Morgunblaðið - 26.06.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.06.1985, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR STOFNAÐ 1913 141. tbl. 72. árg. MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1985 Prentsmidja Morgunblaðsins Indversk blöð um Air India-slysið: Landsmenn hvattír tíl að sýna stillingu Delhí, Cork, 25. júní. AP. BLÖÐ á Indlandi, minnug blóöugra óeirða í kjölfar morðsins í Indíru Gandhi, hvöttu landsmenn til að fara sér að engu óðslega þótt því væri haldið á lofti að öfgamenn úr röðum síkha bæru ábyrgð á sprengingu í indversku júmbóþot- unni, sem splundraðist í lofti skömmu fyrir lendingu í London á sunnudag. Sögðu blöðin nýjar óeirðir myndu gera að engu tilraunir Rajivs Gandhi forseta til að koma á sættum heimafyrir og einangra öfgamenn síkha, sem berjast fyrir stofnun sérstaks ríkis síkha í Punjab. Dregið var úr leit undan Ir- landsströndum og bandarískir sér- fræðingar töldu nær útilokað að bjarga hljóðritanum, svarta kass- anum, sem leyst gæti ráðgátuna um hvað raunverulega gerðist. Er hljóðritinn á 1.600 metra dýpi. Enn eru ófundin lík 1% þeirra sem um borð í þotunni voru. Sérfræðingur indverskra flug- málayfirvalda sagði engan vafa leika á því að þotan hefði splundr- ast á flugi, en of snemmt væri að segja til um hvort sprenging hefði orðið um borð. Air India aflýsti öllu flugi til Kanada um ókomna framtíð vegna slyssins og sagði að þangað yrði ekki flogið fyrr en öryggisgæzla á flugvöllum hefði verið aukin. Flug- félagið hætti við að fljúga með ætt- ingja þeirra er fórust til Irlands af ótta við að það kynni að tefja rann- sókn slyssins. Talsmaður Lloyd’s-tryggingafé- lagsins í London sagði að tjónið í indversku þotunni myndi líklega hafa í för með sér mestu bóta- greiðslur í flugsögunni. Þotan var tryggð fyrir milli 75 og 80 milljónir dollara, en bætur til fjölskyldna þeirra 329, sem fórust með þotunni, verða ákvarðaðar af dómstólum. Sjá nánar fréttir á bls. 21. AP/Símamynd Helmut Kohl, kanzlari Vestur-Þýzkalands, (Lh.) og George Bush, varaforseti Bandaríkjanna, heilsast í upphafl fundar þeirra í Bonn í gær. Þeir ræddu um leiðir til að hindra hryðjuverk. Samstarf um að hindra hryðjuverk Bonn. 25. júní. AP. HELMUT Kohl kanzlari V-Þýzkalands og George Bush varaforseti Bandaríkj- anna hétu að beita sér fyrir samstarfí og samvinnu vestrænna ríkja gegn hryðjuverkum hvers konar. Vestrænir sérfræðingar koma saman í Bonn í næsta mánuði til að gera tillögur um leiðir í baráttu gegn alþjóðahryðjuverkum. AP/Símamynd Blaðamenn leita skjóls á flugvellinum í Beirút í gær. Shítarnir, sem hafa þotu TWA á valdi sínu á flugvellinum, hófu skothríð á blaðamennina, en engan þeirra sakaði. Bandaríkjamenn þrýsta á um lausn gísladeilunnar: Bush er nú á ferðalagi um ríki V-Evrópu og leitar eftir stuðningi við aðgerðir til að hindra hryðju- verk af því tagi, sem verið hafa í íhuga nú hafnbann og lokun Beirút-flugvallar WaHhington, Beirút, 25. júnf. AP. REAGAN Bandaríkjaforseti íhugaði í kvöld aðgerðir til að þrýsta frekar á um að 40 gíslar líbanskra flugræn- ingja verði látnir lausir. í því skyni Soares biðst lausnar LLsNabon, 25. júni. AP. MARIO Soares forsætisráðherra gekk í dag á fund Antonio Ram- alho Eanes forseta og baðst lausn- ar fyrir sig og ríkisstjórn sína. Þrjár vikur eru frá því sósíaldemó- kratar hættu stjórnarsamstarfi við flokk Soaresar. Eanes verður nú að ákveða hvort hann fallist á lausnar- beiðnina og hvort þing verður leyst upp og nýjar kosningar boðaðar. Soares biðst lausnar daginn fyrir mikilvægan fund ríkis- ráðsins, sem gera mun tillögur til forsetans um leiðir út úr stjórnarkreppunni í Portúgal. hyggjast Bandaríkjamenn stöðva öll aðfong Líbana með því að loka flug- vellinum í Beirút og öllum höfnum landsins. Larry Speakes, formælandi for- setans, útilokaði hernaðaraðgerðir í þessu sambandi. Forsetinn hefði heitið því að gera ekkert sem stofn- að gæti lífi þeirra í hættu. Aðgerð- irnar myndu ekki einvörðungu beinast gegn flugræningjunum, heldur einnig Iran, Sýrlandi, Líbýu og öðrum ríkjum, eða samtökum, sem styddu ræningjana. Sýrlendingar skárust í leikinn í dag og kveðast munu reyna að beita áhrifum sinum til að binda endi á rán TWA-þotunnar, sem rænt var fyrir 12 dögum, og tryggja frelsi bandarísku gíslanna. Ræningjarnir, sem heimildir herma að séu nánir stuðningsmenn Nabih Berri shitaleiðtoga, skutu í dag að fréttamönnum á flugvellin- um i Beirút, en engan sakaði. Stefnubreyting hefur orðið i af- stöðu ísraela til flugránsins. Shim- on Peres forsætisráðherra hefur sent Reagan bréf þar sem hann hvetur til þess að ríkin tvö hefji fullt og óskorað samstarf um að binda endi á flugránið. ísraelar hafa til þessa sagt ránið sér óvið- komandi, jafnvel þótt aðalkrafa ræningjanna sé að á áttunda hundrað shíta í ísraelskum fang- elsum verði látnir lausir. fréttum síðustu daga. Hann er nú kominn til Hollands. Bush sagði ýmsa valkosti til, m.a. skipti á upplýsingum um hryðju- verkamenn og aukna öryggisvörzlu á flugvöllum. „Það er tími til kom- inn aö allar siðmenntaðar þjóðir taki saman höndum gegn plágu vorra daga, hryðjuverkunum," sagði Kohl eftir fund þeirra Bush. Bæði Bandaríkjamenn og V-Þjóð- verjar hafa orðið fyrir barðinu á hryöjuverkamönnum að undan- fömu. Ránið á TWA-þotunni, sem enn er i haldi í Beirút, beinist gegn Bandaríkjunum, og í síöustu viku týndu þrír menn lífi er öflug sprengja sprakk í flugstöðinni í Frankfurt í V-Þýzkalandi. Auk ráðstafana til að hindra fiugrán og önnur hryðjuverk ræddu Kohl og Bush um geimvarnaáætlun Bandaríkjamanna. Kvaðst Bush ekki með nein loforð af hálfu Þjóð- verja um þátttöku í rannsóknum vegna áætlunarinnar. Handtaka höfuðpaur í sprengjuárásum IRA London, 25. júní. AP. BREZKA lögreglan handtók um helgina höfuópaur í sprengjuárás IRA, frska lýóveldishersins, gegn Thatcher forsætisráðherra sl. haust, að sögn BB(’, brezka útvarpsins. Maðurinn, sem er sprengjusér- fræðingur IRA, bjó um tíma undir fölsku nafni á Grand-hótelinu f Brighton, þar sem 5 menn fórust í sprengingu er landsfundur Ihaldsflokksins stóð þar yfir. Thatther slapp naumlega. Höfuð- paurinn var handtekinn i Glasg- ow, þar sem hann var i felum. Hann er 33 ára Norður-íri og hef- ur hans verið leitað frá 1979. t þingræðu i dag hrósaði Thatcher lögreglunni fyrir árang- urinn i baráttunni við hryðju- verkamenn síðustu daga. Hún sagði lögregluna hafa afstýrt hroðalegum hörmungum er gerð var óvirk sprengja í Rubens-hót- elinu í London, er ætlað var að drepa og lemstra tugi saklausra manna. Handteknir hafa verið 13 menn úr leynisellum ÍRA vegna þessa máls. Leitað var að sprengjum í hót- elum enskra strandbæja í dag. Lögreglan kom í gær upp um fyrirætlanir IRA um sprengju- herferð í bæjum þessum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.