Morgunblaðið - 10.04.1985, Blaðsíða 62
ít
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 10. APRÍL 1985
—^ikiLi— p'i1!/. r,i vi íi'!-1 vu:!/ n"!/.; -::mm
wfsnAnn
/ rtfy/ í XI WJlWm M ÍWÍk M fÆ#m Jf li 1 / IBs t m / -
V®
\~1 © 1985 Universal Press Syndicate
H pe\r 1 a&alslö&\/urtum vilja abulb
ícnalum tínhuerrt k\L hloriurhcimskaubúni."
... að fara með
henni í Tívolí
TM Refl. U.S. Pat. Off — ail rights reserved
c 1979 Los Angetes Times Syndicate
227-
24»
I>ú ert aðeins að vekja bjá mér
öfund þegar þú segir að maður-
inn þinn sé með annarri konu!
* » é l ’ .9
1' 3i’M'e.í i i
sp % ^ S ’ í '» § li . s n i' m
Þungarokkshljómsveitin Iron Maiden.
Meira af þungarokki á rás 2
Kristján Kristjánsson skrifar:
Mig langar til að þakka Sigurði
Sverrissyni fyrir þáttinn „Báru-
járn“ sem var á rás 2 fimmtu-
dagskvöldið 14. mars síðastliðinn.
Um leið vil ég lýsa furðu minni á
þeirri stefnu rásar 2, að svelta
rokktónlist eins og hefur verið
gert frá upphafi. Ég hafði gaman
af, í einum morgunþættinum um
daginn, er 14 ára stúlka utan af
landi fékk að velja óskalag og
valdi „Child in time“ með „Deep
Purple“. Stjórnandinn spurði þá:
Af hverju viltu heyra 15 ára gam-
alt lag með „Deep Purple“? Hún
svaraði: „Af því að þessi tónlist
heyrist svo sjaldan í útvarpinu.“
Og það er alveg satt.
Ég held að forráðamenn rásar 2
geri sér ekki grein fyrir þvi að
margir hlusta í raun á þungarokk.
Ég hlusta t.d. mikið á þungarokk,
ásamt mörgu öðru. Það er út-
breiddur misskilningur að fólk
sem hlusti á þungarokk hlusti ein-
göngu á þungarokk. Sem dæmi um
það sem ég hlusta á er: Deep
Purple, Led Zeppelin, Eric Clapt-
om, Dio, Pink Floyd, U2, Iron
Maiden, Stranglers, Jethro Tull,
Kinks og fleiri. Hve oft heyrist
þessi tónlist á rás 2? Ekki heyri ég
hana oft. Eini þátturinn sem hef-
ur þjónað þessari tónlist að ein-
hverju leyti er „Rokkrásin". Þeir
þættir eru ágætir, þó að mér finn-
ist gæta tímastress í sumum þátt-
unum. Ég veit að það er erfitt að
kynna menn sem hafa verið
15—20 ár í bransanum í einum,
tveim þáttum, en samt er leiðin-
legt að heyra aðeins brot úr lögum
eins og „Layla“ með „Eric Clapt-
on“, lög eins og það heyrast því
miður allt of sjaldan í útvarpi.
Einn annar ókostur við dagskrá
rásar 2 er hvað stjórnendur leggja
mismunandi metnað í þættina hjá
sér. Bullið sem veltur upp úr sum-
um er alveg óskaplegt. Éitt dæmi
er einhver þáttur sem var um
söngleikinn „Chess“. Þar var spil-
að lag með „Murray Head“ sem
var sagt vera af einu sólóplötunni
sem hann hefði gefið út. Þó að ég
hlusti aldrei á „Murray Head“ veit
ég þó allavega um þrjár sólóplötur
Dýrt að mennta
Sólveig B. Magnúsdóttir skrif-
aði Velvakandi 27. mars um hvern
fjárhagslegan ábata hún teldi að
hún myndi hafa af námi sínu.
Mig langar að spyrja Sólveigu,
þar sem hún virðist góð í reikn-
ingi, hvort hún hafi reiknað út,
eða vilji reikna út, hvað nám
hennar hafi kostað samfélagið frá
upphafi til enda, og telja þá með
að skattgreiðendur hafa haldið
uppi námi hennar auk alls annars
kostnaðar við að reka þjóðfélagið.
Skattgreiðendur bera þungar
byrðar vegna menntunarþarfanna
og þykir stundum súrt í broti að
hlusta á hinar sáru kvartanir
kennara og annarra, sem kalla sig
„uppeldisstéttir" og telja sig
kjörna, vegna „mikilvægis" til að
breikka launabilið milli sín og
annarra. Sama hvaða stétt á í
hlut, óvirðulegt er að koma fram
sem píslarvottur.
Ég tek undir með „föður“ í Vel-
vakanda 27. þ.m. og tel að flestir
hafi fengið sig fullsadda af síbylju
kennara á síðustu mánuðum um
kærleika þeirra til nemenda og
umhyggju fyrir þeim. Hætt er við
að þeir verði að bíða enn um stund
eftir að heyra samborgara sína
taka undir þá lofgjörð.
Getur það verið, að vanrækt sé í
menntakerfinu að upplýsa nem-
endur um hvað menntun þeirra
kostar samfélagið?
Amma
sem hann hefur gefið út. Það er til
óteljandi fjöldi af bókum sem
hægt er að fletta upp í um hvað
hver hljómlistarmaður hefur gefið
út af plötum og finnst mér sem
tónlistaráhugamanni svona bull
óþolandi.
En rás 2 hefur einnig nokkra
mjög góða menn sem leggja
greinilega mikinn metnað í sína
þætti eins og t.d. Jónatan Garð-
arsson og Gunnlaugur Sigfússon.
Þó að tónlistin sem þeir kynna
höfði ekki til mín, er virkilega
gaman að heyra í þeim. Vil ég
hvetja Gunnlaug til að taka að sér
einhvern þátt í líkingu við „Trað-
ir“ sem hann var með á rás 1, þeg-
ar „Soul“-þættirnir hans taka
enda. Þar var farin skemmtileg
millileið milli tónlistarstefna, og
svoleiðis þáttur er að mínu áliti
mjög mikilvægur á rás 2.
Forráðamenn rásar 2: Ég hvet
ykkur til að setja góða rokkþætti
inn í dagskrá rásar 2, þið hafið
engan veginn staðið ykkur nógu
vel í þeim efnum. Tónlistarstefnur
koma og fara, en rokkið lifir.
Með von um betri tíð.
Þessir hringdu .
^ J (iC
rO))ilíi'T\\o_o
i
Vanþakklæti
Maður hringdi:
í febrúarmánuði sl. fundu tveir
strákar tösku á Langholtsvegi
með ýmsu í, m.a. skilríkjum.
Höfðu þeir samband við eiganda
töskunnar sem reyndist búsettur
austur í sveit. Kvaðst hann ætla
að koma tiltekinn dag og sækja
dótið sitt. Ekki lét hann þó bóla á
sér en í staðinn kom einhver
kunningi hans, sótti töskuna og
fór leiðar sinnar. Eigandinn hafði
ekki fyrir því að koma sjálfur og
þakka fyrir sig og hefur ekkert
heyrst frá honum síðan.
Strákarnir hefðu vel getað not-
fært sér fundinn, í töskunni var
ávísanahefti m.m. og hefði verið
hægðarleikur fyrir þá að falsa
ávísanir. En þeim kom að sjálf-
sögðu ekkert slíkt í hug enda góðir
drengir. Þvi er það sárgrætilegt að
maðurinn skuli ekki hafa séð sóma
sinn í því að þakka þeim fyrir og í
eigin persónu.
Ekkert um Wham!
Tvær stelpur hringdu:
Búið er að skrifa heilmikið um
Duran Duran í Morgunblaðinu, en
ekkert um Wham! Þegar fyrsta
stóra greinin birtist um Duran
Duran var látið fylgja með að
brátt yrði skrifaö um Wham! Enn
hefur ekkert birst og nú hefur ver-
ið skrifað öðru sinni um Duran
Duran.
Þá finnst okkur svo leiðinlegt að
þegar að vinsældarlisti rásar 2 er
kynntur þá eru aldrei öll lögin
spiluð, heldur skrúfað niður í þeim
áður en þau eru búin.
»