Morgunblaðið - 21.06.1985, Blaðsíða 1
64SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
137. tbl. 72. árg.
FÖSTUDAGIIR 21. JÚNÍ 1985
Prentsmiðja Morfunblaðsins
Beinin sögð
Mengeles
Smo Pmulo, 20. júní. AP.
RANNSÓKN er lokið á beinum, sem
talin eru leifar stríAsglæpamannsins
Josefs Mengele, og er búist við niður-
stöðu á morgun eða laugardag.
Heimildir úr brazilísku lögregl-
unni herma að í herbúðum vísinda-
mannanna leiki enginn vafi á því
að beinin séu Mengeles og hann
hafi látist fyrir mörgum árum.
Aðrar heimildir herma að v-þýzkir
vísindamenn hafi fundið 24 vís-
bendingar um að beinin séu Meng-
eles, og að þeir hafi skýrt yfirvöld-
um í Bonn frá því að líkið, sem
grafið var upp í Brazilíu á dögun-
um, hafi verið lík Josefs Mengele.
Bandaríkin:
Hagvöxtur
eykst á ný
Wuhington, 20. jáni. AP.
HAGVÖXTUR hefur aukist á ný í
Bandaríkjunum samfara minnk-
andi verðbólgu samkvæmt efna-
hagstölum, sem stjórnin opinber-
aði í dag.
Verð á neysluvöru í Banda-
ríkjunum hækkaði aðeins um
0,2% i maí. Að sögn stjórnarinn-
ar er ástaeðan fyrir minnkandi
verðbólgu tvíþætt: annars vegar
lækkaði verð á matvöru í annað
sinn á tveimur mánuðum, og
hins vegar hækkaði verð á bens-
íni mun minna í maí en apríl. En
bensínverð hækkar venjulega á
vorin í Bandaríkjunum.
Samkvæmt annarri tilkynn-
ingu stjórnarinnar fer hagvöxt-
ur aftur vaxandi í Bandaríkjun-
um þar sem hann er nú 3,1% á
ári. Fyrstu þrjá mánuði ársins
var þar nánast enginn hagvöxt-
ur.
Að sögn efnahagssérfræðinga
bendir flest til þess að verðbólga
haldist niöri í Bandaríkjunum i
sumar, og í raun sé ekki við því
að búast að hún aukist að ráði á
þessu ári.
Ginn flugræningjanna í þotu TWA bindur enda á samtal Johns Testrake flugstjóra og blaðamanns á flugvellinum í Beirút.
Óstyrkir og folleitir gíslar á blaðamannafundi í Beirút:
til að shítar
AP/Símamynd
Hvetja
haldi ísraela
1
Beirút, 20. júní. AP.
FIMM gíslar úr TWA-þotunni komu
fram á róstusömum blaðamanna-
fundi í Beirút í kvöld og hvöttu Reag-
an Bandaríkjaforseta til að revna
ekki að frelsa þá með hervaldi. Ginn
gíslanna, Thomas Cullins, sagði þá
„óttast aflciðingar" björgunartilraun-
ar af því tagi. Voru gíslarnir tauga-
óstyrkir og fólleitir og komu sér hjá
því að svara viðkvaemum spurning-
um. Lýstu þeir „vonbrigðum“ sínum
með það sem þeir kölluðu framtaks-
leysi stjórnar Reagans við að tryggja
frelsi þeirra. Hvöttu gíslarnir banda-
rísk yfirvöld til að beiu sér fyrir
frelsi shíta í haldi fsraela til að binda
enda á flugránið.
Allir gislarnir hafa verið fluttir úr
AP/Símamynd
Frá blaðamannafundinum róstusama i Beirút í gærkvöldi, þar sem fimm
bandarísku gíslanna, sem eru í haldi shíta, voru leiddir fyrir fréttamenn. Á
myndinni eru þrír gíslanna sitjandi við borð og les einn þeirra, Allyn Conwell,
yfirlýsingu fyrir hönd gíslanna.
Ame Treholt dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir njósnir:
„Niðurstaðan lýsir fremur
dómurunum en sekt minni“
Osló, 20. júní. Frá Jan Erik Laure,
frrtlaritara MorgunblaOains.
„DÓMIIRINN er mjög sérkennilegur og lýsir
fremur dómurunum en sekt minni," sagði
njósnarinn Arne Treholt í kvöld, eftir að hann
hafði verið dæmdur í 20 ára fangelsi fyrir
njósnir í þágu sovézku leyniþjónustunnar
1974—84 og þeirrar írösku 1981-83. Skaut Tre-
holt niðurstöðunni til hæstaréttar. Dómurinn
er hámarksrefsing samkvæmt norskum lögum
og á friðartímum hefur enginn maður, sakaður
um njósnir, fengið harðari dóm. Að mati dóm-
aranna er Treholt stórnjósnari, sem hefur vald-
ið öryggishagsmunum norska ríkisins alvarleg-
um skaða.
Treholt sagðist áfrýja dóminum á þremur
forsendum. I fyrsta lagi kveðst hann hafa
verið dæmdur fyrir verknað, sem hann væri
saklaus af. f öðru lagi fyrir að hafa þegið fé
sem hann hefði aldrei tekið við og 1 þriðja
lagi væri hann dæmdur fyrir setu í háskóla
AP/Símamynd
Arne Treholt í sakborningastúkunni f dóms-
húsinu í Osló í gær þegar dómur var kveðinn
upp yfir honum.
hersins, sem stjórnin hefði sent sig í.
Ljóst er að umræðan um dóminn mun
snúast um það atriði að stjórnin samþykkti
setu hans í skólanum, þrátt fyrir að hann
lægi þá þegar undir grun. Treholt heldur því
fram að sú ákvörðun hafi verið ögrun. Dóm-
ararnir segja í niðurstöðum sínum að Tre-
holt hafi mestum skaða valdið þegar hann
var nemandi í háskóla hersins, og telja
sannað, að hann hafi á þeim tíma komið
ýmsum mjög mikilvægum upplýsingum til
KGB.
Áhrifamenn í Noregi sögðu dómsniður-
stöðuna sýna hversu málið væri alvarlegt og
mikið. Dómurinn minnti á að norska þjóðin
yrði að vera vel á verði gagnvart þeim, sem
vildu öryggi hennar og sjálfstæði feigt.
Sjá „Lygndi aftur augunum og drúpti
höfði“, „Fundinn sekur um öll ákæru-
atriði nema eitt“ og „Staðfestir hve
málið er mikið og alvarlegt" á bls. 20.
frelsi
þotunni til að koma í veg fyrir
áhlaup á hana og eru í haldi á 8 til
10 stöðum í Beirút.
Til handalögmála kom milli
blaðamanna og hermanna shfta.
Vopnaðir AK-47 rifflum veittu
shítarnir blaðamönnum áverka og
eyðilögðu myndavélar fyrir ljós-
myndurum. Einn gíslanna, Allyn
Conwell, varð að gera hlé á lestri
yfirlýsingar vegna ringulreiðar á
fundinum. Hann sagði gislana við
hestaheilsu og vistin væri góð. Baö
hann fyrir kveðjur til fjölskyldna
og ættingja gislanna, vina þeirra
og allrar bandarisku þjóðarinnar.
Leiðtogi shita, Nabih Berri, þáði
i dag boð um hugsanleg skipti á
líbönskum föngum ísraela og gisl-
unum færu fram í Sviss. Stjórnvöld
í ísrael gáfu í skyn að þau væru
tilbúin að veita frelsi a.m.k. hluta
700 shíta, sem þar eru í haldi. Rab-
in varnarmálaráðherra sagði að
Bandarikjamenn yrðu að kunngera
kröfur sínar í þvi sambandi.
Bandarikjamenn hafa ekki óskað
eftir því að fangarnir verði leystir
úr haldi, en það er talið mundi
trygRja frelsi gíslanna. Shitar
krefjast frelsis fanganna allra í
skiptum fyrir gíslana.
Pólitískar tilraunir til að fá gísl-
ana lausa jukust um allan helming
í dag og ræddi Reagan m.a. við for-
seta Alþjóða Rauða krossins í því
sambandi. ísraelar kváðust enga
ábyrgð bera á öryggi gíslanna,
hvöttu til varfærni og vöruðu við
„óþarfa yfirlýsingum“, sem kynnu
að stofna þeim í hættu. Hnefa-
leikamaðurinn Muhammad Ali
bauð fram aðstoð sína til að greiða
fyrir frelsi gíslanna.
Ræningjar í þotunni skutu tvisv-
ar á hóp blaðamanna á flugvellin-
um í dag én engan sakaði. Gramd-
ist ræningjunum tilraun dulbúins
líbansks blaðamanns til að lauma
sér um borð í þotuna.
Sjá „Hver verða örlöj; banda-
rísku gíslanna?" á bls. 23.