Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR 1986 29 Fréttir úr borgarstjórn Tekjur o g gjöld Reykjavíkur 1986 Yfirlit um gjaldaliði borgarsjóðs Fjárhiætl. Útkomuspá Áætlun 1985 *) 1985 1986 % 01 Stjóm borgarinnar ...... 142.954.987 156.320.181 200.338.333 28.2 02 Varsla borgarlandsins.... 735.853 815.612 1.014.895 24.4 03 Bmnamál ..................... 16.864.829 19.177.609 22.859.089 19.2 04 Fræðslumál ................. 351.593.919 364.110.033 478.459.324 31.4 05 Listir, íþróttir, útivera . 156.508.575 177.498.264 246.388.248 38.8 06 Heilbr.-oghreinl.mál ........ 268.085.491 255.076.512 331.051.563 30.4 07 Félagsmál ................... 774.357.382 805.186.869 1.136.060.072 41.1 08 Fasteignir ................... 25.903.712 26.611.123 32.901.700 23.6 09 Önnur gjöld .................. 80.350.000 82.500.000 137.000.000 66.1 1.817.748 1.887.296.203 2.587.738.756 37.1 10 Gatna-ogholræsadeild .. 22.480.000 25.200.000 26.440.000 4.9 13 Viðhald gatna .............. 90.000.000 100.000.000 110.000.000 10.0 14 Viðhald holræsa ............. 8.000.000 12.000.000 13.000.000 8.3 14 Fast.kaupíþágugatnag.. 10.000.000 10.000.000 13.000.000 30.0 15 Umferðarmál ................ 90.485.000 93.750.000 122.055.000 30.2 2.038.319.748 2.128.246.203 2.872.233.756 35.0 11 Nýbygging gatna ) ... ) ... 392.400.000 359.150.000 348.400.000 - Nýbyggingholræsa ) ... Rekstrargjöld alls ....... 2.430.719.748 2.487.396.203 3.220.633.756 29.5 Færtáeignabreytingar ... 699.022.151 634.454.696 998.522.571 57.4 3.129.741.899 3.121.850.899 4.219.490.795 35.2 x) Að aukafjárveitingum meðtöldum, alls kr. 15.450.000. Þessi mynd var tekin af borgarstjórn Reykjavíkur á tíunda tímanum í gærmorgun, þegar greidd voru atkvæði um fjárhagsáætlun borgarinnar fyrir 1986. Þá höfðu borgarfulltrúar verið að störfum í 17 klukkustundir. Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 1986: •• Oruggur framkvæmdavilji og traust fjárhagsstaða * — sagði borgarstjóri en vinstri menn telja áætlunina líkjast kosningaplaggi Yfirlit yfir tekjuliði borgarsjóðs Áætlun Útkomuspá Áætlun Hlutf.- 1985 1985 1986 hækkun FJÁRHAGSÁÆTLUN Reykjavíkurborgar var til síðari umræðu og afgreiðslu á fundi borgarstjóraar, sem hófst klukkan 17 á fimmtudag og lauk 18 klukkustundum siðar eða á 11. tímanum á föstudagsmorg- un. Meirihluti sjálfstæðismanna lagði fram tillögu um áætlunina og var hún samþykkt eftir að greidd höfðu verið atkvæði um 155 tillög- ur til breytinga frá minnihliitaflokkiiniim fjórum. Heildaraiðurstöðu- tölur hinnar nýju áætlunar eru birtar hér á siðunni. Hér verður skýrt frá efnisatriðum í framsöguræðum oddvita flokkanna, sem eiga fulltrúa í borgarstjórn. 100 Útsvarl) .............. 1.375.000.000 200 Fasteignagjöld 2) ........... 466.000.000 300 Byggingarleyfi 3).............. 5.050.000 303 Kvöldsöluleyfi 3) ............. 2.950.000 304 Torgsöluleyfi 3) ................ 250.000 402 Lóðarleiga-íbh. 4) ............ 9.300.000 403 Lóðarleiga-iónl.4) ........... 27.200.000 405 Leigaafeignum4) ....... 4.300.000 406 Vaxtatekjur 4) ............... 19.200.000 500 Arðuraf fyrirt. 5) ........... 62.331.899 600 Framl. úrJöfnsj. 6).......... 265.000.000 700 Aðstöðugjöld 7) ............. 548.000.000 800 Bensínfé 8) .................. 29.000.000 801 Gatnag.gj.8) ..:............. 221.000.000 907 Dráttarvextir 9) ............. 92.000.000 902 Óvissartekjur .................... 10.000 904 Hl.bsj.afskipul.gj.10).. 3.150.000 1.410.000.000 1.950.000.000 38.3 468.000.000 645.000.000 37.8 5.200.000 6.500.000 25.0 3.200.00 4.160.000 30.0 250.000 325.000 30.0 10.500.000 13.550.000 29.0 28.050.000 36.200.000 29.0 4.000.000 5.400.000 35.0 20.000.000 25.000.000 25.0 62.331.899 89.695.795 43.9 242.249.000 295.000.000 21.8 590.000.000 814.000.000 38.0 35.000.000 42.000.000 20.0 100.000.000 106.650.000 6.7 140.000.000 182.000.000 30.0 70.000 10.000 - 3.000.000 4.000.000 33.3 Sjálfstæðisflokkur Davíð Oddsson (S), borgarstjóri, vísaði meðal annars til framsögu- ræðu sinnar fyrir Dárhagsáætlun- inni við fyrstu umræðu hennar og minnti á gagnrýni sína vegna skerð- ingar á framlagi ríkisins úr Jöfnun- arsjóði sveitarfélaga. „Ekki veit ég hvort sú harmsaga kann að hafa runnið háttvirtum alþingismönnum til ri§a,“ sagði borgarstjóri, „en svonefndu þaki á framlaginu var lyft sem svaraði til þess, að unnt er að reikna með 25 millj. kr. í viðbót við þá tölu, sem í frum- varpinu stendur. Þar á móti er gert ráð fyrir því, að áætlaðar tekjur af útsvörum lækki um 25 millj. kr.“ Davíð sagði, að fjárhagsáætlunin bæri öruggan framkvæmdavilja með sér og trausta framkvæmda- getu. Haldið væri uppi öflugu átaki á fjölmörgum sviðum, hvort sem um væri að ræða málefni aidraðra ellegar uppbyggingu dagvistar- stofriana, en til þessara tveggja málaflokka hefði á sfðasta ári og yrði á þessu varið meira fé á föstu verðlagi en áður. Rekstrarkostnað- ur borgarinnar hækkaði aðeins um rúm 2% á meðan verðbólgan æddi áfram. Borgin hefði látið af því að taka erlend lán til að fleyta sér yfír erfiðasta peningahjalla ársins. Alþýðubandalag Sigurjón Pétursson (Abl.) sagði, að borgarstjóra vantaði ekki fögur lýsingarorð til þess að lýsa stefnu meirihlutans, hins vegar væri fátt um fína drætti þegar taka ætti dæmi um þessa ágætu stefnu. Hann sagði að ef rifjuð væru upp verk meirihlutans á þessu kjörtíma- bili þá kæmi allt annað í ljós. Sjálf- stæðisflokkurinn hefði bruðlað með peninga skattborgaranna. Ölfus- vatn hefði verið keypt af þekktri íhaldsQölskyldu fyrir um 60 milljón- ir án þess að sjáanlegt væri, að borgin hefði einhver not af þeirri Dárfestingu á næstunni, BÚR hafi yfírtekið skuldir ísbjamarins með þeim afleiðingum, sem nú væru að koma í ljós og fleiri dæmi má taka, sagði Siguijón. Því næst tók Sigur- jón nokkur dæmi um aðhald meiri- hlutans í Dármálum borgarinnar og sagði hann m.a. að mörg dæmi mætti taka þar sem eyðsla hefði farið langt fram úr öllum áætlun- um. Tók hann sem dæmi hreinsun- ardeild borgarinnar og sagði, að á Dárhagsáætlun fyrir árið 1985 hefðu útgjaldaliðir verið áætlaðir upp á 2 milljónir og 160 þúsund krónur, en útkoman hefði hins vegar orðið allt önnur eða 5 milljón- ir og 650 þúsund krónur og nú hljóðaði áætlunin fyrir þessa deild aðeins upp á 3 milljónir og 300 þúsund krónur. Sagði Siguijón að dæmi sem þessi sýndu það betur en nokkuð annað að aðhald í borg- arrekstrinum væri sama sem ekkert og að sú fjárhagsáætlun sem meiri- hlutinn legði nú fram væri ekkert annað en sýndarplagg. Framsóknarflokkur Gerður Steinþórsdóttir (F) hóf ræðu sína á því að þakka Siguijóni Péturssyni fyrir greinargóða ræðu og sagði, að hún gæti tekið undir flest orð hans. Síðan sagði hún, að margt benti til þess, að nú væru góðærin að baki, sem hefðu stafað af sflækkandi verðbólgu og því að launum hefði verið haldið niðri. Sagði hún, að nú syrti í álinn hjá borgarsjóði og því væri allt tal um að staða borgarsjóðs væri góð út í hött. Hún sagði ennfremur, að fjár- hagsáætlunin væri ekkert nema kosningaplagg og borgarstjóri sæi jafnvel ástæðu til þess að afsaka, að kaupa ætti leiguíbúðir, en það gengi þvert á stefnu flokksins. Síð- an ræddi Gerður um helstu breyt- ingartillögur FVamsóknarflokksins. Kvennaframboð Guðrún Jónsdóttir (Kfrn.) sagði, að hún hefði það á tilfinningunni að þessu frumvarpi væri ekki ætlað meira líf en svo, að það rétt skrimti yflr kosningar. Sagði hún, að helstu einkenni frumvarpsins væru skuldasöfnun, aukin skattbyrði, bruðl og samdráttur í bygginga- framkvæmdum. Sagði Guðrún, að meirihlutinn hefði stofnað til mikilla skulda og ástæðan væri rangar ákvarðanir í gerð byggingalóða, en meirihlutinn stæði nú uppi með óarðbæran lóðabanka upp á 431 sérbýlishúsalóð. Greiðslubyrði í ár vegna skulda og yfírdráttar væri 240 milljónir. Guðrún sagði enn- fremur að þjónustugjöld hefðu hækkað á árinu um 250 til 480% á sama tíma og engar verðbætur hefðu komið á laun. Sem dæmi um bruðl í borgarrekstrinum tók hún þær ákvarðanir, sem teknar hefðu verið í tilefni 200 ára afmælis borg- arinnar. Sagði Guðrún, að tugmillj- ónum króna yrði eytt á afmælisár- inu í tvær sýningar og önnur hátfða- höld, en varanleg verðmæti yrðu hins vegar hverfandi. Guðrún sagði, að meginmarkmið í borgarrekstrin- um ætti að vera í þágu heildarinnar, stuðla ætti að jöfnuði, en þessu markmiði hefði núverandi meirihluti brugðist. Alþýðuflokkur Sigurður E. Guðmundsson (A) sagði, að borgarstjóri hefði sagt 19. desember sl., að fjárhagsstaða borgarsjóðs yrði þröng á nýju ári, þrátt fyrir mjög góðar tekjur. Sagði hann, að þama gæti meirihlutinn fyrst og fremst kennt sjálfum sér um vegna mistaka í ákvarðanatöku. Síðan sagði Sigurður, að afleiðingar þessarar flárhagsklemmu kæmu fyrst og fremst niður á þeim sem minnst mega sín. Sagði hann að ástæðan fyrir slæmri stöðu borgar- sjóðs væru m.a. mistök í stjómun Borgarspítalans og offjárfesting í lóðakaupum. 3.129.741.899 3.121.850.899 4219.490.795 35.2 1. Útsvar. Miðað er við 10.8% útsvar og 6% vanhöld. reiknað er með um 37.5% hækkun útsvarsskyldra brúttótekna framteljenda milli áranna 1984 og 1985 og um 1.5% fjölgun gjaldenda. Álagning áætlast 2.075.000 ogvanhaldafrádráttur 125.000.000. 2. Fasteignagjöld. Miðað er við 28 og 33% framreikning á mati fas- teigna,e ftir að fram er komin 1% aukning, vegna endurmats og fjölgun- ar umfram afskriftir. Álagning á íbúðarhúsnæði 0.421%, álagning á annaðhúsnæði 1.25%. Afsláttur til lífeyrisþega 5% af sköttum af íbúðarhúsnæði. 3. Ýmsir skattar. Miðað er við sambærilega hækkun og á öðmm tekjulið- um. 4. Arður af eignum. hækkun á lóðarleigu er reiknuð á sama hátt og á fasteignagjöldum, sbr. lið 2. 5. Arður af fyrirtælgum. 1% afendurmetinni eign 31. des. 1984. 6. Jöfnunarsjóður. Óvissa ríkir um hlut sveitarfélaga í söluskatti og aðflutningsgjöldum. 7. Aðstöðugjald. Miðað er við 38% hækkun frá útkomuspá 1985, eftir 5% vanhaldafrádrátt. 8. Gatnagerðargjöld. Miðað er við áætlun um úthlutun byggingarlóða. Bensínfé skv. upplýsingum vegamálaskrifstofunnar. 9. Dráttarvextir. meirihluti dráttarvaxta kemur af eftirstöðvum útsvars og aðstöðugjalds. 10. Skipulagsgjald. Hluti borgarsjóðs er helmingur af skipulagsgjaldi sem innheimt er í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.