsins í gær. Innkaupsverð fyrirtækj- anna beggja var svipað á árun- um 1979—1981, jafnvel heldur hærra hjá Kaaber. En hefði þá ekki afsláttur kaffiútflutningsráðs Brazilfu til kaffikaupenda hérlendis átt að skila sér í smásöluverði til neyt- enda bæði neytenda Bragakaffis frá Akureyri og Kaaber-kaffis? Erlendur Einarsson, forstjóri Sambandsins, sagði i gær að kaffiverð hefði verið 30—40% lægra hér en t.d. á Norðurlönd- um á þessum árum en visaði að öðru leyti til fréttatilkynningar Sambandsins, sem birt er á bls. 12 í blaðinu i dag. Ólafur ó. Johnson, forstjóri O. Johnson & Kaaber, sagðist i samtali við blaðamann Mbl. telja að afslátt- ur Brazilíumanna hefði lækkað kaffiverð hér. Hann kvaðst ekki vilja svara fyrir Sambandið, engar athugasemdir hefðu verið gerðar við útreikninga Kaaber, sem hefðu farið rétta boðleið til verðlagsyfirvalda. Önnur rannsókn? En var þá ekki afsláttur Braz- ilfumanna til Kaaber verulegur ekki siður en Sambandsins? „Ég get ekki svarað fyrir Sambandið. Eg veit ekki hvaða afslátt þeir hafa fengið í gegnum NAF, sem er með stærri kaffikaupendum í heiminum. Bónusar hafa verið f ýmsu formi, misháir eftir magni. Mér er ókunnugt um hvaða kjör- um aðrir hafa verið á, en það er réttast að spyrja verðlagsstjóra um hvort afslátturinn hefur skilað sér í verði til neytenda,“ sagði Ólafur ó. Johnson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.