Morgunblaðið - 12.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.01.1985, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 9. tbl. 72. árg. LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsing Banvœn brennisteinssýra yfir Karlskoga Morgunblaðið/Kent Ostlund Myndin var tekin í Karlskoga í Svíþjóð í gær og sýnir ljóslega brennisteinssýrugasskýið, sem lagðist yfir bæinn í gærkvöldi eftir að 30 tonn af brennisteinssýru láku úr geymum Nobel-vopnaverksmiðjunnar. 300 manns voru fluttir frá heimilum sínum í nágrenni verksmiðjunnar en þeir fengu að snúa aftur í dag. 20 manns voru fluttir í sjúkrahús en allir utan einn fengu að fara strax aftur. Þykir betur hafa til tekist en á horfðist í fyrstu, en atburðurinn hefur vakið mikinn óhug í Svíþjóð enda skammt að minnast hörmunganna á Indlandi. Sjá frásögn á bls. 20. Gromyko aldrei eins opinskár í viðræðum Moskvu, 11. janúar. AP. HÁTTSETTUR bandarískur embættismaður, sem var í föruneyti George P. Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Genf á dögunum, segir, að Grom- yko, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, hafi fundist mikið til um tillögur og málafylgju Shuitz á fundinum. Augljóst sé, að fágætt traust sé nú á milli utanríkisráðherra stórveldanna og því meiri líkur en áður á raunverulegum samningum um takmörkun vígbúnaðarins. Danmörk: Mikið banka- hneyksli Kronebanken tapar öllu sínu fé og hlutafénu líka Kaupmannahöfn, 11. janúar. Frá Ib Björnbak, fréttaritara Mbl. EITT mesta bankahneyksli í Dan- mörku á síðari tímum er að sjá dags- ins Ijós um þessar mundir en margt bendir til, að Kronebanken hafi tap- að öllu eigin fé sínu og þar með hlutafénu. Er gjaldþrotið eitthvað á annan milljarð dkr. Ekki er talið, að þeir, sem áttu sparifé sitt í bankanum, muni verða fyrir skakkaföllum af þess- um sökum því ríkisstjórnin hefur eiginlega þvingað tvo stóra banka, Den Danske Bank og Handels- banken, til að tryggja hag þeirra með 500 millj. dkr. framlagi og Nationalbanken leggur einnig fram tryggingar. Það kemur hins vegar ekki í veg fyrir, að 42.000 hluthafar í Kronebanken muni að öllum líkindum tapa sínu fé, 361 millj. dkr. Kronebanken varð sjöundi stærsti banki í Danmörk fyrir tæpu ári þegar hann sameinaðist Sjællandske Bank og Frederiks- borg Bank og hóf mikla sam- keppni við aðra banka. Það varð honum hins vegar að falli enda lítillar fyrirhyggju gætt í útlánun- um. Nefna má sem dæmi, að bank- inn lánaði miklar upphæðir til byggingafyrirtækis, sem er að reisa geysistórt sjúkrahús í Níg- eríu, og þykir alls óvíst hvernig það heimtist aftur. Annars virðist sá háttur hafa verið á hafður oft og tíðum að skrá ekki lánveit- ingarnar í bækur bankans. Langt er í frá að öll kurl séu komin til grafar og flest bendir til, að um margs konar lagabrot sé að ræða og að málshöfðanir séu á næsta leiti. Um þessar mundir er raunar verið að ræða þann mögu- leika, að Provinsbanken sameinist Kronebanken en það breytir engu um það tap, sem orðið er. „Gromyko fannst mikið til um hvernig við lögðum málið fram,“ sagði bandaríski embættismaður- inn, sem ekki vildi láta nafns síns getið. „Hann hafði þau orð um til- lögurnar, að þær væru raunhæfar og heilsteyptar." Embættismaður- inn sagði, að Gromyko hefði á fundinum með Shultz rætt ýmis heimspekileg álitamál varðandi varnarmál og einnig um það hvað Sovétmenn telja nauðsynlegt til að hernaðarjafnvægið haldist með þeim og Bandaríkjamönnum. Hef- ur Gromyko ekki verið jafn opinskár áður í viðræðum við full- trúa vestrænna ríkja. Kvað emb- ættismaðurinn það lofa góðu um væntanlegar afvopnunarviðræður. Talið er, að góðar líkur séu á samningum um langdrægar og meðaldrægar eldflaugar en meiri óvissa er um varnarvopnin í geimnum og ratsjárkerfi Sovét- manna í Síberíu. Sagði embættis- maðurinn, að bandaríska sendi- nefndin hefði sagt það hreint út, að Bandaríkjamenn myndu aldrei fallast á bann við rannsóknum. Paul Nitze, aðalsamningamaður Bandaríkjastjórnar í afvopnun- arviðræðunum, hvatti í dag vest- ræn ríki til að halda áfram upp- setningu meðaldrægra eldflauga og sagði, að góður árangur í vænt- anlegum afvopnunarviðræðum við Sovétmenn væri undir því kominn. Lét Nitze orð sín falla á blaða- mannafundi í Haag í Hollandi en Hollendingar hafa verið mjög tvístígandi í þessu máli. Sagði hann, að Sovétmenn hefðu þvi að- eins fallist á afvopnunarviðræð- urnar, að þeim skildist, að vest- ræn ríki ætluðu að standa saman. Árásir á tvö skip í Persaflóa Bagdad, 11. janúar. AP. ÍRASKAR orrustuþotur réðust í dag á tvö skip í Persaflóa að því er talsmaður íraska hersins sagði í dag. Hafa þeir þá ráðist átta sinn- um á skip í Persaflóa frá áramót- um að eigin sögn en aðeins tvisvar sinnum hefur það verið staðfest. Ofursti og yfirmaður leyniþjónustu sovéska herráðsins flúinn vestur Njósnaði fyrir vestræn ríki um margra ára skeið Bonn, 11. janúar AP. FYRRUM ofursti í sovéska hernum og yfirmaður leyniþjónustu herráðs- ins, sem er nokkurs konar samnefnari fyrir leyniþjónustur einstakra greina hersins, hefur flúið til Vesturlanda. Dagblöð í Vestur-Þýskalandi sögðu í dag, að maðurinn hefði um nokkurra ára skeið gefið vestrænum ríkjum gífurlega mikilvægar upplýsingar um sovésk hermál. Ofurstinn, sem ekki hefur ver- ið nefndur á nafn, flúði fyrst til Sviss fyrir nokkrum mánuðum en fór þaðan til Vestur-Þýska- lands. Er haft eftir heimildum, að hann hafi orðið að skilja fjöl- skyldu sína eftir í Sovétríkjun- um. Blaðið „Die Stuttgarter Nach- richten" segir í dag og hefur eft- ir fréttaritara sínum í Moskvu, að ofurstinn hafi árum saman gefið vestrænum ríkjum upplýs- ingar um uppbyggingu sovéska heraflans og enda betur í stakk búinn til þess en nokkur annar þar sem hann hafi verið yfir- maður leyniþjónustu herráðsins, sem sameinar leyniþjónustur einstakra greina innan hersins. Vegna þessarar aðstöðu sinnar hafi hann á síðustu tveimur ár- um getað gefið leyniþjónustum Breta og Bandaríkjamanna afar nákvæmar upplýsingar um upp- byggingu sovéska kjarnorkuher- aflans og kjarnorkuvígbúnaðinn. Á reglulegum blaðamanna- fundi Peter Bönisch, talsmanns vestur-þýsku ríkisstjórnarinnar, vildi hann ekkert segja um frétt- ina í „Die Stuttgarter Nach- richten" en gaf þó í skyn, að það væri rétt, að Sovétmaður hefði flúið vestur yfir ekki alls fyrir löngu. í „Die Stuttgarter Nachricht- en“ sagði, að ofurstinn hefði ver- ið tengdasonur sovésks hers- höfðingja og þess vegna umgeng- ist háaðalinn í sovésku samfé- lagi og að hér væri um að ræða háttsettasta og mikilvægasta Sovétmann, sem flúið hefði vest- ur yfir allt frá stríðslokum. Heimildamaður AP-fréttastof- unnar í Bonn ber hins vegar á móti því. Að sögn hefur sovéski ofurstinn fengið hæli í Vestur- Þýskalandi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.