Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 18.01.1986, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR18. JANÚAR1986 Ragnar Guðmundsson stóð sig val f gær á Golden Cup. Kem alveg af fjöllum — sagði Sigurður Gunnarsson „ÉG HEF aldrei heyrt þetta áður, aldrei, og ég skil ekki hvaðan slfk- ur orðrómur kemur. Ég kem alveg af fjöllum f þessu máli,“ sagði Sigurður Gunnarsson handknatt- leiksmaður í samtali við Morgun- blaðið f gœr er hann var spurð’ur hvort það vœri rétt að hann ætl- aði ekki að gefa kost á sór f fs- lenska landsliðið f heimsmeist- arakeppnina. „Það er alltaf gaman að heyra Ragnar varð sjöundi Frá Karil Blöndal, blaðamannl MorgunblaAalna I Straabourg (Frakklandi. GOLDEN Cup-sundmótið f Stras- bourg hófst f gær á þvf að keppt var f 100 metra flugsundi og 1000 metra skriðsundi. í 1000 metra skriðsundi karla varð Ragnar Guðmundsson f sjöunda sæti. Ragnar synti f öðrum riðli og vann hann auðveldlega. „Ég stefndi að því að synda á 10.50 til 11.00 mínútum en ég synti á 10:58.53 mínútum en ég hugsa að ég hefði synt betur ef ég hefði hlotið meiri keppni," sagði Ragnar eftir sundið í gær. Fyrstu þrjú sætin í 1000 metra skriðsundi karla skipuðu: Steffsn Um, V-Þýakalandl, 10:19.61. Bruno Dloderichs, Frakklendl, 10:31.30 Anre) Burea, Tékkóslóvaldu, 10:38.97 í 1000 metra skriðsundi kvenna kepptu Þórunn Guðmundsdóttir og Ingibjörg Arnarsdóttir, sem er aðeins 13 ára. Ingibjörg varð önnur í sínum riðli, synti á 12:30.72, og varð í 16. sæti. Þórunn gerði einum betur og hafnaði í 15. sæti, synti á 12:27.29. Þessar urðu efstar í 1000 metra skriðsundi kvenna: Mlng Van, Kfna, 11:01.09 Grlt Rlchter, A-Þýakalandl, 11:07.42 Nadja Bergnecht, A-Þýakalandl, 11:16.03 Einn íslendingur, Magnús M. Ólafsson, tók þátt í 100 metra flugsundi karla. Hann synti á 1:01.98 mínútu og varö númer 24 í undanrásunum. Bryndís og Hugrún Ólafsdætur og Anna Gunnarsdóttir tóku þátt í 100 metra flugsundi kvenna fyrir íslands hönd. Bryndís lenti í 24. sæti, synti á 1:11.00, Hugrún varð í 30. sæti á 1:11.54 og Anna í því31.á 1:11.55. Urslit urðu: Jlan Zheng, Kfna, 0:66.76 Neil Cochren, Skotlandl, 0:66.77 Theo Phlle David, Sviaa, 0:66.99 Konur Jinlang U, Klna, 1:02.38 Catherine Plewlnakl, 1:02.84 Anne Marie Verstapten, Hollandl, 1:02.84 í dag keppir Eðvarð Þór Eð- varðsson í 200 metra baksundi og 100 metra skriðsundi. í 200 m baksundi kvenna keppa Þórunn Aðalfundur knattspyrnudeildar Aðalfundur knattspyrnudeildar Fram verður haldinn í Fram-heimilinu, sunnu- daginn 19. janúar kl. 20.00. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar. Knattspyrnudeild Fram. Júdó- osf karate- búnini Póstsendum smmwmsm Tngolfs OSKARSSONAR Á HORNIKLAPPARSTÍGS 06 GREWSGÖTU S:11783 Guðmundsdóttir og Hugrún Ólafs- dóttir. Arnþór Ragnarsson og Ragnar Guðmundsson keppa í 100 metra skriðsundi og þá keppa þau Ingibjörg Arnarsdóttir, Bryndís Ól- afsdóttir, Anna Gunnarsdóttir og Magnús Ólafsson í 200 metra flug- sundi. eitthvað nýtt en mér hefur ekki einu sinni flogið í hug að taka ekki þátt í heimsmeistarakeppninni. Þetta er ef til vill sprottið af því að við Einar komumst ekki á Baltic Cup í Danmörku, annars veit ég það ekki. Það var mikið reynt til að fá okkur lausa í þetta mót en það var algjörlega útilokað að við kæm- umst. Viö lékum á miðvikudaginn var og leikum síðan aftur á sunnu- daginn (á morgun), síðan þann 26. og 29. janúar og loks 2. febrúar." —Komist þið þá ekki á af- mælismótið hór í lok janúar? „Það er nú ekki alveg útséð með það enn. Það er verið að reyna að fá leiknum þann 2. febrúar frestað. Ef það tekst ekki verðum við að grípa til einhverra annarra ráða. Ef okkur gengur vel í þeim leikjum sem við eigum nú fyrir höndum og verðum búnir að tryggja okkur upp í milliriðlana í úrslitakeppninni þá sleppum við bara þessum leikj- um til að komast heim í lokaundir- Bogdan Kowalczyk: Mín mistök að nota Atla, Alfreð og Pál Frá Val Jónatanssyni, blaöamanni Morgunblaöalna í Danmörku. BOGDAN Kowalczyk landsliðs- þjálfari lýsti því yfir aftir leík ís- lands og Sovótríkjanna aö þaö heföu veriö mistök hjá sór aö láta þá Pál Ólafsson, Atla Hilmarsson og Alfreð Gíslason leika. „Strákarnir komu ekki til móts við liðið fyrr en klukkustund fyrir leikinn og þeir voru þreyttir eftir íþróttir helgarinnar MIKIÐ verður um aö vera í íþrótt- um um helgina. Landsleikir í handknattleik ytra, sundmót í Frakklandi og hér heima verður innanhússknattspyrna, körfu- knattleikur, handknattleikur og júdó svo eitthvað sé nefnt. íslandsmótið í innanhússknatt- spyrnu, 2. og 3. deild, verður hald- ið í Laugardalshöllinni í dag og á morgun. í dag verður leikið i 2. deild en á morgun í þeirri þriðju. Keppni hefst báða dagana klukkan 11 árdegis. Það eru 32 lið sem þátt taka í þessum tveimur deildum og verður því mikið sparkað í Höllinni um helgina. Handknattleiksleikjum hefur verið breytt vegna þessa móts og í stað þess að leika í Höllinni í dag verða leikir færðir í Seljaskóla á sunnudag. Keppni hefst þar klukk- an 13 en klukkan 15.30 leika Ár- mann og Grótta í 2. deild karla og klukkan 16.45 leika Valur og Fram í 1. deild kvenna. í Vestmannaeyj- um leika Þór og Afturelding klukk- an 13.30 í dag en á morgun leika HK og ÍR klukkan 14 í Digranesi og Haukar mæta Breiðablik í Hafn- arfirði. FH og Haukar leika í 1. deild kvenna klukkan 14 í dag en stúlk- urnar ætluðu fyrst að leika á morgun en hafa nú breytt því. Stjarnan og Víkingur leika í Digra- nesi klukkan 15.15. Körfuknattleikurinn verður á fullu um helgina. ÍR og KR leika í Seljaskóla klukkan 14 í dag og strax á eftir leika ÍR og ÍA í kvenna- flokki. Á morgun leika síðan KR og ÍS í kvennaflokki klukkan 15.30 í Hagaskóla og um kvöldlð klukkan 20 leika Valur og Njarðvíkingar í Seljaskóla. Fyrri hluti afmælismóts júdó- sambandsins verður í íþróttahúsi Kennaraháskóla íslands og hefst klukkan 14ídag. erfitt feröalag. Þeir komust aldrei ítakt við leikinn," sagði Bogdan. Guðjón fer ekki GUÐJÓN Þórðarson knattspyrnu- maður frá Akranesi mun akki fara til Noregs eins og til stóð. Þegar á reyndi stóðust ekki þau atriði sem um var rætt og þvf hætti hann við. Hann æfir nú með Skagamönnum. búninginn. Við verðum einfaldlega að vera með í lokaundirbúningn- um. Við verðum að komast," sagði Sigurður að lokum og var ekki annað á honum að heyra en hann væri fullur áhuga og vilja á að vera með á lokasprettinum. Tvíframlengt: Haukar unnu HAUKAR sigruðu Keflavík naum- lega f átta liða úrslitum bikar- keppninnar með 107 stigum gegn 106 f æsispennandi leik, sem tví- vegis þurfti aö framlengja áöur en úrslit fengust. Keflvíkingar leiddu mest allan leikinn og varð munurinn þá mest- ur 9 stig þegar ein mínúta var til hálfleiks. f hálfleik var staðan 42—37 og þegar venjulegum leik- tíma var lokið 86—86. Þá hafði Pálmar Sigurðsson skorað síðustu 16 stig hálfleiksins fyrir Haukana, en hans var gætt mjög vel í fyrri hálfleik og til marks um það er að hann skoraði ekki stig fyrstu 12 mínútur leiksins. Keflvíkingar byrjuðu betur í fyrri framlengingunni og þegar örfáar sekúndur voru eftir höfðu þeir þriggja stiga forskot, 94—91. Þá var brotið á Pálmari og hann skor- aði úr öllum þremur vítaskotunum þegar leiktíma var lokið. í síðari framlengingunni var staðan 106—105 fyrir Keflavík þegar 19 sekúndur voru eftir, en Webster skoraði síðustu körfu leiksins fyrir Haukana 4 sekúndum fyrir leikslok. Langbestur Haukanna var Pálmar, sam skoraöi 36 stia. Þá voru þoir einnig góöir fvar Webster og Olafur Rafnsson, sam skoruöu 20 og 26 stig. Jón Kr. Gíslason, Guöjón Skula- son og ólafur Gottskálksson voru bestir Keflvfkinga, Jón og Guöjón skoruöu 35 og 31 stig. Ómar Scheving og Kristinn Albertsson daemdu leikinn mjög vel. —ÓT. I Frá júdómótinu á laugardaginn. Drengjameistaramót íjúdó: Akureyringar sigursælir DRENGJAMEISTARAMÓT júdó- sambandsins var haldið í íþrótta- húsi Kennaraháskólans um sfð- ustu holgi og mættu alls 70 kepp- endur frá fimm fólögum til leiks. Júdómenn frá Akureyri voru sig- ursælastir á þessu móti, þeir unnu til 13 verölauna, þar af 5 gull, í mótinu. Keppt var í sjö þyngdarflokkum á mótinu og þremur aldursflokk- um. Flestir þátttakendur komu frá Ármanni, alls 26, og frá Akureyri mættu 19 keppendur. Keppnin var ákaflega fjörug og skemmtileg á að horta og sýndu hinir ungu sveinar í mörgum tilfell- um falleg brögö og tækni. Sigurvegarar urðu eftirtaldir: 9-10óra: ÓmarÁrnason, ÍBA 11-12óra,-37kg: Sævar Sigsteinsson, IBA 11-12óra,-46kg: Haukur Garðarsson, Á 11-12ára,+46kg: Jón Gunnar Bernburg, JR 13-14 ára,-46 kg: Stefán Bjarnason, ÍBA 13-14 ára,-63 kg: Auðjón Guðmundsson, IBA 13-14 ára, +63ára: Gauti Sigmundsson, IBA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.