Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 02.06.1985, Blaðsíða 31
auka atvinnu og hagvöxt i Bret- landi. Þær fara í bága við hug- myndir félagshyggjumanna og beinast fyrst og fremst að minni afskiptum og reglugerðum hins opinbera. „Ég held að við séum að nálgast tímabil þegar daglegt líf mun gjörbreytast og við munum hætta að kæra okkur um stjórnmála- menn og ríkisstjórnir sem segja okkur fyrir verkum. Ég geri grein fyrir því í bókinni að meiri hluti fólks mun starfa við tölvu innan fárra ára. Þá skiptir ekki lengur máli hvar maður býr. Stjórnvöld verða að aðlagast því til að missa ekki allt besta fólkið í burtu. Fjölskyldulíf mun breytast. Foreldrar verða bæði heima og krakkar geta stundað sitt nám við tölvu. Ætli feður uppgötvi ekki hversu gaman það er að vera með börnunum á meðan þau eru að vaxa úr grasi og taki sér frí frá vinnu til að hjálpa þeim við náms- verkefnin. Mæður gera það varla, konur þurfa fyrst að komast yfir allan þann tíma sem þær voru utan almenns vinnumarkaðar. Skólaaldur mun breytast, börn munu vinna fyrr fyrir tekjum og fullorðnir setjast aftur á skóla- bekk heima við. Lítil fyrirtæki verða stofnuð, ákveðin verkefni leyst og fyrirtækin lögð niður áður en þau verða óarðbær. Allt. þetta ererast «»» . uprjót- a rK.y»ingar verða við fingur- góma hvers og eins, markaðslög- málin verða látin ráða og lífið verður auðveldara." Macrae talaði sig ráman, trúði hverju orði sem hann sagði en tók sig ekki of hátíðlega, að breskra manna sið. „Fólk verður hreyfan- legra í framtíðinni," sagði hann. „Það mun skiptast meira á heimil- um í nokkra mánuði í senn og geta sinnt áhugamálum sínum betur. Ég hef búið á sama stað í þrjátíu ár, sem er fáránlegt. Fólk mun ferðast um heiminn og reyna ólíka staði. Varla fara þó margir til ís- lands," sagði hann og skáskaut augunum, „Er ekki alltof kalt þar?“ þjónustu og hver staður fær sinn ákveðna blæ. Macrae útskýrir þessa hugs- anlegu framtíðarþróun á mjög auðskilinn hátt. Tölvan skiptir helst til miklu máli á kostnað mannlegra samskipta fyrir minn smekk, en frjálst val verður svo til ótakmarkað og væntanlega hægt að finna stað með aðstoð tölvunnar þar sem fleiri en fjöl- skyldumeðlimir kjósa að koma saman til að vinna við tölvurnar. Lífsmunstrið breytist fullkom- lega og undir hverjum og einum komið að ákveða hvernig hann vill verja lífinu. Ef það reynist erfitt er ekkert auðveldara en að láta tölvuna taka heilalínurit og ráða af þvf hvað gera skal. Bókin hefur verið þýdd á sænsku, frönsku og japönsku. Hún mun koma út í Bandaríkj- unum i lok mars undir heitinu „The 2025 Report, A Concise History of the Future 1975— 2025“. Hún er 198 bls. og Sidg- wick & Jackson gáfu hana út í Bretlandi. — Anna Bjarnadóttir Gamli Laugarnesbærinn og hinn forni kirkjugaróur fyrir framan. Tillaga garðyrkjustjóra Reykjavíkurborgar: Gerðar verði endurbætur á kirkjugarðinum í Laugarnesi Hafnar- fjarðar- kirkja HAFNARFJARÐARKIRKJA: Sjómannadagsguðsþjónusta kl. 11 árdegis. Organisti Helgi Bragason. Munið breyttan messutíma. Sr. Gunnþór Ingason. Leiðrétting í FRÉTT Morgunblaðsins af afmælisfundi Garðyrkjufé- lags íslands, sem haldinn var á hvítasunnudag, urðu þau mistök að rangt var skýrt frá nafni ræðumanns, sem minntist Georgs Schierbeck, landlæknis og annars aðal- stofnanda félagsins. Ræðu- maður var Jóhann Pálsson, forstöðumaður lystigarðsins á Akureyri. Þá misritaðist nafn Jónasar Jónssonar búnað- armálastjóra. Morgunblaðið biðst velvirðingar á þessum uustökum. HAFLIÐl Jónsson garðyrkjustjóri Reykjavíkurborgar hefur lagt fyrir borgarráð tillögu um endurbætur í hinum forna kirkjugarði hjá gamla Laugarnesbænum við Kleppsveg. Kirkjugarðurinn var vígður árið 1000, er kristni var lögtekin á ís- landi og var sfðast jarðað þar árið 1871. Hafliði Jónsson sagði i sam- tali við blm. að í garðinum hvíldu jarðneskar leifar fjölda forfeðra vorra, m.a. Hallgerðar langbrókar. Upphaflega hefðu vegghleðslur ver- ið umhverfis garðinn, sem væri um 300—400 fermetrar að stærð, en nú væri svo komið að engin ummerki væru lengur um hinn forna graf- reit. Hafliði hefur nú lagt til að gras- flöturinn í garðinum verði sléttaður og hækkaður upp þar sem hann er lægstur og að hlaðinn verði veggur umhverfis garðinn eins og áður var. Einnig leggur hann til að reistur verði minnisvarði i garðinum, um þá sem þar hvíla og að allir kirkju- söfnuðir i prófastsdæminu standi straum af kostnaðinum við gerð minnisvarðans. Áætlaður kostnaður við endur- bætur á kirkjugarðinum er um 200.000. krónur, aö sögn Hafliða. Borgarráð hefur visað tillögu hans tii Umhverfismálaráðs þar sem hún biður umfjöllunar. Allir vita aö úrvaliö af afskornu blómunum er hjá okkur Komiö, skoðiö og þiggiö ilmandi kaffisopa. kl. 8-21 VIÐ MIKLATORG sumarblóma og garðplöntu markadur undir einu þaki Úrval af gullfallegum garðplöntum, sumarblómum og runnum Þaö er þess viröi aö líta á garöhúsgögnin okkar Auk þess öll helstu garðáhöld, fræ og áburð i ♦

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.