Morgunblaðið - 02.02.1986, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.02.1986, Blaðsíða 1
104 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 27. tbl. 72. árg._______________________________ SUNNUDAGUR 2. FEBRÚAR1986____________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins I Clint Eastwood býður sig fram til borgarstjóra Carmel, Kalifomíu, 1. febrúar. LEIKARINN Clint Eastwood, sem hefur getið sér orðstir fyrir að leika harðsoðnar hetjur óhræddar við að taka lögin i sinar hendur, ætlar að bjóða sig fram til borgar- stjóra í borginni Carmel í Kali- forniu. „Vandamál blasa við þorpinu okkar og hvorki núverandi borgar- stjóri né bæjarráð hafa reynst þess megnug að leysa þau,“ sagði East- wood þegar hann gekk frá framboði sínu á fimmtudag. Á kránni „Andardráttur villigalt- arins" hangir þegar slagorðið „kjósið Eastwood borgarstjóra" á vegg. Kosningarnar verða 8. aprfl. Mexíkanar lækka olíuverð Mexíkóborg, 1. febrúar. AP. MEXÍKANAR lækkuðu í dag verð á olíu til að halda hlutdeild sinni í olíumarkaðinum. Eftir lækkunina selja Mexíkanar tunnu af fínni hráolíu, Ishtmus- olíuna, á 20 dollara miðað við 25,85 dollara i desember, og tunnu af þyngri hráolíu, Maya-olíu, á 16,25 dollara, miðað við 21,75 dollar í desember. Mexíkanar eru mjög háðir olíu- sölu vegna gífurlegra erlendra skulda. Mun verðlækkunin því ein- ungis verða til þess að auka á vandann. SKRAFAÐ EFTIR SKÓLA Rannsóknin á orsökum sprengingarinnar í Challenger: Blossi úr hliðar- flauer aðalorsök? V__t Kanaveralhöfða, 1. febrúar. AP. SÉRFRÆÐINGAR bandarísku geimvísindastofnunarinnar, NASA, telja nú líkiegast að eldtungur úr hægri hjálparflaug geimfeijunnar Challenger hafi brennt gat á eldsneytistankinn með þeim afleiðingum að tankurinn splundraðist. Rannsóknarmenn hafa skoðað rækilega kvikmyndir af feijunni og virðist þeim þar koma fram að logar standi út um rifu efst á hjálparflauginni, að sögn heimildarmanna, sem ekki vildu láta nafns síns getið. Þá er haft eftir Sam Bedding- field, föður geimferjuáætlunarinn- ar, sem nú hefur látið af störfum vegna aldurs, að „blússlampakenn- ingin“ væri líklegasta skýringin á slysinu, þ.e. að blossi úr annarri hjálparflauginni hefði brennt gat á eldsneytistankinn. Hann sagði að taka mundi í mesta lagi hálft ár að leiða í ljós hvað gerðist, en jafn- vel kynni svo að fara að aldrei kæmi í ljós hvers vegna. Annar möguleiki er að blossi úr hjálparflaug hafi kveikt í kveikju- þræði sérstaks sprengibúnaðar á eldsneytisflauginni. Búnað þennan skyldi nota ef granda þyrfti feijunni með fjarstýringu af jörðu niðri, t.d. ef hún tæki upp á því að fara af leið. New York Times skýrir frá því í dag að athuganir NASA hafi leitt í ljós að afl hafi minnkað skyndilega um 10 sekúndum áður en feijan splundraðist. Segir blaðið að sér- fræðingar telji líklegustu skýring- una vera að logað hafi út um sprungur á hægri hjálparflauginni. NASA gefur á morgun, sunnudag, út fréttatilkynningu um gang rann- sóknarinnar. Leit að braki úr feijunni verður haldið áfram í dag og verða frosk- menn og fjarstýrðir dvergkafbátar notaðir til að ganga úr skugga um hvort stór þúst, sem fundist hefur á hafsbotni, sé áhafnarklefi feij- unnar. CLINT EASTWOOD Ösló: Neitað um áritun til Sovétríkjanna Ósló, 1. febrúar. KráJan Erik Uure, fréttaritara Morgunblaðsins, þjóða ( milli en í því efni hafi Stein- feldt brugðist þegar hann var dag til Indlands. Kvaðst hann vera kominn „sem þjónn samein- ingar og friðar til lands, sem er rist djúpum sárum vegna trúar- ofstækis." Herskáir hindúar brenndu brúður af páfa og hróp- uðu: „Syndugi páfi, snúðu heim.“ Páfinn hélt ræðu á flugvellinum í Nýju Delhí við komuna. „Ég get fullvissað ykkur um að kirkjan er ætíð reiðubúin að leggja sitt af mörkum til að stuðla að sameiningu og bræðralagi meðal þjóðarinnar, og efla réttlæti, kærleik og frið.“ Lauk Jóhannes Páll ræðu sinni á hindí-orðunum ,jai Hind“ eða „lengi lifi Indland", Herskáir hindúar hafa mótmælt heimsókn páfa og sagt að hann sé eingöngu kominn til að vinna mú- hameðstrúarmenn til kristinnar trú- ar. Múhameðstrúarmenn eru um 80 prósent þjóðarinnar, en kristnir aðeins 3 prósent. Rúmlega 200 lögreglumenn bældu niður óeirðir um 70 öfga- manna. Þeirra á meðal var Gopal Godse, bróðir tilræðismannsins, Jóhannes Páll páfi II sem skaut Mohandas Gandhi til bana. Öfgamennimir brenndu brúðu af páfa og hrópuðu „fari páfinn fjand- ans til“ og „páfinn er á mála hjá CIA“. Vegna þeirrar andstöðu, sem heimsókn páfa hefur mætt á Ind- landi, verður öryggisvarsla tvíefld þar til hann fer frá Bombay 10. febrúar. SOVESKA sendiráðið f Ósló hefur neitað sjónvarpsfrétta- manninum Hans Wilhelm Stein- feldt um vegabréfsáritun til Sovétríkjanna. Þangað ætlaði Steinfeldt til að fylgjast með þingi kommúnistaflokksins. Sovétmenn vísa til lokaákvæða Helsinki-sáttmálans og segja, að þar sé ekki gert ráð fyrir, að sér- hvert land ráði því hveijir sendir séu til einhvers annars lands. Þar sé þvert á móti tekið fram, að vinna skuli að friði og auknum skilningi fréttaritari norska ^jónvarpsins í Moskvu fyrir tveimur árum. Þá vann Steinfeldt ekki að því að treysta friðinn, segir sovéski sendi- herrann. Bjartmar Gjerde, útvarpsstjóri, vísar þessum orðum sovéska sendi- herrans á bug og segir, að Stein- feldt hafi staðið sig frábærlega sem fréttaritari í Moskvu þótt Kremlar- herramir hafi ekki alltaf kunnað að meta skrifin. Páfi á Indlandi: Kem sem þjónn sam einingar og friðar Nýju Delhí, 1. febrúar. AP. JÓHANNES Páll páfi II kom f
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.