Morgunblaðið - 20.08.1985, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 20.08.1985, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 20. ÁGÚST 1985 Þórunn Bjarna- dóttir - Minning Fædd 18. október 1884 Dáin 12. ágúst 1985 „Hver ævi og saga, hvert aldabil fer eina samleið, sem hrapandi straumur. Eilífðin sjálf, hún er alein til. Vor eigin tími er villa og draumur.” (Einar Benediktsson) Þetta segir stórskáldið okkar um tímann, sem mælir mannsæv- ina og telur daga vora. Hér verður kvödd öldruð kona sem hafði lifað í meira en hundrað ár. Þórunn Bjarnadóttir andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði aðfara- nótt 12. ágústs síðastliðins. Hún átti því láni að fagna að vera nokkuð heilsuhraust lengst ævinnar, þar til óhappið mikla dundi yfir í febrúar 1984. Þá hláut hún mjög slæmt lærbrot sem lagði hana algerlega í rúmið. í fyrstu voru batahorfur góðar eftir mikla aðgerð í Landspítalanum en þær vonir brugðust þegar á reyndi. Eftir þetta fóru líkamskraftarnir dvínandi dag frá degi og nú reyndi fyrir alvöru á þolgæði Þórunnar, en það entist henni ævina á enda. Aldrei var kvartað, öllu tekið með ró og æðruleysi, enda allt sem í mannlegu valdi gert henni til hjálpar, huggunar og gleði og mat hún það viðmót með þakklæti og brosi, ef önnur tjáning var ekki tiltæk sökum vanmáttar. Öllu þessu fólki eru færðar hugheilar þakkir fyrir veitta hjálp, hjúkrun og hlýleik Þórunni til handa. Þórunn, öðru nafni Tóta, var borinn og barnfæddur A-Skaft- fellingur, fædd á Hlíð í Lóni. For- eldrar Sigrún Þorláksdóttir í Haukafelli á Mýrum, sem þá var vinnukona á Hlíð. Þorlákur var Sigurðsson frá Svínafelli í Öræf- um. Fyrri kona hans, móðir Sig- rúnar, var Þórunn Eiríksdóttir frá Hoffelli, systir Stefáns alþing- ismanns í Árnanesi, vel þekkt og atkvæðamikii ætt í Hornafirði. Nákominn ættingi þeirra systkina var Páll Ólafsson skáld. Faðir Þórunnar var Bjarni Jónsson bóndi í Hraunkoti í Lóni. Hans ætt er mest tengd Lónssveit- inni. Bjarni kom frá Vík, bróðir Margrétar í Bæ, en Margrét var móðir Ragnhildar í Hraunkoti og Sveinbjargar í Bæ, en frá þeim er komið margt myndarlegra niðja í nútíma samfélagi. Ekki áttu þau Bjarni og Sigrún lengri samleið því þá þegar er þeim fæddist þessi dóttir var hann giftur maður. Framtíð Sigrúnar réðst svo mest í öðrum landsfjórð- ungi. Hún fór alfarin til Austur- lands. Mun lengst af hafa dvalið sem vinnukona á prestssetrinu Valþjófsstað og þar andaðist hún fullorðin kona og er jarðsett þar að ég best veit. Lítil stúlka var skilin eftir hjá venslafólki í Holt- um á Mýrum, en sú fjölskylda fluttist fljótlega til Vesturheims en þá hafði Bjarni tekið dóttur sína að Hraunskoti og eftir það var hún í góðra manna höndum, því hún bar sjúpmóður sinni, Hólmfríði Þorsteinsdóttur, ætíð vel söguna. Hraunkot, æskuheimili Þórunn- ar, var í hennar huga umvafið fögrum ljúfum minningum. Þar þekkti hún hvert einasta kenni- leiti með nafni og oft var á þau minnst með tregablöndnum sökn- uði. Hulduborgir Hraunkotsklett- anna höfðu sinn sérstaka sjarma. Því „margt er það í steininum sem mennirnir ekki sjá“. Barnalærdóm sinn og fermingarundirbúning nam hún hjá Bjarna föður sínum, en hann þótti greindur maður. Fermingin var henni jafnan hug- stæður áfangi í lífinu og við hann tengdar félagslegar minningar fermingarsystkinanna, sem öll voru nafnþekkt fólk á sinni tíð. Besta fermingargjöfin og ef til vill sú eina var góður vitnisburður prófastsins séra Jóns Jónssonar á Stafafelli. Meðal fermingarbarna það ár var Sigurður sonur Jóns, síðar bóndi og fræðimaður á Stafafelli. Hann hefur skráð marga góða kafla úr samtímasögu þessa árgangs og samfélagsins og brugðið upp skýrum myndum sem tala sínu máli um mannlíf Lóns- sveitar á þessum árum og siðar. Þórunn átti 6 hálfsystkini sem upp komust. Margrét og Sigurður fóru snemma til Vesturheims og ílentust þar, en hin ólu aldur sinn í Lónssveit. Þorsteinn, Guðjón, Sigjón og Sigrún húsfreyja í Þórisdal, gift Gísla Halldórssyni, mestu öndvegishjón og mjög var kært með þeim systrum meðan báðar lifðu, en allmörg ár eru nú liðin frá andláti Sigrúnar. Tveir hálfbræður Þórunnar giftust að Bæ, næsta bæ við Hraunkot. Mun það hafa verið ástæðan að Hraun- kotsfjölskyldan fluttist svo öll þangað. Ekki ílentist Þórunn þar. + Maöurinn minn og faðir okkar, KNUT HELLAND, húsasmiöur, Hraunfungu 71, Kópavogi, lést aöfaranótt sunnudagsins 18. þessa mánaðar. Fyrir hönd annarra aöstandenda, Droplaug Helland og dætur. t Fósturmóöir mín, HELGA MJÖLL JÓNASDÓTTIR fró Sílalæk, Boóagranda 7, Reykjavik, lést í Landakotsspitala 8. ágúst sl. Jaröarförin hefur farið fram i kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Fyrir hönd aöstandenda, Ingunn Hallsdóttir. + MAGNÚS BLÖNDAL, bóndi, Gilsstööum í Vatnsdal, lést á Héraöshælinu á Blönduósi 17. ágúst sl. F.h. aöstandenda. Laufey Blöndal. + SIGURBORG JÓNSDÓTTIR, Leifsgötu 5, iést í Vifilsstaöaspítala 9. ágúst. Jarösett hefur veriö í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Aöstandendur. + Maöurinn minn, SIGURÐUR KR. MAGNÚSSON, fyrrverandi næturvöróur, andaöist í St. Jósefsspítala 18. ágúst. Fyrir hönd barna og barnabarna. Ásta Jónsdóttir. + Móöir mín, GUOBJÖRG BERGMANN, andaöist 15. þ.m. á Sólvangi í Hafnarfiröi. Útförin fer fram frá Foss- vogskirkju fimmtudaginn 22. þ.m. kl. 13.30. Benedikt Bergmann. + JÓN INGVAR JÓNSSON, kjötiónaóarmaöur, Álfheimum 28, Reykjavík, andaöist 7. ágúst sl. Jaröarförin hefur fariö fram i kyrrþey. Fyrir hönd aöstandenda, Maria Róbertadóttir. + Maöurinn minn, JÓHANNESJÓNSSON bakari, Garóabraut 8, Akranesi, lést 18. ágúst. Jaröarförin veröur auglýst síöar. Fyrir hönd aöstandenda. Guöborg Elíasdóttir. + Hjartkær eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi, HREINN HARALDSSON, kennari, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 22. ágúst kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuö. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Hjartavernd. Ásta Jónsdóttir, Haraldur Hreinsson, Sigmar Sigurósson, Guðlaug Hreinsdóttir, Ásgeir G. Bjarnason, Krístín Hreinsdóttir, Jón Guömundur Hreinsson og barnabörn. + Faöir okkar, BALDURJÓNSSON, fyrrverandi framkvæmdastjóri, Blöndubakka 5, lést 14. ágúst. Útförin fer fram frá nýju kapellunni í Fossvogi miövikudaginn 21. ágúst kl. 15.00. Edda Baldursdóttir, Jón Baldur Baldursson, Arnljótur Baldursson, Klara Baldursdóttir, Björk Baldursdóttir. Nú tók alvara lífsins við. Henni var í blóð borin sú frelsisþrá að leita sem mest sinna eigin leiða. Af því dreg ég þá ályktun að hún hafi fremur kosið að gerast laus- ráðin kaupakona á hinum ýmsu heimilum en fastráðið vinnuhjú, þegar hún að heiman fór og hélt út á lífsbrautina. Víst er um það að hún var kaupakona á ýmsum bæj- um í Lóni við góðan orðstír og oft þar sem þörfin var mest i hvert sinn. Að eðlisfari var hún dugleg, vinnufús og með afbrigðum ósér- hlífin. Hún vílaði ekki fyrir sér að ganga í hin erfiðustu verk, enda mikil röskleikamanneskja á sínum yngri árum og léttleika sínum hélt hún fram á gamalsaldur. Þá var ekki í tísku að vera að metast um kaupið, bara að vinna og vinna vel. Og það fannst Þórunni ekkert sjálfsagðara en þvo og þrífa þar til allt húsið angaði af hreinlæti og annað í þeim dúr. Þá var ekki síð- ur vel tekið til höndunum við stór- þvottana sem hún var annáluð fyrir, en hún hljóp oft undir bagga með margri húsmóðurinni í þorp- inu eftir hún fluttist á Höfn. Á þeim heimilum sem þurftu á hús- hjálp að halda og í þá daga þurfti víðast hvar fyrstu árin að sækja vatnið í brunna og ekki var það neitt til að flýta fyrir þvottakon- unni, en alltaf sá Þórunn um að verk sín kæmust með góðum skil- um í höfn. En á milli þessara meiriháttar stórverka sem hún gaf sig oft í átti hún frístundir sínar sjálf. Þá var hennar mesta yndi að þeysa rokkinn og líta í bók. Slikt mun þá hafa verið óskadraumur margrar heimasæt- unnar á manndómsárum hennar. Hún átti léttan og liðugan rokk og teygði kemburnar af lipurð og list og brátt hlóðst upp ein bandhesp- an af annarri sem mjög vel var vandað til. Einmitt þá var staður og stund til að raula eitt innibyrgt ljúflingslag með rokkhljóðið að undirspili. Og þar var Þórunn eng- in undantekning frá öðrum söng- elskum spunakonum því laglínan lá henni jafnan ofarlega í huga. Af öðrum verkefnum má nefna að prjónaskapurinn var hennar eftir- lætisiðja og sjaldan bar svo við að Þórunn ætti ekki eitthvað á prjón- unum meðan' kraftar entust. Já, gaman fannst henni að miðla mörgum sokkaleistanum eða vettlingnum, ekki síst meðal yngri kynslóðarinnar, til að fá léttan koss á vangann í staðinn og þá kom fram í hennar eðli hve barn- góð hún var og hafði yndi af að segja litlum börnum sögur í sérstökum gælutón, sem hentaði oft vel á vöggualdrinum. Oft heyrði ég Þórunni minnast á veru sína í Syðra-Firði hjá Eiríki frænda sinum Guðmundssyni frá Hoffelli. Sá maður hafði mikinn bókmenntaáhuga og kunni Þórunn vel að meta það. Sjálf las hún mik- ið og bókin henni jafnan kær föru- nautur. Hún kunni heilu kvæða- bálkana utanbókar og hafði yndi af að fara með í söng og mæltu máli. Þótt Þórunn ætti samleið með 4 ættliðum var hún fyrst og fremst fulltrúi aldamótakynslóðarinnar. Hún var ung stúlka á morgni nýrrar aldar, þegar fólkið í land- inu vissi hver Jón Sigurðsson for- seti var og hét, þegar menningar- líf þjóðarinnar rann í rólegum straumum um farvegi sveitanna, bæ frá bæ með fólkinu sjálfu. Hún lærði að raula við rokkinn sinn í rökkrinu og segja sögur í þjóðleg- um stíl. Það var kjarni kvöldvök- unnar. Hún vissi hvað það var að búa í einangraðri sveit, þar sem óbrúuð stórfljót réðu ríkjum í samgöngumálum. Á uppvaxtarár- um hennar var lafljósadýrðin dul- inn draumur. Þá mátti dimm vetr- arnóttin halla sér upp að lágreist- um bæ og umvefja lítið kot nöpr- um kulda norðursins. En þetta er liðin tíð og ljós i hverjum glugga þegar dimma tekur og annað hef- ur breyst í samræmi við það og Þórunn, sem hefur orðið samferða öllum þeim þægindum inn í nú- tímann, má muna tímana tvenna, en hún var barn síns tíma sem kunni að sigla jafnt í mótbyr sem meðbyr, nema hvað kjölfestan mun hafa verið ennþá traustari hjá eldra fólkinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.