Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÍJAR1986 Aldarafmæli Nauteyrarkirkju Árið 1854, hinn 21. maí, voru gefin saman í hjónaband Guðrún Þórðardóttir, Þórðar bónda Magn- ússonar á Laugabóli í Nauteyrar- hreppi, og Jón nokkur Halldórsson. Hafði Jón þessi verið ráðinn smala- maður að Laugabóli árið áður og kom þangað frá Hörgshlíð í Mjóa- firði. Þennan 21. maídag er kominn prestur að Laugabóli og gengur Þórður bóndi þá til Guðrúnar dóttur sinnar og skipar henni að fara að búa sig því það ætti að fara að gifta þau Jón og hana. Þetta kemur nokkuð flatt upp á hina ungu heimasætu sem segin Gifta sig hvað, — honum Jóni smalamanni? Svo lýsir Guðrún þessi löngu sið- ar bónda sínum að þá er Jón Hall- dórsson hafi komið að Laugabóli hafi hann verið með aleigu sína á baki sér, sem hafí verið eitt lama- laust koffort. En það átti eftir að draga að sér, lamalausa koffortið hans Jóns á Laugabóti. Hann eignaðist sjö jarðir í Naut- eyrarhreppi, allar Vs úr fimm kirkjujörðum, þar að auki eina jörð í Strandasýslu og eina jörð í Snæ- fjallahreppi. En auk stórbúskapar Jóns á Laugabóli var hann einn hinna stærstu útgerðarmanna við ísaflarðardjúp á þeirri tíð. Jón gerði út frá Bolungarvík sexæring mikinn sem hann var um áraraðir formaður á sjálfur. Einnig fímm manna far og auk þess flóra róðrarbáta minni. Það varð því enginn smákall úr honum, smalamanninum, sem Þórð- ur bóndi á Laugabóli skipaði dóttur sinni að fara að búa sig til að ganga með í hið heilaga hjónband, þótt hvumsa yrði hún við. Ekki ætla ég að tíunda hér eða rekja afkomendur þessara merku hjóna, en hitt er víst að út frá þeim hafa vaxið kjamakvistir, svo sem annálaðir ráðdeildarmenn, og auður í umtalsverðum þáttum hefur gert þeirra garð frægan. En að þessum formála loknum skal svo að því efni komið sem er uppistaða þessa máls. Árið 1885 var þessum Jóni bónda á Laugabóli falin forsjá og framkvæmd nýrrar kirkjubyggingar á Nauteyri í Naut- eyrarhreppi. Kirkja þessarar sveitar var þá að falli komin, enda staðið um aldir á Kirkjubóli í Langadal og bændakirkja að gömlum sið. Kom þá bændum saman um að færa kirkjuna nær því að vera sem mest miðsvæðis á hreppnum svo Nauteyri varð þá fyrir valinu sem kirkjustaður. Var Jóni þessum sem fyrr segir falin forsjá og fram- kvæmd við smíði kirkjunnar. Má þar nefna að um sumarið kemur bóndinn á Kirkjubóli að máli við Jón og tjáir honum að nú vanti peninga til að borga kirkjusmiðnum. Var Jón bóndi á Laugabóli þá að túnaslætti. Labbar hann til konu sinnar og kveður svo um vera að hann þurfi að skreppa til ísjúQarðar eftir aurum fyrir smiðina. Á þeim árum var ekki hlaupið í sfma né bátsferðir reglulegar hér um Djúp svo sem nú til dags og því ekki önnur leið en leggja á dróg sína sem hann og gerir og þar með í snarhasti fer hann ríðandi út alla strönd. En er að Kaldalóni kemur stendur svo á sjó að flæðarhátt er, sem hann lætur þó ekki aftra for sinni, en svo yfir höfuð kemur hann rennblautur heim að Lónseyri, næsta bæ utan- vert við Lónið, að lánuð varð þar föt öll að fá hjá Engilbert bónda Kolbeinssyni, sem þar þá bjó. (Þessi Engilbert var afi minn, höf.). Ríður hann nú sem leið liggur út alla Snæfjallaströnd út að Gullhús á, ysta bænum á ströndinni, vekur þar upp mannskap og mannar bát um miðja nóttu til_ að ferja sig yfir I>júp- ið vestur til ísafjarðar. Vekur þar upp síðla nætur Þorvald lækni sparisjóðsstjóra, tjáir honum erindi sitt sem ekki stóð á úr að leysa. En með engu móti vildi hann hjá Þorvaldi góðgerðir þiggja þá hann honum kaffisopa bauð í morgunsár- ið en stökk með það sama í feiju þá er í fjöru beið og sömu leið til baka. Kom rétt við á Lónseyri til að skipta um föt sín sem nú voru vel þurr orðin og blátt strik innað Nauteyri að gjalda smiðunum laun- in sín. í annað skipti meðan á kirkju- byggingunni stendur fær Jón á Laugabóli boð um að viðbótarefni vanti til byggingarinnar. Gerir hann þá Kirkjubólsbónda boð að finna sig á tilteknum tíma niður á Am- gerðareyri, sem er næsti bær fyrir utan Laugaból. Ætlar að fá hann til að róa með sér til ísafjarðar. Setur Jón bóndi bát niður og kveður vinnukonu eina með sér að róa út að Amgerðareyri. Er þangað kemur er enginn kominn. Hefur enga eirð þar að bíða og leggur því af stað með vinnukonu sína róandi með sér á annað borðið alla leið til ísafjarð- ar. Ekki stoppar hann þar nema meðan hleður farkostinn af því sem til kirkjunnar vantaði og síðan sem leið liggur róandi með vinnukonu sína á annað borðið, og ekki lagðar upp árar fyrr en komið er að Naut- eyri með efnið fyrir smiðina að vinna úr. Má af þessu marka hversu ódrepandi dug og áhuga þessi maður hefur haft til að bera. Nú í sumar er aldarafmæii kirlqu þessarar. Hún er því komin til ára sinna og mikið farin að láta á sjá. Kom þá til álita hvort heldur ætti að byggja nýja kirkju eða endur- byggja þessa í því formi sem upp- hafleg gerð hennar segir til um. Kirkjan er reisulegt og fallegt hús og varð sú niðurstaða ráðandi að endurbyggja kirkjuna í sama formi. Nú er það svo að annar Jón býr á Laugabóli, Guðjónsson, mikill at- hafna- og dugnaðarmaður. Er hann formaður sóknarnefndar Nauteyr- arkirkjusóknar og honum falin sú mikla forsjá að sjá um endurbygg- ingu kirkjunnar á þessum tímamót- um hennar. Þetta er mikið og kostnaðarsamt verk og jafnvel hagstæðara að byggja nýja kirkju, en það er gömul saga sem alltaf verður þó ný, að það er eftirsjá af gömul vin, veglegu Lokun bifreiða- verkstæðis í Stykkishólmi Stykkishólmi, 8. janúar. NÚ UM þessi áramót var bif- reiðaverkstæðinu Nýja Bílaver- inu hf. hér í Stykkishólmi lokað og er þetta mjög bagalegt að hafa ekki slíka þjónustu i jafn- fjölmcnnu kauptúni. Um orsakir til þessa er ekki hægt að segja. Þær eru efalaust fleiri en ein. Hitt er vitað að rekstur- inn hefir verið erfiður og kanske aðalatriðið að ekki hefir verið unnt að fá hingað góða bifvélavirkja. Fyrirtækið hefir verið auglýst og eins húsakynnin sér og ekki hafa enn borist nein tilboð. Menn hér eru uggandi um þessa þróun og vonandi fæst einhver góð- ur maður til að koma hingað og starfrækja bifreiðaverkstæði. Það hlýtur að vera nægilegur markaður þegar maður lítur á alla þessa bíla- mergð sem hér er í bænum. Við, hjá tilteknu þriggja stafa fyrirtæki, leyfum okkur að nefna fjölhæfni og skilvirkni sem tvær af meginástæðum fyr- ir forystu okkar á sviði tölvu- búnaðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.