Morgunblaðið - 06.12.1985, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 06.12.1985, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER1985 Stórstjömur Vestur-Þjóðverja mæta íslendingum í kvöld — í liðinu eru margir af snjöllustu handknattleiksmönnum heims ÍSLENDINGAR og Vostur-Þjóö- vorjar leika fyrsta landsleikinn í handknattleik, af þremur, { kvöld í Laugardalshöll. Vestur-Þjóöverj- arnir komu til landsins í gær- > kvöldi. Viö náðum tali af Jóhanni Inga Gunnarssyni, þjálfara Kiel, í Vestur-Þýskalandi til að forvitn- ast hjá honum um vestur-þýska landsliðið. Jóhann Ingi þekkir mjög vel til undirbúnings lands- liðsins, þar sem hann hefur verið þjálfari hjá Kiel í 4 ár og einnig þjálfaði hann íslenska landsliöið fyrir nokkrum árum. Viö gefum Jóhanni Inga oröið: „Vestur-Þjóöverjar eru komnir lengra en Islendingar í undirbún- ingi sínum fyrir heimsmeistara- keppnina. Ég tel, aö „Super-Cup" keppnin, sem fór fram í Þýskalandi fyrir tveimur vikum, hafi komiö sór . mjög vel fyrir þá. Þessir leikir viö " fslendinga eru mjög mikilvægir fyrir Vestur-Þjóðverja, sálfræöi- lega og ef vel gengur þá er liðiö á réttri leiö í undirbúningi sínum. Góöir möguleikar Möguleikar Islendinga gegn Vestur-Þjóöverjum eru góöir, sér- staklega þar sem ailir okkar bestu leikmenn eru meö. íslensku strák- arnir hafa leikiö meira og minna saman í mörg ár og þekkja vel til hvors annars, þó liöiö hafi ekki fengiö nægilega góöan undirbún- ing fyrir þessa leiki. Þaö sem kemur til meö aö skipta mestu máli er hvernig varnarleikur og markvarsla íslenska liösins gengur. Sóknarleikurinn á aö geta veriö góöur. Raunhæft væri aö ætla aö Vestur-Þjóöverjar ynnu tvo leiki og Islendingar einn, allt um- fram þaö væri frábær árangur hjá íslenska liöinu. Vestur-Þjóöverjar eru í hópi allra sterkustu handknattleiksþjóöa heims, liöiö varð númer þrjú í „Super-Cup“ keppninni og þaö segir sína sögu um styrkleika þeirra. Þvi í þessari keppni tóku þátt allar sterkustu þjóöir heims í handknattleik, aö Pólverjum und- anskildum. Liöiö vann þá Tókka, 20—14, Sovétmenn, sem eru heimsmeistarar, 23—16 og er það stærsta tap Sovétmanna í mörg ár. Þeir unnu síöan Rúmena í úr- slitaleik um þriöja sætiö, 21—19. Markmiö Vestur-Þjóöverja í heimsmeistarakeppninni er aö veröa meöal sex bestu þjóöa heims og ef vel gengur, komast á veröiaunapall og tryggja öruggt sæti á Ólympíuleikunum 1988 og þar á liöiö síðan endalega aö blómstra. Thiel vítabani Varnarleikur Vestur-Þjóöverja og markvarslan er mjög góð og í markinu stendur Andreas Thiel, sem er talinn besti markvöröur heims í dag. Hann ver um 20 skot í leik og þá oft úr dauöafærum. Leikir í kvöld Einn leikur verður í úrvalsdeild- inni f körfuknattleik í kvöld ÍBK og Valur leika í Keflavík og hefst leikurinn klukkan 20. Á sama tíma leika Breiðablik og Grinda- vík í 1. deild karla í körfu og fer sá leikur fram í Digranesi. Morgunbtaötö/B|aml • Jochen Fraatz er einn besti hornamaöur heims í dag. Hér skorar hann í landsleik gegn Dönum. Hann býr yfir mikilli trnkni og er skotfastur mjög. Hann er einn besti vítamarkvöröur heims, oft ver hann 4—5 vítaköst ileik.algjörvítabani. Þeir munu örugglega leika, 3—2—1 vörn gegn Islendingum, því þeir vita af stórskyttum íslenska liösins. Lommer, félagi Alfreðs Gíslasonar hjá Essen, leikur senni- lega fyrir framan í vörninni og reynir aö trufla og koma vel út á móti íslensku skyttunum. Hann leikur síöan í hægra horninu í sókn- inni. Leikaöferö íslenska liösins, eins og Bogdan leggur hana upp, ætti aö heppnast vel gegn Vestur- Þjóöverjunum. Mikil hlaup inn í vörnina án bolta og svo komi annar línumaöur og útispiiari sem hleypa inn á línuna, þessi aöferö er erfið- ust fyrir svona vörn. Stórstjörnur Þaö má segja aö þaö sé valinn maöur í hverju rúmi hjá Vestur- Þjóöverjunum og hvergi veikur hlekkur í liöinu. Stjörnur liösins eru tvímælalaust, markvöröurinn, Andreas Thiel, eins og áöur er lýst, hornamaðurinn, Jochen Fraatz frá Essen, hann er án efa einn besti hornamaöurinn í heiminum í dag. Hann er 22 ára og er einn marka- hæsti leikmaöur Bundesligunnar, hann hefur alla eiginleika góös handknattleiksmanns, getur brot- ist í gegn maður á móti manni, mjög skotharöur, ef hann kemst inn í horninu er hann meö ýmsa snúningsbolta, sem eru erfiöir fyrir markveröi og í hraöaupphlaupum er hann mjög góöur. Risinn, Erhard Wunderlich, sem er um 2 metrar á hæö er mjög skotfastur og skorar mikiö af mörkum, hann hefur mikla reynslu og er útsjónarsamur, næmt auga fyrir línusendingum. Ruediger Neitzel, leikur fyrir utan og er hann mjög sterkur og stór leikmaöur. Hann skorar mikiö og er ein hættulegasta skyttan i Bundesligunni, hann er einnig sterkur varnarmaöur. Wolfgang Kubitzki, sem kemur frá Essen, er á miðjunni fyrir utan, hann er mikill skotmaöur, stekkur upp af báöum fótum og þaö þarf aö hafa góöar gætur á honum. Michael Roth, sem leikur meö Grosswallstadt, leikur einnig fyrir utan og stjórnar leik liösins. Hann er ekki mikill skotmaöur, en á lúmsk lágskot í gegnum vörnina. Hægra megin er Martin Schwalb frá Grosswallstadt, hann hefur leikiö mjög vel í ár, meö góöa tækni og er mikill skotmaöur. Einn jafnbesti leikmaöur landsliösins upp á síökastiö. I hægra horninu leikur svo Joern-Uwe Lommel frá Essen. Góöur og vaxandi leikmaöur. Á Itnunni er Ule Roth, sem er fyrirliði og er jafnframt tvíbura- bróöir Michael Roth, og varla hægt aö þekkja þá í sundur. Hávaxinn og góöur línumaður og einnig er hann góöur varnarmaöur. Þetta veröa örugglega fjörugir og skemmtilegir leikir og þarna fá áhorfendur tækifæri á aö sjá marga bestu handknattleiksmenn heimsídag." Haukar lóku hlut sinn ekki á þurru HAUKAR tóku hlut sinn ekki á þurru landi í viöureign við ÍR-inga í úrvalsdeildinni í körfuknattleik í Hafnarfirði í gær. ÍR-ingar höfðu yfir í hálfleik, 28-25, og seinni hálfleikur var jafn þar til undir lokin að Haukar náöu forskoti, sem dugði til sigurs, 75-67. Varnarleikur var í fyrirrúmi í fyrri hálfleik. Leikmenn beggja liöa voru mjög hreyfanlegir í vörninni og gáfu mótherjanum engin griö til aö skapa sér skotfæri. Óhittni og óheppni var einnig áberandi. Haukarnir komust strax í 8-2, en ÍR-ingar jöfnuöu og héldu í við Hauka um stund. ÍR-ingar voru síöan betri síöustu 10 mínúturnar, komust þeir í 20-14 þegar 7 mínút- ur voru eftir og héldu 4-6 stiga forskoti, en þegar fjórar sekúndur voru eftir skoraöi Pálmar þriggja stiga körfu og minnkaöi muninn í þrjú stig, 28-25. Einar Bollason, þjálfari Hauk- anna, var óánægöur meö sína menn í fyrri hálfleik og hefur lesiö yfir þeim í hléinu, því allt annar bragur var á leik liösins í seinni hálfleik og spil þeirra liöugra. Byrj- uöu Haukar leikinn af krafti, skor- uöu 8 stig á fyrstu mínútunni og náöu 5 stiga forystu, 33-28. Þaö var ekki fyrr en um miöjan seinni hálfleik aö IR-ingar komust á skriö aftur og er 11V4 mínúta var eftir höföu þeir minnkaö muninn í eitt stig, 48-47. Þegar 8 mínútur voru eftir munaði enn einu stigi, 54-53, en þá brast einbeitni ÍR-inga og þeir fóru halioka fyrir Haukum, sem komust á þremur mínútum í 62-53. Losnaöi þá meira um Haukana og áttu ÍR-ingar á brattann aö sækja. Reyndu Haukarnir aö nota tímann vel og halda fengnum hlut. ÍR-ingarnir undu ekki sköröum hlut, en tóku of seint viö sér. Þeim dugöi lítt aö skora 8 stig á 20 sekúndum á lokamínútunni, því fyrir þá leiftursókn höföu Haukar náð 14 stiga mun, 73-59. Minnk- uöu ÍR-ingar muninn í 73-67, en Haukar áttu síöan síöasta oröiö. Haukar gáfu Karli Guölaugs, sem skaut KR-inga i kaf á dögun- um, fá tækifæri, en ásamt honum áttu Ragnar Torfa og Björn Stef- fensen, sem var mjög góöur í seinni hálfleik og skoraöi þá 16 stig, einna skástan leik ÍR-inga. Hjá Haukum var Pálmar maöur dagsins. Hélt hann liöi sínu gang- andi í seinni hálfleik og átti lang- stærstan þátt i því aö Haukar fóru meö sigur af hólmi. Henning kom einnig vel frá seinni hálfleiknum. Stig Hauka: Pálmar Slgurösson 29. Henn- ing Henningsson 18. Ivar Webster 13, Viöar Vlgnlsson 7. Ivar Asgrímsson 4, Eyþór Arnason 2 og Ólafur Rafnsson 2. Stig ÍR: Ragnar Torfason 20. B|örn Steff- ensen 16, Karl Quólaugsson 15, Jóhannes Sveinsson 7. Jón Örn Guómundsson 4, Bragi Reynisson 2, Vignir Hilmarsson 2 og Hjðrtur Oddsson 1. — ágás. • Pálmar Sigurðsson var besti leikmaður Hauka í gærkvöldi og skor aði 29 stig. Hann er einn stigahæsti leikmaður úrvalsdeildarinnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.