Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR1986 23 Gijótkast viðkomu Davids Rockefeller Til heiftúðugra götubardaga kom í Buenos Aires í Argentínu nú í vikunni, þegar bandarfski milljónamæringurinn David Rockefeller kom þangað i heimsókn. Um 5.000 manns söfnuðust saman og hófu gijótkast til að mótmæla komu Rockefellers og varð lögreglan að dreifa mannfjöldanum með táragasi, háþrýstivatni og gúmmikúlum. Fólkið bar spjöld með áletrunum, þar sem m.a. stóð, að Rockefeller hefði stutt herforingjabyitinguna í Arg- entínu árið 1966. Myndin er tekin fyrir framan ráðstefnu- hús í miðborginni, þar sem Rockefeller stjómaði fundi. Spánn og ísrael: Stjórnmála- samband í fyrsta sinn Haag, Hoilandi, 17. janúar. AP. SPÁNVERJAR og ísraelar tóku í dag upp stjóramálasamband í fyrsta sinn. Gerðist það við hátíð- lega athöfn í Haag í Hollandi en í yfirlýsingu Spánveija var það tekið fram, að eftir sem áður mótmæltu þeir hernámi ísraeia og innlimun arabísks lands. Shimon Peres, forsætisráðherra ísraels, og Felipe Gonzalez, forsæt- isráðherra Spánar, munu koma til Haag á sunnudag og setja nöfn sín undir samninginn, sem unnið hefur verið að í marga mánuði í löndunum báðum og innan Evrópubandalags- ins. Ríkisstjómir í arabaríkjunum hafa einnig biandast inn í þetta mál á bak við tjöldin og er hermt, að þær hafi reynt að koma í veg fyrir stjómmálasambandið. í yfirlýsingu Spánveija sagði, að þeir mótmæltu enn sem fyrr her- námi og innlimun arabísks lands og legðu áherslu á gamla vináttu við araba, sem tengdir væm Spán- verjum menningarlegum og sögu- legum böndum. Alnæmis- til- fellum fjölg- aðium 600 í síð- asta mánuði Genf, 16. janúar. AP. ALNÆMISTILFELLUM, sem til- kynnt eru til opinberra aðila í heiminum, fjölgaði um meira en 600 i síðasta mánuði og eru þau nú orðin yfir 20.000 í öllum heim- inum. Kemur þetta fram i tölum, sem Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin (WHO) hefur birt. Alnæmistilfelli eru hvergi fleiri en í Bandaríkjunum, en þar voru þau 17.051 á föstudaginn var og því um 85% allra þeirra 20.088 til- fella, sem tilkynnt hefur verið um í alls 75 löndum. Yfir af nýju tilfell- unum, sem tilkynnt hefur verið um, síðan síðasta könnun fór fram, 13. desember sl., eru í Bandaríkjunum. Það var Jonathan Mann, sér- fræðingur í bandaríska heilbrigðis- ráðuneytinu, sem skýrði frá þessum nýju tölum á fundi með fréttamönn- um í dag. Honum hefur verið falið að samræma á vegum WHO heil- brigðisvamir gegn alnæmisveir- unni. Þar sem vegirnir enda, byrjar goðsögnin um Land Cruiser. Þessi —i vinsæli torfærubíll hefur löngu sannað að hann stenst öðrum fremur ^ íslenskar aðstæður. í aflmikilli Turbó dieselvélinni sameinar nýjasta tækni mikinn kraft, — 'litla eyðslu og ótrúlegt öryggi. Rúmgóð nútíma innrétting og sterkur undirvagn uppfylla ströngustu jr\ kröfur um þægindi og öryggi. Þú gerir góð kaup í Toyota Land Cruiser — það sannar reynslan. Vinsamlegast sendið frekari upplýsingar TOYOTAx, NAFN_______________________________________________ GATA________________________________________________ STAÐUR_____________________________________________ Sendist til: P. Samúelsson & Co. hf. Nýbýlavegi 8, 200 Kópavogi. essemm sIa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.