Morgunblaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.02.1985, Blaðsíða 27
27 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1985 Kristín Guðmundsdóttir Jón Baldvin Hannibalsson Embætti framkvæmdastjóra Alþýðuflokks lagt niður: Persónuleg aðför flokksformanns — segir m.a. í bókun framkvæmdastjór- ans, sem gekk af skrifstofu sinni daginn eftir ákvörðun framkvæmdastjórnar A framkvæmdastjórnarfundi Alþýóuflokksins sl. sunnudag var ákveðið að leggja niður embætti framkvæmdastjóra Alþýðu- flokksins og gekk framkvæmdastjóri flokksins, Kristín Guð- mundsdóttir, út af skrifstofu sinni í fyrradag, mánudag. Kristín, sem á sæti í framkvæmdastjórn, lagði fram bókun á fundinum á sunnudag, þar sem hún m.a. segir, að hún telji að hér sé um að ræða aðför að henni persónulega af hendi núverandi flokksfor- manns, Jóns Baldvins Hannibalssonar. í stað Kristínar sam- þykkti framkvæmdastjórnin að ráða útbreiðslustjóra og erind- reka (lokksins. Að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar er ætlun- in að Bragi Dýrfjörð taki við stöðu erindreka, en samkvæmt heimildum Mbl. mun Ámundi Ámundason vera ætluö staða útbreiðslufulltrúa Alþýðuflokksins. Jón Baldvin Hannibalsson sagði í þessu tilefni, að þarna væri um að ræða endurskipu- lagningu Alþýðuflokksins. Hann sagði þetta pólitíska ákvörðun, sem byggði á því m.a., að koma í veg fyrir að Alþýðuflokkurinn lenti í sömu mistökunum og árið 1978. Aðspurður um, hvort þarna væri um pólitískar „hreinsanir" að ræða, sagði Jón að einvörð- ungu væri um að ræða viðamikil skipulagsmál til samræmingar við tilveru Alþýðuflokksins sem fjöldaflokks. Hann bætti við, að að sér þætti sjálfsagt að ný for- ysta veldi sér starfslið, sem hún teldi að hefði það til að bera, sem þyrfti til ná fram stefnu sinni. Þess má geta að Kristín Guð- mundsdóttir var talin ein af dyggustu stuðningsmönnum Kjartans Jóhannssonar, fyrrver- andi formanns Alþýðuflokksins, á síðasta flokksfundi þar sem Kjartan féll í formannskjöri og Kristín féll þar ennfremur í kjöri til formanns framkvæmda- stjórnar, þar sem Guðmundur Oddsson, stuðningsmaður Jóns- Baldvins, náði kjöri. f áður- greindri bókun Kristínar á fund- inum á sunnudag er m.a. bent á, að hún telji þessa ákvörðun um að leggja niður starf fram- kvæmdastjóra geta haft alvar- legar afleiðingar fyrir Alþýðu- flokkinn bæði inn á við og út á við. Kristín bendir þar ennfrem- ur á, að hún sé formaður Sam- bands alþýðuflokkskvenna þann- ig að þetta beinist gegn konum í Alþýðuflokknum til viðbótar því, að hún hafi verið felld í kjöri formanns framkvæmdastjórnar á flokksfundinum. Þá mun hún harma ákvörðunina og lýsa allri ábyrgð á hendur þeim sem að henni stóðu, auk þess sem hún bendir á, að sér hafi verið vikið að ósekju og fyrirvaralaust úr starfi. Ekki tókst að ná sam- bandi við Kristínu til að fá álit hennar á þessu máli. Nýr spennandi teikni- myndasflokkur á myndböndum Defender of the Universe Teiknimyndirnar um Voltron, verjanda alheimsins, og geimhetjurnar ungu, eru nú komnar á myndbandaleigur. Hin frískelgu ævintýri um Voltron höföa til hressra stráka og stelpna á öllum aldri. Nú eru komnar 2 spólur um ævintýri Voltron og bráölega bætast fleiri þættir í hópinn. Voltron-límmiöar fylgja meö hverjum þætti. Einkaréttur á íslandi Dr'i,in| S.ig SUÍAðf H$ FALCON CREST Frábærir framhaldsmyndaþættir 2 nýir þættir koma á hverjum fimmtudegi Fást á öllum helstu myndbandaleigum landsins Dreifing: MYNDBÖND HF. Skeifunni 8. Símar 6S6545 — 687310.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.