Morgunblaðið - 04.02.1986, Blaðsíða 46
46
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. FEBRÚAR1986
COSPER
Eiríkur Hauksson:
Iista rásar tvö.
Konungshjón
Belgíu
Það eru 25 ár síðan þau giftu
sig Fabiola og Baudouin,
konungshjónin í Belgíu, og áttu
silfurbrúðkaup fyrir nokkru. Belgar
eru afskaplega stoltir af parinu, en
það hefur ætíð skyggt á gleðina
að þeim skyldi ekki auðnast erfingi.
Þau hafa ætíð haldið nánu sam-
bandi við Philippe sem er sonur
Alberts prins og kemur til með að
taka við krúnunni seinna meir.
Þessi mynd var tekin í desember
siðastliðinn á silfurbrúðkaups-
degi þeirra hjóna.
Konungshjón Belgiu, Fabiola og
Baudouin. Hundurinn er fjöl-
skyldumeðlimur.
EIRÍKUR HAUKSSON
„Þetta er draumur
popparans, að geta
lifað af tónlistinni“
Hann á tvö lög á vinsældalista
rásar tvö þessa dagana,
annað tijónar í fyrsta sæti, lagið
Gaggó Vest, og síðan er lagið Gull
í þriðja sæti.
„Þegar ég ákvað að syngja þessi
tvö lög fyrir Gunnar Þórðarson á
plötuna Reykjavíkurbrag bjóst ég
alls ekki við slíkum viðbrögðum og
þetta hefur allt gerst með svo skjót-
um hætti," sagði Eiríkur Hauksson.
Hann sagðist hafa verið viðriðinn
„bransann í tíu ár, kvaðst sextán
ára gamall hafa byijað að leika
með bílskúrshljómsveitum svona
eins og gerist og gengur og smám
saman hafi tónlistin farið að taka
meiri tíma en önnur áhugamál. Svo
fór að lokum að hún tók orðið allan
frístundatírnann. „Maður hefur
verið að skipta um hljómsveitir og
beijast þetta áfram og ekki hafa
hlutimir ætíð gengið of greiðlega."
Inntur eftir því hvemig það væri
nú að vera allt í einu á toppnum,
mikið í fjölmiðlum og orðinn þekkt-
ur, sagði hann að það hefði lftið
reynt á vinsældimar enn sem komið
er. „Þetta hefur þó ýmislegt gott í
för með sér, ég get í augnablikinu
framfleytt fjölskyldunni á tónlist-
inni og það er draumur popparans
að geta lifað af henni. En ég geri
mér fyllilega grein fyrir því að þetta
er lítið land og fallið niður getur
orðið jafn skjótt og framinn. Þegar
talið berst að því hvað sé framundan
hjá honum, tjáir Eiríkur blaðamanni
að til standi jafnvel að hann taki
að sér hlutastarf í kennslu fram á
vor, (Eiríkur er kennari að mennt)
og verði svo auðvitað í Broadway
áfram. „Ég er líka ákveðinn í að
koma hljómplötu á markaðinn með
vorinu og er núna að byija að vinna
að henni.
Þetta á að verða léttrokkuð plata
með íslenskum textum. Ég er að
fara á fullt að semja núna, en ef
til vill nota ég líka lög annarra. Ég
hef af og til leikið „kassagítartón-
list“ á Ölkeldunni og hver veit nema
ég komi þar fram af og til. Annars
Á lagið { fyrsta og þriðja sæti á vinsælda-
Morgunblaðið/Bjarni
er þetta óvissutímabil hjá mér núna,
ég veit ósköp lítið hvað er framund-
an.“
Þegar blaðamaður spyr hvort
lögin Gaggó Vest og Gull séu f
uppáhaldi hjá honum segir hann:
„Fyrir mér er þetta bara eins og
önnur dægurtónlist og hún er ágæt
sem slík. Ég er eiginlega alæta á
tónlist þó svo að hingað til hafi
þungarokkið átt mikið í mér. Að-
spurður hvort hann hafi tíma til að
sinna nokkru öðru en fjölskyldunni
og tónlistinni þessa dagana segir
hann íþróttir skipa stóran sess hjá
mér og þá sérstaklega fótboltinn.
Annars er handboltinn að vinna
á, þeir eru orðnir svo góðir."
Og þar með var Eiríkur rokinn
af stað að sækja dótturina Hildi í
fímm bíó.
Manninn þinn? Nei, við höfum ekki séð hann.
Á innfelldu myndinni eru Baryshnikov og Isabella Rossilini í einu atriði myndarinnar „White Nights".
Baryshnikov
að leika í kvikmynd
Baryshnikov sem er 37 ára
balletdansari kom frá Sovét-
ríkjunum til Bandaríkjanna fyrir
rúmum áratug. Hann hefiir að
undanfömu verið að leika í kvik-
myndinni „White Nights". Þar leik-
ur Baryshnikov rússneska ballett-
stjömu sem átta ámm eftir flótta
frá Sovétríkjunum lendir í greipum
landa sinna á ný. Myndin var að
hluta til tekin í norður Finnlandi
og segir Baryshnikov að það sé það
næsta sem hann hafi komist föður-
landinu í ellefu ár, en þó hafí hann
hvorki fundið til taugaóstyrks né
heimþrár.
Þegar hann bjó í Sovétríkjunum
hafði hann ýmis forréttindi svo sem
glæsivagn og góða íbúð, en það sem
hann þarfnaðist og þráði var frelsi
til að ferðast þegar hann vildi til
útlanda og vina sinna.
En hvomgt leyfðist honum og
því fór sem fór. Þess má geta að
Baryshnikov á eina dóttur með leik-
konunni Jessicu Lange og sú litla
eyðir miklum tíma með pabbanum,
var meðal annars mikið með honum
meðan á upptökum stóð.