Morgunblaðið - 11.01.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.01.1986, Blaðsíða 1
8. tbl. 72. árg. 0 Iþróttaiðkun kvenna: Minni líkur á krabbameini Boston, 10. janúar. AP. KONUR sem hefja íþróttaiðkun á unglingsaldri venja sig á líferni sem stórlega minnkar hættuna á því að þær fái krabbamein i bijóst eða leg síðar á ævinni, að því er fram kemur í rannsókn sem gerð var við Harvard- háskólann. Rannsóknin náði til 5.398 kvenna, sem útskrifast höfðu frá 10 skólum í Bandaríkjunum á árun- um 1925 til 1981. Telja þeir sem að rannsókninni stóðu að hún sé sú fyrsta, þar sem athuguð eru tengslin milli íþróttaiðkunar og lík- indanna á því að konur fái krabba- mein. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar er tvisvar sinnum algengara að konur sem lítt stunda íþróttir fái krabbamein í bijóst og 2 V2 sinnum algengara að þær fái krabbamein í æxlunarfæri. Til þess- ara líffæra má rekja 40% krabba- meins hjá konum. Suður-Kórea: 7 þingmenn handteknir Seoul, 10. janúar. AP. Saksóknaraembættið í Suður- Kóreu aflaði sér í dag dóms- heimildar til þess að geta haldið sjö þingmönnum stjórnarand- stöðunnar í sólarhrings varð- haldi, en þeir hafa verið ákærðir um ofbeldisverk á þjóðþinginu. Eiga ákærumar rót sína að rekja til átaka, sem urðu 2. desember sl. á þingi, en þá kom það í ljós, að stj ómarflokkurinn hafði með leynd samþykkt frumvörp um ríkisútgjöld, án þess að stjórnar- andstaðan kæmi þar nærri. Þetta vildu stjómarandstæðingar á þingi ekki sætta sig við og kom þá til handalögmála þar. Ákæra var síðan gefín út á hendur 17 þing- mönnum stjómarandstöðunnar og 11 aðstoðarmönnum þeirra fyrir ofbeldisverk og truflun á starfsemi opinberra embættismanna. Hinir ákærðu virtu allir kvaðningar lög- reglunnar að vettugi og þá var málið sent saksóknaraembættinu til meðferðar. Fulltrúar flokkanna beggja reyndu þá að finna póhtíska lausn á málinu, en þá tók saksóknaraemb- ættið þá ákvörðun upp á eigin spýt- ur að færa þingmennina með valdi til yfírheyrslu með því að fá sólar- hrings varðhaldsúrskurð yfír þeim snemma í morgun. STOFNAÐ 1913 40 SÍÐUR OG LESBÓK LAUGARDAGUR 11. JANÚAR 1986 Prentsmíðja Morgnnblaðsms Hryðjuverkamennirnir sem frömdu ódæðin í Vínarborg: Vegabréf fengin hjá yfirvöldum í Líbýu Vínarborg, 10. janúar. AP. TVÖ vegabréfa arabísku I hryðjuverkamannanna, sem myrtu saklausa flugfarþega á flugvellinum í Vínarborg, I voru tekin af verkamönnum frá Túnis, sem reknir voru í fyrra frá Líbýu, að sögn Karls Blecha, innanrikisráðherra Austurríkis. Blecha sagði líb- ýsk yfirvöld hafa tekið vega- bréfin af verkamönnunum, en hann kvaðst þó ekki hafa beinar sannanir fyrir þvi að Líbýumenn hefðu átt aðild að ódæðinu, eins og Bandaríkja- menn saka þá um. Blecha sagði yfírvöld [ Túnis hafa aðstoðað við rannsókn ódæðis- ins í Vínarborg og komið hefði í ljós að „alnafna" ódæðismannanna væri að fmna þar í landi. Voru þeir í hópi verkamanna, sem vísað var frá Túnis í fyrrasumar. Yfirvöld í Líbýu gerðu vegabréf fleiri þúsund Túnisbúa upptæk er þeim var vísað úr landi vegna versnandi sambúðar ríkjanna tveggja. Ódæðismennirnir sýndu alltaf sömu vegabréf meðan þeir dvöldust í Vínarborg, en þann tíma bjuggu þeir á sex mismunandi hótelum í borginni. Hins vegar sýndu þeir vegabréf frá Marokkó við komuna til Austurríkis. Þeir eyðilögðu vega- bréfin rétt áður en látið var til skarar skríða. Blecha sagði einn ódæðismannanna hafa verið búsett- ann í Líbýu en farið úr landi á síð- asta áratug. Blecha sagði að tekizt hefði að sannreyna að hryðjuverkamennirn- ir, sem náðust , hafí alltaf logið til um nafn og þjóðemi. Annar kveðst frá Kuwait en hinn frá Líbanon. Hins vegar sé ljóst að þeir hafi • hlotið þjálfun í búðum í Bekadalnum í Líbanon. Líbýumenn unnu pólitískan sigur öðru sinni á nokkrum dögum er fundur ríkja Múhameðstrúarmanna samþykkti ályktun þar sem refsiað- gerðir Bandaríkjamanna voru for- dæmdar og hvatt til gagnaðgerða gegn Bandaríkjunum. Hermt er að Bandaríkjastjóm hafí fryst eigur líbýskra aðila í bandarískum bönk- um þar sem borið hefði á tilraunum til að flytja þær úr landi. Með hjarta heitsveinsins AP/Símamynd Donna Ashlock, 14 ára Kaliforníustúlka, faðmar brúðuna sína, aðeins fjórum dögum eftir aðgerð þar sem hjarta unnusta hennar var grætt í hana. Unnustinn sá dauða sinn fyrir og ánafnaði Donnu hjarta sitt en nýlega kom i ljós að ofvöxtur væri í hennar eigin hjarta óg að hún yrði að gangast undir hjartaígræðslu. Með Donnu á myndinni eru amma liennar, foreldrar, bróðir og bezta vinkona. Meiríhluti Breta styð- ur afstöðu Heseltines London, 10. janúar. AP. ÍHALDSFLOKKURINN brezki skiptist í tvennt í afstöðunni til afsagnar Michaels Heseltine vamarmálaráðherra og sölu Westland-þyrlufyrirtækisins og blaðið The Times segir að með afsögn Heseltine sé flokkurinn nú „klofinn ■ herðar niður“. Samkvæmt skoðanakönnun brezka sjónvarpsins (BBC) telja tveir þriðju Breta að Heseltine hafí gjört rétt með því að segja af sér og 62% aðspurðra kváðust þeirrar skoðunar að selja bæri Westland samsteypu brezkra og evrópskra fyrirtækja. Margaret Thatcher, forsætisráð- herra, sagðist í kvöld ekki ætla að þræta við Heseltine í fjölmiðlum. Hún kvaðst sjá eftir Heseltine en afsögnin yrði ekki tekin aftur. Hún lét líta út fyrir að brotthlaup Hes- eltines hefði ekki mikla þýðingu. Fréttaskýrendum ber saman um að því sé öðru vísi farið, og að málið í heild sé mikill álitshnekkir fyrir Thatcher. Einn þingmaður íhaldsflokksins, Martin Stevens, lézt í dag og verður flokkurinn því að fara út í harða kosningabaráttu í Fulham-kjör- dæminu á næstunni. Koma kosn- ingamar á slæmum tíma fyrir stjómina, þar sem fylgi hennar hefur dvínað upp á síðkastið og afsögn Heseltines mun sízt auka orðstír hennar. Nánustu samverkamenn Thatc- hers komu foringja sínum til aðstoð- ar í dag og reyndu að gera afsögn Heseltines vafasama. Sir Geoffrey Howe, utanríkisráðherra, sagði Heseltine hafa gefíð ýkta og skakka mynd af meðferð stjómarinnar á Westland-málinu. Norman Tebbit, formaður íhaldsflokksins, sagði hann mikinn tilfinningamann og þverkálf, sem ekki hefði látið undan síga þótt hann hafi róið einn gegn öllum samráðheirum sínum í mál- mu. Stór hluthafí í Westland, Alan Bristow, hefur keypt hlutabréf fyrir 4,8 milljónir sterlingspunda síðustu daga og kveðst nú ráða yfír nógu mörgum hlutum til að knýja fram frestun á hluthafafúndi nk. þriðju- dag. Á fundinum eiga hluthafar að taka afstöðu til kauptiiboða, sem kennd eru við bandaríska þyrlufyr- irtækið Sikorsky annars vegar og evrópskrar fyrirtækjasamsteypu hins vegar. Stjóm fyrirtækisins vill taka boði Sikorskys, en stuðnings- mönnum evrópsku samsteypunnar vex nú fískur um hrygg með hverj- um degi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.