Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 08.08.1985, Blaðsíða 36
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 8. ÁGÚST 1985 36 Minning: Guðný Jensína Gilsdóttir Fædd 22. september 1891 Dáin 28. júlí 1985 „Sá er bestur sálargróður sem að vex í skauti móður, en rótarslitinn visnar vísir þó vökvist hlýrri morgundögg." (Gr. Thomsen.) Við utanverðan Dýrafjörð, nokkuð innan við mynni hans, þótt dyrastafir hans séu raunar fellin tvö, er góðbýlið Arnarnes, að norðan. Útigangur þótti þar ágætur í hlíðum og í fjöru. I eina tíð var þar skógur til kolagerðar, torf- rista, móskurður, silungsveiði, grasatekja, selveiði, reki, sölva- fjara, hrognkelsi, lyngrif og heim- ræði gott vor og haust. Mest voru þó gæðin að vera í nánd við hinar frægu verstöðvar, Fjallaskaga. Annmarkar fylgdu: Leið í kaup- stað löng, fjárgæsla erfið, en á Skagahlíðum er kraftaverk vors og sumars mikið og fögur sólar- strönd og kjarngresið milli steina vinnur meiri og meiri bug á grjót- unum með mjúkum rótum sínum, gróandinn sigrar. Öldum saman bjó sama ættin á Arnarnesi, kunn að harðfengi og höfðingsskap. Guðný Jensína Gilsdóttir fædd- ist á Arnarnesi 22. september árið 1891 og hafði þannig nær fjóra um nírætt, er hún andaðist. Foreldrar: Gils Þórarinsson bóndi og kona hans Guðrún Gísla- dóttir. Foreldrar hennar voru Þórlaug Halldórsdóttir og Gísli Torfason frá Hrauni í Keldudal. Halldór á Arnarnesi var sonur Torfa á Brekku í Brekkudal, sonur Mála-Snæbjarnar bónda og lög- réttumanns á höfuðbólinu Sæbóli á Ingjaldssandi. Faðir Snæbjarn- ar var Páll sýslumaður Torfason á Núpi í Dýrafirði, og er Páll kunn- ur úr íslandssögunni fyrir stór- ræði það, að bjóða einokunarversl- uninni birginn. Mála-Snæbjörn var og með vestfirsku björgin í blóðinu, enda bendir viðurnefnið til þess að þar hafi eigi farið veifiskati. Bróðir Þórlaugar var hinn þjóð- kunni brautryðjandi sjómanna- fræðslunnar, Torfi Halldórsson. Hann rak stórbú og umfangsmikla útgerð á Flateyri. Var og skip- stjórnarmaður. Af afkomendum hans má nefna Ásgeir skipstjóra á togurum — og síðar var hann verksmiðjustjóri á Sólbakka við Flateyri. Var hann sonur Torfa. Fyrri kona Mála-Snæbjarnar var Kristín dóttir Magnúsar í Vig- ur, stórbónda þar og fræðimanns ágæts. Seinni kona Snæbjarnar var Ástríður Sigurðardóttir og var hún móðir Torfa á Brekku. Bróðurdóttir Torfa var Þorkatla Magnúsdóttir, amma Jóns Sig- urðssonar forseta. Kona Gils Þórarinssonar á Arn- arnesi, móðir Guðnýjar, var góð kona og mikilhæf. Faðir hennar, Gísli Torfason, var maður mikillar gerðar og þótti minna á fornhetjur vorar. Gils á Arnarnesi var búhöldur góður. Sóttu menn björg til hans og holl ráð. Nefndir skulu hér bróðursynir hans tveir: Björn skólastjóri á Núpi, æskulýðsleiðtoginn góð- kunni og bróðir hans, Guðmundur á Næfranesi, skipstjórnarmaður og bóndi, orðlagt prúðmenni. Guðrún systir Guðnýjar var mjög dáð kona, gift Jóni Krist- jánssyni frá Alviðru. Börn þeirra voru tvö: Kristjana, kona Sig- tryggs Kristinssonar frá Núpi, og Gunnar. Einkum skal hér getið bróðurins Gísla, f. 1883, bónda á Arnarnesi, er var kvæntur Sigrúnu Guð- laugsdóttur, systur séra Sigtryggs og Kristins á Núpi, einstakri manneskju. Gísli var einkar vel látinn maður og bóndi ágætur. Hann var gæddur sönggáfu og að leika á hljóðfæri. Dætur hans: Elínborg, gift Ein- ari Steindórssyni frá Gröf í Mos- fellssveit, Guðrún, Friðdóra og Svanfríður, gift Páli Eiríkssyni, dóttursyni Agústs í Birtingar- holti. Arnarnesheimilið var sveitar- prýði. Merkt framlag þaðan til sönglífs sveitarinnar undir for- ystu Núpsbræðra. Eiginmaður Guðnýjar Gilsdótt- ur var Guðjón Marías Sigurðsson. Þau giftust 26. desember 1920. Guðjón fæddist á Hálsi á Ingj- aldssandi 26. maí 1893. Foreldrar: Sigurður bóndi Bjarnason og Sig- ríður Guðbjartsdóttir. Þau höfðu flust að Bessastöðum við Mýrar það vor. Árið eftir, hinn 30. október, drukknuðu þau bæði með Guð- mundi Hagalin, stórbónda á Mýr- um, afa Guðmundar skálds, er þau voru að koma frá Haukadal úr kaupstaðarferð vegna fyrirhugaðs brúðkaups Hagalíns. Mikið slys og undarlegt, uppi í landsteinum, Hagalín þrautreynd sjóhetja, en hann getur verið svipóttur undir Fellinu. Guðjón naut fyrst um sinn um- önnunar bróður síns, Jóns f. 1873, síðar bónda á Gili í Dýrafirði, ógleymanlegs og mikilhæfs gæða- mennis. Bróður átti og Jón, er var nafni hans, vélstjóri í Noregi, máttar- stoð til samheldni íslendinga þar, ræktarmaður mikill við skyldfólk sitt og vini hér heima, í hópi fyrstu lærisveina Núpsskóla ásamt þeim Arnarnessystkinum, Gísla og Guðnýju. Sú skólaganga segir sögu heimila þeirra og þeirra sjálfra alla tíð. Guðjón fór eftir nám í Núps- skóla í Vélskólann í Reykjavík. Var lengst (1924—1958) vélstjóri á vitaskipunum. Oft fékk ég að hvíla í rúmi Guð- jóns í Hermóði milli Vestfjarða og Reykjavíkur. Mér varð gengið niður í vélar- rúmið til Guðjóns. í umgengni Guðjóns við vélina gætti nærri ástúðar eins og vinur hans væri, enda skyldi dauðinn þá ekki að. Guðjón fórst með Hermóði að- faranótt 18. febrúar 1959. Guðjón hafði látið af starfi árið áður, en alltaf var hann viðbúinn og um- fram skyldu einatt. Blessuð sé minning göfugmennis. Af fjórum börnum Guðjóns og Guðnýjar komust tveir synir á legg: Gunnar, vélsmiður, kvæntur El- ínu Frímannsdóttur, vitavarðar á Horni. Börn: Ásthildur f. 1941, Halldór f. 1942 og Halldís f. 1943. Þau hjónin skildu. Seinni kona: Borghildur Ásgeirsdóttir, ættuð úr Reykjavík. Börn þeirra tvö: Gunnhildur og Baldur. Gunnar fórst af slysförum 1982. Gæddur var hann listgáfu ættar sinnr. Guðmundur, f. 22.7. 1926, varð nemandi Tónlistarskólans, hjá Dr. Urbancic, Páli ísólfssyni, Karli 0. Runólfssyni og Lanzky-Otto. Fór að loknu prófi til Þýskalands og nam organleik og kirkjutónlist i Hamborg, fékk söngskólakennara- réttindi við hinn kunna söngskóla í Augsburg. Var um tíma skóla- stjóri Tónlistarskólans og organ- leikari á Selfossi, starfar nú við Ríkisútvarpið. Kona Guðmundar er Halldóra Ragna Rudolfsdóttir Hansen og konu hans Margrétar Finnbjörnsdóttur. Börn þeirra: Arnbjörg Anna (Dóttir Halldóru af fyrra hjónabandi), Guðný María f. 1955, Guðjón Rudolf f. 1959 og Guðmundur Gils f. 1960. Guðný ólst upp í foreldrahúsum. Varð snemma félagi í ungmenna- félagi sveitarinnar og bindindis- stúku. Námsdvöl í Núpsskóla þýð- ingarmikil, dáði alltaf mjög sr. Sigtrygg. Fer til Reykjavíkur og er á heimili Hjalta Jónssonar konsúls, og varð gott veganesti. Lærði sauma, var söngelsk mjög og tón- næm, var í kór Dómkirkjunnar, nam hljóðfæraleik hjá frú önnu Guðjohnsen. Lét heimili og sveit njóta suður- göngu sinnar. Fer margar ferðir út á Ingjaldssand til að spila þar við guðsþjónustur sr. Sigtryggs. Gerist húsfreyja í Reykjavík, en andinn frá Arnarnesi og Núpi fylgir henni og hún er með átt- haga sína í farangrinum. Hún gerist þátttakandi í bind- indissamtökum og kirkjulegum, kirkjurækin og trúhneigð. Félags- hyggja aldamótakynslóðarinnar runnin henni í merg og bein. Líkn- armál hugstæð henni og sýna trú í verki. Starfar í Áfengisvarnar- nefnd kvenna, Kristniboðsfélagi kvenna, Kvenfélaginu Keðjunni, Félagi vélstjórakvenna og fleira mætti nefna. Hún vinnur einnig að stofnun Ekknasjóðs íslands, bygging Hallgrímskirkju brenn- andi hugsjónamál hennar. Heimil- ishlutverk sjómannskonunnar margþætt. Hún gat tekið undir með Brynj- ólfi biskupi Sveinssyni, að ekki er gott að vera gestur á eigin heimili. Innst inni átti hún alltaf heima á Arnarnesi. Þar ætlaði hún að búa og hlynna að föðurarfleifð sinni með manni sínum, síðasta áfangann. En dauðinn kom og tók hann frá henni, í þeim skilningi, og þá varð Guðný ef til vill stærst, er hún hóf búskap vestra, er bróðir hennar varð að hverfa að vestan eftir sitt mikla lífsfstarf. Hlé varð á dvöl- inni 1966, en Guðný tók enn til starfa „heima", en nú tóku kraft- arnir að bila, nema hugurinn, ní- ræðrar konu. Brandur Jónsson þýðir í Alex- anderssögu, að Kyros konungur hafi brotið borgir og lagt undir sig þjóðlönd, en þó hafi „ein kona sigrað hann“. Mörg „Ekkjan við ána“ hefur byggt upp bæ og borg. Guðný var ein þeirra. Nærri til hinstu stund- ar vann hún við lyftuvörslu í Hall- grímskirkju, að hún rísi. Guðný andaðist á Grund 28. júli. Hún var mjög þakklát starfsfólki þar og forráðamönnum. Ekki tilviljun, að ýmsir mestu velunnarar Hallgrímskirkju hafa átt átthagana næst hjarta sér. Það má minna á að við hlið Guð- nýjar er bóndadóttirin frá Mýrum í Dýrafirði, Guðrúnu Rydén. Kirkjusöngur hér syðra á sér fagurt ívaf að vestan og ekki síst Arnarnesfólks. Guðný Gilsdóttir átti sér ei að- eins fjarlægt ættaróðal. Hún var landnámskona alla ævi. Menn eru að ræða um hver sé allra helgasti staður lands vors. En land vort vanhelgast og verður staðleysa án draums þess í hjörtum vorum, og, að hann verði þar virkt afl, hvert svo sem sporin liggja. Vé til forna táknaði ekki aðeins svæði innan vébanda, heldur einn- ig merki, er menn báru fyrir sér í orrustum. Um eins konar heiman- búnað var að ræða, að menn skiptu um himin, en eigi hugarfar. Landnámsmaður einn lagði helgi átthaga sinna í nýja byggð sína, „ok lagði mærina helgi á all- an fjörðinn". Helgi Dýrafjarðar er hugarfar, blómið að vestan. Guð blessi minningar vorar um Guðnýju Jensínu Gilsdóttur og gæði þær lífi með oss og vor á meðal. „Fyrir gluggann minn gengur glaðar sumarvonir, stefndu blysförum beint til Bjarmalands í framtíð, gyrtar megingjörðum morguns, mannprýði og sannleiks, merkt var handsal á hjálma hjartasól á skjöldu. Slógu Ijóma fram um löndin, leiftrum út í fjarlægð.” (St. G. St) Eiríkur J. Eiríksson Fátt er prestinum meiri styrkur í starfi og gleður hjarta hans meira, en að mæta áhugafólki um kirkju- og kristindómsmál, svo ekki sé talað um að fyrirhitta hug- sjónamenn og eldhuga. Flestir söfnuðir eiga sjálfsagt sína áhugamenn, sem styðja prestinn, en ef til vill eru það ekki raöauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar | fundir — mannfagnaöir Frá Barðstrendingafélaginu Fjölskylduferöin veröur farin laugardaginn 10. ágúst nk. frá Umferðarmiðstöðinni (austan megin) kl. 9 f.h. Fariö veröur um sögustaði Njálu. Uppl. í símum 40417 María, 71374 Ólaf- ur og 36855 Vikar. Fjölmennum aö vanda. Stjórnin. tilkynningar Læknastofa Læknastofa mín veröur í Austurveri, Háaleitis- braut, frá 12. ágúst. • Símaviötalstímar kl. 8.30.-10. f.h. • Tímapantanir upplýsingar kl. 10-12 f.h. • Viðtalstímar alla virka daga frá kl. 10-12. Grímur Sæmundsen, sími 31942. þjónusta Múrblikk Tökum aö okkur smiöi og uppsetningu á þakrennum og þakköntum. Skiptum á þök- um, gerum viö steinrennur og aörar múr- skemmdir. Gerum tilboð ykkur aö kostnaö- arlausu. Látum verkin tala. Upplýsingar í síma 618897. Meistarar. Velferöar- og atvinnu- málanefnd SUS Undirbuningsfundur vegna ályktana fyrir þing SUS, som haldlö verður á Akureyrl dagana 30. ágúst til 1. september nk., veröur I Valhöll Háaleitisbraut 1, fimmtudaginn 8. ágúst kl. 20.00. Fjallaö veröur um I velferöar- og atvlnnumál. Félag ungra sjálfstæöis- manna í Njarövík heldur félagsfund í Sjálfstæöishúslnu i Njarövik fimmtudaginn 8. ágúst kl. 20. Fundarefni: kosning fulltrúa á 28. þlng SUS sem haldlö veröur á Akureyri dagana 30. ágúst — 1. september. Þeir félagar sem hafa áhuga á aö fara á þingiö eru sérstaklega hvattir til aö mæta. FUS. N/arOvik. Keflavík Heimir, félag ungra sjálfstæöismanna, boöar til fólagsfundar fimmtu- daginn 8. ágúst nk. kl. 20.30 i Sjálfstæölshúsinu, Keflavík. Fundarefni: Kosning fulltrúa á 28. þlng SUS sem haldiö veröur á Akureyri 30. ágúst til 1. sept. Þelr félagar sem áhuga hafa á þátttöku eru sérstaklega hvattir til aö mæta. Heím/r, télag ungra sjálfstæOlsmanna. m targpmÞl s ir» eo Metsölublad á hvetjum degi!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.