Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JANÚAR 1986 35 Minning: Guðjón Hermanns- son, Skuggahlíð Það er svo margt að minnast á frámorgniæskuljósum, er vorið hló við barnsins brá og bjó það skarti af rósum. Við ættum geta eina nátt vorn anda látið dreyma, um dalinn fagra í austur átt, þaráttimammaheima. EinarE. Sæmundsen Löngum stundum hefur hugur minn leitað úr nokkurri íjarlægð heim í dalinn, þar sem hún mamma átti heima, heim í dal ljúfra og góðra minninga bemsku- og æsku- ára. Þær minningar eru bundnar bæði við menn og staði. Minningun- um verða ekki gerð nein skil hér svo heitið geti, en hluti þeirra er bundinn við mikinn sóma mann, Guðjón Hermannsson og bæinn hans, sem heitir því nafni sem lætur heldur illa í eyrum margra sem ekki þekkja til en það er Skugga- hlíð. Guðjón hefur nú naustað skip sitt og mig langar til að senda honum og ástvinum hans nokkur kveðjuorð við þau vegamót. Hér í Qarlægð hefí ég ekki að- stöðu til að rekja æviferil hans, en til þess að menn viti við hvem ég á vil ég geta þess að Guðjón í Skuggahlíð fæddist 15. september árið 1893. Foreldrar hans vom sæmdar- og merkishjónin Hermann Davíðsson og Valgerður Torfadóttir Jónssonar í Skuggahlíð í NorðQarð- arhreppi. Guðjón ólst upp heima í Skuggahlíð og við þann bæ er lífs- og starfssaga hans bundin, þó hins vegar hlæðust á hann ýms störf utan heimilis í annarra þágu. Þann 13. nóvember árið 1930 kvæntist hann frændkonu sinni, Valgerði Þorleifsdóttur frá Hofí í Norðfirði, og lifir hún mann sinn ásamt þrem- ur af fímm bömum þeirra hjóna. Þau eru öll búsett á Norðfirði. Þegar ég nú minnist Guðjóns í Skuggahlíð, sem ég stundum kall- aði fóstra, þá kemur margt upp í hugann. Ég minnist þar mikils höfðingja og öðlingsmanns, manns sem var mikill drengskaparmaður, ömggur og staðfastur í hvívetna, fastur fyrir er því var að skipta, en þó ljúfmenni og kurteis í allri framgöngu. Ég held að hann hafí haft hæfíleika og getu til að gegna mörgum störfum og myndi hafa famast vel í hveiju því starfí sem honum hefði verið falið. Ég veit ekki hvað skapaði honum starf og stöðu, en tel þó víst að það hafí á vissan hátt verið köllun. Guðjón bjó vissulega yfír miklu andlegu og líkamlegu atgervi. Hann var skapmaður nokkur en prúð- mennska var aðall hans. Þá var hann mjög vel að manni og ég held að vel mætti taka þar sterkara til orða. Verklagnin og verkhyggnin var fi-ábær og kunni hann vel til allra verka. Það var oft hrein unun að sjá hann Guðjón vinna. Hann bar sig svo fallega að. Hreyfíngam- ar vom markvissar og hann var blessunarlega laus við allt fímbul- famb. Mér er sérstaklega minnis- stætt að sjá hann standa við slátt. Hreyfingamar vom svo fallegar og ljánum rennt áreynslulaust, að því er virtist, og skárinn var langur og Ijáfarið breitt og ég minnist þess ekki að ég sæi hann tví- eða þrí- höggva í sama far, sem var þó nokkuð algengt. Hann var hreinn snillingur í að dengja ljái eins og þá var gert. Þeir kilpuðu ekki og bitu vel. Margir bændur úr sveitinni komu til hans með ljái sína til að fá hann til að klappa þá. Og svona var þetta í öllu sem hann gjörði. Það var gaman að binda með hon- um og ekki þurfti maður að kúra lengi hálf boginn undir bagga er hann lét upp. Einhveijum þykir nú máski æði mikið sagt, en ég tel að í engu sé of sagt. En ég get þó ekki skilist við þessi skrif án þess að geta um eitt starf sem Guðjón heitinn gegndi um æði mörg ár, en það var starf landpóstsins á leiðinni milli Seyðis- flarðar og Eskifjarðar. Póstleiðin liggur yfír há og brött fjöll, sem vom erfíð að sumarlagi og beiniínis hættuleg að vetri til. Þessu starfí gegndi Guðjón af þeirri trú- mennsku, sem honum var svo eðlis- læg. Það var gaman að sjá þennan vörpulega mann koma kjagandi niður fy'allshlíðina frá Drangsskarði berandi þunga bagga á bakinu. Og það var mikil tilbreyting fyrir litla strákpjakka að fara til móts við hann upp á Kúahjalla og heyra hann blása í póstlúðurinn og fá svo kannski að bera lúðurinn spotta- kom, eða fá að taka broddstafinn langa og þunga í hönd sér, en það var nú varla á færi nema þeirra sem stærri vom. Og við þennan ianga staf með beinhnúðnum og langa broddinum vom bundin fjallajámin með úómm beittum broddum hvort. Hér verður nú senn að nema staðar en minningamar sækja fast á. Ég stend í mikiili þakkarskuld við Guðjón í Skuggahlíð, en ég dvaldist 2—3 sumur á bæ hans og með honum. Hann var mér undur góður og kenndi mér margt og þá ekki síst að vinna. Ég kveð hann nú með miklu þakklæti og óska honum og öllum ástvinum hans allrar blessunar. Hinsta för hans er hafín og ég veit að hinum trausta ferðamanni mun ekki hlekkjast á í þeirri för fremur en áður. Ég bið góðan engil Guðs að leiða hann og okkur öll, þegar þar að kemur. Svo bið ég að heilsa að Klappar- hylnum, út í Völlumar, upp á Hnjúkana, í Sneiðingamar og Nátt- hagann. Eiginkonu hans og ástvin- um votta ég innilega samúð mína. Stefán Snævarr ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningar- greinar verða að berast blaðinu með góðum fyrir- vara. Þannig verður grein, sem birtast á i miðviku- dagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marg- gefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasiðum Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Megin- regla er að minningar- greinar birtist undir fullu höfundarnafni. Jarðarfarar- skreytingar Kistuskreytingar, krans- ar, krossar. Græna höndin Gróörarstöð viö Hagkaup, síml 82895. t Eiginmaöur minn, GUÐMUIMDUR BLÖNDAL, Boðagranda 7, sem lést 12. janúar, veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 20. janúar kl. 10.30. Rósa Gísladóttir Blöndal. Eiginmaöur minn. t RÓBERT F. HARVEY, lést að heimili okkar á Flórida 15. janúar. Inger Fredriksen Harvey. t Við þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og veittu okkur aðstoö og stuöning við fráfall sonar míns og föður okkar, HRAFNS MARINÓSSONAR lögregluvarðstjóra. Arndís Ásgeirs, Áml Hrafnsson, Aðalbjörg Hrafnsdóttir, Kristínn Hrafnsson, Arndfs Hrafnsdóttir. t Útför SIGRfÐAR HJÁRTARDÓTTUR, áöur hjúkrunarkonu á Kleppsspftala, sem andaðist 10. þessa mánaöar, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 20. janúar kl. 3 eftir hádegi. Aðstandendur hinnar látnu. t Sendum öllum fjœr og nær alúöarþakkir fyrir samúð og vináttu við andlát og útför dóttur minnar og systur okkar, ÖNNU B. HAFÞÓRSDÓTTUR. Hafþór Guðmundsson, Kristfn Hafþórsdóttir, Sigurður Hafþórsson. t Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og vinarþel við andlát og útför GUÐFINNU EINARSDÓTTUR frá Bóndhól. Sérstakar þakkir færum viö starfsfólki A-deildar Sjúkrahúss Akra- ness fyrir frábæra hjúkrun í veikindum hennar. Einnig þökkum við starfsfólki á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi fyrir umönnun á liönum árum. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auösýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐNÝJAR GUÐMUNDSDÓTTUR frá Minna-Núpi, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir skulu færðar læknum, hjúkrunarkonum og öðru starfsfólki á Sólvangi í Hafnarfiröi fyrir þá góöu umönnun sem henni var veitt. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför móður okkar, STEINUNNAR Þ. GUÐMUNDSDÓTTUR, rithöfundar, Arahólum 2. Helgi Guðjónsson, Valsteinn Guðjónsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu viö andlát og útför föður míns, tengdaföður og afa, BJARNHÉÐINS ÞORSTEINSSONAR, Hólavangi 26, Hellu. Svavar Bjarnhóðinsson, Jóhanna Jensen og barnabörn. t Móðir okkar, ODDNÝ PETRÍNA EIRÍKSDÓTTIR, verður jarðsungin mánudaginn 20. janúar frá Fossvogskirkju kl. 13.30. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Kristniboðssambandið. Björg M. Jónasdóttir, Eiríkur Jónasson, Ásta D. Jónasdóttir, Ólafur B. Jónasson, Stefán Jónasson, tengdabörn og barnabörn. Legsteinar I gramt - - marmari Opið alla daga, einnig kvöld ó.f Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, og helgar. símar 620809 og 72818. Kransar, krossar og kistuskreytingar. Sendum um allt land. Flóra, Langholtsvegi 89. Sími 34111.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.