MORGUNBLADIÐ, LAUGARDAGUR 9. FEBRÚAR 1986 Ur borgarstjórn: „Búsetakerfið hrein- asta blekking" — samkvæmt samanburði Þjóðhagsstofnunar við kerfí Verkamannabústaða „GROFASTA blekkingin sem nú er uppi varðandi nvjar leiðir í byggingu íbúða er Búsetakerfið. Það er látið að því liggja að það kerfi sé allsherjar lausn á íbúðavandamim og bjóði upp á þau langbestu og hagstæðustu kjör, sem bér hafa pekkst. En hver er niðurstaðan á samanburði Þjóðhagsstornun- ar á kaupum samkvæmt kerfi verkamannabústaða og svo Búsetakerfinu?" sagði Magnús L. Sveinsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, á fundi borg- arstjórnar Reykjavíkur á fimmtudag, þegar rætt var um fjárhagsáætlun borgarinnar. „Samkvæmt útreikningi Þjóð- hagsstofnunar frá 5. febrúar sl. á kaupum á 1500 þúsund króna íbúö í dag annars vegar eftir Búseta- kerfinu og hins vegar eftir kerfi Verkamannabústaða, er niður- staðan sú, eftir greiðslur samtals í 30 ár, að kaupandi samkvæmt verkamannabústaðakerfinu hefur greitt krónur 1.786.600 fyrir íbúð- ina og kaupandi eftir Búsetakerf- inu krónur 2.635.600 fyrir sína íbúð. Greiðslubyrði samkvæmt Búsetakerfinu er um 50% meiri en samkvæmt verkamannabústaða- kerfinu. Eftir þessi 30 ár er eign- arhluti þess, sem keypti eftir verkamannabústaðakerfinu krón- ur 1.104.000 í íbúðinni, en þess sem keypti samkvæmt Búsetakerfinu 75.000,- krónur. Samkvæmt útreikningi Þjóð- hagsstofnunar er Búsetakerfið stærsta blekkingin, sem þekkst hefur í húsnæðismálum. Og hann sannar að verkamannabústaðirnir bjóða upp á miklu betri kjör," sagði Magnús. „Sá, sem ekki hefur lagt krónu til kaupa á íbúðinni samkvæmt Búsetakerfinu, eignast hana, en sá sem hefur greitt hana, stendur eftir allslaus." Landsfundur Sjálfstæðisflokksins: 11.—14. aprfl í Laugardalshöll LANDSFUNDUR Sjálfstæðis- flokksins verður haldinn 11.—14. aprfl nk. í íþróttahöllinni í Laug- ardal. Að sögn Kjartans Gunnars- sonar, framkvæmdastjóra Sjálf- stæðisflokksins, er Laugardals- höllin eina fáanlega húsnæðið á höfuðborgarsvæðinu sem rúmar þann fjðlda, sem rétt hefur til setu á landsfundinum, eða 1.100 til 1.200 manns. Hann sagði ennfremur, að mjög kostnaðar- samt yrði að halda fundinn þarna, því flytja þyrfti að borð og stóla og gera íþróttahöllina aðgengilega sem fundarstað. 118 gripir á upp- boði myntsafnara ALLS verða 118 númer boðin upp á fundi Myntsafnarafélagsins í Templ- arahöllinni klukkan 14.30 í dag. Á uppboðinu verður fjöldi forvitnilegra hluta trá mörgum löndum og sagoi Ragnar Borg, myntsafnari, í samtali við Mbl. að þetta uppboð væri kór- ónan á starf fyrrverandi uppboðs- nefndar. Á uppboðinu verður mynt frá Ermarsundseyjunum Guernsey, Jersey og Lundey, sumir þeirra yf- ir 100 ára gamlir. Israelskir pen- ingar verða boðnir upp og talsvert af spesíum, skildingum og dölum frá Noregi og Danmörku frá 1750-1856. Meðal annarra hluta má nefna austurríska gullpeninga og 2000 króna hlutabréf í fs- landsbanka. 1 Frá opnun sýningarinnar i Kjarvalsstöðum í gær. Kjarvalsstaðin Sýning á tillögum um hlut- verk og mótun Arnarhóls DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri opnaði í gær sýningu á tillögum sem bárust í hugmyndasamkeppni um hlutverk og mótun Arnarhóls og umhverfis hans. Alls bárust 31 tillaga og valdi dómnefnd 6 tillögur til verðlauna og frekari keppi og úrvinnslu. Reykjavíkurborg og Seðlabank- inn stóðu að þessari hugmynda- samkeppni og var tilgangurinn að fá fram hugmyndir um lagfær- ingar á hólnum með hliðsjón af nýtingu hans sem útivistarsvæðis. í máli borgarstjóra við opnun sýn- ingarinnar kom m.a. fram að allar hugmyndirnar sem bárust fólu í sér, að Arnarhól mætti lagfæra og raunar væri það nauðsynlegt ætti hann að vera augnayndi í miðbæj- armyndinni og nýtast til almennr- ar útivistar. Þá sýndu allar tillög- urnar að Ingólfur Arnarson er fastur í sessi í hugum manna á stalli sínum við Arnarhól. Auk hinna sex tillagna, sem hlutu verðlaun og rétt til þátttöku á síðara þrepi, var ákveðið að kaupa tvær tillögur, sem verðl- aunahafar mættu hafa gagn af í framhaldsvinnu sinni. Auk þess hlutu tvær tillögur sérstaka viður- kenningu, þótt dómnefnd teldi vafasamt að þær væru raunhæfar vegna umfangs og kostnaðar. Sýningin sem opnuð var að Kjarvalsstöðum í gær stendur fram til sunnudagsins 17. febrúar nk. og er opin alla daga frá klukk- an 14.00 til 22.00. Þar gefst sýn- ingargestum kostur á að láta álit sitt í ljós á þar til gerðum spurn- ingalista. Sjá nánar um verðlaunatillögurn- ar á bls. 14. Bru yfir Kringlumýrarbraut: Hætta á einhverri röskun á meðan á byggingu stendur GERT er ráo fyrir að bygging brúar yfir Kringlumýrarbraut hefjist eftir u.þ.b. mánuð. Að sögn Guttorms Þormar framkvæmdastjóra Umferða- nefndar er hætta á að á meðan á byggingu hennar stendur verði einhver röskun á umferð um Kringlumýrarbraut. Hann sagði að umferð minni bíla ætti þó að geta gengið eðlilega fyrir sig, þar sem henni verður beint undir verkpalla. Hæðin undir þá verður um 3—4 metrar. Nú hefur verið óskað eftir til- boðum í ljósnema sem kveikir rautt ljós á móti bílum sem eru of háir til að komast undir verkpall- ana. Ætlast er til að þessir bílar fari upp skábrautir sem liggja upp á Bústaðaveg og aftur niður á Kringlumýrarbraut. Einnig verða settar upp merkingar, þannig að bílstjórar stórra bíla ættu að geta áttað sig í tíma og beygt upp á þessar skábrautir. Komið hefur til tals að setja upp bómu sem fellur niður um leið og rauða ljósið kviknar. Helsta hættan á umferðartrufl- unum er sú að bílstjórar stórra bifreiða taki ekki eftir merkingun- um og þurfi að stöðva við rauða ljósið. I þeim tilfellum verða þeir að bakka eða snúa við og aka upp skábrautirnar. Nafn mannsins sem beið bana MADURINN, sem beið bana í vinnuslysi á Kothálsi á fimmtu- dag, hét óskar Vilhelm Guð- mundsson, til heimilis að Miðtúni 62 í Reykjavík. óskar var 29 ára gamall, fæddur 16. desember 1956. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö börn. \« itö*sÞ *&y 6«^ \* &p s» ö>* ^' 6^ Við erum í Grófinni Tn/ggvagÖtU 22