Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ 1913 10. tbl. 72. árg. ÞRIÐJUDAGUR 14. JANÚAR 1986 Prentsmiðja Morgunblaðsins •• Viðvöran frá dönskum lögregluyfirvöld tii íslands: Menn Abus Nidal á N or ðurlöndum? Sænsk o g ítölsk stjórnvöld vara við yfirvofandi árás hryðjuverkamanna á Norðurlöndunum Oryggis- varsla Lögregluvörður við bæna- hús gyðinga í Stokkhólmi. Reist hafa verið grindverk um allt torgið fyrir framan bænahúsið og lögreglu- menn með alvæpni eru allt í kringum það. AP/Sfnamynd STERKUR grunur leikur á að palestínskir skæruliðar úr liði hryðjuverkamannsins Abus Nidal hafi komist inn á norræna vegabréfasvæðið á síðustu dögum, skv. upplýsingum, sem Morgun- blaðið aflaði sér í gærkvöld. íslensk yfirvöld fengu upplýsingar um þetta frá lögregluyfirvöldum í Danmörku síðdegis í gær. Eins og kunnugt er eru Norðurlöndin fimm eitt vegabréfasvæði og þurfa íbúar þeirra ekki að sýna vegabréf þegar þeir fara á milli landanna. íranir í rétti? Washington, Manama, 13. janúar. AP. Bandaríkjastjórn telur að íranir kunni að hafa verið í einhveijum rétti er þeir stöðv- uðu bandariskt kaupskip í mynni Persaflóa undir því yfirskyni að þeir væru að athuga hvort um borð væru vopn, sem flytja ætti til fjand- manna sinna í írak. Hins vegar hefur stjórnin alvarleg- ar áhyggjur vegna þessa at- burðar og íhugar hvernig brugðizt skuli við. íranir hótuðu að sökkva kaupskipinu, Taylor forseta, sem er 39.000 smálestir, ef það næmi ekki staðar. Fóru hermenn um borð og skoðuðu farm skips- ins, en fóru síðan frá borði. Vegna þessa fylgdu skip úr bandaríska flotanum kaupskip- um inn á Persaflóann í dag. Talsmaður bandaríska utan- ríkisráðuneytisins segir ákvæði reglna um sjóhemað veita írön- um „viss réttindi" til að ganga úr skugga um hvort skip óháðra ríkja séu notuð til að færa óvin- inum vopn. Þá bárust hérlendum yfírvöldum um það upplýsingar frá alþjóðalög- reglunni Interpol á Ítalíu í gær, að búast mætti við aðgerðum hryðju- verkamanna í Vestur-Evrópu á næstu 24 tímum - sá tími er liðinn síðdegis í dag. í skeyti Interpol segir að sérstaklega sé ástæða til að auka varúðarráðstafanir á Norður- löndum, í Hollandi, Spáni og Ítalíu auk NATO-stöðva í þessum löndum, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Lögregla á Norðurlöndum og víð- ar í V-Evrópu hefur haft uppi sér- stakan viðbúnað gegn hugsanlegum árásum hryðjuverkamanna Abus Nidal eftir að sænska leyniþjónust- an hafði af því njósn, að menn undir hans verkstjóm beindu aug- um sínum sérstaklega að nokkmm löndum í þessum heimshluta. Abu Nidal hefur lýst ábyrgð á hendur sér fyrir morðárásimar á flugvöll- unum í Róm og Vínarborg um jólin, auk fleiri árása á undanfömum vikum og mánuðum. Að skipan utanríkisráðuneytisins hafa sérþjálfaðir lögreglumenn með hríðskotabyssur staðið vakt í flug- stöðinni á Keflavfkurflugvelli síðan á sunnudag. Þegar fyrrgreindar upplýsingar bárust hingað til lands í gær var hert á þessari öryggis- gæslu. í samtali við Morgunblaðið sagði Geir Hallgrímsson utanríkis- ráðherra það nauðsynlegt fyrir ís- lendinga að gera sér grein fyrir að hættan á hryðjuverkum væri fyrir hendi hér á landi ekki síður en annars staðar. Sjá ennfremur: „Sænska leyniþjónustan hafði njósn af hugsanlegum aðgerðum Abu Nidals" á bls. 4, „Segja ómögulegt að gæta hugsan- legra fómarlamba" á bls. 20 og forystugrein í miðopnu. Ðeilt á Thatcher í Neðri málstofunni Dregur Sikorsky tilboð sitt í Westland til baka? London, 13. jnnúar. AP. LEIÐTOGAR og þingmenn brezku stjómarandstöðunnar gerðu harða hríð að Margaret Thatcher, forsætisráðherra, í Neðri málstofunni í dag. Thatch- er var krafin skýringa á afsögn Þriðju flugvallar- árásinni afstvrt Rómaborií, 13. janúar. AP. Wr Rómaborg, 13. janúar. ÍTALSKAR orrustuþotur stugguðu við tveimur sovézkum Ilyushin- 38-flugvélum, sem stefndu til Sikileyjar, og snera þeim til Líbýu, en þaðan komu þær. Flugvélarnar vora með sovézkum einkennis- merkjum en hafa bækistöðvar í Líbýu, að sögn ítalskra heimilda. ítölsku þotumar voru sendar til móts við sovézku flugvélamar er þeirra varð vart í ratsjám. Spenna ríkir á Miðjarðarhafí í kjölfar hryðjuverka á flugvöllunum í Vín og Róm 27. desember sl. vegna gruns um að Líbýumenn hafi stutt ódæðismennina. Fjöldi ítalskra her- stöðva og herstöðva NATO-ríkja er á Sikiley og suðurhluta Ítalíu. Að sögn Oscars Scalfaro, innan- ríkisráðherra Ítalíu, kom í ljós við rannsókn ódæðisins á flugvellinum í Róm að sjálfsmorðssveit var í þann veginn að láta til skarar skríða á þriðja flugvellinum í Evrópu. Tekizt hefði að vara þarlend yfír- völd við I tæka tíð og afstýra hryðju- verki. Ráðherrann sagði ódæðis- mennina, sem að verki voru í Róm og Vín, og þriðju sveitina, alla til- heyra sömu „stóm samtökunum". Öryggisvarzla og viðbúnaður hefur verið aukinn víða af ótta við hryðjuverk. í dag vömðu t.d. starfs- menn bandaríska sendiráðsins í Hollandi um 10.000 Bandaríkja- menn þar í landi við hugsanlegum hryðjuverkum. Michaels Heseltine, varnarmála- ráðherra, sem sagði af sér ráð- herrastarfi vegna ágreinings í stjórainni um sölu brezka þyrlu- fyrirtækisins Westland. Að sögn Financial Times kann svo að fara að kauptilboð í Westland, sem Heseltine vill að ekki verði tekið, verði afturkallað. Neil Kinnock, formaður Verka- mannaflokksins, sagði Thatcher hafa synjað beiðni sinni um að hún svaraði ásökunum, sem Heseltine hafði uppi eftir afsögn sína. „Hér fer heigull undan í flæmingi og bregst skyldum sínum við þessa samkundu," sagði Kinnock. Thatc- her tók ekki til máls í þinginu í dag, en Kinnock hótaði að knýja hana til svars á miðvikudag, en þá gefst þingmönnum Verkamanna- flokksins tækifæri til að spyija forsætisráðherrann í þaula. Thatcher var sökuð um að ganga gegn þjóðarhag í Westland-málinu. Hún var krafin skýringa á stefnu stjómarinnar í málinu. Leon Britt- an, viðskiptaráðherra, varði stjóm- ina og sagði aldrei hafa komið til þess að hún tæki afstöðu til kauptil- boða í þyrlufyrirtækið. Aðeins hefði verið ákveðið að ráðherrar skyldu ekki draga taum tilbjóðenda og að þeirri ákvörðun tekinni hefði Heseltine sagt af sér. Að afsögn lokinni lýsti Heseltine stuðningi við málstað brezk- evrópskrar samsteypu, sem gerir tilboð í þyrlufyrirtækið, en stjóm Westland vill taka tilboði Sikorsky- fyrirtækisins bandaríska og ítalska fyrirtækisins FIAT. Stjómin hefur hvatt hluthafa í Westland til að taka því tilboði, en hluthafafundur er boðaður á morgun, þriðjudag. Blaðið Financial Times skýrði frá því í dag að Sikorsky íhugaði að draga tilboð sitt til baka hljóti það ekki tilskyldan stuðning hluthaf- anna. Telur blaðið ólíklegt að tilboð Sikorsky hljóti stuðning eigenda 75% hlutabréfa í Westland og að svo kunni að fara að það verði afturkallað. Brezkir stjómmálaskýrendur era sammála um að málið hafí dregið úr trausti almennings á yfírvöldum og rýrt álit á Thatcher. Vangaveltur era jafnvel á kreiki um að málið kunni að leiða til þess að Thatcher dragi sig í hlé og hverfi úr ráð- herrastóli á árinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.