Morgunblaðið - 12.01.1985, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.01.1985, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. JANÚAR 1985 Gissur Gissurarson Selkoti - Minning Gissur Gissurarson, fyrr bóndi og hreppstjóri í Selkoti undir Eyjafjöllum, er horfinn úr hópn- um eftir 85 ára giftusama ævi og góð er hvíldin eftir annasaman dag. Mörgum er skylt og ljúft að muna hann og þó engum eins og samferðafólkinu hér í Austur- -Eyjafjallahreppi. Gissur fæddist hér góðum foreldrum í Eystri- Skógum 5. júní 1899 og fluttist með þeim á Drangshiíð vorið 1901. Merkir og þekktir ættstofnar stóðu að honum. Faðirinn, Gissur, var sonur Jóns Hjörleifssonar hreppstjóra í Eystri-Skógum og konu hans, Guðrúnar Magnúsdótt- ur frá Kanastöðum í Landeyjum. Afi Jóns í Eystri-Skógum var Jón Björnsson hinn ríki í Drangshlíð sem lifir góðu lífi í bók Eyjólfs á Hvoli, Afi og amma. Valgerður móðir Jóns var dótturdóttir séra Jóns Steingrímssonar. Guðfinna móðir Gissurar var dóttir Isleifs Magnússonar bónda á Kanastöðum, bróður Guðrúnar í Eystri-Skógum, og konu hans Sig- ríðar Árnadóttur frá Stóra- Ármóti af ætt Jóns lögsagnara á Ármóti og Magnúsar Beinteins- sonar í Þorlákshöfn. Amma þeirra hjóna Gissurar og Guðfinnu, Guð- rún ísleifsdóttir á Kanastöðum, var eitt liðtækasta ljóðskáldið í hópi sunnlenskra kvenna framan af 19. öld. Þau hjón Gissur og Guðfinna ólust upp á miklum menningar- heimilum og báru blæ þeirra alla tíð. Gissur var búfræðingur frá Hólum og kunni allra manna best skil á því sem horfði til hagsældar í búskap. Guðfinna var að sama skapi vel verki farin i allri hús- stjórn og forkur að dugnaði eins og sagt var í þann tíð. Orð var á því gert hjá Austurfjallamönnum að Gissuri bónda þóttu störf þá fyrst ganga vel á túni er kona hans var komin þangað með hríf- una. Bæði áttu þau hjón jafnan þátt í því að heimilið í Drangshlíð varð víðþekkt fyrir góða hætti og gest- risni. Gestnauð var þar mikil all- an ársins hring, enda Gissur hreppstjóri í sveitinni, viðriðinn félagsmál margþætt, húsfreyjan ljósmóðir og heimilið í þjóðbraut. Gissuri kynntist ég of seint, enda aldursmunur mikill, en Guðfinnu því betur á efri árum hennar og dái fyrirmannlega framgöngu hennar, hagar hendur og frjálsan hug og víðsýnan. Gissur yngri fékk gott vegar- nesti úr garði föður og móður, varð snemma álitlegur og röskur maður og menntur vel. Hann var elstur 12 systkina en af þeim dóu 5 í æsku. Ungur fór hann í útver til Vestmannaeyja, sótti sjó margar vertíðir á vélbátum og togurum en vann búi foreldra sinna á sumrum og kom sér upp bústofni. í félags- lífi sveitar sinnar tók hann mik- inn þátt og var einn þeirra vor- manna, karla og kvenna, sem stöfnuðu ungmennafélagið Eyfell- ing árið 1922, og var í fyrstu stjórn þess. Unga fólkið hér lyfti þá Grettistaki i byggingu þjóð- frægrar sundlaugar á Seljavöllum og síðar samkomuhúss 1927. Árið 1927 giftist Gissur Gróu Sveinsdóttur frá Selkoti af ætt Jóns ísleifssonar lögréttumanns sem þangað fluttist um 1740. Voru foreldrar hennar Sveinn Jónsson frá Lambafelli og Anna Tómas- dóttir frá Selkoti. Hófu þau bú- skap í Holti undir Eyjafjöllum í sambýli við séra Jakob ó. Lárus- son. Þaðan man ég þau hjón fyrst í æskublóma og geymi í góðri minningu til þessa dags. Dvölin í Holti varð aðeins eitt ár og frá Holti var flutt að Felli í Mýrdal 1929 en hugurinn stefndi á heima- slóðir og 1930 fluttu þau hjón á ættarsetur húsfreyju, Selkot. Þetta er lítil jörð að víðáttu en hafði jafnan verið hagsæl ábúend- um. Saman gerðu þau hjón hana að blómabýli með ræktun og húsa- bótum. Gissur í Selkoti unni jörð sinni og sveit af heilum hug og félags- málum fórnaði hann miklum tíma. Hann var sýslunefndarmaður Austur-Eyjafjallahrepps 1948— 1970 og vann á þeim tíma margt gott verk fyrir sveit sína. Hrepp- stjóri var hann frá 1968—1980 og tók við af honum Kolbeinn sonur hans. Má það markvert telja að hreppstjórastarfið hefur gengið óslitið í sömu ætt frá stofnun Austur-Eyjafjallahrepps 1871. í stjórn Ræktunarsambands Eyfell- inga og Mýrdæla starfaði Gissur um mörg ár, einnig í stjórn búnað- arfélags sveitar sinnar og ýmsra annarra félagasamtaka, hvar- vetna liðsmaður góður. í stjórn Byggðasafns Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga átti ég langt og gott samstarf með Gissuri og átti safnið þar jafnan öruggan talsmann. Hann var safnaðarfull- trúi Eyvindarhólasafnaðar fulla þrjá áratugi og lengi prýddi hann kirkjukór sveitarinnar með sinni fögru bassarödd. Alls þessa er mér ljúft að minnast að leiðarlokum. Gissur setti mikinn og góðan svip á mannlíf sveitar sinnar og hér- aðs. Var hvarvetna eftir honum tekið. Hann var mannblendinn, glaðvær og lagði gott til allra mála. Hann var samvinnumaður góður og fylgdi lengi Framsóknar- flokknum að málum. Gissur hafði góða yfirsýn at- burða hér allt frá aldamótum og var gott að ræða við hann jafnt um liðna sem líðandi stund. Hann var liðtækur vel við ljóðagerð og lífgaði marga stund með ljóði eða stöku. Að skilnaði minnist ég þess að fáir fögnuðu mér og fjölskyldu minni betur en Gissur í Selkoti þegar við fluttum hingað að Skóg- um undir árslok 1959. Með í för voru foreldrar mínir aldraðir og gömul kona sem lengi hafði unnið í okkar þágu. Man ég að faðir minn hló stundum við er Gissur ræddi málin og sagði að einhvern tíma hefði ekki þótt mikill fengur að því að fá þrjú gamalmenni inn í sveitina. Alltaf var gleðiauki að því að fá Gissur í heimsókn og marga stundina stytti hann for- eldrum mínum með skemmtandi samræðu er hann leit hér inn. Þau hjón Gissur og Gróa gátu með ánægju litið yfir farinn veg er þau skiluðu jörð og búi í hendur Kolbeini syni sínum sem nú er sjöundi ættliður Selkotsættar sem setið hefur jörðina frá þvi um 1740. Þau höfðu búið vel í haginn fyrir framtíð og rækt með sóma allar skyldur sínar við land og þjóð. Börn þeirra, önnur en Kol- beinn Gissur, eru: Anna Valgerð- ur, Svanhvít, Guðfinna, Erna Stef- anía og Þóra Hjördís, allar giftar og búsettar í Kópavogi, Reykjavík og Vestmannaeyjum. Gissur í Selkoti var einn þeirra manna sem aldrei hverfa í fjöld- ann, álitlegur sýnum, mikill á velli, glaðvær, góðviljaður, frjáls- huga. Vinir hans allir kveðja góð- an dreng. Sveit hans setti niður er hann hvarf henni. Við leiðarlok er gott að minnast þess að hafa átt Gissur að vini og félaga á lífsleið- inni. Gissur hvarf úr svefni í fegurri heim aðfaranótt 30. desember á dvalarheimili aldraðra á Selfossi. Ég talaði við hann í síma hjá fjöl- skyldu sinni syðra. Ég flutti sveit- ungum hans hér kveðju hans við lok jólamessunnar í Eyvindarhól- um. Þar hafði hann svo oft sungið jólasálmana með okkur. Nú unir hann við fegri söngva, svo sem ættfaðirinn séra Jón Steingríms- son sagði er hann minntist konu sinnar horfinnar. Gissuri í Selkoti eru hér fluttar kveðjur og þakkir sveitunga. Konu hans og börnum sendi ég samúð- arkveðjur. Þórður Tómasson Jólatrés- skemmtun Stykkisbólmi, 5. janúar. ÞAÐ hefir verið venja hér um öll jól, ég held allt frá því að kvenfélagið var stofnað, að efna til jólatrésfagnaðar fyrir börn bæjarbúa. Sá kvenfélagið um þetta um áraraðir og skipaði til þess nefnd sem sá um framkvæmdir. Konurnar bökuðu svo sjálfar og versl- anir og vinir lögðu annað efni til. Þar mættust bæjarbúar og skemmtu sér með börnunum og var þetta oft dásamleg skemmtun og hafa margir haft orð á þvi síðar að þeir sakni þessa fagnaðar eins og hann var áður uppfærður. Hótelið hefir einnig séð um þetta eftir að kvenfélagið hefir sleppt hendi af „barnaballinu". Nú slógu öll félögin sér saman, þau er að atvinnurekstri vinna í bænum, og buðu Stykkis- hólmsbúum á jólaball á laugardag milli jóla og nýárs og var það vel þegið og notfærði fólk sér það. Þar komu fram jólasveinar og aðrir skemmtikraftar og i lokin var diskó- tek. Þetta var bara reglulega gaman, sagði ein lítil stúlka sem ég hitti daginn eftir. Árni. Um áramót í Stykkishólmi ^ Stykktshólmi, 7. janúar. ArÍÐ 1985 byrjar vel. Að vísu voru mikil svellalög 1. janúar, en nú er allt autt, en hrímþoka hefir grúft yfir á morgnana. Sólin teygir sig yfir fjalla- skörðin og það hefir sín áhrif. Áramótafagnaður var hér hinn 4. í Fé- lagsheimilinu og matur sem hótelið sá um. Var allt hið vandaðasta og ýmsu fundið upp á til að gera stundina hátið- legri. Þá mættu á þessa gleði Sieglinde Kahmann og Sigurður Björnsson óperusöngvari sem skemmtu við mikinn fögnuð viðstaddra og setti koma þeirra hingað veglegan blæ á samkomuhaldið og allir ánægðir með kvöldið. Áramótabrenna var hér engin, enda veður ekki til þess. Aftur á móti var kveikt í brennu fyrir ofan bæinn á þrettándakvöldinu og um leið flugeldasýning og blys. Var það mikil uppbót öldnum sem ungum í hinu góða veðri. Árni. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar til sölu Flugleiðir Til sýnis og sölu hjá Ðíialeigu Flugleiða: Benz 309 árg. ’78, sætabifreið og Benz 307 árg. ’82, sendibifreið. T résmíöaver kstæöi til sölu: Til sölu er trésmíöaverkstæöi mjög vel búið vélum. Verkstæðiö er í leiguhúsnæöi (1000 m2) og sölu fylgir hagstæður leigusamningur til a.m.k. 5 ára. Upplýsingar veitir: Lögfræðiskrifstofa Sig. Albertssonar hdl. Simi 18366 og 28138. kennsla Keramiknámskeið Okkar vinsælu námskeið eru aö hefjast. Innritun í síma 26088. Keramikhúsið hf., Sigtúni 3. Námskeið Batik — tauþrykk Kynnist hinum eldgömlu austurlensku listum batik og tauþrykki og skreytiö efni eftir þess- um gömlu aðferðum. Dag- og kvöldnámskeið 1 til 2 í viku. Færan- legir tímar fyrir vaktavinnufólk. Fáir í hóp. Byrjað 21. janúar. Skráning þátttöku og aðrar upplýsingar veitt- ar í síma 44124. Kennari Guöbjörg Jónsdótt- ir. fundir — mannfagnaöir Kópavogur — Þorrablót Hið árlega og sívinsæla Þorrablót sjálfstæö- isfélaganna í Kópavogi veröur haldiö í Sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1 laugardag- inn 26. janúar nk. kl. 19. Góð hljómsveit og skemmtiatriði. Miöasala verður milli kl. 13 og 15 laugardag- inn 12. janúar í Sjálfstæðishúsinu. Undanfarin ár hefur selst upp á mjög skömmum tíma, tryggið ykkur miða. Stjórnir sjálfstæðisfélaganna i Kópavogi. Sauðárkrókur Bæjarmálaráö Sjálfstæölsflokksins heldur fund I Sæborg mánudag- Inn 14. janúar kl. 20.30. Dagskrá: Umræöa um bæjarmál. Kaffiveitingar — Sjálfstæöisfólk fjölmenniö. Stjórnin. Aðalfundur fulltrúaráös sjálfstæðisfélagnna í Kópavogi veröur haldinn fimmtudaginn 17. januar nk. kl. 20.30 i sjálfstæöishús- inu í Kópavogi aö Hamraborg 1, 3. hæö. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Ræöa Styrmir Gunnarsson. rltstjórl. Sjálfstæöisflokkurinn, frjáls- hyggjan og baráttan um miöjuna. Auglýsing frá Sjálfstæðis- félagi Akureyrar Sjálfstæöisfélag Akureyrar býöur alla félaga og stuöningsmenn Sjálfstæöisflokksins velkomna til fundar í fundasal flokkslns í Kaup- angi viö Mýrarveg. Akureyri, sunnudaglnn 13. janúar nk. kl. 16.00. Fundarefni veröur: .Kvótakerfiö — Kostir þess og gallar". Frummælendur veröa: Björn Dagbjörnsson alþingismaöur og Arni Kristinsson útvegsm. Hrísey. Fjölmenniö og látiö skoöun ykkar i Ijós. Stjórnln.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.