Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 14.01.1986, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR14. JANÚAR1986 > Árni Indriðason: Ekki von á þessu „NEI, ég verð nú að segja það alveg eins og er að ég átti ekki von á þvf í haust þegar mótið byrjaði að við yrðum fslandsmeistarar, og ég held að það hafi fssstir búist við þvf. Hinsvegar er stemmn- ingin hjé Vfldngum og altt f kringum llðið alltaf þannig að menn krefjast þess besta," sagði Ámi Indriðason þjélfari Vfldnga „Leikurinn í dag við KR bar þess merki að þeir áttu að Irtlu að keppa og einbeitingin hjá okkur var ekki í lagi framan af leiknum en lagaðist í síðari hálfleik og þá var engin spurn- ing hvort liðið stæði uppi sem sigurvegari í leiknum," sagði Ámi er hann var spurður um leikinn gegn KR. — Hvernig finnst þér þetta fslandsmót hafa verið? „Mér finnst bara leiðinlegt að það skuli vera búið. Það er gott að leika svona þétt en betra væri að leika vikulega allan veturinn. Það væri ábyggilega best að hafa sex lið í deildinni og leika þrefalda eða fjórfalda umferð. Hand- knattleikurinn sem leikinn var á mótinu bar þess merki að margir af okkar bestu hand- knattleiksmönnum eru farnir að leika erlendis og það tekur alltaf tvö til þrjú ár að ná því upp. Annars er ég hræddur um að ef ekkert verður að gert hérna þá verður þetta alltaf þannig að við missum okkar bestu menn utan. Því miður sé ég ekki að HSf eða félögin sóu með svar við þessari þró- un, og er það slæmt. Hand- boltinn hér heima nær því þá aldrei að veröa verulega góður ef strákarnir sem eru aö veröa mjög góðir fara ailtaf utan." Páll Björgvinsson: Góður bolti „ÉG reiknaði með þvf að við yrðum f einu af þremur efstu sætum deildarinnar en var þó efins um að við næðum að vinna mótið," sagði Péll Björgvinsson handknattleiks- maður úr Vfldngi eftir að liðið varð íslandsmeistari á sunnudaginn. „Víkingar hafa oft orðið fyrir mikilli bióðtöku þegar menn fara frá okkur til að leika er- lendis en okkur tekst alltaf að klóra í bakkann og erum búnir að vera lengi í efstu sætum hér á landi. Þetta tekst alltaf einhvern veginn hjá okkur. Þetta hefur alltaf verið svona hjá Víkingum." — Hvernig fannst þér handknattleikurinn f íslands- mótinu? „Mér finnst handknattleik- urinn í mótinu góður, sérstak- lega ef tekið er tillit til þess hve margir leikmenn hafa fariö erlendis aö leika á síðustu árum. Mér finnst strákarnir sem tekið hafa við af þeim standa sig mjög vel. Það tekur alltaf ákveðinn tíma að byggja upp eftir að menn fara frá fé- lögum og þaö er mjög slæmt að þurfa að endurnýja eins ört og þurft hefur að undanförnu. Ég á ekki von á því aö okkur takist að halda í sterkustu strákana hér heima frekar en verið hefur að undanförnu og það er mjög slæmt. Það þarf að gera eitthvað í þessu þann- ig að handknattleikurinn hér heima verði betri," sagði Páll Björgvinsson. Morgunblaðið/Júlíus • íslandsmeistarar Vfkings. Aftari röð fró vinstri: Magnús Guðmundsson, formaður handknattleiksdeildar, Karl Þráinsson, Ámi indriðason, þjálfari, Steinar Birgisson, Siggeir Magnússon, Sigurður Ragnarsson, Páll Björgvinsson, Guðmundur Símonarson, liðsstjóri, Kristján Sveins- son. Fremri röð frá vinstri: Einar Jóhannesson, Bjarki Sigurðsson, Guðmundur Albertsson, Kristján Sigmundsson, Finnur Thorlasfus, Guð- mundur Guðmundsson, fyrirliði, og Hilmar Sigurgíslasorí. MofgunbMUVJúlius • Guðmundur Guðmundsson, fyrirliði Vfkirigs, fór á kostum f síðasta leik liðsins gegn KR-ingum á sunnudaginn. Guðmundur skoraði alls 10 mörk f lelknum og þar af átta f sfðari hálfleik. Hreint frábær endir á góðu íslandsmóti hjá honum. Nafni hans, Gudmundur Albertsson, átti einnig góðan dag er Víking- ar ðigrudu KR audveldlega meö tíu marka mun. Frábær árangur Vfkingur tryggði sér íslands- meistaratitllinn í handknatt- leik á sunnudaginn og var þetta 10. titill þeirra á nfu árum. Hér á eftir fer lístl yfir árangur Vfkinga sfðastliðin ár: 1978 Bikarmeistarar 1979 Bikarmeistarar 1980 íslandsmeistarar 1981 íslandsmeistarar 1982 (slandsmeistarar 1983 Islands- og bikarmeist- arar 1984 Bikarmeístarar 1985 Bikarmeistarar 1986 fslandsmeistarar Víkingur íslandsmeistari: Stórsigur í síðasta leiknum — Guðmundur Guðmundsson skoraði átta mörk íseinni hálfleik VÍKINGAR urðu á sunnudaginn íslandsmeistarar f handknattleik karla. Liðið sigraði KR-inga með tfu marka mun, 34:24, eftir að staðan hafði verið 15:11 f leikhléi. Þetta er fimmti íslandsmeistara- titillinn sem Vfkingar vinna í karlaflokki frá árinu 1980 og að auki hefur liðið fimm sinnum orðið bikarmeistari frá þvf 1978 — tfu stórtitlar á nfu árum. Frá- bær árangur hjá félaginu og geri aðrir betur. KR féll f aðra deild með þessu tapi og leika þar á næsta ári ásamt Þrótti. Leikurinn á sunnudaginn var ekki skemmtilegur, til þess voru yfirburðir Víkinga of miklir. Það var rétt á fyrstu mínútum leiksins sem Vesturbæingar héldu í við Víking, en síðan sigldi liðið fram úr og gaf KR aldrei tækifæri á að komast nálægt sér. Staðan þegar fyrri hálfleikur var hálfnaöur var 8:7 fyrir Víkinga og eftir það jókst munurinn sífellt. í leikhlói var staðan 15:11. I síðari hálfleik yfirspiluðu Vík- ingar lið KR hreinlega. Fyrirliði þeirra, Guðmundur Guðmunds- son, átti þá stórleik og skoraði alls átta mörk í síðari hálfleik. Nafni hans Albertsson átti einnig góðan leik, skoraði fjögur mörk t síðari hálfleik og þrjú í þeim fyrri. Leikurinn leystist á tímabili upp í algjöra vitleysu enda var aðeins um formsatriði aö ræða að Ijúka KR - Víkingur 22:32 honum. Víkingar skoruðu mest úr hraðaupphlaupum í leiknum og þegar það tókst ekki þá voru sóknir liðsins ekki langar og á tímabili líkt- ist leikurinn helst skotæfingu hjá Víkingum. Árni Harðarson markvörður KR átti góðan ieik í markinu. Hann varði alls 16 skot i leiknum og þar af tvö vítaköst. Sóknarieikur liðsins var ekki upp á marga fiska ef undanskildar eru fyrstu mínútur leiksins. Stefán Arnarson stjórnaði leiknum framan af og þá gekk þokkalega hjá þeim en Víkingar fóru siðan að hafa góðar gætur á honum og þá fór allt í vaskinn. Haukur Ottesen var drjúgur við að skora og Konráð Ólafsson er ungur hornamaður sem á eftir að verða góður. Hjá Víkingum voru þeir nafnar Guðmundur Guðmundsson og Albertsson góðir. Siggeir Magnús- son átti einnig ágætan leik og Bjarki Sigurösson lék vel þann tíma sem hann var inná. Þeir Páll Björg- vinsson og Steinar Birgisson eru alltaf traustir og svo varéinnig nú. Mörk KR: Haukur Ottesen 7, Konráð Ólafs- son 4, Stefán Amarsson 4/1, Haukur Geir- mundsson 4/2, Bjarni Ólafsson 2, Páll Bjöms- son 2, Páll Ólafsson 1. Mörk Vfkings: Guömundur Guömundsson 10, Guömundur Albertsson 7, Steinar Birgis- son 4, Siggeir Magnússon 4, Páll Björgvinsson 4, Bjarki Sigurösson 3, Ámi Indriðason 2. - sus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.