Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.10.1985, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR19. OKTÓBER1985 7 Reykjavíkurborg fær þrjú Kjarvalsmálverk að gjöf REYKJAVÍKURBORG hefur borist að gjöf þrjú málverk eftir Jóhannes S. Kjarval. Voru gjafirnar afhentar við opnun Kjarvalssýningar á Kjarvalsstöðum á þriðjudaginn síð- astliðinn. Annars vegar er um að ræða tvö málverk, sem Eyrún Guð- mundsdóttir ekkja Jóns Þor- steinssonar íþróttakennara gaf, „Ofar skýjum„ og „Þingvalla- bóndinn". Hins vegar var Kjarv- alsmálverk frá árinu 1926, „Andi öræfanna", sem var dánargjöf Rannveigar Norðdahl, sem systir hennar Guðrún Norðdahl afhenti. Að sögn Davíðs Oddssonar, borg- arstjóra, verða verkin varðveitt á Kjarvalsstöðum, að minnsta kosti fyrst um sinn, en síðan væntan- lega valinn staður á einhverjum stofnunum borgarinnar, eftir at- vikum. Við opnun sýningarinnar á Kjarvalsstöðum afhentu bílstjór- ar á Bifreiðastöð Reykjavíkur blómakörfu til minningar um Kjarval, en á sínum tíma málaði Kjarval verk sem ber nafnið „Blómakarfa frá BSR“. Þeir sem Einar Hákonarson, stjórnarformaður Kjarvalsstaða, veitir viðtöku dán- argjöf Rannveigar Norðdahl, „Andi öræfanna“, og það er systir gefand- ans, Guðrún Norðdahl, sem afhendir gjöfina. afhentu körfuna voru Þorvaldur tuttugu árin og Ingimar Einars- Þorvaldsson, sem var eins konar son, sem einnig fór í ófáar öku- einkabílstjóri Kjarvals síðustu ferðir með meistarann. Þórarinn Eldjárn er „Margsaga“ — stofnar nýtt forlag til að gefa út bækur sínar „MARGSAGA" heitir nýtt smá- sagnasafn eftir Þórarin Eldjárn. Það er fyrsta bók forlagsins Gullbringu, sem hyggst sérhæfa sig í að gefa út bækur eftir Þórarin, að því er segir í fréttatilkynningu. „Margsaga" er sjöunda bók Þór- arins, sem áður hefur gefið út fjór- ar kvæðabækur, smásagnabókina „Ofsögum sagt" og skáldsöguna „Kyrr kjör“. „Margsaga" geymir 15 sögur, þar af tvær, sem birst hafa opinber- lega áður. Sögurnar eru fjölbreyti- legar að efni og stíl og gerast flest- ar í nútímanum. „í útjaðri sumra sagnanna," segir í fréttatilkynn- ingunni, „má greina drög að óskráðri harmsögu Kjögx-ættar- innar, en að öðru leyti tengjast þær ekki innbyrðis, ef undan er skilið að „Ég“ er atkvæðamikill í mörg- um þeirra, en að vísu sjaldnast samur við sig. Titlar nokkurra sagna gefa ef til vill hugmynd um yrkisefnin, t.d. Yxu víur, ókvæða við, Sauma- vélin, Perlur frá Hermanni Kjögx eru bestar, Völin á mölinni, Mað- urinn er það sem hann væri, í kaffi í Bolungavík, Litla stund hjá Hansa og Eigandinn. „Margsaga" er 94 blaðsíður. Káputeikningu annaðist Sigrún Eldjárn, ljósmyndun Guðmundur Ingólfsson. Prisma setti og prent- aði eftir frumdiski höfundar, Arnarfell batt. Atli Ingólfsson. Ljóstur — ný Ijóðabók eftir Atla Ingólfsson ÚT ER komin hjá Forlaginu Ijóða- bókin Ljóstur eftir Atla Ingólfsson. Atli er ungur tónlistarmaður, ættaður úr Njarðvíkunum. Hann hefur stund- að tónlistarnám jafnframt háskóla- námi hér heima en dvelur nú við nám í tónsmíðum á Ítalíu. Fyrir skömmu hlaut hann tón- listarverðlaun Ríkisútvarpsins til ungra tónlistarmanna. Ljóstur er fyrsta ljóðabók Atla en áður hafa birst eftir hann ljóð í blöðum og tímaritum. f bókinni eru 30 ljóð og hafa fæst þeirra birst áður. f fréttatilkynningu Forlagsins segir m.a.: „Skáldskapur Atla er lágvær og íhugull, fullur næmleika og þekkingar á list ljóðsins. Myndvísi hans er öguð og sjóngáf- an skörp, hvort heldur hann yrkir um nálægðina eða einsemdina, ef- ann, óttann eða annað það sem lýstur hinar innri sjónir. Hér yrkir þroskað skáld sem tekið verður eft- ir.“ Ljóstur er prentað hjá Fjölritun Rirm'r 1"""*'*’• 1 v n Fyrsta eintakið af „Margsaga" gefíð út. Talið er, segir Þórarinn Eldjárn, að hér hafí í fyrsta skipti tekist að festa á fílmu sjálft útgáfuaugnablik íslenskr- *»r hók»r BÚS6A6NABÖLLIK BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK* 91-81199 og 81410

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.